Morgunblaðið - 11.11.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
Fjöldi falsaðra lyfseðla
í umferð hefur stóraukist
Lyfseðlar upp á eftírlitsskyld lyf tortryggðir
UNDANFARNA mánuði hafa falsaðir lyfseðlar skotið upp koliin-
um í æ ríkara mæli og falsarar gerst bæði útsjónarsamari og
óprúttnari, að sögn Guðrúnar Eyjólfsdóttur hjá LyQaeftirliti
ríkisins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er hugsanlegt
að fjöldi tilfella hafi tífaldast. Helst er reynt að vísa fölsuðum
lyfseðlum að kvöld- eða næturlagi og að sögn Hjörleifs Þórarins-
sonar lyfjafræðings hjá Laugavegsapóteki er litið á lyfseðla upp
á eftirlitsskyld lyf sem falsaða þar til annað kemur á daginn.
Guðrún Eyjólfsdóttir hjá lyíjaeft-
irlitinu sagði að aukningu á fölsuð-
um lyfseðlum væri mætt með
strangari reglum um meðferð lyf-
seðlanna í apótekunum. Einnig
væri gert viðvart í öllum lyíjaversl-
unum í hvert skipti sem vart yrði
við falsaðan lyfseðil. Sagði hún
hugsanlegt-að um skipulagða starf-
semi væri að ræða því sama fólkið
væri staðið að verki hvað eftir ann-
að. Læknar væru heimsóttir á fölsk-
um forsendum, sjúklingar villtu á
sér heimildir og lyfseðlum væri
breytt. Slíkt athæfi flokkaðist undir
skjalafals og væri refsivert.
Lyfjafræðingar í lögguleik
Hjörleifur Þórarinsson í Lauga-
vegsapóteki sagði að auknar
falsanir ykju álag á starfsfólk sem
í raun yrði að líta svo á að lyfseðl-
ar upp á eftirlitsskyld lyf væru
faisaðir þar til annað kæmi á dag-
inn. „Við viljum að bætt verði úr
þessum málum því það er spuming
hvort það er í verkahring lyfjafræð-
inga að standa í þessum bófahasar
í lyfjabúðunum," sagði Hjörleifur.
Finnbogi Rútur Hálfdanarson
lyfjafræðingur hjá Garðsapóteki
sagði að falsaðir lyfseðlar hefðu
heyrt til undantekninga hér á árum
áður, í sumar hefði hinsvegar keyrt
um þverbak og hugsanlega væru
þetta samantekin ráð. Lyfið sem
einkum væri sóst eftir væri verkja-
lyf úr ópíumflokki sem nefnist
Fortral og hefði hann heyrt að
gangverðið fyrir hverja töflu væri
500 krónur.
Ólafur Ólafsson landlæknir sagði
í samtali við Morgunblaðið að varla
kæmi til greina að taka upp pappírs-
laus lyfjaviðskipti, hugsanlega
mætti styðjast við rithandarsýnis-
hom til samanburðar eða merkja
lyfseðla fyrir eftirlitsskyld lyf. Það
hefði hinsvegar ekki reynst vel á
Norðurlöndunum. „Til þessa hefur
þetta verið of lítið til þess að hafa
af því þungar áhyggjur, en ef þetta
er ekki einhver bóla verður að taka
þessi mál til endurskoðunar."
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 11. NOVEMBER
YFIRLIT: Við strönd Græniands, vestur af Vestfjörðum, er 964 mb lægð
sem mun þokast austnorðaustur, en grunnt lægðardrag á sunnanverðu
Grænlandshafi hreyfist austur.
SPÁ: Allhvöss eða hvöss suðvestanátt og éljagangur um sunnan- og
vestanvert landið, en lengst af úrkomulaust norðaustanlands. í fyrramál-
ið má þó búast við samfelldri snjökomu eða slyddu með suðausturströnd-
inni. Hægt kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestanstrekkingur og vægt frost víöast
hvar. Éljagangur sunnanlands og vestan, en þurrt norðaustantil.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vestan- og norðvestanátt með éljagangi um
mikinn hluta landsins, síst þó á Suðausturlandí og Austfjörðum.
