Morgunblaðið - 23.11.1993, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKDPTI/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
Biðlara - miðlara
tölvuvinnsla með
Oracle CDE og 0racle7
Kynning í Penlunni
Þriðjudaginn 23. nóvember n.k. kl. 9 til 12:15
fyrir stjómendur og yfirmenn fyrirtækja og
stofnana. Farið verður yfir þróun og stöðu
biðlara - miðlara tölvuvinnslu, samtengingu
Oracle við lokuð kerfi og framtíðarsýn Oracle,
einkum með endurhögun vinnuferla í huga.
Miðvikudaginn 24. nóvember n.k. kl. 9 til
12:15 fyrir tæknimenn og aðra þá sem vinna að s
þróun og við reksturTiugbúnaðarkerfa. Sýnd g
verða nýjustu verkfærin frá Oracle og notkun |
þeirra með Oracle7 gagnagrunni.
Kynningin fer fram á ensku undir leiðsögn
Jan Vels Jensen og Henrik Andersen frá
Oraele Danmark A/S.
Þátttaka er ókeypis og óskast tilkynnt sem fyrst í
síma 91- 623088. Vinsamlegast taktu fram hvorn
kynningardaginn þú hefur í hyggju að koma.
ORACL6
ORACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími 91-618131 Fax 91-628131
Morgunverðarfundur
miðvikudaginn 24. nóvember 1993
i Súlnasal Hótels Sögu, kl. 08.00 - 09.30
SKATTABREYTINGAR
A DÖFINNI
-OG SKATTAEFTIRLITIÐ
Fyrir dyrum standa skattabreytingar á næstu vikum.
Hvað breytist og hver eru ætluð áhrif á rekstur
fyrirtækja og heimila?
Framkvæmd skattalaga og skattaeftirlit liggur undir
gagnrýni fyrir úreltar reglur og
óviðunandi vinnubrögð.
Hvað er að, hvað er til úrbóta og hvenær?
Frummælandi:
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
Pillborðsumræður með frummælanda:
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur ASI
Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri Opals hf.
Tryggvi Jónsson, löggiltur endurskoðandi
hjá KPMC Endurskoðun hf.
Fundurinn er opinn, fundargjald og morgunverður
kr. 1.000 fyrir félagsmenn VI, annars kr. 1.500.
Þáittöku þarf að tilkynna fyrirfram í síma 676666
(svarað kl. 08-16 daglega).
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
Verslunarráð
Fundur um
skíiUnnml
VERSLUNARRÁÐ íslands efnir
til morgunverðarfundar um
breytingar á skattalögunum og
framkvæmd skattalaga á morgun,
miðvikudaginn 24. nóvember í
Súlnasal Hótels Sögu. Friðrik
Sophusson, fjármálaráðherra,
verður frummælandi á fundinum
en að lokinni ræðu sinni tekur
hann þátt í pallborðsumræðum
með Gylfa Arnbjörnssyni, hag-
fræðingi hjá ASÍ, Ragnari Birgis-
syni, framkvæmdastjóra hjá Opali
hf. og Tryggva Jónssyni, löggilt-
um endurskoðenda.
I frétt frá Verslunarráði segir
m.a. að auk þeirra nýmæla í skatta-
lögum sem verði reifuð og rædd,
verði á dagskrá skattareglur og
framkvæmd skattalaga, og almennt
skattalegt umhverfi íslensks at-
vinnulífs í fjölþjóðlegum saman-
burði. Fundurinn hefst kl. 8.00 og
stendur til kl. 9.30. Tilkynna þarf
þátttöku til skrifstofu Verslunar-
ráðsins.
lUYI I HÚSNÆÐI — Snyrtivörubúðin Top Class og
Heildverslunin Reisn hf. hafa nú verið flutt í eigið húsnæði á Lauga-
vegi 45, á horni Laugavegs og Frakkastígs. Fyrirtækið var stofn-
að 23. nóvember 1978 og fagnar því 15 ára afmæli í dag. Húsið
á Laugavegi 45 var byggt árið 1906 og ber heitið Hjaili. Það hef-
ur frá upphafi verið verslunar- og lagerhúsnæði, lengst af í eigu
Sláturfélags Suðurlands. Breytingar voru gerðar á húsinu í sumar
og verður snyrtivörubúðin á jarðhæð, Reisn hf. í kjailara og nýupp-
gerð íbúð á tveimur efri hæðum. A myndinni eru f.v. Bergrún
Jóhannsdóttir, snyrtisérfræðingur, Ólafur Kr. Ólafsson, forstöðu-
maður innflutningsdeildar, Stefana Karlsdóttir, aðaleigandi og for-
stjóri og Ásmundur K. Ólafsson, sem stjómað hefur framkvæmdum
við endurbætur á húsinu í sumar.
