Morgunblaðið - 23.11.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.11.1993, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993 Tveir víetnamskir menn grunaðir um að hafa stungið tvo pilta með hnífi Úrskurðaðir í varð- hald til 1. desember „ÞETTA hafði ekkert með kynþáttahatur að gera, ég hugsa ekki svoleiðis og ég heyrði ekkert svoleiðis tal áður en þetta gerðist," sagði Hlynur Eiríksson, annar tveggja pilta sem meiddust eftir að lagt var til þeirra með hnífi í Lækjargötu aðfaranótt sunnudags- ins. Slagæð í upphandlegg félaga Hlyns fór í sundur. Hann missti mikið blóð og er í sjúkrahúsi. Hnífurinn sem lagt var til Hlyns nam staðar í rifbeini, sem talið er hafa forðað honum frá hættuleg- um áverkum. Tveir víetnamskir nýbúar, 34 og 36 ára gamlir, voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. desember næstkomandi vegna rannsóknar málsins en þeir voru handteknir strax eftir átökin. í fórum þeirra fundust aðgerðarhnífar. Annar Víetnamanna hafði að sögn Hlyns tekið að sér að aka með harin og fjóra félaga hans úr miðbænum í Kópavog gegn 1.000 króna greiðslu eftir að fólkið hafði gengið fram á bílinn á leigubíla- stæði í Lækjargötu. „Ég man ekki hvort við stoppuðum hann eða hvort, hann bauð okkur far en hann vildi fá greitt fyrirfram. Við vorum sest inn og einn okkar tók upp heftið til að skrifa ávísun, þá virtist hann verða reiður og fór að öskra eitt- hvað og svo kallaði einhver upp „hann er með hníf“. Hlynur sagði að þegar hann heyrði þetta hefði fólk flýtt sér út úr bílnum og tvístr- ast í allar áttir. Annar víetnamskur Morgunblaðið/Sverrir HLYNUR Eiríksson á heimili sínu í gærkvöldi. Hann fékk hnífstungu í bijóstið’, en rifbein stöðvaði lagið. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 23. NOVEMBER YFIRLIT: Nálægt Hvarfi er allmikil 958 mb djúp lægð sem hreyfist norð- austur, en 1.054 mb hæð er yfir Finnlandi. STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á öllum miðum, Vesturdjúpi, Norðurdjúpi, Austurdjúpi, Færeyjadjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi. SPÁ: Á morgun verðs skil á leið norðaustur yfir landið og því hvöss suöaustanátt á undan þeim, en hægari suðvestanátt í kjölfarið. Víða um land mun rigna en styttir upp suðvestanlands er líður á morguninn. Hiti á bilinu 3 til 10 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Umhleyping- ar. Suðlægar áttir, fremur hlýtt, og rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að kalla norðaustanlands bæði á miövikudag og föstu- dag. Suövestanátt og snjó- eða slydduél á Suður- og Vesturlandi, en léttskýjað austan og norðaustanlands á fimmtudag, og þá fremur kalt í veðri. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Isiands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað r r r r r r r r Rigning * r * * / r * r Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V $ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig. 10° Hitastig v Súld = Þoka itig-. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Greiðfært er um land allt en hálka er sumstaðar svo sem á Hellisheiði, fjallvegum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti i síma 91-631500 og í grænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavfk hitl veður 0 léttskýjað 1 skýjað Björgvin +1 skýjað Helsinki +6 skýjað Kaupmannahöfn 1 snjókoma Narssar6suaq 2 skafrenningur Nuuk 4 alskýjað Ósló +2 snjókoma Stokkhólmur 0 snjókoma Þórshöfn 4 léttskýjað Algarve 13 alskýjað Amsterdam +3 þokumóða Barcelona 10 mistur Berlín +3 snjókoma Chicago 2 léttskýjað Feneyjar 6 þokumóða Frankfurt +2 skýjað Glasgow 1 léttskýjað Hamborg +3 mistur London 1 snjók.ásið. klst. Los Angeles 16 alskýjað Lúxemborg +3 snjóél á sfð. klst. Madríd 8 léttskýjað Malaga 13 skýjað Mallorca 16 skýjað Montreal 7 skýjað NewYork 6 léttskýjað Orlando 18 þokumóða Parfs +1 skýjað Madeira 16 hálfskýjað Róm 12 heiðskfrt Vfn +1 snjókoma Washington vantar Wlnnípeg +17 snjók.