Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NOVEMBER 1993
Hrun kristilegra demókrata í s veitarstj óriiakosningunum á Italíu
Fyrrverandi kommúnistar
og nýfasistar siguTvegarar
Róm. Reuter.
BURÐARÁSINN í ítölskum stjórnmálum síðustu áratugi, flokk-
ur kristilegra demókrata (DC), galt afhroð á sunnudag er kos-
ið var til fjölmargra sveitarstjórna á Italíu. Flokkurinn hlaut
nú aðeins um 10% atkvæða á landsvísu, í Róm fór fylgið úr
31,9% í síðustu kosningum í 9,3%. DC er nú þriðja stærsta aflið
í landinu en svo þjáð af hvers kyns innanmeini að styrkurinn
er jafnvel enn minni en atkvæðamagnið bendir til. Pólitíska
landslagið sem nú blasir við einkennist af reiptogi þriggja öfl-
ugra fylkinga; nýfasista (MSI), fyrrverandi kommúnista (PDS)
og hægrisinna í Norðursambandinu en það eina sem þessar
fylkingar eru sammála um er að hundsa og fyrirlíta hver aðra.
Fasistar fagna
ALLESANDRA Mussolini og Gianfranco Fini, frambjóðendur nýfas-
ista til borgarstjóraembætta í Napólí og Róm, óska hvort öðru vel-
farnaðar fyrir kosningarnar á sunnudag.
Morð ekki
ætlun
drengjanna
VERJENDUR drengjanna
tveggja sem hafa verið ákærðir
fyrir morð á tveggja ára dreng,
sögðu í lokaræðum sínum í gær
að ætlun þeirra hefði aldrei ver-
ið að drepa hann. Reyndi hvor
um sig að skella skuldinni á
skjólstæðing hins. Sækjandinn
sagði í lokaræðu á föstudag að
drengirnir væru báðir sekir.
„Þeir voru eðlilegir 10 ára
drengir með meðalgreind. Fjög-
urra ára gamalt bam hefði gert
sér grein fyrir að það sem þeir
gerðu hefði alvarlegar afleiðing-
ar.“
Flokkur Gajd-
ars stærstur
VALKOSTUR Rússlands, flokk-
ur umbótasinnans Jegors Gajd-
ars, er stærsti flokkur landsins
með um 16% fylgi, samkvæmt
skoðanakönnun sem birt var á
sunnudag. Samkvæmt könnun-
inni eiga þingsætin eftir að
skiptast á marga og smáa
flokka.
Gengur EB að
kröfum
Finna?
RÁÐHERRA í finnsku stjórn-
inni hefur deilt á um fréttir sem
birtar voru um helgina, þess
efnis að ólíklegt væri að Finnum
tækist að ná samningum við
Evrópubandalagið (EB)‘ um
landbúnað sem nýtur ríkis-
styrkja. Heikki Haavisto, utan-
ríkisráðherra sagði á sunnudag
að Finnland gæti ekki gerst að-
ili að EB ef bandalagið gengi
ekki að sérstökum skilyrðum
Finna um landbúnað á norðlæg-
um slóðum. Esko Aho, forsætis-
ráðherra, vonaðist hins vegar í
gær eftir því að EB gengi að
kröfum Finna.
Patriol-flaugar
einskisnýtar?
MOSHE Ahrens, fyrrum varn-
armálaráðherra Israels og Dan
Shomron, fyrrum herráðsfor-
ingi, segja í viðtali í nýjasta
hefti Newsweek að Patriot-
flaugar bandamanna hafi verið
gagnslausar. Flaugarnar, sem
taldar voru skæðasta vopnið
gegn Scud-flaugum íraka, hafi
í mesta lagið skotið eina flaug
niður, líklega þó enga.
Sjálfstæði
Grænhöfða-
eyja mistök?
FYRRUM forseti Grænhöfða-
eyja, Aristides Pereira, sagði um
helgina það hafa verið mistök
er eyjarnar fengu fullt sjálfstæði
frá Portúgal fyrir 20 árum. Ósk
íbúanna hefi verið sjálfstjóm,
ekki sjálfstæði. Pereira ér ekki
síst minnst vegna baráttu sinnar
fyrir því að tjúfa tengslin við
Portúgal.
Frakkar
gagnrýna
GATT-tilboð
FRAKKAR gagnrýndu í gær
framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins (EB) fyrir að
leggja til í GATT-viðræðum að
bandalagið lækkaði tolla á fiski-
afurðum án þess að ráðgast við
aðildarlönd sín. Tillaga fram-
kvæmdastjórnar hljóðaði upp á
allt að helmingslækkun á yfir
40% af þeim tollum sem væru
yfir 15%, ef önnur lönd létu í
staðinn aukin fiskveiðiréttindi.
