Morgunblaðið - 02.10.1993, Side 28

Morgunblaðið - 02.10.1993, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 Haukur Þorsteins son — Minning í dag, laugardag, verður til mold- ar borinn frá Sauðárkrókskirkju vinur minn Haukur Þorsteinsson. Haukur var fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og þar giftist hann ungur skólasystur sinni og eftirlif- andi konu, Helgu Hannesdóttur. Þau áttu alla tíð heimili sitt á Sauð- árkróki og komu þar til manns fimm bömum, tveim sonum, Sigurði og Þorsteini, og þrem dætmm, Sigríði, Hrafnhildi og Völu. Þegar ég opna minni mitt og leiði þar fram vináttu okkar Hauks Þorsteinssonar þá sækir mjög að mér sú samlíking að forsjónin hafí verið í örlætis- og eyðslukasti þegar hún útdeildi til hans góðum hæfileikum, því að hann vár svo óvenju vel af Guði gerður. Hann var til að mynda slíkt afbragð flestra manna að fríðleika að það náði ekki að skyggja þar á, þegar hann að margra dómi gift- ist fegurstu stúlkunni í bænum. Og þegar þau hjónin Haukur og Helga voru samankomin með börnin fimm, þá vakti fríðleiki fjölskyldunnar oft- ast umtal. Haukur Þorsteinsson var mjög góðum og óvenjulega fjölhæfum gáfum gæddur. Hann hafði ríka sköpunargáfu og var útsjónarsamur og bráðflinkur handverksmaður og hann gat leikið sér með málma og vélar eins og bakari með brauð. Hann bjó yfir blæbrigðaríku en þó markvissu og auðugu tungutaki og hafði næmt innsæi í persónugerð fólks og atburðarásir. Og með skarpskyggni sinni og skilgreining- um þá opnaði hann manni iðulega nýja og oft sprenghlægilega sýn á umhverfið. Haukur var bráðskemmtilegur og slyngur hagyrðingur og erfiðir bragarhættir léku honum léttilega á tungu. Ég minnist þess þegar hann var vélstjóri á Drangey að þá tók hann upp á því í nokkrum túrum að stytta sér stundir við yrkingar. Þegar í land kom þá bæði sýndi hann mér og leyfði mér að heyra marga fallega og bráðfyndna bálka af sléttuböndum, hringhendum og stikluvikum. Það hefur margur maður montað sig með réttu af því sem minna var, en Haukur flíkaði ekki þessum snjöllu vísum sínum, honum fannst bara skárra að yrkja en' ráða krossgátur. Samverustundir með Hauki voru því oftast vökunóttar virði, enda urðu þær margar vökunæturnar okkar hér á árum áður, ýmist til að þreyja þorrann eða lifa skagf- irska vorið eða bara til að gera hversdagsleikann ögn skemmti- legri. En Hauki var margt, margt fleira til lista lagt. Eitt af því var tónlistar- gáfan. Hann hafði dágóð tök á flest- um hljóðfærum og afbragðs góð á sumum. Hann sagði mér sjálfur frá því hvernig hann fékk það álit á sér að hann gæti eitthvað pínulítið í músík, eins og hann orðaði það. En það var þegar hann snerti saxó- fón í fyrsta sinn, að mig minnir í Vestmannaeyjum og náði strax úr honum lagi og spilaði alla nóttina. Síðar stofnaði hann hljómsveit und- ir sínu nafni og lék fyrir dansi í áraraðir við ágætar vinsældir. Ein af þeim gáfum, sem Hauki var gefin í ríkari mæli en mörgum öðrum var leiklistargáfan. Hann og Helga störfuðu í áratugi í Leikfé- lagi Sauðárkróks, sem alla tíð hefur verið afar metnaðarfullt leikfélag og tekið til sýninga mörg af úrvals- verkum innlendra og erlendra leik- bókmennta. Ég