Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
7
Nýr skuttogari
HINN nýi skuttogari sem Grandi hf. hefur fest kaup á kemur til
landsins í byrjun desember.
Grandi hf. kaupir nýjan skuttogara frá Noregi
Keyptur á % upphaflegs verðs
NÝR SKUTTOGARI sem Grandi hf. hefur fest kaup á kemur til
landsins eftir mánaðamót. Skipið er keypt frá Noregi fyrir 8 milljón-
ir dollara eða sem nemur um 560 milljónum króna, en upphaflegt
verð skipsins var 12 miiljónir dollara. Að sögn forráðamanna Granda
er skýringin á þessum hagstæðu kaupum sú að erfitt reyndist að
finna kaupendur að skipinu.
Að sögn Gunnars Sæmundsson-
ar, forstöðumanns tæknideildar
Granda hf., er forsaga málsins sú
að Norðmenn smíðuðu 20 togara
fýrir Rússa og var smíðin fjár-
mögnuð af nokkrum fyrirtækum.
Þessi skip voru smíðuð eftir vest-
rænum kröfum. 18 skipanna voru
afhent en fjármögnun stóðst ekki
fyrir tvö þeirra.
Erfið sala
Mætti segja að Den norske bank
hafi setið uppi með þau og verið
að reyna að selja þau frá því að
smíði lauk á síðasta ári. Upphaf-
legt verð hvers skips var 12 milljón-
ir dollara en bankinn lækkaði verð-
ið niður í 10,5 milljónir dolíara þar
sem sýnt þótti að erfitt yrði að finna
kaupanda. Grandi hf. fékk skipið
hins vegar á 8 milljónir dollara,
vegna þess að bankinn þurfti að
losna við skipin.
Skipið kemur til landsins í des-
ember og er ætlunin að taka það
í notkun í byijun janúar.
Svæðis-
númer
aflögð
STAFRÆN AXE-móðurstöð verð-
ur tekin í notkun í Breiðholti á
næsta ári. Mun hún þjóna stórum
hluta símnotenda í Arbæ, Grafar-
vogi og Breiðholti. Nauðsynlegt
verður að gera breytingar á síma-
númerum nokkurs hluta símnot-
enda og taka þær gildi við gildis-
töku nýrrar simaskrár 1994.
Númerabreytingin er á þá lund
að fyrstu tveir stafir símanúmers
sem áður byrjaði á 67 verða 88.
Verður gamla númerið tengt við sím-
svara fyrst um sinn sem vísar á nýja
númerið. Þær upplýsingar fengust
hjá Pósti og síma að markmið breyt-
inganna sé tvíþætt. Annars vegar sé
nýja móðurstöðin í Breiðholti liður í
frekari uppbyggingu stafræna sím-
kerfisins á höfuðborgarsvæðinu.
Hins vegar sé númerabreytingin
nauðsynlegt skref í undirbúningi að
nýju símanúmerakerfi fyrir landið
allt sem m.a. miðast að því að sam-
ræma það að þeim reglum sem gilda
eiga innan Evrópska efnahagssvæð-
isins og er stefnt að því að þetta
samræmda númerakerfi taki gildi um
leið og símaskráin fyrir árið 1995.
Helstu breytingar sem verða í kjöl-
far nýja símanúmerakerfisins er að
núverandi svæðisnúmer verða af-
lögð, þ.e. 91-98, en öll almenn síma-
númer verða sjö stafa. Á höfuðborg-
arsvæðinu bætist talan 55 við fimm
stafa númer en 5 framan við sex
stafa númer. Verða þessar breyting-
ar kynntar frekar þegar nær dregur.
--------» ♦ ♦---
Utilistaverk
verði kynnt
HUGMYND Guðrúnar Ögmunds-
dóttur, borgarfulltrúa Kvennalist-
ans, um að gerður verði bæklingur
eða kort sem sýni staðsetningu
útilistaverka í borginni, var vel
tekið á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag. Samþykkt var að vísa
tillögunni til menningarmála-
nefndar.
Guðrún Ögmundsdóttir lagði til
að gerður yrði bæklingur eða kort,
þar sem merkt yrði inn á staðsetning
útilistaverka í borginni, sem væru
mörg og merkileg. I slíkum bæklingi
yrði að finna upplýsingar um verkin
og listamennina og sýnt á korti
hvemig best aðkoma væri að verkun-
um. Þá væri hugsanlegt að hafa einn-
ig upplýsingar um söfn. Bæklingur
af þessu tagi yrði prentaður á erlend-
um tungumálum, auk íslensku, og
yrði tilbúinn fyrir þjóðhátíðarsumarið
1994.
Þarft mál
Borgarstjóri, Markús Örn Antons-
son, sagði að það væri þarft mál að
koma upplýsingum um listaverk
borgarinnar á framfæri. Hann lagði
" til að tillögunni yrði vísað til menn-
ingarmálanefndar, sem ynni málið í
samvinnu við umhverfismálanefnd.
Sú málsmeðferð var samþykkt sam-
F JÁRMÖGNUN ARLEIÐIR
FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ
HEIMILISLÍNA BÚNAÐARBANKANS
„Frá og með deginum
í dagþurfum við ekki
að borga dráttarvexti"
SVEIFLURNAR ÚR SÖGUNNI- JAFNVÆGIALLANÁRSINS HRING
í Heimilislínunni áttu kost á að dreifa útgjöldum ársins á 12 jafnar
mánaðarlegar greiáslur. Þú gerir samning við bankann um reglubundnar
millifærslur af launareikningi yfir á sérstakan útgjaldareikning.
Ef innstæðan á útgjaldareikningnum dugar ekki til að
greiða reikninga mánaðarins lánar bankinn það sem upp
á vantar. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur, reikningarnir
eru alltaf greiddir á réttum tíma og engir dráttarvextir.
idu
HEIMILISLÍNAN
- Heildarlausn á fjármálum
einstaklinga.
BÚ NAÐARBAN KI
\Q/ ÍSLANDS
INNGÖNGUriLBOÐ
Félagar fá handhaga skipulagsbók og
möppu fyrir fjármál heimilisins.
Auk þess eru fiármálanámskeibin á
sérstöku verðijýrir félaga.
FJ&RMÁl HEIMIIANNA
UTGJÖLDUM ARSINS ER DREIFTÁ JAFNAR
RAÐGJOF OG AÆTlANAGERÐ
GREIÐSLUJOFNUN
GREIÐSLUÞJÓNUSTA
áHllllllllHlfc
VERÐBREFAÞJONUSTA
VERÐBRÉFAVARSLA
MANÁÐARGREIÐSLUR - REIKNINGARNIR
GREIDDIR Á RÉTTUM TÍMA.
Kannast þú við það hve erfitt er að láta enda ná saman suma mánuði?
Afborgunin al húsnæðisláninu, tryggingarnar og íasteignagjöldin bætast ofan
á önnur útgjöld, þú neyðist til að bíða með að borga og dráttarvextirnir
hrannast upp. Aðra mánuði áttu fé afgangs.
Heimilislínu Búnaðarbankans er ætlað að jafna út þessar sveiflur og
mynda stöðugleika í fjármálum einstaklinga og heimila.