Morgunblaðið - 16.10.1993, Page 48
em m
EINAR ).
SKÚLASON HF
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SlMI 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 16. OKTOBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Þrír mismunandi kostir um framtíð varnarliðsins í Keflavík
Flugherinn vill að allri
starfsemi verði hætt
BANDARÍSK stjórnvöld leggja til við íslensk stjórnvöld að
samið verði um ákveðinn niðurskurð varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins í Washington
leggja Bandaríkjamenn fram þijá mismunandi kosti: Sá fyrsti
mun gera ráð fyrir því að varnarliðið hverfi úr landi, ásamt
öllum tækjum, tólum og flugvélakosti; annar kosturinn gerir
ráð fyrir breytilegum umsvifum, og ákveðnum hreyfanleika,
þannig að herþotur verði sendar hingað til lands í eftirlits-
skyni, eftir þörfum; sá þriðji kemur til móts við kröfu ís-
lenskra stjórnvalda, að því leyti að hér verði varanlegt varnar-
lið, en þó minni umsvif en nú eru og færri flugvélar, en þær
eru nú 12.
mun eiga við um eftirlit með rúss-
neskum kafbátum. Bandaríkja-
menn telja því ekki þörf á staðsetn-
ingu heillar flugsveitar hér á landi.
Lítil flotastöð
Herstöðin verður því lítil flota-
stöð í framtíðinni, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, en þó
munu þyrlur varnarliðsins verða
áfram á Keflavíkurflugvelli ef þar
verður áfram staðsett flugsveit
með varanlegum hætti. Þetta er
sökum þess að reglugerð Banda-
ríkjahers kveður á um að þar sem
flugstarfsemi á vegum heraflans
fer fram, verða að vera þyrlur til
þess að gæta öryggis bandarískra
þegna.
Búist er við því að innan NATO
komi fram krafa frá íslendingum
og Bandaríkjamönnum í þá veru
að aðrar NATO-þjóðir, eins og
Norðmenn, Danir og Bretar, taki
þátt í að reka varnarstöðina í
Keflavík.
Líkur eru taldar á því, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að íslensk stjórnvöld muni taka
tveimur fyrri kostunum fálega, sá
fyrsti mun vera ættaður frá banda-
ríska flughernum og annar úr
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
inu (Pentagon). íslensk stjórnvöld
hafa í samningaviðræðunum við
Bandaríkjamenn beitt þeim rökum
að ekki sé verið að semja um fram-
tíð varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli út frá heimsástandinu, heldur
út frá vörnum Islands, sem byggja
á tvíhliða varnarsamningi íslands
og Bandaríkjanna, frá árinu 1951.
Varnarsamningurinn byggir á því
að Island leggur til land og Banda-
ríkin leggja til vamir.
Líklegt er því talið að íslensk
stjómvöld ákveði að segja upp
varnarsamningnum, hverfi Banda-
ríkjamenn með allar varnir úr land-
inu. Uppsögn samningsins er á
hinn bóginn óásættanlegur kostur
að mati Bandaríkjamanna og því
er talið líklegast að um málamiðlun
verði að ræða, á þann veg að
Bandaríkjamenn bjóði upp á að
tryggja vamir íslands, jafnframt
því sem íslensk stjórnvöld sam-
þykki að hemaðarlegt mat á því
hvers konar viðbúnað þurfi að við-
hafa á íslandi verði alfarið í hönd-
um Bandaríkjahers.
Ekki er lengur talin þörf á eftir-
liti með sovéskum orrustuþotum,
sem ekki hafa flogið inn í íslenska
lofthelgi síðan 1991. Hið sama
Mikið um
smáloðnu
í aflanum
LITIL loðnuveiði hefur verið
undanfarna sólarhringa.
Töluvert er af smáloðnu í
göngunni fyrir Vestfjörðum
og verður tekin ákvöðun um
helgina hvort svæðinu verð-
ur lokað.
Að sögn Þórðar Jónssonar,
rekstrarstjóra SR mjöls á Siglu-
fírði, hefur lítið veiðst af loðnu
að undanförnu og er verksmiðj-
an á Siglufírði að verða hráefn-
islaus. Þórður sagði að loðnan
væri fremur dreifð og eins hefði
tíðarfarið verið veiðunum óhag-
stætt.
Framkvæmdir við endurnýjun á Iðnó ganga mjög vel
Deilt um
einfalt eða
þrefalt g’Ier
UPP ER risinn ágreiningur
milli byggingarnefndar Iðnó og
Húsafriðunarnefndar ríkisins
um hvort eigi að vera einfalt
gler í gluggum i Iðnó, sem nú
er verið að endurbyggja, eða
þrefalt gler eins og byggingar-
nefndin vill. Haraldur Blöndal
formaður Iðnónefndarinnar
segir að nefndin sé sammála
um að hafa þrefalt gler.
