Morgunblaðið - 28.09.1993, Qupperneq 1
56 SIÐURB
STOFNAÐ 1913
219. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sukhumi fallin í hend-
ur aðskilnaðarsinnum
Shevardnadze biðst fyrirgefningar á örlögum borgarinnar — Talinn vera í smábæ skammt frá
Tbilisi. Reuter.
Borgin yfirgefin
SKRIÐDREKAR georgíska
stjórnarhersins í Sukhumi í Abk-
hazíu í gær. Nokkru síðar féll
borgin í hendur aðskilnaðarsinn-
um. I tilfinningaþrungnu ávarpi,
sem Edúard Shevardnadze, leið-
togi Georgíu, sendi frá sér í gær
segir hann, að hundruð manna
hafi fallið í „villimannslegum
árásum“ aðskilnaðarsinna og
biður samtíðarmenn sína og eft-
irkomendur fyrirgefningar á að
borgin skuli vera fallin.
SUKHUMI, höfuðborgin í Abkhazíu, féll í gær í hendur aðskilnað-
arsinnum í héraðinu eftir blóðug átök í 11 daga. Edúard She-
vardnadze, leiðtogi Georgíu, sem stýrt hefur vörn stjórnarhers-
ins, neitar að fara fyrr en ljóst er hver verða örlög 20.000-30.000
manns, sem enn eru í borginni, en eftir heimildum er þó haft,
að hann sé ekki í sjálfri Sukhumi, heldur í bænum Gulripshi
skammt frá. í tilfinningaþrungnu ávarpi, sem hann sendi frá sér
í gær, sakaði hann Rússa um að bera ábyrgð á falli borgarinnar
og bað landa sína fyrirgefningar á örlögum hennar.
„Sukhumi hefði mátt bjarga,
Rússar hefðu getað það. Við báðum
stjómina í Moskvu um aðstoð. Georg-
ía hefur verið beygð í duftið en jafn-
vel það var ekki nóg. Guð einn veit,
að ég gerði allt, sem ég gat, til að
þessi dagur rynni ekki upp en mér
mistókst. Ég vona, að samtíðarmenn
mínir og eftirkomendur fyrirgefí
mér,“ segir Shevardnadze í yfirlýs-
ingu, sem hann sendi frá sér í gær.
Hótaði að svipta sig lífi
Þykir síðasta setningin minna á
ummæli, sem rússneska vikuritið
Moskvufréttir hafði eftir Shev-
ardnadze fyrir nokkrum dögum, en
þá á hann að hafa sagt, að hann
myndi stytta sér aldur félli Sukhumi
í hendur aðskilnaðarsinnum. Hann
réð því gegn ráðleggingum herfor-
ingja sinna, að samið var við upp-
reisnarmenn um vopnahlé, sem þeir
rufu síðan, og því taldi hann sig
bera persónulega ábyrgð á örlögum
borgarinnar.
Shevardnadze sagði ennfremur,
að hundruð manna hefðu fallið í
Sukhumi í „villimannslegum árás-
um“ aðskilnaðarsinna, sem hefðu
komið í veg fyrir brottflutning
óbreyttra borgara. Iprinda- frétta-
stofan í Georgíu hafði það eftir Ge-
orgy Karkarashvili, varnarmálaráð-
herra Georgíu, að aðskilnaðarsinnar
hefðu leyft stjórnarhemum að yfir-
gefa Sukhumi. Menntamenn og
kirkjuleiðtogar í Georgíu skoruðu í
gær á Shevardnadze að koma aftur
til Tbilisi.
Gífurleg-
ur hagur
af GATT
Washington. Reuter.
NÝR GATT-samningur mun
auka heimsverslunina um 213
milljarða dollara á einum áratug
eða um miklu meira en áður var
talið.
Þetta nýja mat á áhrifum GATT-
samnings kemur fram í skýrslu frá
Alþjóðabankanum og segir einn
höfunda hennar, hagfræðingurinn
Ian Goldin, að það sé þó mjög
íhaldssamt. Telur hann, að nýr
GATT-samningur muni koma sér
mjög vel fyrir iðnvæddu ríkin en
gagnast þó öllum vel, ekki síst þró-
unarríkjunum og ríkjunum í Aust-
ur-Evrópu.
Rússar með
uppreisnarmönnum?
