Morgunblaðið - 02.10.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
Tekjur af sölu eigna ríkisins á árinu 1993
Eignasala talin
skila 2-300 millj.
í stað 1.500 millj.
LJÓST er orðið að ríkissjóður raun ekki afla nema 200-300 milljóna
króna vegna sölu eigna ríksins á þessu ári en í fjárlögum ársins var
gert ráð fyrir að eignasaia skilaði ríkissjóði 1.500 milljónum króna.
Stafar þetta fyrst og fremst af því að engar ákvarðanir hafa verið
teknar um sölu á hlut ríkisins í lánastofnunum á árinu eins og ráð-
gert hafði verið.
Samkvæmt upplýsingum Skarp-
héðins B. Steinarssonar í fjármála-
ráðuneytinu nemur sala á hlut ríkis-
Fékk inn-
göngu í
Tsjajkovskíj
tónlistar-
háskólann
ARINBJÖRN Árnason, píanó-
leikari, hefur fengið inngöngu
í Tsjajkovskíj tónlistarháskól-
ann í Moskvu eftir að hafa
þreytt þar inntökupróf í
haust. Aðalkennari hans verð-
ur prófessor Lev Naumov.
Arinbjörn hlaut jafnframt
rússneskan námsstyrk sem
nægir fyrir skólagjöldum.
Arinbjöm er
fæddur árið
1971. Hann
lauk einleik-
araprófi í
píanóleik frá
Tónlistarskól-
anum f
Reykjavík árið
1991 og
stundaði síðan
framhaldsnám
í tvö ár við
Royal Scottish Academy of
Music and Drama í Glasgow í
Skotlandi. Undanfarin tvö sum-
ur hefur Arinbjöm sótt nám-
skeið í Þýskalandi hjá prófessor
Lev Naumov, sem mælti með
því að hann sækti um skólavist
við þennan virta skóla í Moskvu.
Þess má geta að Þómnn
Ashkenazí stundaði nám við
Tsjajkovskíj tónlistarháskólann
á sínum tíma.
Arínbjöm
Ámason
ins í íslenskri endurtryggingu 167
millj. króna. Einnig hefur tekist að
selja hlutabréf ríkissjóðs í Jarðbor-
unum hf. fyrir um 10 millj. króna
og er búist við að takist að selja
hlut ríkisins í fyrirtækinu fyrir ára-
mót en hann er nú 32%. Einnig er
ráðgert að seld verði hlutabréf ríkis-
ins í Þormóði ramma hf. fyrir ára-
mót en ríkið á 20% hlut í félaginu.
Á fjárlögum fyrir árið 1992 var
áformað að afla 1.100 millj. króna
með sölu eigna en niðurstaðan varð
sú að söluverðmæti eigna nam um
600 milljónum króna. Þar af voru
um 300 millj. bókfærðar sem eigin-
legar sölutelqur, en afgangurinn
var færður sem eignabreyting í
efnahagsreikningi.
Gengið til þings
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ALÞINGI íslendinga, 117. löggjafarþing, var sett í
alþingishúsinu við Austurvöll að lokinni guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni í gær. Að ofan sjást Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands, hr. Ólafur Skúlason,
biskup Islands (fremst), séra Frank M. Halldórsson,
sóknarprestur í Neskirkju, sem predikaði við guðs-
þjónustuna, Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, ráðherrar og
alþingismenn ganga úr kirkju í þinghús. Lögreglu-
menn stóðu að venju heiðursvörð meðan á setningu
þingsins stóð.
Sjá bls. 21 „Setning ..."
Hlutabréf fyrir 32,5 milljónir
seld í Skeljungi að undanförnu
UNDANFARNA daga hafa töluverð viðskipti verið með
hlutabréf í Skeljungi hf. Þannig hafa samtals verið seld
bréf fyrir um 7,9 milljónir króna að nafnverði á genginu
4,1. Markaðsvirði bréfanna nemur því um 32,5 milljónum
króna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er seljandi
bréfanna Fram hf. c/o Sigurður Einarsson í Vestmannaeyj-
um. Sigurður Einarsson vildi hins vegar ekki staðfesta það
í samtali við blaðið í gær. Lífeyrissjóður verslunarmanna
keypti hluta bréfanna, en ekki fékkst uppgefið hvaða aðra
kaupendur væri um að ræða.
Sjópróf eftir
10-12 daga
SJÓPRÓF verða haldin innan
skamms vegna ásiglingar sem
varð þegar danska skipið Sathelit
sigldi á Björgu VE 5 út af Surtsey
árdegis á miðvikudag.
Kristján Torfason hjá Héraðsdómi
Suðurlands sagði að rannsóknarlög-
reglan í Vestmannaeyjum hefði mál-
ið til athugunar en sjópróf færu fram
eftir 10 til 12 daga.
Samkvæmt hluthafalista á síðasta
aðalfundi Skeljungs 12. mars sl.
