Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 28

Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ VIDSKDPTI/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993 Biðlara - miðlara tölvuvinnsla með Oracle CDE og 0racle7 Kynning í Penlunni Þriðjudaginn 23. nóvember n.k. kl. 9 til 12:15 fyrir stjómendur og yfirmenn fyrirtækja og stofnana. Farið verður yfir þróun og stöðu biðlara - miðlara tölvuvinnslu, samtengingu Oracle við lokuð kerfi og framtíðarsýn Oracle, einkum með endurhögun vinnuferla í huga. Miðvikudaginn 24. nóvember n.k. kl. 9 til 12:15 fyrir tæknimenn og aðra þá sem vinna að s þróun og við reksturTiugbúnaðarkerfa. Sýnd g verða nýjustu verkfærin frá Oracle og notkun | þeirra með Oracle7 gagnagrunni. Kynningin fer fram á ensku undir leiðsögn Jan Vels Jensen og Henrik Andersen frá Oraele Danmark A/S. Þátttaka er ókeypis og óskast tilkynnt sem fyrst í síma 91- 623088. Vinsamlegast taktu fram hvorn kynningardaginn þú hefur í hyggju að koma. ORACL6 ORACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík Sími 91-618131 Fax 91-628131 Morgunverðarfundur miðvikudaginn 24. nóvember 1993 i Súlnasal Hótels Sögu, kl. 08.00 - 09.30 SKATTABREYTINGAR A DÖFINNI -OG SKATTAEFTIRLITIÐ Fyrir dyrum standa skattabreytingar á næstu vikum. Hvað breytist og hver eru ætluð áhrif á rekstur fyrirtækja og heimila? Framkvæmd skattalaga og skattaeftirlit liggur undir gagnrýni fyrir úreltar reglur og óviðunandi vinnubrögð. Hvað er að, hvað er til úrbóta og hvenær? Frummælandi: Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra Pillborðsumræður með frummælanda: Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur ASI Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri Opals hf. Tryggvi Jónsson, löggiltur endurskoðandi hjá KPMC Endurskoðun hf. Fundurinn er opinn, fundargjald og morgunverður kr. 1.000 fyrir félagsmenn VI, annars kr. 1.500. Þáittöku þarf að tilkynna fyrirfram í síma 676666 (svarað kl. 08-16 daglega). VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS Verslunarráð Fundur um skíiUnnml VERSLUNARRÁÐ íslands efnir til morgunverðarfundar um breytingar á skattalögunum og framkvæmd skattalaga á morgun, miðvikudaginn 24. nóvember í Súlnasal Hótels Sögu. Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, verður frummælandi á fundinum en að lokinni ræðu sinni tekur hann þátt í pallborðsumræðum með Gylfa Arnbjörnssyni, hag- fræðingi hjá ASÍ, Ragnari Birgis- syni, framkvæmdastjóra hjá Opali hf. og Tryggva Jónssyni, löggilt- um endurskoðenda. I frétt frá Verslunarráði segir m.a. að auk þeirra nýmæla í skatta- lögum sem verði reifuð og rædd, verði á dagskrá skattareglur og framkvæmd skattalaga, og almennt skattalegt umhverfi íslensks at- vinnulífs í fjölþjóðlegum saman- burði. Fundurinn hefst kl. 8.00 og stendur til kl. 9.30. Tilkynna þarf þátttöku til skrifstofu Verslunar- ráðsins. lUYI I HÚSNÆÐI — Snyrtivörubúðin Top Class og Heildverslunin Reisn hf. hafa nú verið flutt í eigið húsnæði á Lauga- vegi 45, á horni Laugavegs og Frakkastígs. Fyrirtækið var stofn- að 23. nóvember 1978 og fagnar því 15 ára afmæli í dag. Húsið á Laugavegi 45 var byggt árið 1906 og ber heitið Hjaili. Það hef- ur frá upphafi verið verslunar- og lagerhúsnæði, lengst af í eigu Sláturfélags Suðurlands. Breytingar voru gerðar á húsinu í sumar og verður snyrtivörubúðin á jarðhæð, Reisn hf. í kjailara og nýupp- gerð íbúð á tveimur efri hæðum. A myndinni eru f.v. Bergrún