Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
Ritstjóri Tímans telur teikn á lofti
um traustari rekstrargrundvöll
Oánæg’ður með
blaðið að óbreyttu
í DAG er búist við að fyrir liggi upplýsingar ura fjárhagsstöðu
Mótvægis hf., útgáfufélags dagblaðsins Tímans, sem geri eigendum
þess fært að taka ákvarðanir um framhald rekstrarins en það á í
miklum greiðsluerfiðleikum og er 20 milljóna hlutafé blaðsins talið
uppurið. Þór Jónsson ritsljóri Tímans sagði í samtali við Morgunblað-
ið að hann væri óánægður með blaðið eins og það er, það sé ekki
gefið út með þeim hætti og undir þeim formerkjum sem hann vilji.
I raun séu forsendur fyrir ráðningu hans brostnar þar sem til grund-
vallar ráðningunni hafi legið vilyrði um að til væru peningar til að
gera útrás á markaðinn og stækka blaðið. Nýtt hlutafé hafi ekki
nýst til þeirra hluta heldur farið til að leysa fortíðarvanda.
Frá slysstað við Hvamm í Arnarneshreppi síðdegis á sunnudag.
Banaslys varð á
Ólafsfj ar ðarvegi
ÞRJÁTÍU og níu ára gamall maður lést í umferðarslysi á Ólafs-
fjarðarvegi síðdegis á sunnudag. Hann hét Guðmundur Jóns-
son, fæddur 3. apríl 1954, til heimilis á Hamarsbraut 10, í
Hafnarfirði. Guðmundur var ekkill og lætur eftir sig tvo syni,
10 ára og 12 ára, og tvítugan fósturson.
Tilkynnt var um slysið til lög-
reglunnar á Akureyri kl. 17.25
á sunnudag, en það varð á móts
við bæinn Hvamm í Arnarnes-
hreppi. Ökumaður var einn á
ferð og var hann á leið frá Dal-
vík til Akureyrar er slysið varð.
Það varð með þeim hætti að
jeppabifreið sem hann ók lenti
út af veginum austan megin og
hafnaði eftir veltu ofan í skurði
þar sem hún stöðvaðist á hlið-
inni. Ökumaður var látinn er að
var komið.
Guðmundur Jónsson
Friðrik Pálsson forstjóri SH um aukinn þorskvóta í Barentshafi
Mun í aðalatriðum hafa
jákvæð áhrif á markaðinn
EF Á heildina er Iitið hefur aukin þorskveiði Norðmanna
og Rússa í Barentshafi á sama tíma og veiði Islendinga
og Kanadamanna hefur dregist saman fremur jákvæð en
neikvæð áhrif á markaðinn eftir því sem Friðrik Pálsson
forsljóri SH segir. Hann rökstyður afstöðu sína með því
að benda á mikilvægi þess að fyrrnefndu þjóðirnar tvær
haldi uppi þorskmarkaðinum og þar með neyslu á þorski
á meðan þær síðarnefndu veiði minna.
„Auknar fiskveiðar í Barents-
hafi geta auðvitað haft einhver
neikvæð áhrif á einstaka markaði
hjá okkur. En í aðalatriðum held
ég að við eigum að líta svo á að
aukningin hafi frekar jákvæð áhrif
en neikvæð. Ef Norðmenn geta
lagt dálítið til málanna, haldið
uppi framboði og vonandi neyslu
á þorski á okkar helstu mörkuðum,
á meðan við erum í þessari lægð,
hlýtur það að vera af hinu góða,“
sagði Friðrik og vísaði til þess að
þorskveiði Islendinga hefði minnk-
að úr 450.000 tonnum fyrir örfá-
um árum í tæplega helming þess
magns í ár. Sömu sögu sagði hann
af Kanadamönnum. Norðmenn
hefðu hins vegar færst í aukana
frá því fyrir nokkrum árum og
héldu nú öðrum fremur uppi fram-
boði og sölu á helstu þorskmörkuð-
um.
Saltfiskkaupendur segi annað
Friðrik sagði að hann hefði
þvert á móti orðið áhyggjufullur
ef veiði Norðmanna hefði brugð-
ist. „Og enda þótt auðvitað sé
sárt að horfa uppá svona litla veiði
þá er bót í máli, og gefur von um
að frekar takist að halda orðspori
þorsksins sem toppgæðafísks, að
Norðmenn hafi þetta mikið að
selja,“ sagði hann og viðurkenndi
um leið að vaxandi framboð frá
Noregi gæti haft skammatímaerf-
iðleika í för með sér fyrir þá sem
seldu á einstökum mörkuðum. „Ég
býst t.a.m. við að saltfisksfram-
leiðendur hafi aðra sögu að segja
en ég enda fer stór hluti þessa
físks í salt.“
Aðspurður sagði Friðrik ekki
sjálfgefið að verð lækkaði í tengsl-
um við aukið framboð enda réðu
þar fleiri þættir, t.d. hvernig fisk-
urinn væri unninn. Hann minnti á
að einn óvissuþátturinn, sem að-
eins reynslan skæri úr um, væri
hvernig færi með þann aukna hlut
sem Rússar fengu í sinn hlut nú.