Eyrr í gær sendi Shevardnadze frá
sér annað ávarp þar sem hann sagði,
að Sukhumi félli bærist ekki liðsauki
frá stjórnarhernum strax. „Okkur
hefur engin hjálp borist frá stjórnar-
hernum í Ochamchira hvernig sem á
því stendur. Nú er ekki lengur um
daga að tefla, heldur klukkustundir
og mínútur,“ sagði Shevardnadze en
þá voru uppreisnarmenn farnir að
nálgast miðborg Sukhumi. She-
vardnadze hefur margoft neitað boði
Rússa um að flytja hann burt frá
Sukhumi.
Shevardnadze sakar ekki Rússa
aðeins um að hafa látið Sukhumi
falla í hendur aðskilnaðarsinnum,
heldur, að rússneskir hermenn séu
uppistaðan í hersveitum uppreisnar-
manna. Þar að auki sé um að ræða
málaliða ofan úr Kákasusfjöllum,
sem hafi verið heitið hluta af her-
fanginu.
Reuter
Bill Clinton Bandaríkjaforseti ávarpar allsheijarþingið
Hafnar einangrun-
ar og vemdarstefnu
New York. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti flutti sína fyrstu ræðu á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í gær og hafnaði þar vernd-
arstefnu og einangrunarhyggju, sagði að Bandaríkjamenn myndu
áfram taka virkan þátt í starfi stofnunarinnar. Lagði hann hins
vegar til að starfsemi hennar yrði stokkuð upp og gerð skilvirkari.
Clinton sagðist hafa verið upp-
tekinn af innanlandsmálum frá því
hann tók við embætti forseta í
byijun árs en kvaðst ekki mundu
gleyma alþjóðamálunum „því ein-
angrunarhyggja og verndarstefna
væru eitur“. Sagði hann, að lyktir
kalda stríðsins veittu ný tækifæri
til að hefta útbreiðslu kjarnavopna.
Allsherjartilraunabann
Hvatti Clinton til alþjóðasamn-
inga sem bönnuðu framleiðslu plút-
óníums og auðgaðs úrans en hann
sagði vaxandi birgðir af þessum
efnum auka hættuna á „kjarnorku-
hryðjuverkum“ um heimsbyggðina
alla. Jafnframt hvatti hann til alls-
heijarbanns við tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Clinton hvatti ríki heims einnig
til þess að staðfesta alþjóðasátt-
mála um efnavopn en öldungadeild
Bandaríkjaþings hefur enn sem
komið er ekki staðfest sáttmálann.
Ennfremur lagði Clinton forseti
til að endurskoðaður yrði sá þáttur
í starfi SÞ sem lyti að friðargæslu,
þann veg að möguleikar á að senda
hersveitir til gæslustarfa yrðu
þrengdir og hlutverk gæslusveita
gert skýrara. Ennfremur að hlutur
Bandaríkjamanna minnkaði en
samkvæmt reglum frá 1973 bera
þeir 30% kostnaðar stofnunarinnar
af friðargæslu.
Loks hvatti Bill Clinton til, að
fundnar yrðu leiðir til að hægja á
mannfjölgun, kvað það boða hörm-
ungar fyrir allan heim ef svo færi
sem horfði, að mannfjöldinn tvö-
faldaðist fram til miðrar næstu
aldar.
Reuter
Allsherjarþingið
ávarpað
CLINTON Bandaríkjaforseti
sagði í ávarpi sínu á allsheijar-
þingi SÞ, að sljóm sín myndi
leggja mikla áherslu á alþjóðamál.
Rússland
Málamiðl-
unum vís-
að á bug
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlands-
forseti vísaði í gær af-
dráttarlaust á bug öllum
hugmyndum um að efnt yrði
til forsetakosninga samtím-
is þingkosningum. Hann
hefur boðað þingkosningar
í desember, forsetakjör í
júní nk.
Jeltsín hafnar öllum mála-
miðlunum í deilunum við þingið
og Rúslan Khasbúlatov þing-
forseti er hvað þetta snertir
sammála. „Eina málamiðlunin
sem ég get ímyndað mér er sú
að Jeltsín ógildi tilskipanir sínar
og þá skulum við sjá hvað
hægt er að gera við hann.“
Grígoríj Javlínskíj, hagfræð-
ingur og væntanlegur forseta-
frambjóðandi, ræddi við
Rútskoj á sunnudag og sagðist
telja að hann hefði ekki lengur
neina stjórn á gangi mála í
Hvíta húsinu, hann væri ein-
angraður og harðlínukommún-
istar hefðu æ meiri áhrif á gerð-
ir hans.
Sjá fréttir á bls. 22.