Morgunblaðið - 23.11.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
Um Kjaradóm og kjaranefnd
eftir Guðrúnu Zoega
$
í fjölmiðlum undanfama daga
hefur nokkuð verið Qallað um
Kjaradóm og kjaranefnd og stöðu
kjaranefndar gagnvart Kjaradómi.
Tilefni þessarar umræðu er
væntanlegur úrskurður kjara:
nefndar um launakjör presta. í
þessari grein mun ég leitast við
að skýra nokkuð stöðu þessara
mála séð frá bæjardyrum for-
manns kjaranefndar.
Meginreglur um úrskurði
kjaranefndar
Í lögum um Kjaradóm og kjara-
nefnd, sem samþykkt voru á Al-
þingi í árslok 1992, er m.a. ákvæði
um að Kjaradómur skuli setja
kjaranefnd meginreglur um úr-
skurði , nefndarinnar. Á fundi
Kjaradóms 4. nóvember síðastlið-
inn setti hann kjaranefnd megin-
reglur um úrskurði, en undirrituð
(sem jafnframt situr í Kjaradómi)
sat hjá við afgreiðslu þeirra. Sá
hluti reglnanna, sem ég taldi ekki
í samræmi við anda laganna, er
svohljóðandi: „Áður en úrskurðir
kjaranefndar eru kveðnir upp með
formlegum hætti skal niðurstaðan
kynnt Kjaradómi. Líti Kjaradómur
svo á að ákvörðun (einstök úr-
lausn) raski því samræmi sem
krafist er í niðurlagi 11. gr. laga
nr. 120 31. desember 1992 um
Kjaradóm og kjaranefnd, skal
Kjaradómur innan 15 daga frá því
að slík úrlausn berst honum frá
kjaranefnd, beina rökstuddum til-
mælum til kjaranefndar um að
nefndin taki ákvörðun sína (úr-
lausn) til umfjöllunar og ákvörðun-
ar á nýjan leik. Ber kjaranefnd að
verða við þeim tilmælum."
Oháður úrskurðaraðili?
Þetta ákvæði hefur meirihluti
Kjaradóms rökstutt með vísan til
nefndarálits meirihluta efnahags-
og viðskiptanefndar um frumvarp
til laga um Kjaradóm og kjara-
nefnd. Nefndin lagði til breytingu
á skipan nefndarinnar, þannig að
Kjaradómur tilnefni tvo fulltrúa í
nefndina en fjármálaráðherra einn.
í upphaflegu frumvarpi var gert
ráð fyrir að ráðherra tilnefndi tvo
fulltrúa í nefndina en forseti Al-
þingis einn. í nefndarálitinu
rökstyður nefndin þessa breyting-
artillögu á eftirfarandi hátt: „Er
með þessu leitast við að gera kjara-
nefnd að eins konar undirdómi
Kjaradóms og þannig sniðnir af
þeir annmarkar, sem þóttu vera á
skipan kjaranefndar samkvæmt
frumvarpinu.“ (Leturbr. GZ.) Fyrr
í sama nefndaráliti segir hins veg-
ar: „Hefur skipan kjaranefndar
verið nokkuð umdeild og er því
lagt til að henni verði breytt. Mið-
ar sú breyting að því að færa
nefndina fjær framkvæmdavaldinu
og nær því að vera óháður úr-
skurðaraðili en núverandi ákvæði
„Með núverandi skipan
mála getur Kjaradómur
ekki aðeins seinkað
ákvörðunum kjara-
nefndar, heldur er hætt
við því að mál komist í
sjálfheldu, ef Kjara-
dómur sendir mál ítrek-
að aftur til nefndarinn-
ar eins og nú hefur
gerst.“
frumvarpsins kveða á um.“ (Let-
urbr. GZ.) Með hinni breyttu skip-
an sem samþykkt var hefur kjara-
nefnd færst fjær framkvæmda-
valdinu, en sé skilningur Kjara-
