Morgunblaðið - 02.10.1993, Síða 18

Morgunblaðið - 02.10.1993, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 Vaxandi átök í Bosníu STRÍÐIÐ í Bosníu er að fær- ast í aukana eftir að múslimar höfnuðu tillögu sáttasemjara um skiptingu landsins milli þjóðarbrota, múslima, Serba og Króata. Eru Serbar sagði hafa hafið mikla herferð gegn Króötum og múslimum í hér- aðinu Banja Luka og fara sög- ur af grimmilegu framferði þeirra, nauðgunum og pynt- ingum. Virðist tilgangurinn vera að hrekja alla aðra en Serba burt úr héraðinu. Jafnt Króatar sém Serbar segja, að tilslakanir þeirra gagnvart kröfum múslima um meira land séu nú úr sögunni þar sem múslima hafi hafnað friði. Gífurlegnr gassamningur NORÐMENN hófu í gær út- flutning á gasi til ýmissa Evr- ópulanda í samræmi við 100 milljarða dollara samning, stærsta gassamningi, sem gerður hefur verið. Kemur gasið frá olíusvæðum Norð- manna í Norðursjó og er leitt til stöðvar í Zeebrugge í Belg- íu. Þaðan verður því síðan beint í ýmsar áttir. Gildir samningurinn í 28 ár en gas- birgðir Norðmanna eru taldar endast í 200 ár. Hittir leiðtoga Kína BILL Clinton Bandaríkjafor- seti og Jiang Zemin, forseti Kína, ætla að halda sinn fyrsta leiðtogafund í borginni Seattle í Bandaríkjunum. Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, greindi frá þessu og sagði fundinn verða haldin þann 20. nóvem- ber. Thatcher vill opna kola- námur MARGARET Thatcher, fyrr- um forsætisráðherra Bret- lands, hefur að sögn blaðsins Guardian ritað Tim Eggar orkumálaráðherra bréf þar sem hún hvetur hann til að breyta lögum þannig að einka- aðilar geti tekið yfir rekstur kolanáma, sem til stendur að loka. Þá lagði hún til að Egg- ar myndi fyrirskipa raforku- fyrirtækjum að kaupa upp kolabirgðir Bretlands. Eggar á að hafa svarað henni því að hann yrði að gæta ákveðinnar hófsemi varðandi það kola- magn sem hann fyrirskipaði fyrirtækjum að safna upp. Hillary kænni en Clinton HILLARY Rodham Clinton stendur manni sínum, Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna, framar að andlegu at- gervi. Sú er að minnsta kosti skoðun margra landa þeirra hjóna ef marka má skoðana- könnun, sem gerð var í þess- ari viku. Var Hillary þá mikið í sviðsljósinu þar sem hún var að kynna tillögurnar um upp- stokkun heilbrigðiskerfisins en hún þótti standa sig mjög vei í því. 40% töldu hana gáfaðir en Clinton en 22% töldu hann taka konu sinni fram. Aðrir sögðu þau standa jafnt að vígi eða höfðu litla skoðun. Alexej II patríarki reynir að leysa deilu Jeltsíns og þingsins Rétttrúnað- arkirkjan sem sáttasemjari Moskvu. The Daily Telegraph. GETI nokkur maður í Rússlandi fengið stjórnmálamenn landsins til að hætta að hafa í hótunum og hefja samningaviðræður er það Alexej II patríarki, leiðtogi þeirra 40 milljóna Rússa sem eru í Rétttrúnaðarkirkjunni. Það eru ekki fyrst og fremst vegna eigin- leikar patriarkans í sjálfu sér sem valda því heldur endurspeglar þetta þá einstæðu stöðu sem kirkjan hefur í landi sem er að ná sér eftir 70 ára kommúnisma. Að undaskildum hernum er hún sennilega eina stofnunin sem enginn stjórnmálaleiðtogi getur leyft sér að hundsa. Um tíma leit út fyrir að herir Hitlers næðu að yfirbuga Rússa í síðari heimsstyijöldinni. Þá fór sjálfur böðull kirkjunnar, Stalín, fram á siðferðislega aðstoð hennar við að sameina þjóðina, benti á að föðurlandið væri í hættu. Allir leiðtogar hins nýja Rússiands reyna í örvæntingu að öðlast eitt- hvað af þeim myndugleika sem kirkjan getur veitt þeim. Patríarkinn mun vera fyrsti maðurinn utan við innsta hring samstarfsmanna Borisar Jeltsíns forseta sem hitti hann að máli síð- an þingið var rofið fyrir 10 dög- um. Kirkjan hefur einnig átt þátt í sáttatilraunum fyrr. Á stórhátíð- um eins og jólum og páskum hafa þeir Jeltsín og Alexander Rútskoj, aðalandstæðingur hans nú en áður varaforseti, staðið hlið við hlið með kerti í höndum. Báðir eru þeir fyrrverandi félagar