Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VlDSKlFn/ArVlNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
29
OLIUMARKAÐUR
Guðmundur W. Vilhjálmsson
Sverðin slíðruð
í dag 23. nóvember, kemur
OPEC enn saman til fundar og
enn við óskemmtilegar aðstæður.
Allt þar til að leið að fundi
OPEC ríkja 25. september sl. hafði
verð á olíu verið á niðurleið, reynd-
ar allt frá því í maímánuði. Órói
í Rússlandi hafði þó áhrif síðustu
dagana. Alls staðar var yfirfljót-
andi olía, jafnt hráolía sem unnar
olíuvörur. Olíuverð voru fyrir sept-
emþerfundinn þau lægstu, sem
verið hafa frá því árið 1973 er
tillit er tekið til gengis Bandríkja-
dollars, en viðskipti á alþjóðlegum
olíumörkuðum fara almennt fram
í þeim gjaldmiðli. Astæðan var sú
að OPEC framleiddi of mikið af
olíu. Samkvæmt samkomulagi 12
OPEC ríkja átti hráolíuframleiðsla
þeirra ekki að verða meiri á þriðja
ársfjórðungi en 23,55 mt/d. Fram-
leiðslan varð hins vegar í ágúst
sl. 24,85 mt/d. Framleiðsla Kúvæt
var um 2 mt/d, en Kúvæt var
ekki aðili að þessu samkomulagi,
þar sem þeir höfnuðu kvóta upp
á 1,6 mt/d. íran og Nígería sviku
samkomulagið og framleiddu tölu-
vert fram yfir sinn kvóta og svo
gerðu fleiri.
Það voru töluvert spenntir
OPEC fulltrúar, sem mættu til
fundar í Genf 25. september. Með-
aiverð á OPEC hráolíunni var
komin niður í 15,22 dollara en
markmið þeirra var að koma henni
upp í 21 dollara. Ekki voru fundar-
menn þó fyrirfram bjartsýnir um
friðsaman fund og bjuggust við
að mætast myndu stálin stinn.
Saudi Arabar lýstu yfir, að ef allir
hefðu fylgt ákvörðunum síðasta
fundar um kvóta, hefði ekki verið
um neina umframframleiðslu að
ræða. Kenndu þeir Irönum um
hvernig komið væri.
íranir töldu hins vegar að nú
bæri að taka aftur upp þá kvóta-
skiptingu, sem gilti fyrir Persa-
flóastríðið. Fyrir Persaflóastríðið
höfðu Saudi Arabar kvóta upp á
5,5 mt/d en nú var framleiðsla
þeirra komin í 8 mt/d. Sjaldan
hefur reynt jafn mikið á samstöðu
OPEC ríkja og á þessum fundi.
Þau höfðu allt að vinna. Ekkert
þessara ríkja mátti við frekari
tekjuskerðingu. Flest eru þau stór-
skuldug. Nú er svo komið fyrir
Saudi Arabíu að deilt er um lánst-
raust þess ríkis. Velferðarkerfið
er í hættu og að óbreyttu hefði
þurft að koma til skattlagningar.
Við þessar aðstæður var Fadh
konungur ekki öruggur í sessi og
konungsveldið í hættu. Sítar í rík-
inu, trúbræður írana, róa þar und-
ir ásamt fleirum. Sökum fjárskorts
hefir orðið stöðnun í olíuiðnaði
írana og metnaðarfullar áætlanir
hafa verið lagðar til hliðar. Gjald-
fallnar skuldir Irana munu nema
um sex milljörðum dollara.
Fundurinn hófst á laugardegi
og í fyrstu bárust litlar fréttir af
honum. Svo fór það að kvisast út
að eitthvað myndi vera að gerast
að tjaldabaki. í ljós kom að for-
seti íran, Rafsanjani, hafði hringt
í Fahd konung, aðalfjandmann
sinn og ræddi jafnframt í síma við
emírinn í Kúvæt, Jaber Ahmad
Jaber al-Saban. Hið ótrúlega gerð-
ist, að sítar og sunnítar slíðruðu
sverðin og samkomulag n'áðist á
OPEC fundinum. Hið nýja sam-
komulag gildir til sex mánaða í
stað þriggja, þ.e. yfir 4. ársfjórð-
ung 1993 og 1. ársfjórðung 1994.
Hámarksframleiðslan er ákveðin
24,5 mt/d. íranir fengu að mestu
helguð kvótasvik sín í nýja sam-
komulaginu. Kúvætar fengu kvóta
upp á 2 mt/d, nánast eins og þeir
höfðu framleitt, en Saudi Arabar
féllu frá hlutdeild í aukningu frá
fyrra hámarksmagni.
Samkomulagið þótti mikill sigur
fyrir OPEC ríkin, en var þó fyrst
og fremst varnarsigur. Þeim tókst
að gera samtök sín trúverðug og
þeim tókst að stöðva frekari verð-
lækkanir. Forseti OPEC; Jean
Ping, var mjög ánægður með sam-
komulagið og taldi það eitt hið
besta í sögu samtakanna. Sá, sem
ræður veðrum og vindum, sker úr
um hver árangur verður á næstu
vetrarmánuðum. Heita þar margir
á Allah, en aðrir biðja um góð
veður. Eftir þessa sex mánuði, sem
samkomulagið gildir, dregur aftur
úr olíunotkun og þá verður erfitt
fyrir þessi olíuríki að komast að
samkomulagi um niðurskurð.