ásfð. klst. íDAG kl. 12.00 HeimiW: Veöurstofa íslands (Byggt á veöurspó kl. 16.15 í gær) Morgunblaðið/Júlíus HLYNUR Eiríksson færður í sjúkrabílinn skömmu eftir árásina. * maður var á bíl í Lækjargötunni þegar þetta var og kom hann að. Hlynur sagðist hafa hlaupið frá bflnum en verið eltur upp túnið við Menntaskólann. Þar kvaðst Hlynur hafa hrasað og hafi þá hinn sótt að honum og slegið til hans nokkr- um sinnum en Hlynur kvaðst hafa varist með því að reyna að sparka frá sér. Hann sagðist ekki vita hvernig á því stæði en árásar- maðurinn hefði verið blóðugur í framan. Hlynur kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir því að verið væri að stinga hann með hnífi fyrr en árásarmaðurinn var farinn, en þá hafí fólk komið að og sagt hon- um að liggja kyrrum meðan beðið væri eftir sjúkrabfl. Sá bíll kom skömmu síðar en félagi Hlyns var hins vegar fluttur í snarhasti með lögreglubíl á slysa- deild vegna mikilla blæðinga þar sem hann hafði verið skorinn á handlegg og slagæð gengið í sund- ur við lagið. Sá missti að sögn Hlyns fjóra lítra af blóði og gekkst undir aðgerð á handlegg við komu á sjúkrahús þar sem hann liggur enn en Hlynur fékk að fara heim um morguninn, eftir rannsókn og aðhlynningu. Hann segir að hnífur- inn hafi gengið í 7. rifbein og skemmt þar skinn og valdið mari en beinið hafí hindrað að hnífurinn gengi inn í brjóstholið. Gæsluvarðhald Mikinn fjölda fólks dreif að staðnum þar sem þetta gerðist og fótgangandi lögreglumenn komu fljótlega að og voru árásarmenn- irnir tveir handteknir og félagi þeirra sem sést hafði á bíl við stað- inn þegar þessu fór fram var hand- tekinn síðar um nóttina en sleppt fljótlega. Mennimir tveir voru yfír- heyrðir með aðstoð túlks á sunnu- dag og gerð krafa um gæsluvarð- hald yfir þeim í Héraðsdómi á mánudag. Sú krafa var tekin til greina samdægurs og hefur ekki verið kærð til Hæstaréttar. Annar hefur játað að hafa beitt hnífi Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur annar mannanna gengist við því að hafa beitt hnífi í átökum og að hafa lagt til félaga Hlyns. Annars hafa mennirnir ekki verið yfírheyrðir frá því á sunnu- dag, að sögn Lúvíks Bergvinsson- ar, lögfærðings hjá RLR, þar sem yfírheyra þarf þá með aðstoð túlks vegna litillar kunnáttu þeirra í ís- lensku. Mennirnir hafa samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins dval- ist hér á landi um 2 ára skeið og eiga hér fjölskyldur. Þeir hafa dval- ar- og atvinnuleyfi en ekki ríkis- borgararétt. Formaður Skotveiðifélags Reykjavíkur Meiri ij úpna- veiði en í fyira RJÚPNAVEIÐITlMABILINU lauk í gær og segir Jón S. Bragason, formaður Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis, að sér virðist sem veiðin sé heldur meiri á þessu tímabili en í fyrra. „Menn eru almennt mjög ánægðir með veiðina og það var almennt meira af rjúpu en í fyrra, þrátt fyrir að tíðarfarið hafi verið mjög slæmt, sérstaklega hér suðvestanlands,“ segir Jón. Hann segir að vegna veðurfarsins séu skotveiðimenn ekki sáttir við að hætta veiðum nú. Þrátt fyrir óánægju félags- manna Skotveiðifélags Reykjavík- ur og nágrennis með styttingu veiðitímans segir Jón að félagið leggi á það ríka áherslu við þá og aðra veiðimenn að hlíta landslög- um í þessu sambandi og leggja frá sér vopnin. „Við skjótum bara máefnalega á ráðherra í staðinn," segir Jón, en Skotveiðifélag Reykjavíkur og nágrennis, Skot- veiðifélag íslands og Skotveiðifé- lag Suðurnesja halda í sameiningu málfund með Össuri Skarphéðins- syni umhverfísráðherra á fímmtu- dagskvöld. A fundinum á að ræða styttingu ráðuneytisins á rjúpna- veiðitímabilinu, forsendur hennar og hvaða rannsóknir séu fyrirhug- aðar af hálfu ráðuneytisins á rjúpnastofninum á næstunni. Jón segir að framboð og verð á rjúpum muni haldast óbreytt frá liðnu ári, og þannig sé algengt að veiðimenn selji verslunum ijúpur á 500 kr., sem sé u.þ.b. sama verð og í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.