dóms réttur, hefur nefndin jafn-
framt færst fjær því að vera óháð-
ur úrskurðaraðili, en ákvæði frum-
varpsins kváðu á um. Einnig vakn-
ar spurningin um það hvort þörf
sé á tveimur nefndum, ef Kjara-
dómur er yfir kjaranefnd settur,
eins og meginreglur Kjaradóms
bera með sér. Hafi það verið ætlan
og vilji löggjafans hefði átt að
kveða skýrt á um það í lögunum
sjálfum. Kjaranefnd er ljóst að
Guðrún Zoega
samkvæmt orðanna hljóðan ber
henni ekki skylda til að breyta til-
lögum sínum í samræmi við til-
mæli Kjardóms, heldur einvörð-
ungu að „taka þær til umljöllunar
og ákvörðunar á nýjan leik“. Þó
svo að Kjaradómur eigi að setja
kjaranefnd meginreglur um úr-
skurði hennar, þá er einnig ljóst
að dómurinn getur ekki gengið
lengra í þeim efnum en lögin gera
ráð fyrir, og þau gera ekki ráð
fyrir að hann hafi stöðvunarvald
gagnvart ákvörðunum nefndarinn-
ar, hvorki tímabundið né endan-
legt. í ljós hefur komið, að Kjara-
dómur ætlast til að ákvarðanir
nefndarinnar komi aftur fyrir hann
eftir að kjaranefnd hefur tekið þær
til „umfjöllunar og ákvörðunar á
nýjan leik“, enda þótt það komi
ekki fram í reglunum. Jafnvel þótt
Kjaradómur geri ekki athugasemd-
ir við niðurstöður nefndarinnar
verða reglurnar óhjákvæmilega til
þess að tefja störf hennar og úr-
lausnir, þótt ekki væri nema af
þeirri ástæðu að Kjaradómur ætlar
sér ákveðinn tíma (15 daga) til að
fara yfir ákvarðanir (einstakar
úrlausnir) nefndarinnar.
Með núverandi skipan mála get-
ur Kjaradómur ekki aðeins seinkað
ákvörðunum kjaranefndar, heldur
er hætt við því að mál komist í
sjálfheldu, ef Kjaradómur sendir
mál ítrekað aftur til nefndarinnar
eins og nú hefur gerst. Ég hef því
ritað fjármálaráðherra bréf, þar
sem óskað er eftir því að staða
kjaranefndar gagnvart Kjaradómi
verði skýrð, og að skorið verði úr
um það hvort kjaranefnd skuli vera
óháður úrskurðaraðili eða ekki.
Höfundur er formaður
hjaranefndar.
Kjaradómur og kjaranefnd
KUNERT
sokkabuxur hnésokkar
Hf
v/Nesveg, Seltj.
eftir Þorstein
Júlíusson
Vegna umfjöllunar fjölmiðla
undanfaran daga um störf Kjara-
dóms og kjaranefndar vill undirrit-
aður kom eftirfarandi á framfæri.
í frumvarpi því til laga um
Kjaradóm og kjaranefnd, sem lagt
var fyrir Alþingi 1992 og varð að
lögum nr. 120/1992, var gert ráð
fyrir því í 7. grein frumvarpsins,
að fjármálaráðherra skipaði tvo
menn í kjaranefnd án tilnefningar
og skyldi annar þeirra vera for-
maður nefndarinnar, en einn
nefndarmann skyldi fjármálaráð-
herra skipa samkvæmt tilnefningu
forseta Alþingis.
Tannverndarráð
róðleggur foreldrum að gefa börnum sínum
jóladagatöl
sælgætis
3-JD
Svona er
myndin
Æm
'f’iwii ■'lf
3-D ahrifin
í meðferð Alþingis var þessu
ákvæði breytt í þá veru, að Kjara-
dómur skyldi tilnefna tvo menn í
kjaranefnd en ráðherra einn, sem
jafnframt væri formaður nefndar-
innar.
