Morgunblaðið - 11.11.1993, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
Stórtap
hjá Euro
Disney
EURO Disney fyrirtækið, sem
rekur samnefndan skemmti-
garð við París, tapaði 5,3 millj-
örðum franka, jafnvirði 64
milljarða íslenskra króna, á
reikningsárinu sem lauk í lok
september sl. Afskrifaður var
kostnaður sem féll til við upp-
setningu skemmtigarðsins sem
opnaði fyrir 18 mánuðum. Sér-
fræðingar sögðu að eigið fé
fyrirtækisins stæði nú á núlli.
Hlutur í Euro Disney seldist í
gær á 39,95 franka en á 72
franka er hlutabréf voru sett á
markað síðla árs 1989.
Tíu biðu bana
í rútuslysi
TÍU manns biðu bana og rúm-
leg 30 slösuðust er rútubifreið
með 44 bandaríska og kana-
díska ferðamenn innanborðs ók
út af hraðbraut skammt frá
Kantaraborg í Bretlandi í gær.
Bílstjórinn missti vald á bifreið-
inni en úrhellisrigning og háv-
aðarok var er slysið átti sér
stað.
Göngnlagið
felldi þær
TVÆR rússneskar konur á leið
í verslunarleiðangur til Tyrk-
lands voru stöðvaðar um borð
í feiju í Svartahafsborginni
Sotsjí þar sem göngulagið þótti
harla einkennilegt. Skýringin
kom fljótt í ljós, konurnar höfðu
troðið reiðufénu, 2.790 dollur-
um í fímm, 10, 50 og 100 doll-
ara seðlum, upp í leggöngin.
Metfram-
leiðsla hjá
Norðmönnum
OLÍUFRAMLEIÐSLA Norð-
manna í Norðursjó í október
sló öll met en þá nam fram-
leiðslan 2,44 milljónum fata á
dag. Dæling hófst þá frá nýjum
vinnslusvæðum. Gamla mánað-
armetið var frá í júlí er 2,40
milljónir fata voru framleidd
að meðaltali á dag.
Heræfingar í
Suður-Kóreu
EFNT verður til sameiginlegra
heræfinga bandarískra og suð-
ur-kóreskra hersveita í næstu
viku og standa þær í sex daga.
Með þeim er ætlunin að æfa
viðbrögð við hugsanlegum
skyndiárásum frá Norður-
Kóreu.
Vilja ekki
konfekt Karls
BRESKAR konur vildu síst fá
konfektkassa frá Karli Breta-
prins, samkvæmt niðurstöðum
Gallup-rannsóknar sem birt var
í gær. Helst vildu þær fá súkk-
ulaði að gjöf frá ástralska leik-
aranum Mel Gibson en næstur
honum kom bandaríski leikar-
inn Kevin Costner.
Hættir Heit-
mann við?
STEFFEN Heitmann, forseta-
efni Kristilega demókrata-
flokksins (CDU) í Þýskalandi,
sagðist í gær hugsanlega verða
að hætta við framboð. Val Heit-
manns hefur sætt mikilli gagn-
rýni innan flokksins sem utan
en Helmut Kohl kanslari er
sagður bera ábyrgð á valinu.
Reuter
Sljórn Nígeríu dæmd ólögleg
DÓMSTÓLL í Lagos í Nígeríu úrskurðaði í gær að bráðabirgðastjórn lands-
ins væri ólögleg þar sem Ibrahim Babangida, fyrrverandi forseti, hefði ekki
haft vald til að mynda stjórn áður en hann lét af embætti 26. ágúst. Þúsund-
ir stjórnarandstæðinga fögnuðu ákaft niðurstöðunni.
Vélmenni fá sjón
Sydney. Reuter.
ÁSTRALSKIR vísindamenn kynntu í gær nýja uppgötvun, „auga“ fyr-
ir vélmenni. Um er að ræða örflögu sem á að gera vélmennum mögu-
legt að „sjá“ nógu vel til að geta hreyft sig ótrufluð en hingað til
hefur þurft dýran og stóran tölvubúnað til þess.