Jóhannsdóttir, snyrtisérfræðingur, Ólafur Kr. Ólafsson, forstöðu- maður innflutningsdeildar, Stefana Karlsdóttir, aðaleigandi og for- stjóri og Ásmundur K. Ólafsson, sem stjómað hefur framkvæmdum við endurbætur á húsinu í sumar. Samkeppnismál Breyttar hæfiskröfur tíl samkeppnisráðs VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur kynnt í ríkisstjórninni frumvarp til laga um breytingar á samkeppnislögum þar sem lagt er til að hæfisskilyrðum fulltrúa í ráðinu verði breytt. Lagt er til að hið stranga hæfisskilyrði um að fulltrúar í ráðinu skuli vera óháðir fyrirtækjum og samtökum þeirra falli niður. Að auki er gert ráð fyrir að samkeppnisráð setji sér reglur um málsmeðferð. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu frá 30. ágúst sl. að þrír af fimm aðal- mönnum í samkeppnisráði upp- fylltu ekki almennt hæfisskilyrði til setu í samkeppnisráði, þ.e. að vera óháðir fyrirtækjum eða sam- tökum sem samkeppnislögin taka til. í framhaldi af því véku þeir úr ráðinu og voru þrír nýir menn skipaðir í stað þeirra. í áliti sínu beindi umboðsmaður því til við- skiptaráðherra að taka það til at- hugunar hvort leggja bæri til við Alþingi að endurskoða orðalag þessarar hæfisreglu. í athugasemdum með frum- varpinu segir að ljóst þyki að hið stranga hæfisskilyrði útiloki fjöl-v marga og reynslumikla menn frá setu í samkeppnisráði. Lagt er til að almennar hæfiskröfur séu gerð- ar mun skýrari án þess þó að hæfisskilyrðin séu það ströng að þau útiloki menn með reynslu eða þekkingu á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins. Aðgerðarrannsóknafélag íslands lÆHfÆRI oim tlwt Gæðastjórnunarfélag íslands Stefnumótun og gæðastjórnun í menntakerfinu 24. nóvember 1993 í Háskólabíói, sal 2 Dagskrá: 13:00 Skráning. 13:15 Setning ráðstefnu: Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson. Reynsla af gæðastjórnun i skólum 13:25 Kynning á gæðastjórnun, Davíð Lúðvfksson, formaður Gæðastjórnunarfélagsins 13:50 Reynsla af gæðastjórnun I verkfræðiháskólum, Pétur K. Maack, prófessor I verkfræðideild Háskóla íslands. 14:10 Stutthlé. 14:20 Gæðastjórnun og stefnumótun í Iðnskólanum I Reykjavík, aðferðir og reynsla, Gísli Bachmann, gæðastjóri Iðnskólans. 14:50 Fyrirspurnir og athugasemdir. 15:00 Kaffihlé. Hvað er að gerast í stefnumótun og gæðastjórnun I menntakerfinu? 15:20 Mótun menntastefnu, Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður nefndar um mótun menntastefnu. 15:35 Stefnumótun og gæðastjórnun I Háskóla Islands, Sveinbjörn Bjömsson, rektor Háskóla Islands. 15:50 Stefnumótun og gæðastjórnun í Tækniskóla (slands, Friðrik Eysteinsson, lektor í Tækniskólanum. 16:05 Gæðastjórnun í grunnskólum, Stefán Baldursson, skrifstofustjóri I menntamálaráðuneytinu. 16:20 Stutthlé. Framtlðarsýn 16:30 Pallborðsumræður með þátttöku úr sal. Stjórnandi: Snjólfur Ólafsson, formaður Aðgerðarannsóknafélagsins. Aðrir þátttakendur: Sígríður Anna Þórðandóttir, Sveinbjörn Björnsson, Börkur Hansen, lektor í Kennaraháskóla íslands og Smári Sigurðsson, lektor í Háskólanum á Akureyri. 17:10 Samantekt, Þórður S. Óskarsson, vinnusálfræðingur, KPMG Sinnu hf. 17:20 Ráðstefnuslit. Fundarstjóri: Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins. I Vinsamlegast tilkynnið þátttöku tímanlega f síma 621066. Þátttökugjald er kr. 1.500. Ráðstefnan er haldin með stuðningi eftirtalinna aðila: Hagræðingarfélag ísiands Háskóli Islands <G> NÝHERJI Stjómunarfélag íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.