Samkeppnismál
Breyttar hæfiskröfur
tíl samkeppnisráðs
VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur kynnt í ríkisstjórninni frumvarp
til laga um breytingar á samkeppnislögum þar sem lagt er til að
hæfisskilyrðum fulltrúa í ráðinu verði breytt. Lagt er til að hið
stranga hæfisskilyrði um að fulltrúar í ráðinu skuli vera óháðir
fyrirtækjum og samtökum þeirra falli niður. Að auki er gert ráð
fyrir að samkeppnisráð setji sér reglur um málsmeðferð.
Umboðsmaður Alþingis komst
að þeirri niðurstöðu í áliti sínu frá
30. ágúst sl. að þrír af fimm aðal-
mönnum í samkeppnisráði upp-
fylltu ekki almennt hæfisskilyrði
til setu í samkeppnisráði, þ.e. að
vera óháðir fyrirtækjum eða sam-
tökum sem samkeppnislögin taka
til. í framhaldi af því véku þeir
úr ráðinu og voru þrír nýir menn
skipaðir í stað þeirra. í áliti sínu
beindi umboðsmaður því til við-
skiptaráðherra að taka það til at-
hugunar hvort leggja bæri til við
Alþingi að endurskoða orðalag
þessarar hæfisreglu.
í athugasemdum með frum-
varpinu segir að ljóst þyki að hið
stranga hæfisskilyrði útiloki fjöl-v
marga og reynslumikla menn frá
setu í samkeppnisráði. Lagt er til
að almennar hæfiskröfur séu gerð-
ar mun skýrari án þess þó að
hæfisskilyrðin séu það ströng að
þau útiloki menn með reynslu eða
þekkingu á hinum ýmsu sviðum
þjóðlífsins.
Aðgerðarrannsóknafélag íslands
lÆHfÆRI oim tlwt
Gæðastjórnunarfélag íslands
Stefnumótun og gæðastjórnun í menntakerfinu
24. nóvember 1993 í Háskólabíói, sal 2
Dagskrá:
13:00 Skráning.
13:15 Setning ráðstefnu: Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson.
Reynsla af gæðastjórnun i skólum
13:25 Kynning á gæðastjórnun, Davíð Lúðvfksson, formaður Gæðastjórnunarfélagsins
13:50 Reynsla af gæðastjórnun I verkfræðiháskólum, Pétur K. Maack, prófessor I verkfræðideild
Háskóla íslands.
14:10 Stutthlé.
14:20 Gæðastjórnun og stefnumótun í Iðnskólanum I Reykjavík, aðferðir og reynsla, Gísli Bachmann,
gæðastjóri Iðnskólans.
14:50 Fyrirspurnir og athugasemdir.
15:00 Kaffihlé.
Hvað er að gerast í stefnumótun og gæðastjórnun I menntakerfinu?
15:20 Mótun menntastefnu, Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður nefndar um mótun menntastefnu.
15:35 Stefnumótun og gæðastjórnun I Háskóla Islands, Sveinbjörn Bjömsson, rektor Háskóla Islands.
15:50 Stefnumótun og gæðastjórnun í Tækniskóla (slands, Friðrik Eysteinsson, lektor í Tækniskólanum.
16:05 Gæðastjórnun í grunnskólum, Stefán Baldursson, skrifstofustjóri I menntamálaráðuneytinu.
16:20 Stutthlé.
Framtlðarsýn
16:30 Pallborðsumræður með þátttöku úr sal.
Stjórnandi: Snjólfur Ólafsson, formaður Aðgerðarannsóknafélagsins. Aðrir þátttakendur: Sígríður
Anna Þórðandóttir, Sveinbjörn Björnsson, Börkur Hansen, lektor í Kennaraháskóla íslands og
Smári Sigurðsson, lektor í Háskólanum á Akureyri.
17:10 Samantekt, Þórður S. Óskarsson, vinnusálfræðingur, KPMG Sinnu hf.
17:20 Ráðstefnuslit.
Fundarstjóri: Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins.
I
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku tímanlega f síma 621066. Þátttökugjald er kr. 1.500.
Ráðstefnan er haldin með stuðningi eftirtalinna aðila:
Hagræðingarfélag ísiands
Háskóli Islands
<G>
NÝHERJI
Stjómunarfélag
íslands