Morgunblaðið - 22.09.1993, Page 7

Morgunblaðið - 22.09.1993, Page 7
B 7 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 6.000 bókatitlar og erlendur gagnabanki Sjávarútvegsbókaafnið veitir upplýsingar um veiðar og vinnslu tímarit og auk þeirra finnast þar um 6.000 bókatitlar. Hlutverk safns- ins er að safna saman og veita sem gleggstar og aðgengilegastar upplýsingar um sjávarútveg og þær fræðigreinar sem tengjast hon- um. SJÁVARÚTVEGS- BÓKASAFNIÐ er sam- eiginlegt bókasafn Haf- rannsóknastofnunar og Rannsóknastof nunar fiskiðnaðarins. Safnið fær reglulega um 800 Smári Hermannsson, sölustjóri, Snæbjörn Sveinsson, tæknifræðingur, Luis Barreras, framkvæmdasljóri ASEGA og Ásgeir Erling Gunnarsson á bás Rafboða-Rafurs Rafboði-Rafur hf. selur togvindukerfi í Víði EA Fengið einkaumboð fyrir hóp skipasmíðastöðva á Spáni um sölu á togvindukerfi í togarann Víði, sem er í eigu Samheija á Akureyri. Það eru nýjar togvindur með mótorum og öllum stjórnbún- aði, hliðstætt kerfi, sem sett var um borð í Skutul IS. „Síðan er búið að handsala við okkur pöntun á öllum móturum og sljórnbúnaði fyrir togvindur og hjálparvindur fyrir nýsmíðina fyrir Hrönn hf. á Isafirði, sem nú gerir Guðbjörguna út. Þetta hvort tveggja er liðugar hundrað milljónir og vinna fyrir verkstæði okkar fram á næsta ár og því afar mikilvægt fyrir okkur,“ segir Ásgeir Erling Gunnarsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. RAFBOÐI- RAFUR hf. í Garðabæ hef- ur nú gengið frá samningi Sjávarútvegsbókasafnið er stað- sett í Húsi sjávarútvegsins að Skúlagötu 4 og varð til við samein- ingu bókasafna Hafrannsókna- stofnunar og RF fyrir þremur árum. Að sögn Eiríks Þ. Einarssonar, deildarstjóra safnsins, stendur þjónusta þess öll- um til boða en mest áhersla er þó lögð á að þjóna starfs- mönnum þeirra stofnana sem það heyrir undir. Eiríkur segir að ásókn í safnið hafi aukist nokk- uð á undanförn- um árum, eink- um frá aðilum utan RF og Hafró eins og framhaldsskóla- og háskólanemendum og kennur- um, auk fyrirtækja í fiskiðnaði. Bækur eða tímarit eru þó aldrei lánuð út úr húsi en aðstaða til vinnu og ljósritunar er góðfúslega látin í té. Safnið sér einnig að mestu leyti um að dreifa útgáfu Hafró og RF og er þar aðallega um að ræða skýrslur og fræðsluefni. Safnaðí gagnabanka Bóka- og tímaritakostur safnsins er fjölbreytilegur og er mest um bækur á sviði fiskifræðþ.sjávarh'f- fræði, haffræði, fiskeldis, matvæla- fræði, og fiskiðnaðar en einnig má finna þar efni um efnafræði, eðlis- fræði, líftækni og jafnvel jarðfræði. Bókatitlar eru um 6.000 talsins en auk þess fær safnið reglulega um 800 tímarit. Á síðustu árum hefur verið unnið að því að tölvuvæða safnið og segir Eiríkur að það verk séu um það bil hálfnað. Þá er unn- ið að því að skrá allt sem íslenskir sérfræðingar skrifa um haf- og fiskirannsóknir í einn gagnabanka og er nú þegar töluverð eftirspurn eftir þeirri þjónustu. Eiríkur segir að starfsmenn safnsins séu boðnir og búnir til að aðstoða fyrirtæki og einstaklinga í sjávarútvegi eftir megni. „Mér finftst að ýmsir hagsmunaaðilar í sjávarútvegi mættu nýta sér safnið betur, einkum lítil fyrir- tæki sem hafa ekki tök á að kaupa margar bækur eða tíma- rit. Við höfum til dæmis úrval tímarita um ýmis mál fiskiðnaðar- ins og er öllum frjálst að koma hingað og glugga í þau^eða óska eftir ábendingum um áskriftir.