HORFUR Á SUNNUDAG: Útlit fyrir norðlægan vind og harðnandi frost.
Éljagangur norðantil, en þurrt syðra.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnír: 990600.
Heiðskirt Léttskýjað
f f f * f *
f f * f
f f f f * f
Rigning Slydda
-'A ý\ Q
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
v ^ ý
Skúrir Slydduél Él
* * *
* ♦
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
ogfjaðrimarvindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30!gær)
Töluverður óljagangur er á Suður- og Vesturlandi, eru vegir víðast háiir
og sama er að segja um vegi á heiðum noröanlands. A Vestfjörðum
er ófært um Hrafnseyrarheiði, Þorskafjarðarheiðar og Eyrarfjall, en þung-
fært um Klettsháls og Dynjandisheiði. Aðrir vegir á Vestfjörðum eru
færir, en víða er talsverð hálka. Annars staðar á landinu eru vegir greið-
færir eios og er.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ágrænnilínu, 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tima
hiti veður
Akureyr! 4 léttskýjaft
Reykjavík 0 snjóél
Bergen 7 rigning
Helsinki +3 skýjað
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Narssarssuaq +10 snjókoma
Nuuk +7 skýjaft
Óslé 6 aúfd
Stokkhólmur 4 rigning
Þórshðfn 6 akúrir
Algarve 20 léttskýjaft
Amsterdam 9 rignlng
Barcelona 17 skýjaft
Berlín 7 þokumóða
Chicago 4 alskýjað
Feneyjar 15 þokumóða
Frankfurt 8 skýjaft
Glasgow 3 þoka
Hamborg 8 alskýjað
London 12 skýjað
LosAngeles 16 þokumóða
Lúxemborg 6 þokumóða
Madríd 13 léttskýjað
Malaga 20 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal 1 léttskýjað
NewYork 6 skýjað
Oriando 18 þokumóða
Parfs 9 rlgning
Madeira 18 skýjað
Róm 16 rigning
Vfn 9 skýjað
Washlngton 4 þokumóða
Winnipeg +11 skýjað
íDAG kl. 12.00
Helmíld: Veðurstofa íslands
(Byggt ó veðurspá kl. 16.30 í gær)
Morgunblaðið/Hólmfríður Oddsdóttir
Annir á hjólbarðaverkstæðum
MIKIÐ hefur verið að gera á hjólbarðaverkstæðum Reykjavíkur síðustu
daga og með hálku á götum Reykjavíkur í gærmorgun mynduðust þar
langar biðraðir. Um hádegisbilið í gær var allt upp í tveggja tíma bið
eftir afgreiðslu og að sögn verkstæðismanna hafði örtröðin bytjað klukk-
an átta um morguninn og ástandið verið svona síðan á mánudag.
Dýpkun Reykjavíkurhafnar undirbúin
Overuleg kvika-
silfursmengun
ÓVERULEG kvikasilfursmengun er í Gömlu höfninni í Reykjavík og
langt innan við mörk laga um varnir gegn mengun sjávar. Tekin hafa
verið sýni af botnleðju hafnarinnar vegna fyrirhugaðrar dýpkunar og
er lokaskýrslu um greiningu þungmálma að vænta í desember. Einnig
verður mælt hvort einhver merki finnist um PCB-mengun.
í greinargerð frá tæknideild
Reykjavíkurhafnar, sem lögð var
fram í borgarráði á þriðjudag, kemur
fram að Gamla höfnin hefur ekki
verið dýpkuð í áratugi en nú er talin
þörf á að dýpka hana um 1,2 metra
að meðaltali. Er fyrirhugað að dýpk-
uninni verði lokið eftir ár. Fyrir liggja
útfærðar tillögur frá Reykjavíkur-
höfn um að uppgrafið efni úr Gömlu
höfninni verði nýtt til undirfyllinga
við landgerð á Klettasvæði. Með
þessu móti nýtist efnið sem fyllingar-
efni en um leið er það lokað af inni
í fyllingum. Þessi leið er farin hjá
þeim höfnum erlendis sem taka á
mengunarmálum.
