Morgunblaðið - 28.09.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
Þorsteinn Pálsson um ummæli við-
skiptaráðherra í Morgunblaðsviðtali
Vona að Sighvatur
hafi manndóm til að
biðjast afsökunar
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra kveðst vonast til
að Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra hafi manndóm
til að bera til að biðjast afsökunar á ummælum sínum í frétt
í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Þar sagði Sighvatur að aðal-
ástæða fyrir erfiðleikum bankanna séu útlánatöp vegna lána
til sjávarútvegsfyrirtækja og í mörgum tilfellum hafi þau lán
verið veitt vegna þrýstings frá stjórnvöldum, meðal annars frá
sjávarútvegsráðherra. Sighvatur sagði einnig í viðtalinu að
Þorsteinn hefði skorið niður veiðikvóta til fyrirtækja sem hafi
valdið því að þau hafi ekki getað staðið í skilum.
„Ég ætla ekki að fara fram á
það við Sighvat að hann biðjist
afsökunar. Eg ætla að bíða og sjá
hvort hann hefur manndóm til
þess. Geri hann það ekki er hann
minni maður á eftir,“ sagði Þor-
steinn.
Þungar ásakanir í allar áttir
Hann kvaðst ekki hafa trú á því
að ummæli af þessu tagi gætu leitt
til stjórnarslita en „það hlýtur
flestum að vera ljóst að ásakanir
af þessu tagi eru gjörsamlega úr
lausu lofti gripnar og ég skil ekki
með nokkru móti hvað veldur því
að viðskiptaráðherra ber ásakanir
af þessu tagi á samstarfsráðherra
sinn. Ég minnist þess ekki að slíkt
hafi verið gert áður.
Það er athyglisvert og viðskipta-
ráðherra ætti að huga að því hvaða
fyrirtæki það eru sem bankarnir
eru helst að tapa á. Ég ráðlegg
honum að skoða það áður en hann
ræðst að sjávarútveginum með
þessum hætti," sagði Þorsteinn en
vildi ekki fara nánar út í þá sálma.
„Auk þess er óhjákvæmilegt að
hann geri nánari grein fyrir full-
yrðingum sínum um að bankastjór-
ar hafi brotið lög með því að láta
stjórnmálamenn ákvarða útlán.
Þetta eru þungar ásakanir í allar
áttir og ekki síst eru þetta þungar
ásakanir á bankastjórana. Hann
heldur því fram að bankastjórar
hafi brotið lög,“ sagði Þorsteinn.
Morgunblaðið/MHM
BIFREIÐIN fjarlægð af slysstaðnum skammt sunnan við Hólmavík.
Ok á hross o g lést
SAUTJÁN ára gamall piltur,
Kjartan Friðgeir Þorsteins-
son, lést í bílslysi skammt
fyrir sunnan Hólmavík eftir
að bifreið hans ók á hross
sem þar var á veginum. Slys-
ið varð um kvöldmatarleytið
á laugardag.
Tilkynning um slysið barst til
lögreglunnar á Hólmavík um
klukkan 20. Slysið var í Skelja-
vík þar sem eru hesthús Hólm-
víkinga. Eftir að bíllinn rakst á
hestinn hentist hann út fyrir veg
og er talið að pilturinn hafi látist
samstundis.
Kjartan Friðgeir Þorsteinsson
var fæddur 30. júní 1976, til
heimilis að Hafnarbraut 33,
Hólmavík.
Kjartan Friðgeir Þorsteinsson
Húsnæðisstofnun lánar 1,2 milljarða til 200 félagslegra íbúða
Lán til að byggja 72
íbúðir í Reykjavík
HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN hefur samþykkt samtals 1,2
milljarða króna lán til 200 félagslegra íbúða og hafa
þá verið veitt lán til 500 slíkra íbúða á árinu. Sérstök
áhersla er lögð á byggðarlög á sunnanverðu landinu að
þessu sinni og renna flest lán til Reykjavíkur eða til
samtals 72 íbúða.
Steinn und-
irbýr lýð-
veldishátíð
STEINN Lárusson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Þjóð-
hátíðamefndar 50 ára lýðveldis
á íslandi, sem um þessar mundir
er að hefja undirbúning að því
að fagna afmæli islenska lýðveld-
isins þann 17. júní næsta sumar.