Helsti sigurvegari kosninganna
er flokkur fyrrverandi kommúnista,
PSD. Flokkurinn hefur notið þess
að kommúnistar hafa reynst tiltölu-
lega saklausir af spillingu gömlu
flokkanna og frambjóðendur
flokksins urðu á sunnudag efstir í
Róm, Napólí, Feneyjum, Genúa og
Trieste. Fylgi kristilegra í Napólí
féll í 7,3% úr 29,8%. Osigur kristi-
legra varð enn meiri en þeir höfðu
óttast, leiðtogar þeirra höfðu gert
sér vonir um að fá um 15% at-
kvæða. „Vinstrimenn bijóta ísinn,
DC hrynur“, var fyrirsögn dag-
blaðsins Corriere della Sera í
Mílanó. Er talið líklegt að nú taki
að volgna undir sæti formanns
flokksins, Mino Martinazzoli.
Kosið verður áftur eftir tvær vik-
ur í þeim borgum þar sem ekkert
borgarstjóraefni hlaut meirihluta í
þessari umferð. í Róm mun fram-
bjóðandi græningja, Francesco Rut-
elli, beijast við MSI-manninn
Gianfranco Fini sem lýsti því yfir
fyrir kosningamar að hann hygðist
þoka sér nær miðju. Það getur þó
reynst erfitt en Fini hefur áður
stuðst við ribbalda úr hópum snoð-
inkolla. I Napólí verður seinni slag-
urinn milli Alessöndru Mussolini úr
MSI, er fékk um þijátíu af hund-
raði og Antonio Bassolino, fulltrúa
PDS er fékk 48,5%. Norðursam-
bandið náði öðru sæti í Feneyjum
og Genúa.'
Sitjandi borgarstjóri í Palermó á
Sikiley, Leoluca Orlando, vill leggja
aðaláhersluna á að koma mafíunni
á kné. Hann stofnaði flokkinn La
Rete, Netið, en naut einnig stuðn-
ings vinstrimanna. Orlando fékk
75,2% atkvæða og tryggði sér emb-
ættið.
Biðin eftir
þeim eina rétta
Ekki er víst að Italir muni til
langframa álíta að sú staða sem
komin er upp sé ákjósanleg. Stjórn-
málaskýrendur á Ítalíu segja að
stórsigrar róttækra hægriafla í
kosningunum á sunnudag hafi
fremur átt rætur að rekja til hruns
hefðbundinna stjórnmálaflokka í
kjölfar spillingarmálanna að undan-
fömum mánuðum en þess að al-
menningur sé skyndilega orðinn
hrifinn af fasisma. Talið er að fylgi
nýfasista sé ekki traustara en svo
að komi fram á sjónarsviðið trú-
verðugir frambjóðendur úr röðum
hægri- og miðjumanna geti þeir náð
þessu fylgi til sín. „Það er augljóst
að þarna hefur myndast gat sem
þarf að stoppa í“, sagði erlendur
stjórnarerindreki. „Það er nóg að
rétti maðurinn birtist".
Baráttan um þessa kjósendur
sem urðu heimilislausir í stjórnmál-
um þegar þungamiðja stjómmála-
heims Ítalíu eftir stríð, flokkur
kristilegra demókrata, hrundi
vegna ijármálaspillingar og mafíu-
tengsla, er þegar hafin. Líklegt er
talið að hún verði mikilvægasta
málið fyrir kosningarnar næsta vor.
Afstaða Páfagarðs er einnig
breytt, DC getur ekki treyst á
stuðning þaðan. Ymsir frammá-
menn kirkjunnar hafa að undan-
förnu sagt að sanntrúaðir kaþólikk-
ar geti nú látið sannfæringuna ráða
í kjörklefanum; hræðslan við valda-
töku heimskommúnismans vofir
ekki lengur yfir landinu. Atkvæði
kaþólikka munu því framvegis
skiptast milli margra flokka.
Tvö nauðgunarmál til meðferðar hjá breska áfrýjunarréttinum
Óskeikulleiki DNA-grein-
ingarinnar dreginn í efa
London. The Daily Telegraph.
DNA-greiningin, sem margir telja mestu framför, sem orðið
hefur í rannsóknum ýmissa sakamála, til dæmis nauðgunar-
mála, verður tekin til gaumgæfilegrar og gagnrýninnar skoðun-
ar í breska áfrýjunarréttinum í þessari viku. Þá munu lögfræð-
ingar tveggja manna, sem dæmdir voru til langrar fangavistar
fyrir nauðgun árið 1990, draga í efa þá fullyrðingu vísinda-
manna, að mjög ólíklegt sé, að unnt sé að finna tvo menn með
líka DNA-gerð.
