Morgunblaðið - 17.11.1993, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 17.11.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1993 21 Sænskur dómstóll setur skilyrði fyrir Eyrarsundsbrú Brúin getur steypt sænsku stjóminni Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. SÍÐÁSTA umsögnin um Eyrarsundsbrúna er nú fengin frá sænska vatnsdómstólnum. Dómstóllinn samþykkir framkvæmdina, að því tilskildu að hún hafi engin áhrif á vatnsstreymi um og seltu í Eystrasalti. Aðdáendur um allan heim MICHAEL Jackson á sér aðdáendur víðs vegar um heim. Þessi víet- namska kona býður til sölu veggspjöld með mynd af Jackson, í Hanoi. Jackson hvorki í Ölpunum né heimalandinu Dvalarstað söngvar- ans haldið leyndum Los Angeles, Avoriaz í Frakklandi. Reuter. EKKERT verður látið uppi um dvalarstað poppsöngvarans Michaels Jackson, en hann gengst nú undir meðferð vegna lyfjafíknar sinnar. Fréttir um að hann hafi dvalist í Frönsku ölpunum um helgina reynd- ust ósannar og lögmaður söngvarans lýsti því yfir í gær að hann væri ekki í Bandaríkjunum. Skilyrðunum.er tekið á misjafnan hátt. Þau hafa leitt til efasemda um hvort hægt verði að halda fram- kvæmdunum innan áætlaðra tíma- marka og fjárhagsáætlana og verið vatn á myllu andstæðinga fram- kvæmdanna. Miðflokkurinn, einn Samstarf um geimstöð RÚSSAR eru staðráðnir í að taka þátt í að búa til væntanlega Alfa- geimstöð ásamt Bandaríkjamönn- um, að sögn yfirmanns rússneskra geimferðamála, Júrís Koptevs. Rússneskir fjölmiðlar hafa sagt að vegna fjárskorts geti farið svo að landið verði að hætta við þátttökuna. Stöðin á að verða fullbúin árið 2001 og vona Bandaríkjamenn að Japanar, Kanadamenn og Evrópuþjóðir taki þátt í samstarfinu. -----» ♦■■♦--- A Ottast morð- árás mafíu Jerúsalcm. Reuter. HAFT var eftir Giuliano Andre- otti, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, í gær að hann óttaðist að mafían hygðist myrða hann. „Já, ég óttast að mafían drepi mig,“ hafði fréttaritari ísraelsks dag- blaðs í Róm eftir Andreotti. „Fyrir mafíunni er morð einfalt mál.“ Andreotti sætir nú rannsókn sak- sóknara vegna meintra tengsla við mafíuna á Sikiley. Hann vísar því á bug og segir að óþekktir óvinir hans standi á bak við ásakanirnar. sænsku stjórnarflokkanna, sem er á móti framkvæmdunum, hugleiðir að segja sig úr stjórninni, verði framkvæmdin ekki endurskoðuð í heild og í löndunum við Eystrasalt er framkvæmdin tortryggð. Vatnsdómstóllinn sænski hefur Engin réttarhöld í Noregi hafa vakið jafn mikla athygli frá því að réttað var yfir njósnaranum Arne Treholt. Réttarhöldin fara fram fyrir luktum dyrum í Þrándheimi og er gert ráð fyrir að þau muni taka allt að fímm mánuði. Hinn ákærði, 44 ára og þriggja bama faðir, neitar öllum ásökunum en hann er ákærður fyrir grófa kyn- ferðislega misnotkun á tíu stúlkum á aldrinum eins til sex ára. Athyglin beindist þó fyrir alvöru að málinu er sex manns til viðbótar voru handtek- in, sökuð um kynferðislega misnotk- un á bömum á bamaheimilinu. Með- al þeirra vora lénsmaðurinn og nokkrir starfsmenn heimilisins. Tvískiptur bær Málið hefur haft gífurleg áhrif í Bjugn frá því að það kom upp í mars 1992 og hafa sumir íbúanna líkt þvi við að kjarnorkusprengja hafi fallið á bæinn. Hann sé í raun tvískiptur, eftir því hvort menn trúi á sekt eða sakleysi hinna ákærðu. Þá hafa fjölmiðlar ekki látið sitt eft- ir liggja, meðal annars vora leiddar að því líkur að hópur fólks, sem stundaði það að misnota börn kyn- ferðislega, hefði komið til bæjarins. í haust var fallið frá ákæram á hendur sex manns, þriggja karla og þriggja kvenna, en fólkið hafði þá setið í gæsluvarðhaldi í rúmt hálft ár. Þá höfðu 220 vitni verið yfir- heyrð, þar af 40 börn, sem grunur lék á um að hefðu verið misnotuð kynferðislega. fjallað um brúðarsmíðina út frá áhrifum hennar á hafið og lífríki þess, svo niðurstöður hans taka ein- göngu mið af atriðum er snerta það. í úrskurði dómstólsins segir að hægt sé að fallast á brúarfram- kvæmdir, að því tilskyldu að ástand hafsins breytist ekki. Þessi skilyrði hleypa kostnaðinum upp og munu einnig seinka framkvæmdinni, því gera þarf flóknar rannsóknir á er- lendum rannsóknarstofnunum. Helge Mortensen, umferðarmála- ráðherra Dana, segir að ekki sé hægt að fallast á úrskurðinn og skilyrðin, heldur þurfi að semja um þau. Kristilegi þjóðarflokkurinn vill að framkvæmdin verði nú endur- skoðuð og innan Róttæka vinstri- flokksins, annars stjórnarflokks, eru háværar