Morgunblaðið - 16.10.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
7
Byggt við Hlégarð
UNNIÐ hefur verið að stækkun félagsheimilisins Hlégarðs i Mosfellsbæ
síðustu þrjá mánuði þar sem bætist við einn salur með sérinngangi
og snyrtingu. í salnum verður nýr og glæsilegur bar og setustofa með
vönduðum húsgögnum og sagði Vignir Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Hlégarðs, að þetta myndi auka notagildi hússins verulega auk
þess að skapa meira rými og vera útlitslyfting á staðnum.
Viðbyggingin er á milli tveggja
álma gamla hússins að norðanverðu
og er gengið inn á neðri hæð þar sem
jafnframt eru snyrtingar. Alls bætast
170 fermetrar við og nú mun hægt
að leigja út þrjá sali í senn. Fram-
kvæmdir hófust í júlí í sumar en það
er fyrirtækið Gunnar og Kjartan hf.
sem átti lægsta tilboð í bygginguna.
Teiknistofa Gylfa Guðjónssonar
hannaði viðbygginguna.
Kostnaður 25 milljónir
Alls eru þetta framkvæmdir upp
á 25 milljónir en sex milljónir af
þeirri upphæð fara í endurnýjun á
Sjálfstæðismenn
í Mosfellsbæ
Ellefu gefa
kost á sér
/ / pi ••• •
í profkjori
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins
í Mosfellsbæ vegna bæjar-
stjórnarkosninga næsta vor fer
fram laugardaginn 13. nóvember
nk.
Frambjóðendur í prófkjörinu eru
11 og eru þeir eftirfarandi: Ásta
Björg Björnsdóttir, meinatæknir,
38 ára, Ástríður Grímsdóttir, lög-
fræðingur, 38 ára, Guðjón Haralds-
son, verktaki, 54 ára, Guðmundur
Davíðsson, vélsmiður, 45 ára, Haf-
steinn Pálsson, yfirverkfræðingur,
41 árs, Helga A. Riehter, kennari,
45 ára, Hilmar Þór Óskarsson, bú-
stjóri, 22 ára, Róbert B. Agnarsson,
viðskiptafræðingur, 35 ára, Val-
gerður Sigurðardóttir, auglýsinga-
og markaðsráðgjafi, 42 ára og
Þengill Oddsson, heilsugæslulækn-
ir, 49 ára.
Helga A. Richter, Þengill Odds-
son og Guðmundur Davíðsson eru
núverandi bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Mosfellsbæ og
Róbert B. Agnarsson er bæjarstjóri.
Magnús Sigsteinsson, sem var
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum, og Hilmar Sigurðsson
bæjarfulltrúi hafa ákveðið að gefa
ekki kost á sér í næstu kosningum.
Prófkjörið 13. nóvember nk. er
opið öllum fullgildum félögum sjálf-
stæðisfélaganna í Mosfellsbæ, sem
þar eru búsettir, og þeim stuðnings-
mönnum flokksins, sem eiga munu
kosningarétt í bæjarstjórnarkosn-
ingunum og undirrita stuðningsyf-
irlýsingu við Sjálfstæðisflokkinn
samhliða þátttöku í prófkjöri.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
hefst 1. nóvember nk. og verður
hún í félagsheimili Sjálfstæðis-
flokksins í Urðarholti 4 alla virka
daga frá kl. 18-19.
Prófkjör í
Hafnarfírði
Meinleg villa slæddist inn í
frétt um prófkjör sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði í blaðinu sl.
fimmtudag. Hið rétta er að próf-
kjörið fer fram dagana 29. og
30. janúar 1994. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
mCMIsOA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
loftræstikerfi hússins sem þurfti orð-
ið endurnýjunar við. Eigendur Hlé-
garðs eru Kvenfélag Lágafellssókn-
ar, Mosfellsbær og Ungmennafélagið
Afturelding. Nýi salurinn var vígður
í sérstöku hófi í gærkvöldi og voru
margar hendur á lofti við lokafrá-
ganginn þegar blaðamann bar að
garði í vikunni.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Staðið í ströngu
ÞEIR hafa staðið í ströngu síðustu vikur og mánuði, Kjartan Hálfdán-
arson og Gunnar Pétursson, sem hafa stjórnað verkinu, og Vignir
Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hlégarðs.
Stillt upp
í Garðabæ
Á fundi fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Garðabæ
á fimmtudagskvöld var
ákveðið að stilla upp lista
fyrir bæjarsljórnarkosn-
ingarnar á næsta ári.
Samþykkt var að viðhafa
skoðanakönnun í byijun des-
ember áður en gengið yrði frá
framboðslistanum.
Ny bílastæði
í nágrenni við Laugaveginn
223 bílastæði
undir Vitatorgi
Vitator!
Við kynnum
- nýja 223 stæða bflageymslu undirVitatorgi.
Göngusvæði
innan þriggja
mínútna frá Vitatorgi
Eyddu ekki tímanum í óþarfa leit að bflastæði.
Þú ert steinsnar frá Laugaveginum og það tekur
aðeins þrjár mínútur að ganga frá Vitatorgi
að GrettisgöUi, Barónsstíg eða Vatnsstíg.
Innakstur í Vitatorg er bæði frá Vitastíg
og Skúlagötu. Útakstur við Skúlagötu.
Vitatorg verður opið frá kl. 7:30 til 19:00 alla virka
daga en á laugardögum verður opið í samræmi við
afgreiðslutíma verslana.
Kynningarverð á mánaðarkortum kr. 2500.
Tímagjald sama og í öðrum bflageymslum, 30 kr.
fyrsti klukkutími og síðan 10 kr. fyrir hverjar
byrjaðar 12 mínútur.
BILASTÆÐASJÓÐUR
Bílastœöi fyrir alla
Þjónustuíbuðir aldraðra. Norður, séð frá Skúlagötu