Morgunblaðið - 16.10.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
Atvinnulausum fjölgar um 250 í september frá því sem var í ágústmánuði
Atviimiilífsbati
hefur stöðvast
AÐ MEÐALTALI voru 250 fleiri atvinnulausir í september-
mánuði en í ágúst og um 1.020 fleiri en í septembermánuði
í fyrra, að því er fram kemur í yfirliti um atvinnuástandið
frá vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins. Samtals
voru skráðir tæplega 100 þúsund atvinnuleysisdagar í sept-
ember en það jafngildir því að 4.557 hafi gengið atvinnulaus-
ir eða um 3,4% af mannafla á vinnumarkaði. Þar af voru
1.905 karlmenn atvinnulausir og 2.652 konur.
í frétt frá vinnumálaskrifstof-
unni segir að aukningu atvinnu-
leysis nú megi að miklu leyti rekja
til að dregið hafí úr átaksverkefn-
um víða og aflasamdráttar miðað
við fyrri mánuð. Megin niðurstað-
an sé sú að sá bati sem orðið
hafí -um land allt frá því í mars
hafí stöðvast og fyrirsjáanlegt sé
nú að fjöldi atvinnulausra fari
aftur vaxandi. Atvinnuástand hafí
þannig versnað víðast hvar en þó
mest á Suðumesjum og Vestur-
landi.
I lok septembermánaðar voru
fleiri skráðir atvinnulausir en í
mánuðinum að meðaltali. Þannig
voru samtals 4.827 skráðir at-
vinnulausir síðasta dag mánaðar-
ins, 2.062 karlar og 2.765 konur.
Fjölgunin er mest á höfuðborgar-
Atvinnuleysi í júlí, ágúst og september 1993
Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli.
Á höfuðborgarsvæðinu standa
2.895 atvinnulausir á bak við
töluna 3,7% i sept og fjðlg-
aði um 73 frá því i ágúst
Alls voru 4.557 atvinnu-
lausir á landinu öllu í
september og hefur
fjöigað um 247
frá því í ágúst
svæðinu, um 106, og næst mest
á Suðumesjum, 82. A Suðurlandi
fjölgar atvinnulausum um 42, á
Vesturlandi um 15 og á Austur-
landi um 3. Hins vegar fækkar
atvinnulausum um 21 bæði á
Norðurlandi eystra og vestra og
á Vestfjörðum fækkar atvinnu-
lausum um 19.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 16. OKTOBER
YFIRLIT: Yfir austur Grænlandi er 1030 mb hæð sem þokast austur.
Um 700 km austur af landinu er kröpp smálægð sem hreyfist suður.
Viö Hvarf er að myndast lægð sem mun hreyfast hægt norðaustur.
Áfram verður frost um allt land í nótt, víða 4 til 10 stig, en heldur hlýnar
á morgun, fyrst suðvestanlands.
SPÁ: Hæg suðaustanlæg átt. Skýjað sunnanlands og vestan og súld
eöa slydda á stöku stað eða léttskýjað norðan- og norðaustanlands. Kalt
(veðri.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðlæg átt og frostlaust um allt land. Slydda
eða rigning einkum um sunnan- og vestanvert landið.
HORFUR A MÁNUÐAG: Nokkuð hvöss norðanátt, með snjókomu um
norðanvert landið, en þurru veðri syöra. Kólnandi veður.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Búist við að norðanáttin verði gengin niður.
Nýir veðurfregnatímár: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22. 30. Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o a
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * f *
f F * /
f f f f * f
Rigning Slydda
•ö m,
Hálfskýjað Skýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V $ V
Skúrír Slyddué! Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
stig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30(gær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Dálítið
hefur snjóað á Vestfjörðum, Norðuriandi og Austfjörðum, og er þvi
nokkur hálka á vegum og þá einkum á fjailvegum á þessum svæðum.
Hálendisvegir og slóðir hafa verið nokkuð greiðfærar en búast má við
hálku og snjó að einhverju leyti, en þær leiðir eru ekki skoðaðar og
engar upplýsingar hafa fengist um þær. Víða er unnið að vegamótum
og eru vegfarendur beðnir um að fara eftir merkingum á þeim vinnusvæð-
um.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilinu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri +4 akýjað
Reykjavik 3 léttskýjað
Bergen 3 skýjað
Helsinki 3 léttskýjað
Kaupmannahöfn 8 léttskýjað
Narssarssuaq 3 rigning
Nuuk 2 slydda
Osló 3 hátfskýjað
Stokkhólmur 6 iéttskýjað
Þórshöfn 0 hátfskýjað
AJgarve 20 skýjað
Amsterdam 9 skúr á síð.kls.