Örflagan var fyrst prófuð á tölvu-
stýrðum armi, en í forrit hans var
skráð að hanrí ætti að hörfa í hvert
sinn sem hann „sæi“ hlut nálgast.
Brást armurinn við á innan við einum
tíuþúsundasta úr sekúndu, en það
eru mun skjótari viðbrögð en hjá
þeim tölvum sem hingað til hafa stýrt
„sjón“ vélmenna.
Örflagan er á stærð við nögl á
þumalfingri og er „sjónin" byggð upp
á sama hátt og sjón býflugna. I flög-
unnni er röð 60 ljósnema sem eru
tengdir samhliða örgjörvum og yfir
20.000 smárum. Flagan skynjar
hreyfíngu og jafnar þær andstæður
sem hún skynjar.
En flagan getur ekki komið í stað-
inn fyrir mannsauga. „Þetta „auga“
sér ekki á sama hátt og mannsaug-
að, segir Derek Abbott, verkfræðing-
ur og einn höfunda „augans". „Það
sér ekki myndir og ekki liti. Menn
myndu ekki gera sér það að góðu.“
Áformin um samruna Volvo og Renault
Skandia vill breyt-
ingar á samningnum
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
BJÖRN Wolrath, aðalframkvæmdastjóri sænska tryggingafé-
lagsins Skandia, eins af stærstu hluthöfunum í Volvo, sagði í
gær að franska stjórnin yrði að gera verulegar breytingar á
skilmálum samningsins um samruna Volvo og franska ríkisfyrir-
tækisins Renault. Samrunanum er ekki aðeins mætt með tor-
tryggni í Svíþjóð, heldur hafa nú starfsmenn Renault einnig
látið í Ijós óánægju með áform um einkavæðingu fyrirtækisins.
Halda átti hluthafafund í Volvo
í síðustu viku en honum var frest-
að á síðustu stundu til 7. desem-
ber og verða þá greidd atkvæði
um samninginn. „Ég er þeirrar
skoðunar að franska stjórnin verði
að gera grundvallarbreytingar á
gylltu hlutabréfunum svokölluðu
og áformunum um einkavæðingu
Renault til að binda enda á and-
stöðu sænsku hluthafanna," sagði
Wolrath. Hann sakaði stjórn Volvo
um að hafa látið hjá liggja að út-
skýra fyrir hluthöfunum í hveiju
samningurinn fælist og sagði
stjórnina hafa „misst tökin á stýr-
inu“. Hluthafarnir væru þeir einu
sem ekki hefðu fengið nákvæmar
upplýsingar um samninginn;
starfsmenn fyrirtækisins, verka-
lýðshreyfingin og stjórnmálamenn
virtust hafa haft forgang hjá
stjórninni. „Það hefur orðið upp-
reisn hjá hluthöfunum - og stjóm-
in var ekki undir hana búin.“
Um tugur stórra hluthafa hefur
ekki enn tekið afstöðu í málinu
en auk Skandia hefur tryggingafé:
lagið Trygg-Hansa farið fram á
skýrari svör um samninginn. Sam-
kvæmt skoðanakönnun meðal fé-
laga í sambandi sænskra atvinnu-
rekenda eru rúm 40% þeirra and-
víg samruna fyrirtækjanna.'
Hingað til hefur samningurinn
einkum verið gagnrýndur í Sví-
þjóð, en nú hafa starfsmenn Ren-
ault látið í ljós tortryggni gagn-
vart samrunanum þar sem þeir eru
á móti áformum um einkavæðingu
fyrirtækisins, sem er forsenda
þess að úr samrunanum verði.