kann ekki að skil- greina hvað er list, en ég ætla að listaverk séu árangurinn af aðferð höfunda til að efnisbinda tilfinning- ar sínar eða hugarástand og koma þeim í frásögn t.d. í litum, formi, músíknótum eða rituðu máli. Það gefur því auga leið að til að geta skilað boðskap leikritahöfunda til áhorfenda þá verður leikarinn að byija á því að kryfja meiningu og skilning höfundarins og skilgreina tilgang persónunnar, sem hann hef- ur skapað. Mannþekking og inn- sæi, sem til þess þarf var Hauki gefið í ríkari mæli en mörgum öðr- um. Hann var því næmur og góður leiklistarmaður. En þó að Haukur hefði umtals- verð áhrif á leiklistina á Sauðár- króki þá hafði leiklistin miklu meiri áhrif á hann, því að í gegnum leik- listina kynntist hann náið og þekkti vel ýmsar mögnuðustu og marg- slungnustu persónugerðir heims- bókmenntanna. Og vegna þeirra nánu kynna þá bjó hann sjálfur yfir reynslu, þroska og viti úr smiðju margra af andans jöfrum veraldar- sögunnar hvort sem þeir hétu Ib- sen, Kamban, Strindberg, Munk eða Laxness. Hann flutti þá heim á Sauðárkrók og í gegnum sjálfan sig gaf hann okkur hinum þá með sér. Nú hefur þessi fjölgáfaði og hæfíleikaríki vinur minn gengið út af sviðinu í hinsta sinn, og tjaldið fellur í dag. En persónan, sem hann skapaði með lífshlaupi sínu, hana skilur hann eftir og hún mun lifa í minningu okkar og sögunni um Sauðárkrók Elsku llelga. Ég á engin orð sem mér finnast ekki gagnslaus á þess- um sorgardegi. En þú og börnin eigið djúpa og heita samúð okkar Lólóar. Megi góður hugur okkar og annarra verða ykkur til styrktar. Birgir Dýrfjörð. Þegar við, kennarar Pjölbrauta- skóla Norðurlands vestra, komum til starfa í haustbyrjun renndi okkur ekki í grun að brátt yrði höggvið skarð í hópinn. En einn er sá gest- ur sem gerir ekki boð á undan sér og skyndilega er sem haustdrung- inn sé þyngri en oft fyrr. Haukur Þorsteinsson hafði starf- að með okkur í fjögur ár; kom inn í þessa lítt eitt lokuðu skólaveröld þar sem margir hafa dvalist mest- alla sína starfsævi með marghátt- aða reynslu og reyndist Ijúfur og vinsæll starfsfélagi. Á stundum fannst mér hann umburðarlyndari og skilningsríkari á sviptivinda unglingsáranna en við sem langdvölum höfðum þreyð inn- an skólaveggja. En líklega naut Haukur þar listamannslundar sinn- ar enda fjölhæfur á listasviði, jafnt í tónlist sem leik. Aðrir eru mér eflaust hæfari að rekja afrek hans á sviði sem á hljómsveitarpalli, þó get ég ekki stillt mig um að minnast á eftir- minnilegan leiksigur Hauks í af- mælissýningu Leikfélags Sauðár- króks á leikriti Tennesse Williams: Köttur á heitu blikkþaki. Mér þykir þó meira um að Haukur var sannur áhugamaður — unnandi tón- og leiklistar. Fátt vissi ég betur lífga upp gráan hversdagsleikann en að ræða við hann um góð leikrit, vel heppnaða leiksýningu eða galdra- spuna jazzins. Þá kviknaði í augum hans glóð sem lýsti upp hans innri mann, mann sem gott er að minn- ast og gerir hvern sem kynnist sátt- ari við lífið og tilveruna. Konu hans og börnum votta ég samúð mína. Geirlaugur Magnússon. Það haustar að, nemendur eru nýkomnir í skólann og vetrarstarfið er hafið, en það er skarð fyrir