Morgunblaðið - 11.11.1993, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NOVEMBER 1993
7/irernig er hanr. i b-eygju/n,?1
Með
morgunkaffinu
En... ég er með slifsi maður.
Ast er...
8-34
uppáhalds sælgætið í
bestu sætum leikhúss-
ins
TM Reg. U.S Pat Off.—alt rights reserved
® 1993 Los Angetes Times Syndicate
Ég keypti þennan sjálfblekung
í gær, hér hjá þér.
HÖGNI HREKKVÍSI
BREF HL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Ranglát heilsiíkort
Frá Aðalsteini Sigurðssyni:
MARGT er nú öfugsnúið hérlendis
í skattamálum og öðru slíku. Það
er eins og allt miðist við að láta
þá, sem minnst hafa, bera sem
mestar byrðar. Þó er svokallaður
Jafnaðarmannaflokkur íslands við
völd hér ásamt Sjálfstæðisflokkn-
um og virðist sá fyrrnefndi ganga
lengra í ójöfnuðinum gagnvart
smælingjunum.
Þarna er af mörgu að taka, en
ég ætla hér aðeins að ræða eitt
atriði, en það eru hin svokölluðu
heilsukort, sem heilbrigðisráð-
herra ætlar að láta alla Íslendinga
16 ára og eldri greiða. Þetta er
tvö þúsund króna nefskattur, sem
leggja skal á hvort sem menn
hafa einhveijar tekjur eða ekki,
og skattur er þetta, hvað sem ráð-
herra kýs að kalla það. Að vísu
segir hann, að menn ráði því sjálf-
ir hvort þeir greiði heilsukortin eða
endursendi þau. Ef þau verða end-
ursend verða menn sjálfir að
standa straum t.d. af sjúkrahús-
legu, þó e.t.v. megi fá þann kostn-
að endurgreiddan með því að
borga kortin seinna og þá að sjálf-
sögðu með talsverðri skriffínnsku.
Ekki þori ég að eiga slíkt á hættu
enda gæti reynst erfitt að standa
í skilum, ef til kæmi. Þannig myndi
fara fyrir fleirum svo framarlega
Frá Sigurði Guðmundssyni:
Reykjavöllum 3. nóvember 1993.
Mata hf.
Berist Eggerti Gíslasyni forstjóra.
Ég vildi senda þér línu í gúrkut-
íðinni. Mér er spurn eru einhver
vandamál með innflutning á gúrk-
um eftir 1. nóvember ár hvert?
Ef þú hefðir farið rétta boðleið
og sent inn beiðni um innflutning
á agúrkum til landbúnaðarráðu-
neytisins, þá hefðir þú án efa feng-
ið það leyfi strax í gegn. Því ég
veit ekki til þess að neinar ís-
lenskra gúrkur séu í framleiðslu
nema hjá þeim sem eru með lýs-
að þeir gætu skrapað þær krónur
saman, sem til þyrfti. Þeir, sem
ekkert hafa sér til framfæris ann-
að en elli- eða örorkulífeyri, og
unglingar og atvinnulausir myndu
eiga erfitt með slíkar greiðslur,
svo ekki sé meira sagt. Hver sér
sanngirni í svona álögum?
Ég fór að velta því fyrir mér
hvað skattarnir mínir myndu
hækka um marga hundraðshluta
að viðbættum þessum skatti og
niðurstaðan varð 1,4%, en ég hefi
71.944 kr. úr lífeyrissjóði á mán-
uði og venjulegan ellilífeyri að
auki, svo margir hafa minna og
þá verður auðvitað prósentuaukn-
ingin meiri, hvað þá þegar tekjur
eru undir skattleysismörkum, en
það verða því miður margir að
sætta sig við. Skattar konu minnar
myndu hækka um 3,2% en væri
skattaaukningin fyrir okkur hjónin
reiknuð sameiginlega yrði hún
1,9%.
Það er deginum ljósara, að heil-
brigðisþjónustuna verður að borga
og séu ekki tiltækir peningar til
þess eins og málum er háttað nú
er eðlilegast að hækka almenna
skattprósentu. Ég hefi engar for-
sendur fyrir því að reikna út hve
mikil sú hækkun þyrfti að vera,
en hún er varla mjög mikil. Við
hjónin myndum hins vegar sætta
okkur við að hún yrði 2%, eins og
ingu og ég held að þeir geti ekki
annað markaðnum, þótt það væri
óneitanlega skemmtilegt.
Ég held að ef við ætlum að lifa
á íslandi þá verðum við að fara
eftir þeim reglum sem við setjum.
Ég veit að mörgum reglum þarf
að breyta en við breytum þeim
ekki með því að bijóta reglur.
Við garðyrkjubændur eigum í
harðnandi samképpni með að selja
framleiðslu okkar og því verðum
við að vinna saman að því að skyn-
semi ráði.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
Reykjavöllum
Selfossi.