“ Sjávarútvegsbókasafnið tekur virkan þátt í erlendu samstarfi og er í sambandi við fjölmörg söfn og gagnabanka í útlöndum. Það er í Alþjóðasamtökum bókasafna í haf- og fiskifræði og er Eiríkur nú for- • seti samtakanna. „Við þurfum ekki að örvænta þótt við finnum ekki umbeðnar upplýsingar hér hjá okk- ur því að vegna tengsla okkar er- lendis erum við vel í stakk búnir til að nálgast upplýsingar í útlend- um söfnum og gagnabönkum. Við höfum til dæmis lagt áherslu á að safna saman upplýsingum um ýms- ar nýjungar sem koma upp, svo sem um búraveiðar og -vinnslu að ógleymdum ígulketjum. Menn fara af meiri gætni í fjárfestingar nú en áður og eru viljugri til að kynna sér reynslu annarra þjóða. Eg hvet því menn hiklaust til að leita til okkar ef þá vantar upplýsingar um hvað eina sem viðvíkur sjávarút- vegi,“ segir Eiríkur. „Sjávarútvegsýningin gekk mjög vel hjá okkur og var miklu meira líf en við áttum von á. Við höfum einn- ig fengið fyrirspurnir að utan, en við höfum líka lagt áherzlu á sölu á Pétur kynnti kosti Markúsarnets- ins svokallaða á íslensku sjávarút- vegssýningunni 1993, en upphafs- maður þess og hönnuður var tengda- faðir hans, Markús B. Þorgeirsson, sem lést árið 1984. Upp frá því hef- ur Pétur haldið uppi merki Markús- arnetsins og hin síðari ár lagt ofur- kapp á gildi fræðslu sjómönnum til handa. „Hver áhöfn þarf að líta á sig sem björgunarhóp enda eru. áhafnir í flestum tilvikum næstir slysum á sjó. Með tilkomu flotvinnu- galla og neyðargalla um borð munu líkur aukast á því í framtíðinni að menn, sem tapast, finnist kaldir og fljótandi á þafí úti fremur en drukkn- aðir. Menn, sem þannig er ástatt um, verður að taka upp varlega í láréttri stöðu, með höfuð lægra en hné svo ekki skapist hætta á heila- blóðfalli, jafnvel þó ekkert lífsmark finnist með þeim. Nú hefur nefnilega sannast að læknar hafa yfir að ráða búnaði og þekkingu til að koma manni, sem kólnað hefur niður und- ir 20 gráður á Celcius til eðlilegs lífs aftur svo fremi að viðkomandi hafi verið tekinn rétt upp,“ segir Pétur. Börur til bjargar Frumkvöðullinn, Markús B. Þor- geirsson, hóf kynningu um landið á Markúsarnetiuu árið 1983 með stuðningi björgunarsveita vítt og breytt. I farteskinu hafði hann flot- notuðum skipum frá Spáni og höfum tekið að okkur umboð fyrir spánskar skipasmíðastöðvar, sem hafa mynd- að hópinn ASEGA. Fyrir forgöngu fylkisstjórnar Galisiu var ASEGA, vinnugalla, sem segja má að hafi verið barn síns tíma, og mönnum varð að orði að aldrei færu þeir í slíkar yfirhafnir. Fljótlega fór netið að sanna gildi sitt og menn fóru í alvöru að ræða öryggi á sjó, að sögn Péturs, enda þarf ekki annað en að líta á söguna síðan þá til að .sannfær- ast um að alvara fylgdi máli. Slysa- varnaskóli sjómanna var stofnaður 1985. Reglur um að íslensk skip skyldu búin Markúsarneti tóku gildi í ársbyijun 1986. Að frumkvæði Landssambands íslenskra útgerðar- manna voru keyptir neyðargallar á alla sjómenn í landinu 1987 án þess að reglugerð skyldaði slíka fjárfest- ingu. Mikil hugarfarsbreyting hafði átt sér stað á fáum árum og árið 1989 kom að því að sjómenn sjálfir fóru að kaupa flotvinnugaila. I dag gerist það svo að heilu áhafnirnar æfa það að senda mann í sjó, öðrum til bjargar. Það nýjasta í þróunar- starfi fyrirtækisins eru börur til að taka menn upp úr sjó í þyrlur og skip með krana. Sú framleiðsla er enn ekki komin á markaðinn, en meiningin er að koma búnaðinum um borð í nýja björgunarþyrlu Land- helgisgæslunnar áður en lengra verður haldið. „Með því að menn æfi að fara í sjóinn í flotvinnugöllum og blotni í köldum sjó, fari í læknisskoðun og fræðist síðan um viðfangsefnið vinnst þrennt að mínu mati,“ segir sem eru samtök 7 einkarekinna skipasmíðastöðva í Galisíu, stofnuð um mitt síðasta ár. Meginmarkmiðið með þeirri stofnun er kynning, stjórnun og hagsmunagæzla í þeim tilgangi að afla verkefna á alþjóðleg- um markaði. í því sambandi ábyrg- ist fylkisstjórn Galisíu alla skipa- smíðasamninga