„Auk þess að líkur eru til þess að
Norðmenn kaupi ekki eins mikið
af fiski frá Rússum þegar þeir
„Hins vegar virðast nú ýmis teikn
á lofti um að það sé að takast að
treysta grundvöll blaðsins og skjóta
stoðum undir reksturinn. Bjarni Þór
Óskarsson stjórnarformaður hefur
trú á að það sé hægt að reisa hann
við. Ég vona að það reynist rétt,“
sagði Þór Jónsson.
Ágúst Þór Árnason, starfandi
framkvæmdastjóri Tímans, er
stærsti hluthafi blaðsins auk Fram-
sóknarflokksins. Hann vildi ekki
láta hafa annað eftir sér um stöð-
una í gær en það að ekki stæði til
að gefast upp við reksturinn heldur
sé áfram haldið baráttu við að rétta
hag blaðsins við.
I síðustu viku voru aðstandendur
blaðsins, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, komnir á fremsta
hlunn með að lýsa blaðið gjaldþrota
en eftir að Framsóknarflokkurinn
gaf yfírlýsingu um að hann tryggði
útkomu blaðsins um tíma var tekið
til við að kanna grundvöll og fram-
haldsmöguleika rekstrarins. Einn
úr hópi hluthafa sagði í samtali við
sjálfir fá svona mikla kvótaukn-
ingu. Rússneski fiskurinn hefur
komið inn á markaðina eftir mjög
mismunandi leiðum og miklu
skiptir að á því verði einhver stjórn
og hugað verði að gæðum.“
GUNNAR Örn Kristjánsson,
Iöggiltur endurskoðandi, hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
SÍF hf. frá og með fyrsta janúar
næstkomandi. Hann tekur við
starfinu af Magnúsi Gunnars-
syni, sem hefur óskað eftir því
að láta af framkvæmdastjóra-
starfinu frá sama tíma.
Gunnar Örn er 38 ára gamall.
Hann lauk prófí í viðskiptafræði frá
Háskóla íslands 1981 og varð lög-
giltur endurskoðandi árið 1984.
Hann rekur nú endurskoðunarskrif-
stofuna Hagskil hf. og hefur verið
endurskoðandi SÍF frá árinu 1988.
Eiginkona Gunnars Arnar er Birna
Hrafnfjörð Rafnsdóttir og eiga þau
þrjá syni.
„Þetta er spennandi og krefjandi
verkefni, sem mér lýst vel á að tak-
ast á við,“ segir Gunnar Örn í sam-
tali við Morgunblaðið. „Það er á
þessu stigi erfitt fyrir mig að segja
til um framvindu mála, þó ég þekki
fjáhagshlið þessa fyrirtækis vel. Nú
þarf ég að kynna mér aðra megin-
þætti starfseminnar, svo semvinnslu
afurðanna og markaðsmálin. Það
Morgunblaðið að einstaklingar í
hluthafahópnum hefðu ekki útilok-
að að leggja fram nýtt fé í rekstur-
inn. Övíst er hins vegar, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins,
hvort líta beri á yfírlýsingu Fram-
sóknarflokksins um tryggingu fyrir
útkomu blaðsins sem loforð um
hlutafjáraukningu en flokkurinn á
um 20% í Mótvægi hf.
-----♦ ♦ ♦-----
Oskað skýr-
inga á stöðu
kjaranefndar
GUÐRÚN Zoega, formaður
kjaranefndar, hefur ritað fjár-
málaráðherra bréf, þar sem ósk-
að er eftir því að staða lqara-
nefndar gagnvart Kjaradómi
verði skýrð, og að skorið verði
úr um það hvort kjaranefnd skuli
vera óháður úrskurðaraðili eða
ekki.
I grein Guðrúnar í Morgunblað-
inu í dag segir að með núverandi
skipan mála geti Kjaradómur ekki
aðeins seinkað ákvörðunum kjara-
nefndar, heldur sé hætt við því að
mál komist í sjálfheldu, ef Kjara-
dómur sendir mál ítrekað aftur til
nefndarinnar eins og nú hafí gerst.
Vísar hún með þessum orðum til
væntanlegs úrkurðar nefndarinnar
um launakjör presta sem Kjaradóm-
ur hefur vísað aftur til nefndarinn-
ar.
Þorsteinn Júlíusson, formaður
Kjaradóms, segir í annarri grein í
blaðinu að kjaranefnd taki að sjálf-
sögðu ákvörðun um það með hveij-
um hætti hún ljalli um tilmæli
Kjaradóms, en úrskurðarvaldið sé
alfarið kjaranefndar.
Sjá greinar á blaðsíðu 16.
Gunnar Örn Kristjánsson
verður því að mörgu að huga við
upphaf starfsins hjá SÍF,“ segir
Gunnar Orn Kristjánsson.
í dag
Grandi hf.____________________
Nýr skuttogari hefur verið keyptur
frá Noregi 7
Gull og silfur________________
Magnús Ver sigraði í keppni meðal
kraftakarla 19
Nauðgunarmál í Bretlandi
Óskeikulleiki DNA-rannsókna er
dreginn í efa 22
Leiðari
Tillögum svæðanefnda hafnað
24
íþróttir
► Selfyssingar hafa tapað
tveimur millj. kr. á þátttöku í
Evrópukeppninni. Kylfingur-
inn O’Connor á leið til Islands.
Úlfar í öðru sæti á Evrópumót-
inu á Spáni
Gunnar Om ráðinn
framkvæmdastjóri SÍF