í nefndaráliti meirihluta efna-
hags- og viðskiptanefndar, sem
lagði til nefndar breytingar á frum-
varginu segir:
„I frumvarpi þessu er mælt fyr-
ir um skipan og starfssvið Kjara-
dóms, svo og kjaranefndar. Hefur
skipan kjaranefndar verið nokkuð
umdeild og er því lagt til að henni
verði breytt. Miðar sú breyting að
því að færa nefndina fjær fram-
kvæmdavaldinu og nær því að vera
óháður úrskurðaraðlili, en núver-
andi ákvæði frumvarpsins kveða á
um.“
í nefndarálitinu er að fínna svo-
felldar skýringar með breyting-
artillögunni:
„Lögð er til sú breyting á 7. gr.
að skipan kjaranefndar verði þann-
ig að Kjaradómur tilnefni tvo í
nefndina og ráðherra einn sem
jafnframt skal vera formaður. Er
með þessu leitast við að gera kjara-
nefnd að eins konar undirdómi
Kjaradóms og þannig sniðnir af
þeir annmarkar sem þóttu vera á
skipan kjaranefndar samkvæmt
frumvarpinu. Til að undirstrika
þessa nýju skipan enn frekar er
lagt til að ný grein komi á eftir
6. grein þar sem kveðið er á um
að Kjaradómur skuli setja kjara-
nefnd meginreglur um úrskurði
nefndarinnar."
í framsöguræðu formanns
nefndarinnar, er hann mælti fyrir
breytingartillögunum, kemur fram
að eftir þessar breytingar verði
kjaranefnd „mun tengdari Kjara-
dómi en áður þar sem gert er ráð
fyrir því að Kjaradómur skipi tvo
af nefndarmönnum auk þess sem
Kjaradómur leggi kjaranefnd til
meginlínur við úrskurði nefndar-
innar.“
Þessar breytingartillögur voru
samþykktar og er ákvæði þeirra
að fínna í 3. málslið 6. greinar og
7. grein núgildandi laga um Kjara-
dóm og kjaranefnd nr. 120/1992.
í samræmi við ákvæði laganna
og framangreindar skýringar, sem
fram komu á Alþingi, setti Kjara-
dómur meginreglur um úrskurði
kjaranefndar. Tillögur að þessum
reglum lágu fyrir í júnímánuði síð-
astliðnum, en voni formlega sam-
þykktar efnislega óbreyttar hinn
4. nóvember sl.
Þriðja grein þeirra reglna er svo
orðuð:
„í úrlausnum sínum skal kjara-
nefnd gæta ákvæða 11. og 12. gr.
laga nr. 120 31. desember 1992
um Kjaradóm og kjaranefnd.
Sérstaklega skal gæta þess að
úrskurðir kjaranefndar raski ekki
þeim grunni sem Kjaradómur legg-
ur.
Áður en úrskurður kjaranefndar
eru kveðnir upp með formlegum
hætti skal niðurstaðan kynnt
Kjaradómi. Líti Kjaradómur svo á
að ákvörðun (einstök úrlausn)
raski því samræmi sem krafist er
í niðurlagi 11. gr. laga nr. 120 31.
desember 1992 um Kjaradóm og
kjaranefnd, skal Kjaradómur innan
15 daga frá því að slík úrlausn
berst honum frá kjaranefnd beina
rökstuddum tilmælum til kjara-
nefndar um að nefndin taki
ákvörðun sína (úrlausn) til umfjöll-
unar og ákvörðunar á nýjan leik.
Ber kjaranefnd að verða við þeim
tilmælum."
Með vísan til þessara reglna
mæltist Kjaradómur til þess við
kjaranefnd að nefndin tæki til
umfjöllunar á nýjan leik þá niður-
Hvernig sjó ó 3-D myndirnar:
1. Settu 3-D myndina i glerramma.
2. Horfðu 6 spegilmynd þína í glerinu eins og í spegli.
3. Slappaöu af og 3-D óhrifin munu birtast.
Affttifc lco LlL'l. LDfc
Þorsteinn Júlíusson
„Með vísan til þessara
reglna mæltist Kjara-
dómur til þess við
kjaranefnd að nefndin
tæki til umfjöllunar á
nýjan leik þá niður-
stöðu í máli presta sem
kynnt var Kjaradómi.
Kjaranefnd tekur að
sjálfsögðu ákvörðun
um það með hverjum
hætti hún fjallar um til-
mæli Kjaradóms, en
úrskurðarvaldið er al-
farið kjaranefndar.“
stöðu í máli presta sem kynnt var
Kjaradómi.
Kjaranefnd tekur að sjálfsögðu
ákvörðun um það með hverjum
hætti hún fjallar um tilmæli Kjara-
dóms, en úrskurðarvaldið er alfarið
kjaranefndar.
Höfundur er formaður
Kjaradóms.