Morgunblaðið - 21.11.1993, Page 32

Morgunblaðið - 21.11.1993, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993 ATVIN NIMAUGL ÝSINGAR Heilsugæslan í Garðabæ Læknafulltrúi óskast í 60% stöðu. Reynsla af tölvuskrán- ingu og ritvinnslu nauðsynleg. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Sveini Magnússyni, framkvæmdastjóra, fyrir 1. desember. Hjúkrunarfræðingur/ Ijósmóðir óskast í60% stöðu. Mjög fjölbreytilegt starf. Upplýsingar veitir Jóna Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri. Heilsugæslan í Garðabæ, Garðaflöt 16-18, 210 Garðabæ, sími 656066. Laus staða Með skírskotun til 3. gr. laga nr. 51/1992, um Háskólann á Akureyri er staða rektors Háskólans á Akureyri hér með auglýst laus til umsóknar. Rektor er skipaður til fimm ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík- isins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau, sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með umsókn skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjanda, prentuðum og óprentuðum. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 10. janúar nk. Menntamálaráðuneytið, 17. nóvember 1993. Ritari —SMÍTH& __________________ NORLAND Nóatúni4, 105 Reykjavík. Við leitum að ritara til starfa á skrifstofu fyrirtækisins, til afleysinga í 6 til 8 mán- uði. Um er að ræða fullt starf. Stafssvið: Ritvinnsla, pantanir, skjalavarsla og önnur almenn skrifstofustörf. Leitað er að reglu- sömum og skipulögðum einstaklingi með reynslu í ritarastörfum. Góð þýsku- og ensku- kunnátta nauðsynleg. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14, og skal umsóknum skilað á sama stað fyrir 28. nóvember nk. GiiðntTónsson RÁÐCJÖF & RÁÐN I NCARÞjÓN LISTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Sjúkraþjálfarar athugið! Sjúkraþjálfarar óskast til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi á Endurhæfingarstöð Kolbrúnar, Engjateigi 5, 105 Rvk. Upplýsingar gefur Kolbrún í símum 34386 og 611785. ENDURHÆFINGARSTÖD KOLBRÚNAR SÓLVANGUR SJÚKRAHÚS HAFNARFIRÐI Næturvakt f desember Sjúkrahúsið Sólvang í Hafnarfirði bráðvantar hjúkrunarfræðing á 60% næturvaktir í des- ember nk. Um er að ræða starf hjúkrunar- stjóra og greitt samkvæmt því. Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Ingi- mundardóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 50281. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa. Fullt starf eða hlutastarf eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 26222. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Sölumenn Vantar vana sölumenn í tímabundið verkefni. Sölu- og auglýsinga- stjóri Vanur starfskraftur með góða reynslu óskast strax. Upplýsingar veitir Guðrún í síma 689938. Lífogsaga, Suðurlandsbraut 20. Rafvélavirkjar/ rafverktakar Sindra-Stál hf. óskar eftir samstarfi við raf- vélavirkja/rafverktaka, sem myndi sjá um við- gerðir á rafmagnsverkfærum (Black & Decker, Elu o.fl.). Hér er aðeins um að ræða verk- efni, sem tæki hluta úr degi, þannig að verk- takinn yrði að hafa með höndum aðra starf- semi, sem fallið gæti að þessum verkefnum. Verktakinn yrði að hafa verkstæði hjá Sindra- Stáli í Borgartúni 31 (kjallara), en þar er jafn- framt möguleiki til að leigja húsnæði til frek- ari starfsemi. Upplýsingar hjá Sindra-Stáli, Borgartúni 31, sími 627222. Rafmagns- verkfræðingur Þekkt verkfræðistofa í Reykjavík óskar að ráða rafmagnsverkfræðing, helst með menntun á sviði raforkuverkfræði og með reynslu af forritun. Umsókn, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „R - 13048“ fyrir 26. nóvember. Bílasprautari Sölumaður Traust og rótgróið innflutnings- og smásölu- fyrirtæki með bifreiðavarahluti og vörur ósk- ar eftir að ráða sölumann í verslun. Leitað er að starfsmanni með reynslu í bíla- sprautun og meðferð lakkefna. Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 25 ára og hafi einhverja reynslu af sölustörfum. Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvem- ber nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Skólavörðustíg la - 101 Fteykjavlk - Slmi 621355 Stýrimaður Stýrimann vantar á frystitogara. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „F - 10552“, fyrir 29. nóvember. Farið verður með allar upplýsingar sem trún- aðarmál. Viðskiptafræðingur Sérhæfð þjónustustofnun i' borginni óskar að ráða viðskiptafræðing til framtíðarstarfa. Æskilegt að viðkomandi sé af enduskoðunar- eða fjármálasviði. Um er að ræða starf er tengist uppgjörs- málum, bókhaldi og hinum ýmsu sviðum skattamála. Væntanlegur starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt og skipulega og hafa trausta og örugga framkomu. Góð vinnuaðstaða er fyr- ir hendi. Laun taka mið af samningum BHMR. Starfið getur krafist ferðalaga út á land. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 27. nóvember nk. GlJDNT TÓNSSON RÁÐC JÖF & RÁÐN l N GARÞJQN USTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 SÖLUMAÐUR Fasteignamiðlunin Húsakaup óskar að ráða sölumann til starfa frá og með næstu ára- mótum. Vinnustaðurinn er reyklaus. Starfslýsing: Öflun eigna á söluskrá, sala og verðmat fasteigna, alhliða ráðgjöf varð- andi fasteignaviðskipti o.fl. Við leitum að manni, sem sýnir frumkvæði í starfi, á auðvelt með mannleg samskipti og hefur reynslu og áhuga á sölumennsku. Viðskiptamenntun er skilyrði. Æskilegur ald- ur 25-25 ára. Þarf að hafa eigin bíl til umráða. Upplýsingar um starfið veitir Katrín S. Óla- dóttir nk. mánudag og þriðjudag frá kl. 9-12. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., á eyðublöðum, sem liggja frammi á skrif- stofu okkar fyrir 29. nóvember nk., merktar: „Sölumaður 307“. Hagvangurhf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.