Farið eftir lögum
í greinargerðinni kemur fram að
við undirbúning á þessum fram-
kvæmdum hafi í fyrsta sinn á ís-
landi verið unnið í einu og öllu eftir
íslenskum lögum og alþjóðareglum
sem um þessi mál gilda. Sótt var um
leyfi til Siglingamálastofnunar og
hefur stofnunin samþykkt fram-
kvæmdimar með fyrirvömm um nið-
urstöður mengunarmælinga og frá-
gang efnis á losunarstað. Hafa verið
tekin sýni til efnagreininga og þung-
málmamælingar og liggja fyrstu nið-
urstöður kvikasilfursmælinga fyrir.
Að meðaltali mælast 0,3-0,4
milligrömm í kílói sem er langt innan
marka laga um vamir gegn mengun
sjávar.
------» ♦ ♦-----
Dauðir kópar
í Skjalda-
bjarnarvík
Trékyllisvík.
SÝSLUMAÐURINN á Hólmavík
sendi tvo menn úr Árneshreppi
norður í Skjaldabjarnarvík til þess
að sækja sýni vegna fjölda dauðra
útselskópa sem fundust þar fyrir
skömmu. Talið er að selirnir hafa
verið drepnir í síðustu viku en
alls fundust þá um 40 útselshræ í
fjörunni.
Tvímenningamir sögðu, að að-
koman hefði verið frekar óskemmti-
leg þrátt fyrir að hræunum hefði
fækkað. Þeir sögðu að flestir kóparn-
ir hefðu verið stungnir til baka eða
skomir á háls.
- V. Hansen
National Fish and Wildlife Foundation
Orri fær verðlaun
fyrir kvótakaupin
ORRI Vigfússon forstjóri Sprota og Alþjóðlega laxakvótasjóðsins
hefur verið sæmdur „Chuck Yeager“-verðlaunum „National Fish
and Wildlife sjóðsins í Bandaríkjunum. Verðlaunin eru veitt þeim
einstaklingi sem nær afburðaárangri á sviði náttúruverndar í
Norður-Ameriku og hlýtur Orri þau vegna frumkvæðis síns og
starfs við uppkaup á laxveiðikvótum Færeyja og Grænlands síð-
ustu fjögur árin, auk þess að uppræta ólöglegar Iaxveiðar danskra
fiskibáta á alþjóðlegu hafsvæði milli Noregs, Færeyja og íslands.
„Þetta er mikill heiður og viður-
kenning. Það er líka gaman að
vera fyrsti útlendingurinn sem
hlýtur þessi verðlaun," sagði Orri
í samtali við Morgunblaðið. Hann
segist reikna með þvi að fá nán-
ari útlistun á næstunni hvert og
hvenær hann skuli halda utan og
taka á móti verðlaunum, sem eru
glæsilegur veggskjöldur og ávísun
upp á 15.000 Bandaríkjadali.
Verðlaunasjóður þessi var stofn-
aður árið 1989 til heiðurs Charles
E. Yeager herforingja og að ósk
hans rennur verðlaunaféð til
þeirra einstaklinga sem ná af-
burðaárangri í umhverfís- og nátt-
úruvemd. Er ætlast til þess að
verðlaunaféð renni í náttúru-
vemdarverkefni viðkomandi verð-
launahafa. Sjóðurinn starfar á
þess háttar grunni, að einungis
er veitt úr honum að úthlutunar-
nefndin telji einhvem verðskulda
verðlaun. Það hefur þv! ekki verið
veitt úr sjóðnum árlega og því
engin fastmótuð árleg afhending-
arhefð. Orra var tilkynnt um tíð-
indin í bréfí frá Amos S. Eno,
stjómarformanni sjóðsins.