í komm- únistaflokknum og hafa því svarið fyrir alla guðstrú fyrr á árum. Jeltsín hefur aldrei sagst vera trú- aður en hefur lýst þeim „andlega friði“ sem hann finni innra með sér við þessar athafnir. Músliminn Khasbúlatov Rúslan Khasbúlatov þingfor- seti, einnig fyrrverandi flokksfé- lagi, er Tsjetsjeni að uppruna og játar islam eins og flestir Tsjetsj- enar. Hann notar þó hvert tæki- færi til að lýsa stuðningi sínum við Rétttrúnaðarkirkjuna og leggja þannig áherslu á það hve mikill „Rússi“ hann sé, þrátt fyrir þjóðemið. Ef Alexej II er raunverulega að reyna að finna lausn á deilunni en lætur ekki duga að höfða til kristilegrar breytni og heilbrigðrar skynsemi merkir það að rússneska Rétttrúnaðarkirkjan er sögulega séð að fara inn á nýjar brautir. Frá tímum Péturs mikla keisara í upphafi átjándu aldar hefur stjóm- málaleg afstaða kirkjunnar ekki verið nein, hún hefur fyrst og fremst verið þægur þjónn stjóm- valda hveiju sinni. Jafnvel Stalín tókst með hrýðjuverkum og slægð að gera hana að verkfæri sínu. Það hefði til skamms tíma verið óhugsandi að kirkjan tæki að sér hlutverk sáttasemjara í stjóm- máladeilum. # Reuter Sáttasemjarinn ALEXEJ II, patriarki í Moskvu og æðsti maður rússnesku Rétttrún- aðarkirkjunnar, í aðalstöðvum sínum í gær, að baki honum stend- ur aðstoðarmaður. Patríarkinn reynir nú að miðla málum í deilum Borisar Jeltsíns forseta og þingsins. * Oveður enn á ný MIKIL flóð eru nú í Suður-Frakklandi eftir að óveður gekk þar yfir í vikunni. Þetta er í annað sinn á fáeinum vikum sem óveður verður á svæðinu. Að minnsta kosti tveir fórust í flóðunum og fjöldi fólks Ienti í vandræðum. Konan á myndinni bíður örvæntingarfull aðstoðar hjálpar- sveita en bíll hennar marar í hálfu kafi vegna vatnsveðursins. Ritari Kohls uppvís að njósnum Sóttíumstarfið að skipun Stasi Bonn. Reuter. RITARI Helmut Kohls, kanslara Þýskalands, sem uppvís var að njósn- um fyrir Austur-Þjóðveija, sótti um starf á skrifstofu kanslarans að skipun austur-þýskra yfirmanna sinna. Embætti saksóknara upplýsti í gær að ritarinn héti Karin H.-P., 41 árs, en hún var handtekin ásamt eiginmanni sínum, Wolfgang P., 43 ára. Talið er að þau hafi'bæði njósnað fyrir kommúnista. Það var Wolfgang P., síðar eigin- maður Karinar, sem réði hana til njósna árið 1976. Wolfgang veitti Stasi, öryggislögreglu Austur- Þýskalands, m.a. upplýsingar er hann var aðstoðarmaður þingmanns á Evrópuþinginu 1983-1984. Karin var ráðin sem fulltrui kanslara Vest- ur-Þýskalands árið 1981, eftir að hún sótti um starfið að skipun Stasi. Helmut Schmidt var þá kanslari en Kohl tók við embættinu ári síðar. Fram til ársins 1989 aflaði Karin fyrst og fremst upplýsinga um efna- hagsmál en það ár féll stjóm komm- únista í Austur-Þýskalandi og Karin hætti njósnum. Embættismenn full- yrða að hún hafi ekki haft aðgang að leyniskjölum. Flóttamenn streyma frá Abkhazíuhéraði Moskvu, Genf. Reuter. UPPREISNARMENN í Abkhazíu sögðust í gær hafa náð héraðinu öllu úr höndum georgíska sljórnarhersins er sveitir þeirra komust að ánni Ingur sem ákvarðar eystri mörk þess. Eduard Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, sakar Rússa um að hafa látið aðskilnaðarsinnum í té vopn. Utanríkisráðuneytið í Kíev hélt því fram í gær, að aðskilnaðarsinnar hefðu gerst sekir um brot á vopna- hléssamningum og sagði að Rússum hefði greinilega mistekist hlutverk sáttasemjara í deilunni um Abkhaz- íu. Átökin í Abkhazíu hafa haft í för með sér mikin flóttamannavanda. Rúmlega hundrað þúsund óbreyttir borgarar voru sagðir á flótta þaðan í gær, ýmist fótgangandi, á ösnum, dráttarvélum eða vörubílum. Stefndu þeir til Georgíu en áður höfðu tugþúsundir Georgíumanna flúið frá Abkhazíu til Zugdidi. Vegna flóttamannavandans í Ge- orgíu sendi, flóttamannahjálp Sam- einuðu þjóðanna (SÞ) í gær flugvél með 40 tonn af vetrarfatnaði og matvælum til Tbilisi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.