ASEGA, en í Galisíu hafa margir íslenzkir togarar verið smíðaðir. Á sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll var gengið frá samningi milli ASEGA og Rafboða- Rafurs hf. um einkaumboð á íslandi fyrir ASEGA, en fyrir hafði Rafboði- Rafur einkaumboð fyrir spilframleið- andann IBERCISA í Vigo og Galis- iu, sem jafnframt rekur söluumboð fyrir notuð skip,“ segir Ásgeir Erl- ing. Pétur. „í fyrsta lagi fá sjómenn auk- in skilning á örygginu um borð og þar með stöðu sinni ef eitthvað bját- ar á. í öðru lagi minnkar áhætta björgunarmanna, sem fara eftir fé- lögum sínum í sjóinn. í þriðja lagi fá skipstjórar vitneskju um hveijir áhafnarmeðlima eru hæfastir til að faraTeftir öðrum í sjóinn.“ Ákveðin hugsun Pétur segir að í gegnum netið sé hægt að fræða sjómenn um allt það, sem snerti „Maður fyrir borð - Ör- yggi“. Netið sé þannig hannað að einn björgunarmaður geti sótt mann í sjó og tryggt öryggi sitt um leið. „Það gefur möguleika á alls konar björgunaraðgerðum, hvort sem menn eru sitjandi, standandi eða liggjandi í netinu. Eins og ég segi gjarnan þá má nota netið meðan hægt er að standa á dekki og stjórna skipi. En að mínu mati er fræðslu- giidið stærsta gildi netsins; það að koma í veg fyrir slysin í gegnum netið. Markúsarnetið kynnti ákveðna hugsun, sem stuðlað hefur að því að sjómenn eru í raun farnir að líta á sig sem björgunarsveit á hafi úti,“ segir Pétur, sem árið 1989 gaf út sérstakt fræðsluhefti um björgun manns úr sjó. óhætt er að fullyrða að Markús- arnetið njóti vinsælda víðar en á íslandi ef marka má eftirspurn. Netið hefur farið til fimmtán landa. Um 95% af framleiðslu fyrirtækisins fer til útlanda og eru helstu markað- irnir í Danmörku, Hollandi og Þýska- landi og fast á eftir fylgja markaðir á Spáni, Bretlandi og Bandaríkjun- um. Þá hefur konungur Óman séð ástæðu til að kaupa sér net, en Markúsarnet er einmitt a_ð finna um borð í konungssnekkju Óman. Auk þess hefur Pétur gefið út fræðslu- efni á átta tungumálum. BETRI PÖKKUNARNÝTING MEÐ NÝRRI HAUSINGAVÉL Uppfinningamaðurinn Jón Pálmason hefur hannað nýja hausinga- vél, sem ekki bara hausar, heldur kinnar og gellar þorsk, hausar og slægir karfa og hausar og kinnar keilu og steinbít. Vélin var kynnt á íslensku sjávarótvegssýningumii 1993 i sýningarbás Slipp- stöðvarinnar Odda þar sem hún kemur til með að verða fram- leidd. Vélin afkastar 27-32 fiskum á mínútu og skilar 2-3% betri pökkunamýtingu í þorski miðað við aðrar vélar, en það byggist á því að vélin lagar sig að fiskinum og nær hámarksnýtingu í hausun, að sögn Jóns. „Og menn segja að hækkun á nýtingu um eitt prósentustig þýði þrjá og hálfan milljarð í peningum. Með 2-3% aukinni nýtingu ætti vélin samkvæmt því að ná að fylla vel upp í fjárlagagatið," segir uppfinningamaðurinn. Vélin kostar 3,8 milijónir og er nú þegar í tveimur frystihús- um, Iijá Sæfrosti á Bíldudal og Fiskiðju Raufarhafnar þar sem orðið hefur 3% nýtingarauki á pakkningu frá því að vélin var þar tekin í notkun í júni sl. Eiríkur Þ. Einarsson, deildar- sljóri Sjávarútvegsbókasafnsins. Sjómenn líta nú á sig sem bj örgunarsveit á hafi úti Fræðslugildi er megin- þáttur öryggis á sjó „MIKIL vakning hefur átt sér stað um nauðsyn bjargbúnaðar um borð í bátum og skipum á síðari árum. Nú ríður á að sjó- menn fari að líta á það sem hluta af starfinu að læra um björgum úr sjó við verstu aðstæður og þjálfa sig sem björgunarmenn því á örlaga- stundu getur það verið of seint,“ segir Pétur Th. Pétursson, fram- kvæmdastjóri Björgunarnetsins Markúsar hf., sem undanfarin áratug hefur helgað sig viðfangsefninu „Maður fyrir borð - Öryggi“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.