átti Fram hf. 3,03% í félaginu,
en frá þeim tíma og til þessa
hefur lítið verið um stærri við-
skipti með Skeljungsbréf eftir því
sem fram kemur í upplýsingum
frá Verðbréfaþingi. Fram var þá
áttundi stærsti hluthafinn, en er
nú ekki lengur meðal þeirra 15
stærstu með 1,34% hlutafjár eftir
að hafa selt sem nemur 1,69%.
Þorgeir Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær, að lífeyris-
sjóðurinn hefði keypt hlutabréf í
Skeljungi 23. september að nafn-
virði 3 milljónir króna eða 12,3
milljónir á markaðsvirði. Þá voru
skráð viðskipti með Skeljungsbréf
29. september að fjárhæð 2,5
milljónir á nafnverði á genginu
4,1 og daginn eftý- 2,4 milljónir
að nafnverði á sama gengi. Ekki
er ljóst hver keypti þessi bréf.
A síðasta aðalfundi átti Líf-
eyrissjóður verslunarmanna 2,0%
af heildarhlutafé Skeljungs sem
að nafnverði nam þá 469 milljón-
um króna að teknu tilliti til út-
gáfu 10% jöfnunarhlutabréfa sem
samþykkt var á aðalfundinum.
Hlutafjáreign lífeyrissjóðsins var
að nafnvirði 9,38 milljónir og var
hann 11. stærsti hluthafinn. Mið-
að við þessar upplýsingar og
hlutafjárkaupin fyrir viku er
hlutafjáreign sjóðsins 2,64% og
tekur hann sæti Fram sem átt-
undi stærsti hluthafinn.
JHorcnnlilablb
í dag
Gunnarsholti lokað
26 langlegusjúklingar leita annarr-
ar vistunar 4
Amnesty lnternational____________
Pierre Sané framkvænidastjóri
deilir á harðstjóra í þriðja heiminum
14
Einfoldir mcnn
í drougolest
Mósambik
Verkefnin óþijótandi eftir áralanga
borgarastyrjöld 17
Leiðari
Gagnkrafa almennings 20
Lesbók
► Álfar og vættir á Borgarfirði
eystra - Fyrsti íslenzki verkfræð-
ingurinn - Ari Trausti skrifar um
Monserrat - Vandi ísl. bóka í
íþöku - Rabb: Gísli S.
Menning/Listir
► Hvað býðst á kvikmyndahátíð?
- Tríó Reykjavíkur - Ungir tónlist-
armenn í Camerartica - Ástarbréf
í Þjóðleikhúsi - Elin Helena í
Borgarleikhúsi
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Veggöng
FRÁ framkvæmdunum á svokallaðri Ófæru á Óshlíðarvegi.
Miklar vegabæt-
ur á Oshlíðarveed
Bolungarvík. - *
ALLMIKLAR framkvæmdir á Óshlíðarvegi hafa staðið yfir í
sumar en gert er ráð fyrir að unnið verði þar að vegabótum
fyrir um 115 millj. króna í þessum áfanga. Meginverkefnið er
bygging tveggja vegskála í svokölluðum Hvanngjám en þar að
auki verður vegurinn lækkaður verulega á um 450 metra kafla
á þessum stað.
í sumar hefur fyrri vegskálinn
verið byggður, hann er 65 m lang-
ur og stendur við gil sem heitir
Hvanngjá innri. J.P.E. bygginga-
þjónustan annaðist framkvæmdir
við þá byggingu og var því verki
lokið 15. september sl.
Nú stendur yfir vinna við lækk-
un vegarins og er af þeim sökum
verulegt jarðrask á þessum slóðum
og vegurinn því torfarinn á stutt-
um kafla. Það er verktakafýrirtæk-
ið Jón og Magnús á ísafirði sem
annast verkið og er gert ráð fyrir
að því ljúki 1. nóvember nk. Vega-
gerðin mun síðan leggja slitlag á
vegarspotta þennan fyrir veturinn.
Seinni vegskálinn á Hvanngjáar-
svæðinu verður boðinn út nú um
mánaðamótin en ekki er gert ráð
fyrir að hann verði byggður fyrr
en næsta vor. Þegar sá skáli hefur
risið verða þrír vegskálar á þessu
svæði með um 80 metra millibili.
Oryggi eykst
Að þessum framkvæmdum lokn-
um hefur öryggi vegfarenda aukist
umtalsvert en talsverð snjóflóða-
hætta hefur verið á þessum slóðum
þar sem snarbrött gil liggja niður-
undir veg. Með tilkomu þessara
þriggja vegskála í Hvanngjá á veg-
farendum ekki að stafa hætta af
srqóflóðum. Vegskálamir fjórir
liggja á Óshlíðarvegi; þ.e. 90 metra
vegskáli á Steinsófæru, 30 metra
vegskáli við Hvanngjá ytri og ann-
ar 65 metra skáli við Hvanngjá
innri. Vegskálinn sem nú verður
boðinn út mun rísa á svokallaðri
Ófæru með stiga en heitið er dreg-
ið af því að á þeim tímum er menn
gengu gjarnan þessa leið til að
komast á milli byggða var komið
fyrir stiga til að komast yfir kletta
þá sem Ófæra er nefnd eftir.
— Gunnar.