Nefndin lét smíða glugga í húsið
í' réttri stærð og sagði Haraldur
að einhugur væri í nefndinni að
hafa þetta svona. Auk Haraldar
eru í nefndinni Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar
og Hjörleifur Kvaran lögfræðingur
hjá Reykjavíkurborg. Arkitekt
hússins er Ingimundur Sveinsson
og ráðgjafi er Þorsteinn Gunnars-
son leikari og arkitekt. „Við erum
allir sammála um að það komi ekki
til greina að fara að tillögum Húsa-
friðunamefndar því það spillir út-
liti hússins. Við ætlum að byggja
þetta svona.“
Morgunblaðið/Þorkell
Þrefalda glerið skoðað
HJORLEIFUR Kvaran, sem á sæti í Iðnónefnd (t.v.), og Þorsteinn
Gunnarsson, ráðgjafi nefndarinnar, við þrefalda glerið sem verður
í Iðnó. Framkvæmdir við endurnýjunina ganga eftir áætlun.
Hrollur
LEIKMÖNNUM Selfoss og ÍBV
var hrollkalt þegar þeir þvoðu
af sér svitann eftir leikinn.
Aðalæð
hitaveitunn-
ar í sundur
Handboltamenn í
kalda sturtu eftir leik
Selfossi.
AÐALÆÐ hitaveitunnar hjá Sel-
fossveitum fór í sundur skammt
neðan við borholusvæði veitunnar
austan við Selfoss í gær. Þessi
bilun fór saman við óvenju mikla
vatnsnotkun og að viðgerð stóð
yfir á dælu í einni aðalborhol-
unni. Þetta varð til þess að miðl-
unartankur hitaveitunnar tæmd-
ist og loka þurfti fyrir heitt vatn
hjá veitunni um tíma.
Viðgerð á aðalæðinni tók skamm-
an tíma og var lokið um kvöldmatar-
leytið í gærkvöldi. En þá kom fram
bilun í dælu einnar aðalborholunnar.
Starfsmenn veitunnar töldu að orsök
bilunarinnar í aðalæðinni væri að
vatni úr einni borholunni var dælt
inn á kerfið en vatn úr henni er mun
heitara. Töldu þeir að hitabreytingin
hefði orsakað bilunina.
Þriggja stiga frost
Þriggja stiga frost var á Selfossi
í gær en starfsmenn veitnanna töldu
enga hættu á frostskemmdum á
veitukerfum húsa í vatnsleysinu.
Vegna bilunarinnar verður mjög lít-
ill þrýstingur á hitaveitukerfinu á
Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri
og því mjög vatnslítið á veitusvæðinu
fram á þriðjudag á meðan viðgerð
á dælunni stendur yfir. Vatnsleysið
olli því að handknattleiksmenn Sel-
foss og Eyjamanna áttu ekki kost á
öðru en köldu baði eftir leik liðanna
í gærkvöldi.
Sig. Jóns.
Dæmdur tíl fangelsisvistar fyrir
að nauðga sambýliskonu sinni
Sakfelling meðal annars byggð á framburði geðlæknis mannsins
28 ÁRA gamall maður hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi
fyrir að hafa nauðgað sambýliskonu sinni á heimili hennar í Reykja-
vík aðfaranótt 28. desember sl. Hann er einnig dæmdur til að greiða
henni 250 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn játaði verknaðinn
lyá lögreglu en breytti framburði sínum fyrir dómi. í rökstuðningi
fyrir sakfellingu er m.a. vísað til vitnisburðar geðlæknis mannsins.
Áður en nauðgunin var framin hafði hann m.a. greint lækninum frá
löngun sinni til að svívirða konur en hann taldi sig almennt hafa
orðið illa úti í samskiptum við þær.
Slitnað hafði upp úr sambúð fólks-
ins viku fyrir atvikið en sættir höfðu
tekist með þeim kvöldið fyrir nauðg-
unina og var maðurinn fluttur inn
að nýju. Þá kom til deilna með þeim
sem jukust orð af orði og kvaðst
maðurinn hafa ákveðið að nauðga
konunni. Hann afklæddi hana þar
sem hún lá í rúmi sínu og hélt henni
á grúfu meðan hann kom fram vilja
sínum við hana. Hann skar á síma-
snúrur áður en hann yfirgaf heimilið
vitandi að konan hygðist kæra hann
til lögreglu vegna nauðgunarinnar.
Maðurinn var handtekinn síðar um
nóttina þegar hann kom aftur á
heimilið.
Tjáði geðlækni óbeit á konum
Hann játaði verknaðinn hjá lög-
reglu en ekki fyrir dómi. Dómari
taldi breyttan framburð hans ekki
trúverðugan, m.a. í ljósi þess að fram
var komið að maðurinn hafði áður
lýst því við geðlækni sem hann gekk
til að hann fyndi fyrir löngun til að
nauðga eða svívirða konu og að
læknirinn teldi að maðurinn væri
sakhæfur en hafí að lokum látið
undan hvötum sínum og draumórum.
Fyrir lá að maðurinn hafði lýst yfír
reiði sinni út í konur almennt og
taldi sig hafa orðið illa úti í samskipt-
um sínum við þær.
Guðjón St. Marteinsson héraðs-
dómari dæmdi í málinu.