Steinn sagði í
samtali við Morg-
unblaðið að undir-
búningur hátíðar-
haldanna væri á
frumstigi og ekk-
ert lægi fyrir um
hvemig þeim yrði
háttað. Áðspurður
hvort um yrði að
ræða þjóðhátíð á
Þingvöllum líkt og þegar 1100 ára
afmælis íslandsbyggðar var minnst
1974 sagði Steinn að auðvitað hlytu
menn að beina augum sínum að
Þingvöllum fyrst og fremst. Hins
vegar hefðu engar ákvarðanir verið
teknar og ætti það við um flest sem
að þessu sneri annað en það að
hugmyndasamkeppni um merki lýð-
veldishátíðarinnar verður auglýst
fljótlega.
Reykjavíkurborg fær lán til 72
íbúða, þar af er lánað til fímm
leiguíbúða og átján kaupleigu-
íbúða, almennra og félagslegra
fyrir aldraða við Lindargötu og
49 til Húsnæðisnefndar Reykja-
víkur, að sögn Þórhalls Jósepsson-
ar, stjórnarmanns í Húsnæðis-
málastjórn. Þá fær Húsnæðissam-
vinnufélagið Búseti lán vegna
fimm búsetafélaga á höfuðborgar-
svæðinu og til tíu íbúða í Bessa-
staðahreppi, Hafnarfirði, Kópa-
vogi, Kjalarnesi og Reykjavík.
Lánað er til 27 íbúða í Kópavogi
og fimm íbúða í Garðabæ auk
tveggja íbúða Búseta í Garðabæ.
Mosfellsbær fær lán vegna fjög-
urra íbúða og Búseti í Mosfellsbæ
vegna tveggja íbúða. Keflavíkur-
bær fær lán vegna fimm íbúða,
Njarðvík vegna þriggja íbúða og
Sandgerði vegna tveggja íbúða
fyrir aldraða. Hreppsnefnd Eyrar-
sveitar fær lán vegna þriggja
íbúða og ísafjörður vegna sex
íbúða.
Lánað er til einnar íbúðar í
Reykhólasveit og vegna tveggja á
Sauðárkróki. Þá er lánað til
tveggja íbúða í Seyluhreppi, til
bæjarstjórnar Akureyrar vegna tíu
íbúða og Félag aldraðra á Akur-
eyri fær lán vegna fjögurra íbúða.
Grýtubakkahreppur fær til einnar
íbúðar, Fellahreppur til tveggja og
Selfoss til tveggja íbúða.
Námsmenn og fatlaðir
Byggingafélag námsmanna í
Reykjavík fær lán vegna þriggja
íbúða, félagsíbúðir iðnnema fá lán
til fimm íbúða og Félagsstofnun
stúdenta í Reykjavík til átta íbúða.
Til Öryrkjabandalagsins er lán-
að vegna tíu íbúða og Þroskahjálp
fær lán vegna fjögurra íbúða.
Styrktarsjóður Sólheima í Gríms-
nesi fær lán til þriggja íbúða og
Skálatúnsheimilið í Mosfellsbæ til
tveggja íbúða.
Steinn Lárusson
íþróttir
► ÍBV bjargaði sér frá falli
annað árið í röð - Vemharð
í dag
Ellefu til Washington
íslendingar eiga 11 fulltrúa, m.a.
ráðherra og bankamenn, á ársfundi
Alþjóðabankans 4
105 millj. til stjórnmálaflokka
Listi yfir framlög ríkissjóðs til at-
vinnuvega og ýmissa samtaka 19
Klúöur hjá FIDE
Seinni hluta einvígis Karpovs og
Timmans aflýst og soldáninn í
Óman afturkallar verðlaunafé 23
Leiðari
júdómaður æfir í Hollándi -
Selfoss áfram í Evrópukeppn-
Upplausnarástand í Georgíu 24 inni í handbolta.
Féllafþaki
og beið bana
TVÍTUGUR maður, Pétur Ingi
Þorgilsson, lést þegar hann féll
af húsþaki og niður í húsagarð
við húsið númer 14 við Brávalla-
götu aðfaranótt sunnudagsins.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu var tilkynnt um slysið á
fímmta tímanum um nóttina. Vitni
sem voru að atburðinum segja að
manninum hafi skrikað fótur á hálu
þakinu, en rignt hafði um nóttina,
og fallið niður í húsagarð að vestan-
verðu við húsið, sem er þriggja
hæða. Talið er að maðurinn hafi
komist upp á þak hússins númer
20 um verkpalla sem þar eru. Ekki
er vitað hvaða erindi hann átti upp
á þakið.