Árangur samkomulagsins
En hver er nú árangurinn af því
samkomulagi sem sáttfúsir fulltrú-
ar OPEC ríkja náðu á fundi, sem
hófst 25. september sl.?
Á þeim tíma, sem liðinn er frá
fundinum, hefur verð á Brent hráol-
íu, sem er helsta viðmiðunin á
markaðnum, lækkað verulega (sjá
myndrit). En nú er það ekki um-
framframleiðsla OPEC ríkja sem
veldur, heldur er það annars vegar
notkunin, sem farið hefir niður fyr-
ir flestar spár og þannig lítið dreg-
ið úr hinum miklu birgðum af unn-
um olíuvörum í heiminum. Hinsveg-
ar er um meira framboð að ræða
af hráolíu, sem framleidd er utan
OPEC ríkja. Framleiðslan í Rúss-
landi hefir dregist töluvert saman,
en nú segja Rússar að botninum
sé náð og framleiðslan aukist aft-
ur. En þrátt fyrir minni framleiðslu
í Rússlandi hefir útflutningur auk-
ist, þar sem svo mikið hefur dregið
úr innanlandsnotkun vegna verð-
hækkana innanlands. Útflutningur
til annarra fyrrum Sovétríkja hefir
stórminnkað vegna minnkandi
greiðslugetu þeirra. Framleiðsla á
Norðursjávarolíu mun í desember
verða um 5,1 mt/d eða um einni
milljón tunna meiri en í desmeber
1992. Framleiðsla Noregs hefir nú
slegið öll fyrri met og framleiðsla
Bretlands hefir aukist um 40 af
hundraði. Forsvarsmaður Samein-
uðu þjóðanna í viðræðum við íraka,
Ekeus, hefir sagt að áþreifanlegur
árangur hafi nú náðst í þessum við-
ræðum og vilja sumir túlka það
þannig, að útflutningur íraka gæti
hafist eftir 6-8 mánuði.
Fyrir OPEC ríkin er þessi verð-
lagsþróun skelfileg. Þess vegna
koma þau nú saman aftur á fund
til að ræða frekari niðurskurð fram-
leiðslunnar. En þar sem annars
staðar er erfitt að koma sér saman
um skiptingu á minnkandi köku.
Tillögur hafa komið fram um hlut-
fallslegan niðurskurð ríkjanna, 3 -
5%, en þar mun hlest stranda á
andstöðu Saudi Araba, sem telja
sér ekki fært að fara niður fyrir 8
mt/d framleiðslu, enda afsöluðu
þeir sér hlutdeild í síðustu magn
aukningu. OPEC ríkin hafa fundið
með IPEC (Independent Petroleum
Exporting Countries, m.a. Rúss-
land, Bretland, Noregur, Oman) um
minni framleiðslu, en þær óskir
fengu engan hljómgrunn. Fundur-
inn, sem OPEC fulltrúar mæta til
í dag, hefst ekki í neinni sigurvímu.
Höfundur er forstöðumaður elds-
neytisdeildar Flugieiða hf.
Venð á Bnent- hnáolíu fná
1. ágúst -16. nóvember, dollarar/tunnu
\ Auglýsing um útgáfu markaðsverðbréfa |
|
|
á
é
I
■v
IH H
NORÐURLANDS HE •
^ Útgefandi'.
Gengi:
I
I
I
I
g Sblutívn:
I
Ú Söhiaðilar:
1
I
|
I
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, 103 Reykjavík
N Sími91-689080, Fax 91-812824
1
Upplýsingar:
Hlutabréfasjóður Norðurlands hf.
1,19 við upphaf sölu en verður
reiknað daglega á útboðstímanum
eftir markaðsverðmæti eigna
sjóðsins.
22. nóvember 1993 - 22. maí 1994
Handsal hf., Fjárfestingafélagið
Skandia hf., Kaupþing hf.,
Kaupþing Norðurlands hf.,
Landsbréf hf., Verðbréfamarkaður
íslandsbanka hf., Verðbréfaviðskipti
Samvinnubankans og afgreiðslur
Búnaðarbankans og sparisjóðanna.
Útboðslýsing liggur frammi hjá
söluaðilum.
Umsjón með útboði:
éé IKAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri
Sími 96-24700, Fax 96-11235
i
I
1
I
1
1
Hvernig er best að ávaxta
3.119.143.529 krónur?
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.
Fimmtudaginn 25. nóvember mun Björn Jónsson sjóðsstjóri Verðbréfasjóða
VÍB verða í VIB-stofunni og ræða við gesti um framtíðarhorfur Spegilsjóða
VÍB. Hvaða áhrif hafði vaxtalækkunin á ávöxtun verðbréfasjóða? Hver er
áæduð raunávöxtun Spegilsjóða VIB næstu mánuði? Hver er
fjárfestingarstefna Spegilsjóða VIB og hvernig er eignasamsetning þeirra?
Fundurinn hefst kl. 17:15 og er aðgangur öllum heimill.