Jeltsín kynnir stjórnarskrá sem borin verður undir þjóðaratkvæði í Rússlandi
Völd forsetans aukin og sér-
staða lýðvelda viðurkennd
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, kynnti í sjónvarpsávarpi áþriðju-
dagskvöld stjórnarskrá þá sem lögð verður fyrir alþýðu manna
eystra í þjóðaratkvæðagreiðslu 12. næsta mánaðar. Sljórnarskrá-
in kveður á um yfirburðastöðu forsetans í rússnesku sljórnmála-
lífi og hafa þegar komið fram gagnrýnisraddir í þá veru að hún
endurpegli valdagræðgi Jeltsíns en ekki djúpstæða lýðræðisást
hans. Jeltsín lagði hins vegar á það áherslu í ávarpi sínu að til-
gangur sljórnarskrárinnar væri ekki sá að tryggja forsetanum
alræðisvald, eftir slíku sæktist hann ekki, heldur væri hún byggð
á nútímalegri hugmyndafræði lýðræðis og valddreifingar auk
þess sem tekið væri tillit til sérstöðu lýðvelda og sjálfstjórnar-
svæða innan Rússlands.
Stjórnarskráin er 66 síðna
plagg en deilur Jeltsíns og þing-
heims um túlkun á gildandi stjóm-
arskrá, sem samin var á Sovét-
tímanum, höfðu einkennt allt
valdaskeið hans þar til í fyrra
mánuði er uppreisn andstaiðinga
forsetans var brotin á bak aftur
með valdi í Msokvuborg.
Eignarréttur tryggður
Nýja stjómarskráin, sem borin
verður undir þjóðaratkvæði 12.
desember, um leið og fyrstu
frjálsu þingkosningarnar í sögu
Rússlands fara fram, kveður á
um aukin völd forsetans á kostnað
þingheims. í henni er að finna
ákvæði er vernda eignarréttinn
og um stöðu lýðvelda og sjálfs-
stjórnarsvæða sem alls eru 89
innan Rússlands. Verði stjórnar-
skrá þessi samþykkt með tilskild-
um meirihluta munu hugmynda-
fræðileg ákvæði sósíalismans og
helstu kennisetningar bolsjevikka,
sem einkenndu 70 ára valdatíð
kommúnista, formlega heyra sög-
unni til. Þannig segir í stjórnar-
skránni að ríkisvaldið ábyrgist
séreignarréttinn.
Að franskri fyrirmynd skipar
forsetinn ráðherra og hann mun
hafa rétt á að leysa upp þingið,
neiti það þrívegis að samþykkja
þann sem forsetinn hefur tilnefnt
til embættis forsætisráðherra. Hið
sama mun gilda komi fram tillaga
um vantraustsyfirlýsingu gagn-
vart starfandi ríkisstjórn. Eins og
í Bandaríkjunum mun forsetinn
einnig tilnefna seðlabankastjóra
og skipa helstu dómara og ríkis-
saksóknara Rússlands. Sam-
kvæmt núgildandi stjórnarskrá,
sem hefur þráfaldlega verið
breytt, getur forsetinn ekki leyst
upp þing og hún kveður einnig á
um að þingheimur tilnefni bæði
seðlabankastjóra og dómara.
Sýnt þykir að það verði nánast
ógerlegt fyrir þingheim að koma
starfandi forseta frá völdum
t.a.m. á grundvelli ákæru. Til
þess að svo megi verða munu hin-
ar ýmsu niðurstöður hinna ýmsu
dómsstiga þurfa að liggja fyrir
og tveir af hveijum þingmönnum
munu þurfa að samþykkja að víkja
beri forseta úr embætti. Þá verður
neitunarvaldi forsetans aðeins
hnekkt ef fyrir liggur samþykkt
í þá veru sem tveir af hveijum
þremur þingmönnum hafa stutt.
Sams konar ákvæði er að finna í
stjómarskrá Bandaríkjanna en
fram til þessa hefur sú sovéska/
rússneska kveðið á um að einfald-
ur meirihluti dugi í þessu skyni.
Tvær þingdeildir
Þinginu verður skipt upp í tvær
deildir. í neðri deildinni, Dúma,
munu 450 kjörnir þingmenn eiga
sæti. í efri deildinni, Sambands-
ráðinu, munu tveir fulltrúar hvers
og eins lýðveldis og sjálfsstjórnar-
svæðis sitja, alls 178 manns. Svip-
ar þetta mjög til efri deildar
franska þingsins.
