Morgunblaðið - 16.10.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBÉR 1993
31
Hagkvæmari sorphirða á
grundvelli hringrásar hlutanna
eftir Sigríði
A. Asgrímsdóttur
Karleby er finnskur bær sem fyr-
ir nokkrum árum hafði orð á sér
fyrir að bera það með sér að iðnaður
og atvinnulíf setti óæskilegt mark á
útlit og umhverfi bæjarins. Bærinn
var ekki til þess fallinn að laða að
sér erlenda ferðamenn. Þegar við-
skipti Finna við Rússa minnkuðu
fyrir nokkrum árum og iðnaðurinn
fór að ganga verr jókst atvinnuleysi
i Karleby og varð þar meira en að
meðaltali yfir landið. Bæjarstjóm-
inni datt þá það snjallræði í hug að
nýta sér tilboð ríkisstjómarinnar um
styrki til atvinnuskapandi verkefna
í sveitarfélaginu og í samvinnu við
umhverfisráðuneytið finnska var
stofnsett endurvinnslu- og sorp-
hirðufyrirtæki, „Cirkulationcentra-
len“, og mörkuð framsækin áætlun
um nýja stefnu um aukna endur-
vinnslu og endurhæfingu í bænum.
Fyrirmyndin er komin frá Þýska-
landi en Finnar hafa á síðustu miss-
emm tekið upp endurvinnslu sorps
og skólps miklu víðar en í Karleby
og standa nokkuð framarlega í nýrri
tækni í sorphirðumálum. Vegna hins
nýja og sérstæða endurvinnslu- og
endurhæfingarverkefnis í Karleby
hafa margir erlendir gestir lagt leið
sína þangað til þess að sjá starfsem-
ina með eigin augum læra af reynslu
íbúanna.
Ég átti þess kost að hlýða á fram-
kvæmdastjóra Hringrásarmiðstöðv-
arinnar í vor þar sem hann sagði frá
hvemig verkefnið fór af stað og
hvemig reynt sé að meta árang-
urinn. Tel ég þetta verkefni í Karleby
afar áhugavert fyrir íslensk sveitar-
félög sem standa frammi fyrir svip-
uðum aðstæðum nú, minnkandi at-
vinnu og aukningu kostnaðar við
meðhöndlun sorps.
Þegar ég fór að hugleiða mögu-
leika á sorpmeðhöndlun á íslandi
með svipuðu sniði og í Karleby datt
mér í hug að byija þyrfti á því að
innleiða nýtt hugtak á íslensku yfír
hluti sem hætt er að nota og lenda
þess vegna í sorpinu. Munir sem
eigendur hafa kosið að afsala sér
tilkalls til með því að afhenda þá til
sorpmeðhöndlunar ætti ekki að kalla
msl eða sorp. Endumýtanlegt sorp
er líka afar hvimleitt orðatiltæki og
nær tæplega þeirri merkingu sem
hugmyndin hringrás hlutanna gerir
ráð fyrir. Það mundi auðvelda fólki
að endurmeta gildi hluta sem nú
kallast msl og sorp en eru í raun
hlutir með ákveðið verðgildi.
Með verkefninu í Karleby fólst
viðhorfsbreyting til verðmætamats
sem tengist minnkandi launatekjum.
Verkefnisstjórnin markaði stefnu í
ráðningarmálum starfsmanna sem
fólst í því að dreifa atvinnu milli
þeirra sem lengi höfðu verið á at-
vinnuleysisskrá í bænum.
Með verkefninu skyldi stefnt að
sem mestri endurnýtingu, hvetja til
flokkunar sorps á notkunarstað,
minnka magn þess sorps sem kæmi
til sorpmóttökustöðva og auka af-
kastagetu eftirlits með sorpmeð-
höndlun í heild. Einnig var ákveðið
að gera tilraunir með jarðgerð líf-
ræns úrgangs, eða skömun, og
skapa verðmæta ræktunarmold.
