Morgunblaðið - 11.11.1993, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
51
Vatnaskógur í haustskrúða. Fermingarböm úr Laugarneskikju í ratleik í Vatna-
skógi
Stóraukin starfsemi
í Vatnaskógi í vetur
Frá Þórami Björnssyni:
Á VEGUM Reykjavíkurprófasts-
dæma voru skipulögð alls 19 ferm-
ingamámskeið í Vatnaskógi haustið
1992. Námskeiðin þóttu takast
mjög vel og var ákveðið að halda
áfram á sömu braut. Á þessu ári
stefnir í að námskeiðin verði yfír
30 og má búast við að um 1600
fermingarböm leggi leið sína í
Vatnaskóg af þessu tilefni. Skipu-
lagning og framkvæmd námskeið-
anna er nú í höndum Skógarmanna
KFUM en að jafnaði taka um 50-60
unglingar þátt í hveiju námskeiði.
Námskeiðin standa fram í byrjun
desember en ekki er ólíklegt að
nokkur námskeið kunni að bætast
við á vormánuðum.
í haust hafa einnig verið gerðar
athyglisverðar tilraunir með haust-
ferðir í samvinnu skóla, félagsmið-
stöðvar og safnaðar í Grafarvogi.
Skipulögð var þriggja daga dvöl
fyrir krakka úr Foldaskóla og Húsa-
skóla í Grafarvogi þar sem fléttað
var saman fermingarfræðslu og
skóiaferðalagi. Þannig .gafst meiri
tími til íþrótta og hollrar útivem
og má segja að hér hafí verið á
ferðinni fyrsti vísir að eiginlegum
skólabúðum í Vatnaskógi, en Skóg-
armenn ICFUM hafa þegar lagt
drög að skólabúðarekstri í framtíð-
inni.
Ymsir aðrir hópar hafa einnig í
auknum mæli nýtt sér aðstöðuna í
Vatnaskógi. Þannig var í Vatna-
skógi í haust haldið stærsta Lands-
mót æskulýðsfélaga kirkjunnar frá
upphafí, en nærri lætur að um 280
manns hafí verið á mótinu. Sömu-
leiðis er nýlokið íjölskyldumóti og
kristilegu skólamóti. Æskulýðs-
samtök, bamakórar, kirkjukórar,
tónlistarskólar, gmnnskólar og
íþróttafélög hafa einnig falast eftir
afnotum af Vatnaskógi og hafa
þegar nokkrir hópar verið bókaðir
um helgar á haust- og vormánuð-
um. Skógarmenn KFUM leigja
einnig út æfíngatíma í íþóttahúsinu
gegn vægu gjaldi fyrir einstaklinga
og hópa sem kynnu að hafa áhuga.
Skógarmenn KFUM stefna nú að
því fullum fetum að Sumarbúðimar
í Vatnaskógi verði í notkun allan
ársins hring, enda hefur tilkoma
hitaveitu á staðinn og stórbætt
íþróttaaðstaða, utan húss sem inn-
an, gert staðinn eftirsóknarverðari
en nokkm sinni fyrr. Vatnaskógur
getur nú auðveldlega tekið við
25-130 manna hópum í mat og gist-
ingu, jafnt sumar sem vetur.
íþróttahús er á staðnum með góðri
tómstundaaðstöðu og 350 m2
íþróttasal. Svefnskálar em þrír og
góður kvöldvökusalur með ami í
einu húsanna. Einnig er bátaskýli
og falleg kapella í Vatnaskógi og
náttúmfegurð mikil. Tveir grasvell-
ir em í Vatnaskógi og góð aðstaða
fyrir fijálsar íþróttir, auk þess sem
göngustígar um skóginn gefa tæki-
færi til hollrar útivem. Allar nánari
upplýsingar veitir framkvæmda-
stjóri Skógarmanna KFUM í síma
678899
ÞÓRARINN BJÖRNSSON,
framkvæmdastjóri Skógamanna
KFUM.
Pennavinir
Tólf ára tékknesk stúlka með
áhuga á ferðalögum, útivist og
bókalestri:
Jana Berna,
Zamecka 498,
507 81 Lazne Belohrad,
Czech Republic.
Fimmtugur færeyskur sjómaður
vill eignast pennavinkonu á svipuð-
um aldri:
Niclas Samuelsen,
A Brekku 6,
Klakksvik,
Færeyjum.
Tékki, 57 ára verkfræðingnr, vill
skiptast á frímerkjum:
Ing. Josef Kadlec,
Proslunena 11/560,
CZ-15200 Praha 5,
Czech Republic.
Frá Ghana skrifar 26 ára stúlka
með áhugaá bókalestri, ferðalögum,
menningu og sundi:
Faster Kwaning,
P.O. Box 1317,
Cape Coast,
Ghana.
LEIÐRÉTTINGAR
Rangt nafn í
hjónaminningu
í minningargrein Valgerðar og
fleiri um hjónin Hildigerði Georgs-
dóttur Markússon og Höskuld
Markússon var Höskuldur vegna
mistaka í vinnslu nefndur Harald-
ur. Hlutaðeigendur em innilega
beðnir afsökunar á þessum mistök-
um.
Engar stöðu-
mælasektir
Vegna fréttar á forsíðu sunnu-
dagsblaðs Morgunblaðsins 7. þessa
mánaðar skal tekið fram að sendi-
ráð íslands í Washington og starfs-
menn þess eiga engar ógreiddar
stöðumælasektir í borginni. Utan-
ríkisráðuneytið bandaríska fær afrit
af öllum greiðslum og heldur þeim
til haga en starfsmenn þess segja
jafnframt að illa gangi að færa
greiðslur á skrár borgaryfírvalda.