Þingdeildirnar munu starfa
sjálfstætt og einungis koma sam-
an einu sinni á ári til að hlýða á
stefnuræðu forseta. Það þing sem
Forsetinn staðfestir
BORÍS Jeltsín Rússiandsforseti
undirritar stjórnarskrárdrögin
sem borin verða undir þjóðarat-
kvæði 12. desember. Í nýju
stjórnarskránni verður horfið
frá sósíalískum sameignar-
ákvæðum og kveðið á um stöðu
lýðvelda og sjálfsstjórnarsvæða
gagnvart alríkisstjórninni í
Moskvu.
kjörið verður í kosningunum í
næsta mánuði mun aðeins sitja í
tvö ár en í framtíðinni verður
kosið til Dúmunnar á fjögurra ára
fresti.
Með þessari tvískiptingu þings-
ins þykir sýnt að það muni síður
en áður geta risið upp sameinað
gegn ríkisstjórn og forseta lands-
ins. Á hinn bóginn munu þeir
þingmenn sem skipaðir eru í Sam-
bandsráðið verða til þess að
styrkja stöðu lýðvelda og sjálfs-
stjórnarsvæða gagnyart alríkis-
valdinu í Moskvu. Lög munu ekki
öðlast gildi fyrr en Sambandsráð-
ið hefur samþykkt frumvörp Dú-
munnar. Á þann veg mun stjóm-
arskráin tryggja áhrif lýðvelda og
sjálfsstjómarsvæða. Samkvæmt
núgildandi stjórnarskrá er forset-
inn formaður Sambandsráðsins
en það hefur það hlutverk eitt að
vera forsetanum til ráðgjafar.
Af hálfu leiðtoga lýðveldanna
innan Rússlands hafði komið fram
sú krafa að í stjórnarskránni væri
vísað tij þeirra sem „fullvalda
ríkja“. Á þann veg yrði gerður
greinarmunur á þeim og sjálfs-
stjórnarsvæðunum 66 og borgun-
um tveimur sem heyra undir alrík-
isstjómina, Moskvu og Péturs-
borg. í nýju stjórnarskránni segir
hins vegar að öll þau svæði sem
til Rússlands heyra skuli teljast
hafa sömu stöðu og hvergi er
minnst á fullveldi þeirra. Á hinn
bóginn munu lýðveldin hafa rétt
til að setja sér eigin stjórnarskrá.
Aðeins tvö kjörtímabil
í stjórnarskrárdrögunum sem
Jeltsín kynnti er einnig að fínna
tímabundið undantekningará-
kvæði þess efnis að sitjandi for-
seti (þ.e. Jeltsín) skuli sitja út
kjörtímabilið en því lýkur 1996.
Líkt og í Bandaríkjunum verður
forsetinn hins vegar kjörinn til
fjögurra ára og má aðeins sitja
tvö kjörtímabil.
Er Jeltsín leysti þingið upp og
boðaði til kosninga í desember
lýsti hann einnig yfir því að for-
setakosningar færu fram í júní á
næsta ári. Frá þessu hvarf forset-
inn á dögunum og urðu margir
til þess að gagnrýna þá ákvörðun
hans þótt leiðtogar á Vesturlönd-
um kysu að gera það ekki. Vítalíj
Tretjakov, þekktur umbótasinni
og ritstjóri dagblaðsins Nezavi-
simaja Gazeta, sagði í forsíðu-
grein í gær að stjórnarskráin nýja
kvæði vissulega á um að komið
yrði á fót lýðræðislegum stofnun-
um í rússnesku samfélagi og leik-
reglumar skyldu vera í samræmi
við það. Á hinn bóginn væri ljóst
að stjórnarskráin tæki einkum
mið af hagsmunum forsetans og
þá sérstaklega hagsmunum Bo-
rísar Jeltsíns. Skákmeistarinn
Garrí Kasparov gagnrýndi einnig
óhófleg völd forsetans og kvaðst
þeirrar hyggju að breyta þyrfti
stjómarskránni fljótlega á ný.