Guðmundur Árni vill að verði, og
við þyrftum þar með að greiða kr.
2.000 hvort á ári, ef sú hækkun
yrði látin ganga jafnt yfir alla
skattgreiðendur. Þá þyrfti maður,
sem hefir hálfa milljón króna í
tekjur á mánuði umfram skattleys-
ismörk að greiða kr. 120.000 á
ári vegna hækkunarinnar, en það
er jafnt og 60 fátæklingar þyrftu
að borga fyrir heilsukortin. Hvorir
ættu að hafa betri ráð á því?
AÐALSTEINN SIGURÐSSON,
Vallarbraut 8, Seltjarnarnesi.
Blöndun
fjarskyldra
kynþátta
Frá Ingvari Agnarssyni:
Það er hverri þjóð til hinnar
mestu óþurftar, að of margt
sé flutt inn af fólki af ólíkum
kynþáttum. Reynsla fjöl-
margra þjóða sannar það. Og
til samanburðar vil ég nefna,
að þegar fólk flytur brott af
jörðinni, við andlát, til annars
hnattar, þá flytur hver ein-
staklingur til aflsvæðis, sem
honum er skylt að eðli:
Hvítir menn koma fram
meðal náinna vina og ættingja
af hvítum kynstofni, guiir
menn koma fram meðal náinna
vina og ættingja af gulum
kynstofni; svaitir menn koma'
fram meðal vina og náinna
ættingja af svörtum kynstofni
o.s.frv. Þetta er eðlilegt nátt-
úrulögmál. Þegar ijölmargir
fjarskyldir kynþættir jarðar
okkar fara að setjast að og
blandast saman meðal ein-
hverrar sérstakrar þjóðar,
verður úr þessari samblöndun
einn allsheijar óskapnaður,
sem enginn fær ráðið við.
Mér finst sjónvarpsþáttur-
inn 20. október sl. - þar sem
fólk af ólíkum kynþáttum átti
e.k. tal saman - styðja þetta
álit mitt eindregið.
INGVAR AGNARSSON
Hábraut 4, Kópavogi.
Bréf til Mata vegna
agúrkuinnflutnings
t
&
éS HÉLT Ab> ÞETTA VÆiR.1 KÓLAN þÍKJ.' "
Víkveiji skrifar
Víkveiji dagsins hefur um ára-
bil verið viðskiptavinur
Landsbanka íslands og m.a. fengið
Iaunagreiðslur sínar beint inn á
reikning þar. Eftir flutninga Morg-
unblaðsins í Kringluna hefur hann
velt fyrir sér að færa viðskipti sín
milli útibúa innan bankans. Nýlega
átti Víkveiji leið í Háaleitisútibú
Landsbankans til að nálgast tékk-
hefti og viðraði jafnframt þá hug-
mynd sína að skipta um útibú af
hagkvæmisástæðum. Víkveiji
hafði gert sér í hugarlund að þarna
væri um einfalda og fljótlega
breytingu að ræða enda ekki eins
og verið væri að færa viðskipti á
milli banka. Það kom þó í ljós að
þannig líta Landsbankamenn á
málin. Samkvæmt upplýsingum
sem fengust í Háaleitisútibúinu
þarf að loka tékkareikningi í fyrra
útibúi og greiða að fullu upp yfir-
dráttarheimild sem hvílir á þeim
reikningi. Síðan þurfa að líða þrír
mánuðir áður en hægt er að sækja
um yfirdráttarheimild á nýjum
reikningi í nýju útibúi innan sama
banka.
Er það virkilega stefna bankans
að reka hvert útibú sem sjálfstæð-
an banka að þessu leyti? Hefur
Víkveiji hingað til ekki verið við-
skiptavinur Landsbankans heldur
viðskiptavinur aðalbanka Lands-
bankans?
xxx
Víkverji fór um helgina á veit-
ingastaðinn Argentínu
ásamt nokkrum félögum sínum.
Þjónustan á veitingastaðnum var
til sóma og nutu vinir hans þessa
kvölds til hins ítrasta.
Sem dæmi um þjónustuna má
nefna að þegar kom að því að velja
rétti á matseðli voru a.m.k. tveir
úr hópnum, sem gleymt höfðu gler-
augunum heima. Nú voru góð ráð
dýr, en þjónarnir, sem greinilega
eru vanir því að leysa hvers manns
vanda, brugðu hart við og komu
með geraugu, svo að viðkomandi
gætu valið sér einhvern gómsætan
rétt.
Þetta er frábær þjónusta og
skemmtilegt að vera þess var að
þjónarnir virðast bókstaflega
hugsa fyrir öllu sem upp getur
komið. Þeir komu með nokkur gler-
augnapör og svo var hvert parið á
fætur öðru mátað unz viðkomandi
sá á matseðilinn. Hafi þjónarnir
kærar þakkir fyrir hugulsemina.