skildi. Haukur Þorsteinsson kennari við Pjölbrautaskóla Norðurlands vestra var að sinna erindum skólans er lífsljós hans slokknaði. Samstarfs- fólk hans er harmi lostið. Við eigum engin orð við hæfi til að lýsa missi okkar en við eigum minningu um hugljúfan og uppörvandi vinnufé- laga sem margt var tiPlista lagt. Hann var hvort tveggja í senn kenn- ari og leikari af guðs náð. Á leik- sviði fylgdist ég með störfum hans, t.d. við æfingar óg uppsetningu á leikriti Ragnars Amalds „Uppreisn- in á ísafirði“. í hans höndum var miðlun efnis, framsögn, fas og allt tilheyrandi kynngimögnuð list. Sem upplesari var hann slíkur töframað- ur að efni textans stóð áheyranda ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Jafn sannfærður og ég er um að Haukur væri listamaður veit ég að list hans var slík að ekki verður lærð af bókum eða eftir höfð. Hann hafði hana ekki síður í vöggugjöf en af lærdómi. Mér er oft hugsað til þess hve þáttur hans hefði getað orðið í heimi leiklistarinnar væru landar okkar stórtækari í heimi kvikmynda. Tvítugur fékk Haukur vélstjóraskírteini á mótorskip frá Iðnskólanum á Akureyri og lauk hinu meira mótorvélstjóraprófi 1960. Hann stundaði nám við Vél- skóla íslands, lauk námi af iðnbraut vélvirkjunar við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki 1983 og hóf kennslu við skólann haustið 1988. Haukur var góður verklagsmaður, hann kenndi í verknámsdeild skólans/í málmiðnum og að auki tjáningu sem er meiður íslenskunnar. Hann brúaði bil verknáms og bóknáms svo enga misfellu var á að sjá. Samstarf hans við nemendur var eftirminnilegt fyrir þær sakir að hann fór aldrei í manngreinarálit. Hann liðsinnti jafnt þeim er vel færir voru til náms og þeim er minna máttu sín í þeim efnum. Hann var sannur fjölbrautaskóla- kennari. í þann hálfa áratug sem Haukur kenndi við skólann kom aldrei neitt misklíðarefni upp. Hann hafði ríka tilhneigingu til að færa allt til betri vegar og rétta fram hjálparhönd þar þurfti. Haukur var æðrulaus um örlög sín, ég minnist samtals okkar áður en hann fór í hjartaaðgerð til Eng- lands í því sambandi fyrir nokkrum árum. Ég minnist þess að sjá hann spila í anddyri skólans á opnum dögum. Jassinn var honum hug- stæður og það var sem einhver tón- listarhjúpur umlyki allt sem hann tók sér fyrir hendur. Síðasta mynd- in sem ég hef af honum er frá því tveimur dögum fyrir slysið. Þá ræddi hann við mig á hlaðinu við skólann um veturinn framundan með tilhlökkun og fullur bjartsýni. Við ræddum um vetrarríkið og hvernig mætti lifa í sátt við það. Það var hans niðurstaða að um- hverfið og aðstæðurnar, hveijar sem þær væru, væru einungis eins og hver annar verkefnalisti sem manni bæri að vinna að lausnum á. Þrengingar væru til þess einung- is fallnar að sigrast á. Því meir sem maður hugsar um Hauk og hans framgöngu í lífínu, því meir skilur maður, að það væri í anda h'fstíls hans og hugsunar, að hver, sem til sárinda finnur vegna fráfalls hans sjálfs, léti huggast. Við starfsfólk Pjölbrautaskóla Norðurlands vestra kveðjum góðan félaga sem sárt er saknað. Minning hans verður heiðr- uð um alla framtíð í skólanum, minning um hinn góða kennara. Megi Helga og börnin