Pétur Ingi Þorgilsson var mynd-
Pétur Ingi Þorgilsson
listarnemi, til heimilis á Kapla-
skjólsvegi 39. Hann var fæddur 13.
janúar 1973.
Áhöfn á Guðnýju sýkn-
uð af bjarndýrsdrápi
Vilja
hræið
heim
SKIPVERJARNIR fimm á
Guðnýju ÍS 266 sem ákærðir voru
fyrir að hafa hengt bjarndýr sem
þeir fundu á sundi norður af
Horni 24. júní sl., voru sýknaðir
I gær í héraðsdómi Vestfjarða.
Þeir voru kærðir fyrir brot á
fyrstu málsgrein 9. greinar dýra-
verndunarlaga sem kveður á um
að þegar dýr eru deydd ber að
gæta þess að deyðing fari fram
með jafn hröðum og sársaukalitl;
um hætti og frekast er völ á. I
dómsniðurstöðu segir að ósannað
sé að dýrið hafi getað verið drep-
ið hraðar miðað við aðstæður,
eða að ákærðu hafi valdið því
þjáningum að nauðsynjalausu.
í vætti skipverja kom fram að
upphaflega hafi staðið til að ná
dýrinu lifandi um borð en þegar það
tók að beijast um, sammæltust
skipveijar um að óhjákvæmilegt
væri að deyða það. Til þess notuðu
þeir snöru sem þeir hertu að hálsi
skepnunnar, en engin skotvopn
voru um borð.
Fáar skorður við
veiðiaðferðum
Samkvæmt vitnisburði var dýrið
1 til 2 mínútur að gefa upp öndina.
Dómurinn féllst á þessa lýsingu á
málavöxtum og í niðurstöðu hans
segir: „Samkvæmt 7. grein tilskip-
unar um veiði á íslandi frá 20. júní
1849, sem ennþá eru gildandi lög
í landinu, má hver maður elta birni
og veiða hvar sem hann finnur og
á sá maður björn sem kemur fyrst-
ur á hann banasári. Tilskipun þessi
er fáorð um verndun dýra enda til-
gangur hennar fyrst og fremst að
vernda rétt manna til veiða og eign-
arrétt þeirra á veiðibráð. Eru veið-
iaðferðum þar fáar skorður settar.“
Jónas Jóhannsson, héraðsdómari,
kvað upp dóminn og sagði hann í
samtali við Morgunblaðið, að með
tilvísun til tilskipunarinnar væri
einnig staðfestur eignarréttur skip-
veija á hræi dýrsins og kröfu
ákæruvaldsins um upptöku þess
væri þvi synjað. Jón Guðni Péturs-
son, skipstjóri á Guðnýju ÍS, kvaðst
eiga von á því að skipveijar myndu
reyna að gera eitthvað í því að
heimta björninn aftur, en taldi of
snemmt að segja til hvaða aðgerða
þeir myndu grípa.
----♦ ♦ ♦--
Loðnuveiði
enn dræm
DRÆM veiði hefur verið á loðnu-
miðunum og hefur það tekið bát-
ana 4 til 5 daga að ná fullfermi.
Loðnan gengur til suðurs en
dreifist jafn óðum og er aðeins
veiðanleg langt norður í hafi.
Loðnuverksmiðjurnar eru í
gangi öðru hvoru þegar afli
berst. Um 370 þúsund tonn hafa
borist á land á vertíðinni.
Jón Kjartansson SU landaði 1.050
tonnum á Eskifirði í gær. Hjálmar
Ingvarsson stýrimaður sagði að loðn-
an hefði fengist í 20 köstum langt
norður í hafi.
Loðnan dreifð
Hann sagði að loðnan dreifði sér
jafn óðum og hún gengi til suðurs
og væri aðeins veiðanleg utan land-
helginnar. Hjálmar var bjartsýnn á
að veiðarnar kæmust á skrið þegar
suðurgangan kæmi nær landinu og
sagði langa reynslu fyrir því að lítið
veiddist eftir miðjan september en
veiðar færu vananlega að glæðast
þegar loðnan kæmi upp að landinu.