Þetta mál þykir endurspegla
vaxandi ótta við, að frammi fyrir
DNA-niðurstöðunni séu dómarar
hættir að vega og meta aðrar
hliðar málsins. Lögfræðingarnir
spytja meðal annars hvort vís-
indamenn skýri nægilega vel lík-
urnar á sekt eða sýknu og þeir
halda því fram, að mikilvægi
DNA-greiningarinnar sé oft
miklu minna en virðist vera.
DNA-greiningin hefur raunar
verið umdeild síðan hún var fyrst
notuð árið 1987 en þá var barna-
morðinginn Colin Pitchfork
dæmdur á grundvelli hennar.
Það var Alec Jeffreys, prófess-
or við Leicester-háskóla í Bret-
landi, sem uppgötvaði DNA-
greininguna þremur árum áður,
en hún byggist á því, að DNA-
erfðavísirinn í frumunum er ekki
samfelldur, heldur slitróttur.
Lengd og lega bútanna er einstök
fyrir hvern einstakling nema þeg-
ar um er að ræða eineggja tví-
bura. Við rannsókn í sakamálum
geta vísindamenn til dæmis DNA-
greint hvít blóðkorn, sáðfrumur
eða aðrar veijarleifar á vettvangi
og borið greininguna saman við
þá, sem gerð á sakborningi. Því
meiri, sem samsvörunin er, því
meiri líkur eru á sekt hans.
Spurningar vakna
Fyrstu efasemdirnar um grein-
inguna komu fram 1989 þegar
dómari í New York úrskurðaði,
að niðurstöður kunnrar rann-
sóknastofu væru ótækar fyrir
rétti, en úrskurður hans kom í
kjölfar ásakana um slæleg vinnu-
brögð rannsóknastofunnar. Tals-
inenn DNA-greiningar héldu því
þó fram, að í raun væri ekki ver-
ið að draga gildi hennar í efa en
brátt var farið að spyija annarra
spurninga og að þessu sinni um
líkindareikninginn, sem lagður er
til grundvallar sekt eða sýknu.
Erfðafræðingar benda á, að
útreikningarnir séu reistir á þeirri
fullyrðingu, að það sé tilviljunum
háð hvaða fólk lendi saman og
geti af sér börn og þess vegna
sé dreifing DNA-erfðavísanna í
öllu samfélaginu mikil. Þjóðar-
brot og erfðafræðilega samstæðir
hópar leita sér hins vegar oftast
maka í sínum hópi og sumir vís-
indamenn segja, að sú staðreynd
geti haft veruleg áhrif á líkurnar
á, að ekki finnist tveir einstakl-
ingar með ámóta DNA-gerð.
Mikilvægasta röksemdin gegn
DNA-greiningunni er þó líklega
athugasemdir tölfræðinga við lík-
urnar eins og þær eru lagðar fram
í rétti og raunverulega merkingu
þeirra. Þær eru sagðar svo af-
dráttarlausar, að margir dómarar
hafa farið eftir þeim einum.
Athugasemdir tölfræðinga
Tölfræðingar segja, að líkurnar
tákni í raun líkurnar á að finria
samsvarandi DNA-gerð hjá ein-
staklingi, sem ekki tengist glæpn-
um, en kviðdómurinn er aftur á
móti að glíma við líkurnar á því,
að einhver einstaklingur sé
ótengdur glæpnum þótt DNA-
gerð hans svari vel til fyrirmynd-
arinnar. Þetta kann að virðast
eitt og hið sama en er alls ekki.
„í líkindareikningi skiptir ná-
kvæmt orðalag öllu máli,“ segir
David Balding, DNA-tölfræðing-
ur við Queen Mary Westfield
College í London. „Það er til
dæmis augljóst, að líkurnar á
því, að einhver tiltekinn maður
verði fyrir strætisvagni úti á götu,
eru allt aðrar en líkurnar á því,
að hann hafi orðið fyrir strætis-
vagni.“
Flóknar röksemdir
Líkindakenningin sýnir, að sé
líkunum, sem fram komi við
DNA-greiningu, snúið upp í líkur
á sakleysi, þá þurfí að taka tillit
til allra annarra sannana í mál-
inu. Séu þær litlar þá séu líkurn-
ar á sakleysi kannski milljón sinn-
um meiri en niðurstaða DNA-
greiningarinnar gefur til kynna
ein og sér.
Tölfræðingar óttast og ekki að
ófyrirsynju, að lögfræðingar og
kviðdómendur eigi erfitt með að
átta sig á röksemdafærslu af
þessu tagi og þeir, sem gagnrýna
það hvernig DNA-niðurstöður eru
kynntar í rétti, segja nauðsynlegt
að svipta þær yfirbragði óskeikul-
leikans. „Ekkert er fullkomlega
öruggt,“ segir Balding, „og DNA-
greiningin gefur ekki svör við
öllu. Kviðdómendur hafa enn verk
að vinna í þessum málum, menn
mega ekki hætta að hugsa.“