raddir um að úrskurð- inum verði að hlíta í einu og öllu. í sænska blaðinu Dagens Nyhet- er er leitt líkum að því að Miðflokk- urinn muni segja sig úr sænsku stjórninni, ef hún endurskoði ekki afstöðu sína til brúarsmíðar, en Carl Bildt forsætisráðherra ákafur talsmaður hennar. Olaf Johansson umhverflsráðherra og formaður Miðflokksins leggst eindregið gegn framkvæmdinni. í grein í Dagens Nyheter í gær kallar varaformaður flokksins framkvæmdina stein- gerving, afdankaða trú á stór kerfi og steinsteypurómantík. Búist er við að sænska stjórnin taki endan- lega ákvörðun í málinu fyrir ára- mót. Áætlað er að fjórar milljónir flótta- manna séu í fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu og embættismenn Evr- ópubandalagsins óttast að þeir flýji unnvörpum til EB-ríkjanna þegar kólnar í veðri í vetur. Eitt af forgangsverkefnum svo- kallaðrar „K4-nefndar“ Evrópu- bandalagsins er að loka landamæram aðildarríkjanna fyrir þessu_ flótta- fólki, að sögn Independent. í nefnd- inni eiga sæti háttsettir embættis- menn í innanríkis- og dómsmálaráðu- neytum aðildarríkjanna. Nöfnum þeirra er haldið leyndum og engar Meðferðin mun taka sex til átta vikur. Sagði lögmaður Jacksons að söngvarinn hefði verið orðinn svo illa haldinn að hann „hefði varla verið tilkynningar eru gefnar út um fundi nefndarinnar. Blaðamenn og mann- réttindahreyfingar hafa engan að- gang að nefndarmönnunum. Nefndin heyrir undir ráð dómsmálaráðherra bandalagsins þótt Evrópuþingið hafí fengið loforð um „samráð", en ekki rétt til að breyta eða hafna ákvörðun- um nefndarinnar. „K4 er stórt skref í þá átt að koma á fót evrópsku ríkiskerfi sem þarf ekki að standa skil gerða sinna og er ólýðræðislegt," sagði Tony Buny- an, framkvæmdastjóri mannrétt- indahreyfingarinnar Statewatch. fær um að eiga vitsmunalegt sam- neyti við aðra“. Líf Jacksons hefði verið í hættu, hefði hann haldið áfram að taka verkjalyfin, sem lög- fræðingurinn sagði „afar, afarsterk lyf“. Hann upplýsti að læknar Jacksons hefðu haft vaxandi áhyggjur af því magni sem hann tók inn af lyfjunum. Það hefði hins vegar verið vinkona söngvarans, Elizabeth Taylor, sem hefði fengið hann til að leita sér hjálpar en hún flaug gagngert til Mexíkóborgar í þeim tilgangi. Brella starfsmanna ferðamálaráðs Vangaveltur um dvalarstað Jack- sons hafa tröllriðið fjölmiðlum frá því á föstudag. Bresku æsifréttablöð- in töldu hann vera í Bretlandi, þar sem vél Taylor millilenti þar á leið frá Mexikóborg til Gstaad í Sviss. Engin staðfesting hefur fengist á þessu. í fyrradag var sagt frá því að Jackson hefði dvalið á hóteli í Frönsku ölpunum um helgina. Þegar blaðamenn komu þangað í gær, var allt lokað og læst og ljóst að þar hefði enginn dvalið um helgina. Lýstu frönsk ferðamálayfírvöld því yfir að um brellu hefði verið að ræða, sem óprúttnir starfsmenn hefðu komið af stað. Ákærur um kynferðislega misnotkun á bömum Bjugn klofinn í afstöðu sinni Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. RÉTTARHÖLD eru hafin í einu umtalaðasta sakamáli sem komið hef- ur upp í Noregi, svokölluðu Bjugn-máli, en starfsmaður á barnaheim- ili þar í bæ er ásakaður um kynferðislega misnotkun á börnum á heim- ilinu. Síðar flæktust æ fleiri í málið og hafa nokkrir þeirra sem tengd- ust því, flutt frá bænum, en íbúar hans eru um 5.000. EB óttast straum flóttafólks til V-Evrópu „Leynisáttmáli“ um að stöðva flóttamenn LEYNILEG nefnd á vegum Evrópubandalagsins (EB) er að undirbúa „framkvæmdaáætlun" sem á að tryggja að milljónir flóttamanna frá Bosníu og fleiri löndum komist ekki til aðildarríkjanna i vetur, að sögn breska dagblaðsins The Independent. Af sama tilefni hefur forlagið að auki gefið út geisladisk og kassettu með lögum við texta Tómasar. Þar er að finna nokkrar af helstu perlum íslenskrar dægurtónlistar í flutningi þeirra Egils Olafssonar og Guðrúnar Gunnarsdóttur, s.s. Hótel Jörð, Tondeleyó og Fyrir átta árum. ALMENNA BOKAFELAGIÐ H F Fagra veröld er ein þekktasta IjóSabók Tómasar GuSmundssonar - eins óstsælasta IjóSskólds þjóSarinnar lyrr og síSar. Eftir aS Fagra veröld kom fyrst út óriS 1933 hefur Tómas jafnan veriS nefndur ReykjavíkurskóldiS - enda sýndu IjóS hans Reykjavík í allt öSru og fallegra Ijósi en óSur hafSi þekkst meSal Islendinga. I tilefni af 60 óra útgófuafmæli Fögru veraldar hefur Almenna bókafélagiS nú endurútgefiS joessa eftirsóttu IjóSabók. FÖGUR UÓÐ OG SKEMMTILEG LÖG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.