þeirra Hauks finna huggun í minningunni um góðan dreng. Jón F. Hjartarson, skólameistari. Einhvern síðasta daginn í ágúst hitti ég Hauk Þorsteinsson á förn- um vegi. Hann var glaður í bragði og fyndinn í tali á þann hátt sem honum einum var lagið. Samfundir höfðu verið stopulir yfir sumarið og við ákváðum að hittast fljótlega. Við vorum eitthvað að viðra þær hugmyndir að stytta veturinn með því að taka okkur eitthvað skemmti- legt fyrir hendur. Þar var eitt og annað sem kom til greina. Það var tvennt úr sögu Króksins sem okkur langaði til að skoða betur og athuga hvort ekki mætti bregða sér með á fjalirnar í Bifröst. Svo kvöddumst við. Kveðja Hauks var óvenjuleg að þessu sinni og verður mér hug- stæð. Þetta voru síðustu samfundir. Þegar ég á þessum fagra sept- emberdegi sit hér við gluggann og horfi yfir Kirkjutorgið og skrifa minningarorð um Hauk Þorsteins- son vin minn, þá hljóta þeir að koma fýrst í hugann sem standa honum nær en ég. Helgu og börnunum Sigurði, Þorsteini, Sigríði, Hrafn- hildi og Völu vil ég votta samúð mína. Haukur Þorsteinsson hafði fjöl- hæfar gáfur. Hann var músíkalsk- ur, lék vel á hljóðfæri og það fleiri en eitt. Hann hafði góða söngrödd. Vann enda í danshljómsveitum framan af ævi. Hann var fjölhæfur leikari og lék bæði gaman og al- vöru. Textaflutningur hans var ein- stakur og munu fáir hafa staðið honum þar á sporði. í persónulegum samskiptum var Haukur oft skemmtilegur. Hann gat tekið al- geng orð og sett þau í annað sam- hengi en venjulega. Orðin öðluðust þá nýja og víðari merkingu. Bar þetta vitni góðri greind. Ég átti því láni að fagna að starfa með Hauki hátt á þriðja áratug. Þær voru tólf leiksýningarnar sem við unnum saman að. I slíkri vinnu verður samstarfið náið. Það var oftast skemmtilegt en umfram allt ákaflega lærdómsríkt. Haukur hafði mikla reynslu og hafði af miklu að gefa. Einkum er mér minnisstætt hvernig hann rökstuddi hugmyndir sínar. Ég á honum mik- ið að þakka og mér er bæði Ijúft og skylt að koma þakklæti mínu á framfæri. Myndir minninganna líða hjá, Leynimelur 13, íslandsklukkan, Týnda teskeiðin, Spanskflugan, Uppreisnin á Isafirði. En minnis- stæðastur er Haukur frá því í fyrra- haust á aldarafmæli Sauðárkróks- kirkju, þar sem bann stendur á kirkjuloftinu framan við orgelið og flytur texta með þeim tilþrifum sem honum einum voru eiginleg. Okkur þykir vænt um Krókinn og Skagafjörðinn. Og stundum kemur yfir okkur þessi undarlega tilfinning að fara nú að grúska. Þá förum við eina kvöldstund í Safna- húsið, eða Bifröst, eða kirkjuna og rifjum upp liðna atburði. Eftirleiðis verður þetta með nokkuð öðrum hætti því sá sem oftast var sögu- maður er ekki lengur á sviðinu. Jón Ormar Ormsson. Mér varð tregt um tungu þegar mér barst sú harmafregn að vinur minn Haukur Þorsteinsson frá Sauðárkróki væri látinn. Því hann, þessi hressi maður, sem aldrei kvartaði þó vissulega hafi hann ekki farið varhluta af veikindum í lífí sínu fremur en svo margir aðr- ir? Haukur var mikill listamaður af guðs náð, starfaði bæði við tónlist og leiklist nánast alla sína ævi. Ekki ætla ég að segja frá leiklistar- ferli Hauks, það verða aðrir til þess, af nægu er að