Til þess að framkvæma þessa
nýju stefnu var Hringrásarmiðstöðin
stofnsett í Karleby í tengslum við
„Endurnýtanlegt sorp er
líka afar hvimleitt orðatil-
tæki og nær tæplega
þeirri merkingu sem hug-
myndin hringrás hlut-
anna gerir ráð fyrir. Það
mundi auðvelda fólki að
endurmeta gildi hluta
sem nú kallast rusl og
sorp en eru í raun hlutir
með ákveðið verðgildi.“
sorphirðukerfi bæjarins og hófst
skipulögð starfsemi í mörgum deild-
um árið 1990. Rekstur tré- og málm-
verkstæða, glervinnslu og fatabúrs
hefur farið vaxandi með aukinni
nýtni. Fyrirkomulag hefur tekið
breytingum og starfsemin er í stöð-
ugri þróun. Umfang sorps í Karleby
hefur minnkað um 33% frá 1990 til
1993 og nú fer meira en helmingur
þess til endurvinnslu. Árið 1992
skiptist sorpið þannig að 52% fór í
endurvinnslu, 47% í sporpeyðingu
(sorpbrennslu) og 1% fór í sérstaka
eyðingu sem hættulegur úrgangur
sem kom aðallega frá iðnaðinum.
Hringrásarmiðstöðin hefur unnið
ýmis verkefni sem verktaki og ráð-
gjafi í sorpmáium, meðal annars í
tengslum við þróunarhjálp í Zambíu.
Markmið með starfrækslu verk-
stæða er að nýta hlutina sem best
á sem hagkvæmastan hátt. Tekið
er á móti „rusli“ frá íbúum bæjarins
þeim að kostnaðarlausu en gjald
tekið af fyrirtækjum og nágranna-
sveitarfélögum. Endumýtingar-
stefnan nær til pappírs, glers og
plasthluta, heimilistækja, leikfanga,
húsgagna og fatnaðar. í bænum eru
40 söfnunarstaðir í miðbænum, 10
við verslanir og 15 í úthverfum. í
Hringrásarmiðstöðinni í Karleby eru
ónotaðir hlutir hreinsaðir, lagfærðir
eða endurgerðir á ýmsa vegu og
þeim stillt út á markaðstorgi þar sem
neytendur geta fengið þá til eignar
endurgjaldslaust. Eina krafan er að
viðtakandi kvitti fyrir móttöku
hlutarins_. Flestir hlutir á markaðs-
torginu eru til heimilishalds: einkum
barnavörur, fatnaður og leikföng.
Upplýsingum og leiðbeiningum
hefur verið komið á framfæri eftir
mörgum leiðum. Meðal annars fer
fram kennsla í skólum og leikskól-
um. Börnum er kennt að endurskil-
greina sorp.
Sorp er hlutur eða efni sem á
að taka úr notkun eða þegar
er hætt að nota
Fræðsla til bama og unglinga
beinist að því að kenna þeim réttar
aðferðir við flokkun sorps á notkun-
arstað og upplýsa um gildi hluta sem
hafa tapað notagildi sínu fyrir eig-
endann en hafa engu að síður verð-
gildi. Ráðgjöf og kennsla í flokkun
sorps vegna jarðgerðar er líka veitt.
Hringrásarmiðstöðin framleiðir
og selur tunnur fyrir jarðgerð og
hefur ekki annað eftirspum. Jarð-
gerð er enn þá á tilraunastiginu en
neytendur fá ráðleggingar við fram-
kvæmd skamagerðarinnar og haft
er eftirlit með framvindunni og að-
stoðað ef vandamál koma upp.
Aðstandendur verkefnisins eru
ánægðir með árangurinn sem náðst
Sigríður Á. Ásgrímsdóttir
hefur með starfsemi Hringrásarmið-
stöðvarinnar. Margir starfsmenn
hafa fengið önnur störf eftir nokk-
urra mánaða þjálfun en ráðningar-
skilmáiar em þannig að starfsmenn
fá aðeins tímabundna ráðningu þar
eð tala atvinnulausra á skrá minnk-
ar ekki. Þó em örfáir starfsmenn
fastráðnir. Meðal annars sagði frma-
kvæmdastjórinn stoltur frá því að
yfirverkstjórinn í sorpmóttökunni
væri fyrmm fangi. Ráðning hans
hefði verið heillaráð og nú væri hann
búinn að festa ráð sitt og eignast
barn.