Ummæli þau sem tiltekinn starfs-
maður borgaryfirvalda í Washing-
ton Iét falla í samtali við Morgun-
blaðið em því á misskilningi byggð.
Nafnið var
Estífa
I nafnaþætti í síðasta sunnudags-
blaði var nafn ranglega stafsett.
Þar átti að standa Estífa en ekki
Estifa. Er beðist afsökunar á þessu.
VELVAKANDI
HEFUR MINKUR
ÁHRIFÁ
RJÚPUSTOFNINN?
TORFI Ólafsson hringdi með þá
fyrirspum hvort það hefðu verið
gerðar rannsóknir í sambandi við
ijúpnadráp og ijúpnastofninn,
hvað minkurinn dræpi mikið af
ijúpu árlega. Hann sagðist hafa
séð ijúpu með 13 unga uppi í
Heiðmörk í sumar, en þegar leið
á hefðu bara verið tveir ungar
eftir. Hann sagðist vita til að það
væri krökkt af mink á þessum
slóðum.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Ungbarnadót í óskilum
EINHVER hefur skilið eftir í
garðinum mínum ýmiss konar
ungbarnadót, s.s. skiptiborð,
fatnað, burðarstól o.fl. Þar sem
hér er um að ræða stráheila hluti
datt mér í hug, að sendandi hafí
farið húsavillt. Sakni einhver
umræddra hluta þá vinsamlegast
hringið í síma 91-13728 eftir kl.
18.
Týnd taska
SVÖRT kventaska hvarf úr and-
dyri Hallgrímskirkju sl. mánu-
dagskvöld. Taskan er óvenjuleg
útlits, bogadregin að ofan og
skorið úr fyrir höldum. Þar sem
missir eigandans er mikill vegna
persónulegra muna og skilríkja
er þeim, sem kynnu að hafa rek-
ist á hana, vinsamlega bent að
hringja í síma 11019 eða skila
henni í Hallgrímskirkju. Góðum
fundarlaunum heitið.
Eyrnalokkur tapaðist
GULLEYRNALOKKUR með
grænum steini tapaðist í október.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 674151. Fundarlaun.
GÆLUDÝR
Lotta er týnd
LOTTA er tveggja ára gömul
læða sem týndist í sl. mánudags-
kvöld. Hún er svört og hvít, með
hvítar loppur, hvítan blett á hálsi
og kvið og hvítan v-laga blett á
trýni. Hún var með grábrúna ól
með steinum í og er eymamerkt
R2H099. Hún gæti hafa farið í
bíltúr upp í Seljahverfí eða í vest-
urbæ Kópavogs. Lotta á heima
í Blesugróf 7, sími 33495.
Týndur köttur
VILLI, hvítur og svartur fress-
köttur, ólarlaus en eymamerkt-
ur, villtist frá heimiii sínu, Há-
halti 3, Garðabæ, um miðjan
október sl. Þrátt fyrir mikla leit
hefur ekkert til hans spurst og
er fólk í öðrum bæjarhlutum beð-
ið að hafa augun opin. Upplýs-
ingar í síma 671818 eða 666191.
Ullarpeysur frá 3.900-
Nýkomin sending af frönsku ullarpeysunum í mörgum
litum og mynstrum á dömur og herra.
Sjón er sögu ríkari.
Verö frá 3.900-
wmmsa
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855, grænt númer 99-6288.
Opið virka daga 8-18 og laugardaga 9-14.
Aðalfundur
Bílgreinasambandsins
verður haldinn laugardaginn 13. nóvember nk.
og hefst kl. 08.45.
Dagskrá:
Kl. 08.45 Fundarsetning í
Ráðstefnusal Háskólabíós:
Sigfús Sigfússon, formaður BGS.
Kl. 09.00 Starf og skipulag BGS.
Hugmyndir nefndar um starf
og skipulag BGS - Umræður.
Kl. 10.30 Menntamál í bfl-
greininni - Bílgreinaskóli:
Jón Garðar Hreiðarsson,
framkvæmdastjóri.
eftirmenntunarnefndar.
Umhverfismál:
Össur Skarphéðinsson,
umhverfisráðherra.
Guðmundur Hilmarsson,
form. Bíliðnafélagsins.
Kl. 12.30 Hádegisverður í
Súlnasal Hótels Sögu.
Hádegisverðarerindi:
Sighvatur Björgvinsson,
viðskiptaráðherra.
Kl. 14.00 Dagskrá sérgreinafunda
(í ráðstefnusölum á 2. hæð
Hótels Sögu):
A. Verkstæðisfundur:
1. Starf og skipulag BGS.
2. Breyting á reglugerð um starfshætti þeirra
er annast lögboðna skoðun ökutækja.
3. Önnur mál.
B. Bíiamálarar og bifreiðasmiðir:
1. Starf og skipulag BGS.
2. Danska málningakerfið.
3. Ástand í greininni.
C. Bifreiðainnflytjendur:
1. Starf og skipulag BGS.
2. Vörugjöld á bifreiðum.
3. Bifreiðainnflutningur.
D. Smurstöðvar:
1. Starf og skipulag BGS.
2. Ástand og horfur.
E. Varahlutasalar:
1. Starf og skipulag BGS.
2. Skilagjöld á rafgeyma o.fl.
3. Vörugjöld á varahluti.
Kl. 15.30 Niðurstöður sérgreinafunda
(í sal A - Hótel Sögu).
Kl. 16.00 Aðalfundur Bítgreinasambandsins
(í sal A - Hótel Sögu).
- Aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga sambandsins.
Stjórn BGS hvetur sambandsaðila til að mæta á fundinn.
Stjórn Bílgreinasambandsins