taka. En mig langar aðeins að minnast hans sem tónlist- armanns, á því sviði þekktumst við náið. Það mun hafa verið árið 1961 sem Haukur tók mig 13 ára ung- linginn undir sinn verndarvæng í músíkinni, hann vantaði gítarleik- ara í hljómsveitina sína og hann ætlaði sko að kenna mér að banka almennilegan takt. Haukur hafði þegar þetta var starfað sem tónlist- armaður um fjölda ára. Hann var mjög góður saxófónleikari, góður hamonikkuleikari auk þess sem hann var söngvari hljómsveitarinn- ar, en það var ekki algengt á þess- um árum að hljómsveitir væru með söngvara. Þannig var Haukur hann vildi hafa danstónlistina í lagi, fullan rythma, tvö hljóðfæri í framlínu og söngvara. Hann var mjög næmur á tónlist og einlægur jass aðdáandi og mótaði það nokkuð tónlistarferil hans. Ekki vorum við alltaf sam- mála um tónlist, sem eðlilegt var, því að mikill aldursmunur var á okkur og ég hafði engan áhuga á jass í þá daga, en Haukur var óþreytandi í að beija þetta inn í hausinn á mér, og þegar fram liðu. stundir skildist mér hve viðtæk tón- listarþekking hans var. Ennþá kemur það fyrir að ég er að leika einhvers staðar fyrir dansi að það er beðið um eitthvert eld- gamalt lag, jú maður spilar þetta, félagamir líta undrandi á mig og spyija: Hvað er nú þetta? Þá renna endurminningarnar gegn um hug- ann og ég svara, jú, hann Haukur Steina kenndi mér þetta. Því get ég aldrei fullþakkað Hauk fyrir það hversu ötull hann var við að troða í strákskrattann eins og hann var vanur að kalla mig. Við Haukur héldum alltaf sam- bandi okkar í milli þó að nú séu nærri 25 ár síðan ég fluttist frá Sauðárkróki. Við ræddum alltaf músík, aldrei neitt annað, skiptumst á skoðunum og upplýstum hvor annan, hvað um væri að vera í bransanum. Þannig var Haukur, hann vildi fylgjast með. Ekki fyrir löngu síðan ræddum við saman í sima og þá var það bundið fastmælum að nú yrðum við að fara að hittast og djamma svolít- ið saman eins og við kölluðum það, en ekki lá það fyrir okkur að hitt- ast aftur. Nú hver veit, vonandi hittumst við „hinum megin" eins og skáldið sagði, og þá skal ég banka rythmann í On a slow boat to China eða einhveiju álíka, meðan Haukur þenur rörið. Hafðu þakkir fyrir allt, kæri vinur. Elsku Helga, ég votta þér og þínum mína dýpstu sapiúð. Sveinn Ingason. Hauststarfið var að hefjast hjá Leikfélagi Sauðárkróks, þegar fregnin barst á Krókinn að hann Haukur okkar væri dáinn. Það haustaði svo sannarlega í hjörtum okkar. Hvað áttum við að gera? Haukur farinn, aðal stoð og stytta félagsins í yfír fjörutíu ár. Nú gát- um við ekki lengur leitað til Hauks um ráðleggingar varðandi leikrita- val og allt sem laut að starfsemi félagsins. Við áttum aldrei eftir að sjá Hauk á sviðinu í Bifröst fram- ar. Á þvílíkum sorgar- og sakn- aðarstundum er gott að eiga ljúfar og góðar minningar um góðan dreng, minningar sem munu lifa hjá okkur í félaginu og við munum ylja okkur við á góðum stundum. Haukur Þorsteins var leikari af Guðs náð. Hann lék fyrst með Leik- félagi Sauðárkróks á Sæluviku 1949 aðeins 17 ára gamall og má segja að síðan hafi hann verið með í flestum uppfærslum félagsins. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.