Neytendur em líka ánægðir með
markaðstorgið en árið 1990 skiptu
yfir fimmtán þúsund fataplögg og
þrettán hundmð skór um eigendur
á vegum miðstöðvarinnar. Reiðhjól,
bflahlutir og eldiviður eru sótt á
markaðinn í tonnatali.
Höfundur er verkfræðingur
Neytendasamtakanna.
Ólafur Reynir Guðmundsson
félagið á réttri leið. Þá fyrst hafa
spamaðartiilögur ráðherra borið
árangur.
Höfundur er laganemi.
Spamaður í heilbrigðismálum
eftir ÖlafReyni
Guðmundsson
Heilbrigðismál þjóðarinnar hafa
mikið verið rædd undanfarið. Hefur
t.d. mikið borið á mótmælum vegna
niðurskurðar heilbrigðisráðherra.
Sannleikurinn er nú sá að það
er kominn tími til þess að breyta til
í ýmsum málum heilbrigðiskerfísins
og þar em málefni hjúkmnarfólks
og vistmanna á Gunnarsholti engin
undantekning. En vandinn er m.a.
sá að í spamaðarumræðu þjóðfé-
lagsins virðist vart mega minnast
á heilbrigðiskerfið. Og þótt nefndar
séu tölur um eyðslu er reynt á allan
hátt að afsaka þær og bæta. Mörg-
um fínnst það t.d. eðlilegt að Borg-
arspítalinn borgi tugi þúsunda fyrir
hvert bam sem hjúkrunarkona þarf
að láta gæta og að hjúkmnarkonan
sjálf borgi aðeins um 15 þúsund
krónur.
Tvö umdeild dæmi
Mun virkilega koma til fjöldaupp-
sagna hjúkmnarfólks þegar hin
umdeilda bamagæsla verður endur-
skoðuð? Þætti það ekkert undarlegt
að fólk kastaði frá sér vinnumögu-
leikum þótt barnagæsla styttist
eitthvað? Veit fólk þá yfirleitt ekk-
ert hvað það á að gera við börnin
sín?
Em vistmenn meðferðarheimila
hafnir yfir allar aðrar stéttir lands-
ins þegar um niðurskurð er að
ræða? Á að vorkenna drykkjusjúkl-
ingum meira heldur en gamalmenn-
um og sjúklingum sem þola þurfa
niðurskurð spítalanna?
Öll endurskipulagning kostar
fórnir en markmið hennar er að
styrkja það kerfi sem til athugunar
er, ekki öfugt. Og markmiðinu verð-
ur ekki náð ef sérhagsmunahópar
ráða ferðinni.
„Eða eru vistmenn með-
ferðarheimila hafnir yfir
allar aðrar stéttir lands-
ins þegar um niðurskurð
er að ræða? Á að vor-
kenna drykkjusjúklingum
meira heldur en gamal-
mennum og sjúklingum
sem þola þurfa niður-
skurð spítalanna?“
Gildi erfiðra tíma
Mikill sparnaður hefur átt sér
stað í heilbrigðiskerfinu síðastliðin
ár og skal ekki lasta árangurinn.
Það er nú svo að umsvif ríkisins
vilja oft þenjast um of og heilbrigð-
iskerfíð er þar engin undantekning.
Það er afar varhugavert að láta
ekki raunverulega hagræðingu eiga
sér stað í kerfí sem hefur þanist
út undanfarna áratugi. Vitanlega
má oft deila um það hvar og hve-
nær skal bera niður. Hins vegar
má ekki forðast allar tilraunir til
endurskipulagningar þegar að
kreppir í ríkisbúskapnum með því
að heimta einfaldlega auknar
skattaálögur á almenning. Með því
er verið að fela vandann og forðast
óhjákvæmilega endurskipulagn-
ingu.