Barcelons 21 skýjað
Berlín 7 rigning
Chicago 12 alskýjað
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 11 rigning
Glasgow 7 léttskýjað
Hamborg 8 léttskýjað
London S léttskýjað
Los Angeles 18 atskýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Madrtd 12 skýjað
Malaga 20 skýjað
Mallorca 21 lóttskýjað
Montreal 0 þokumóða
NewYork 14 alskýjað
Ortando 22 alskýjað
Parfs 11 skýjað
Madelra 23 skýjað
Róm 18 alskýjað
Vt'n 19 skýjað
Washington 12 þokumðða
Winnipeg 1 alskýjað
IDAG kl. 12.00
Heimitó: Veöurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kL 16.15 í gær)
2Vi árs fangelsi
fyrir hnífaárás
í miðbænum
Stunginn sex sinnum með fjaðurhníf
DAVÍÐ Trausti Oddsson, 18 ára, var í gær dæmdur í fangelsi
í 2 ár og 6 mánuði í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa
stungið jafnaldra sinn sex hnífsstungum með fjaðurhníf og
veitt honum hættulega bijóstliolsáverka, sem gera þurfti að
með bráðaaðgerð. Arásin átti sér stað við Dómhúsið við
Lælgartorg í Reykjavík aðfaranótt 25. júlí í sumar. Hinum
dæmda var einnig gert að greiða þeim sem fyrir árásinni
varð 309 þúsund krónur í bætur, auk sakarkostnaðar og
málsvarnarlauna til verjanda síns.
Aðdragandi árásarinnar var sá
að bróðir árásarmannsins lenti í
útistöðum við þilt í miðbænum og
kallaði á bróður sinn til aðstoðar.
Af litlu tilefni
Árásarþolinn sagðist hafa ætlað
að ganga á milli og róa árásar-
manninn sem við það hafí ráðist
að sér með hnífínn á lofti. Fjöldi
vitna var að árásinni ogyfirbuguðu
nokkrir úr þeirra hópi árásarmann-
inn og héldu honum uns nærstadd-
ir lögreglumenn komu á staðinn.
Af litlu tilefni
í niðurstöðum Péturs Guðgeirs-
sonar héraðsdómara segir að árás-
in hafí verið af litlu tilefni og
ákærða hljóti að hafa verið ljóst
að hnífsstungumar gátu hæglega
orðið piltinum að bana. Telja beri
brot hans tilraun til manndráps.
Þar sem pilturinn hafði ekki áður
gerst sekur um refsivert athæfí
og vegna ungs aldurs hans þótti
hæfíleg refsing vera fangelsi í tvö
ár og sex mánuði.
Bragi Ásgeirsson sýnir í Listasafninu
Bandaxískir aðilar
kaupa verk Braga
BANDARISKIR aðilar hafa fest kaup á flmm grafíkverk-
um á sýningu Braga Ásgeirssonar í Listasafni íslands
síðustu tvær vikur. Er annars vegar um að ræða tvö stein-
þrykk frá 1956 sem listamaðurinn handmálaði með
gagnsæum vatnslitum og hins vegar yngri myndir og var
kaupverð um 250 þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Listasafni íslands voru kaupend-
umir annars vegar bandarískur
galleríseigandi og hins vegar
tvær bandarískar myndlistarkon-
ur. Þær vildu kaupa 4 af elstu
og dýrustu myndum sýningar-
innar en Bragi samþykkkti ein-
ungis að selja tvær þeirra, því
hinar eldri myndimar eru aðeins
til í einu eintaki. Þeirra í stað
festu þær kaup á yngri myndum
Braga.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Bragi að þær myndir sem
enn væru til fleiri eintök af seldi
hann á sk. vinnustofuverði, sem
væri um tveir þriðju þess sem
myndimima ættu að kosta á
sýningu.
Kynnti sér listalif
Hann segir að kaup bandarísku
aðilanna hafí verið gerð í flýti
seinustu tvo sunnudaga, en í
báðum tilvikum var fólkið að
kynna sér íslenskt listalíf síðustu
stundimar áður en það hélt af
landi brott. Sýningu Braga lýkur
31. október.