Þótt ástandið í þjóðfélaginu sé
slæmt er hægt að benda á jákvæð-
ar hliðar þess. Ástand sem þetta
leiðir til gífurlegrar umræðu, fólk
veltir hlutunum betur fyrir sér (eða
á a.m.k. að gera það) og lítur von-
andi öðrum augum á þá en áður.
Allt er þá ekki lengur sjálfsagt og
hugmyndir manna um verðmæti
hlutanna breytast. Þá eykst gildis-
mat fólks og sóun ijármagns í þjóð-
félaginu verður á vörum fleiri en
nokkru sinni áður. Þá fyrst er þjóð-
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar
framundan:
Sunnudagur:
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Barnasamkoma á sama tíma.
Miðvikudagur:
Skrefið kl. 18.00. Biblíulestur
kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.
VEGURINN
V Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Samkoma i kvöld kl. 21.00 fyrir
ungt fólk 16 ára og eldri. Gleði,
prédikun Orðsins og lofgjörð.
Allir velkomnir.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Jesús frelsar
Á morgun, sunnudag, hefst sam-
komuvika með Haraldi Ólafs-
syni, kristniboða. Fyrsta sam-
koman verður i Breiðholtskirkju
kl. 17.00. Samkomur verða síð-
an frá þriðjudegi 19. til sunnu-
dags 24. október í Kristniboös-
salnum, Háaleitisbraut 58-60.
Þú ert velkomin(n) á samkom-
urnar.
SmO auglýsingar
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnud. 17. okt.
Kl. 10.30: Esja-Kerhólakambur.
Gengið úr Blikdal upp Lág Esju
og þaðan á Kerhólakamb. Til
baka niður hjð Esjubergi.
Brottför frá BSÍ bensínsölu.
Verð kr. 1000/900.
Helgarferð 22.-24. okt.
Fjallaferð um veturnætur
Heilsum vetri í Útivistarferð.
Farið verður um stórbrotið
landssvæði að Fjallabaki. Farar-
stjóri Hákon J. Hákonarson.
Nánari uppl. og miðasala á skrif-
stofu Útivistar.
Útivist.
AuJhrrk’k’ti 2 • Kópm'Odiu
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Almenn samkoma á sunnudag
kl. 16.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Laugardagsferð 16. okt.
kl. 13.00
Þingvellir, gömlu eyðibýlin
Gengið verður frá Sleðaás um
Hrauntún, Skógarkot og Vallar-
stíg í Vallarkrók í fylgd Guðrúnar
Kristinsdóttur frá Stíflisdal.
Haustlitirnir eru enn við lýði. Ein-
stakt tækifæri til að kynnast og
fræðast um þessa horfnu byggð
og fólkið sem þar bjó. 3 klst.
ganga. Ekið heimleiðis um
Nesjavallaveginn nýja.
Sunnudagsferðir 17. okt.
1. Kl. 10.30: Ólafsskarðs-
hnúkar-Vifilsfell. Hressandi fjall-
ganga í kringum Jósepsdalinn.
2. Kl. 13.00: Vífilsfell (65B
m.y.s.). Með skemmtilegustu
útsýnisfjöllum suðvestanlands.
3. Kl. 13.00: Jósepsdalur-
Ólafsskarð. Gengið kringum Ól-
afsskarðshnúka. Verð kr. 1.100,
frítt f. börn m. fullorðnum. Brott-
för frá BSl, austanmegin, (og
Mörkinni 6). Opið hús þriðju-
dagskvöldið 19. október kl.
20.30 í Mörkinni 6 (risi).
Ferðafélag Islands.
Nýja
postulakirkjan
Islandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavík
Guðsþjónusta verður haldin
sunnudag kl. 11.00.
Kariheinz Schumacher postuli
messar. Hópur frá N.P.K. í
Bremen i heimsókn.
..nú lögðu þeir hendur yfir þá
og fengu þeir heilagan anda
(post. 8:17).
Verið velkomin í hús Drottins.