Morgunblaðið - 23.11.1993, Side 31

Morgunblaðið - 23.11.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993 31 * Attræður Bjarni Bentsson Bjarni Bentsson er áttræður í dag. Hann fæddist á Bíldudal 23. nóvember 1913. Foreldrar hans voru Bent Bjarnason verslunar- maður þar og kona hans Karólína Friðriksdóttir Söebeck. Um leið og ég og fjölskylda mín óskum honum til hamingju með daginn, minnist ég þeirra góðu ára sem við höfum átt saman. Bjarni var yfirverkstjóri á tré- smíðaverkstæði flugmálastjórnar í ijölda ára og á sumrin var hann því oft úti á landi að líta eftir eig- um flugmálastjórnar. Alltaf kom hann og heimsótti mig þar sem ég var í sveit á Hrauni í Sléttu- hlíð, þegar hann átti leið um Skagaijörðinn. Ég gleymi því ekki þegar síminn hringdi, löng stutt löng stutt, og mér var tilkynnt að afi minn kæmi í heimsókn á morgun. Tilhlökkunin var mikil, því að þá töluðum við afi saman eins og maður við mann. Ég, átta eða níu ára gamall stór- bóndi, sagði honum fréttir úr sveit- inni og hvernig búskapurinn gengi, hann sagði mér fréttir úr borginni (Kópavogi) og af fjöl- skyldunni. Þegar hann svo kvaddi var ég ekki lengur stórbóndi held- ur átta ára gutti sem vildi fara heim með afa sínum strax. En ég reyndi að láta á litlu bera og kvaddi eins og stórhöfðingjar gera, með handabandi. Seinna unnum við saman hjá flugmálastjórn og var hann þá og er enn óspar á góð ráð mér til handa. Þegar afi hætti að vinna hafði ég miklar áhyggjur af því að hon- um myndi leiðast, en svo er nú aldeilis'vekki. Miklar framkvæmdir hófust í garðinum og nú er þar stórt gróðurhús þar sem afi minn ræktar m.a. tómata, gúrkur, pa- prikur og jarðarber og selur í Bón- us. Nei, það er ekki alveg satt, en þetta eru mun betri ávextir en eiga nokkurn tíma eftir að fást þar. Einnig hefur bílskúr risið við hlið gróðurhússins sem hefur verið í smíðum nú síðustu ár. Það má því sem sanni segja að afi og amma, Bjarni Béntsson og Unnur Jakobsdóttir, hafi komið sér vel fyrir á efri árum á Digranesvegi 80. Afí, um leið og ég ítreka innileg- ar hamingjuóskir mínar til þín með afmælið, þakka ég þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og bara vona að þegar ég verð gam- all, verði ég eins klár og sprækur og þú ert á 80 ára afmælisdaginn þinn. Ómar Stefánsson. 25% AFMÆLISAFSLÁTTUR af ollri þjónustu og vörum til 6. desember. HAKSEL í MJÓDD Þararbakka 3-2. hæð. MARKAÐS- QG SÖLUNÁMSKEIÐ Markaðs- og söluáætlun fagmannsins Áætlanagerð, skipulögð hugsun og vönduð vinnubrögð eru þeir þættir sem einkenna góða sölumenn. Á þessu námskeiöi læra sölumenn hvernig þeir geta sett sór markmið á árangursríkari hátt en áður og hvernig þeir vinna skipulega að því að ná settu marki. Ætlað sölufólki og sölustjórum sem vilja vinna faglega. Leiðbeinandi er Sigurður Ág. Jensson, viðskiptafræðingur og markaðsráðgjafi. Námskeiðið er haldið í húsnæði Stjórnunarfélagsins dagana 23., 24. og 25. nóvember nk. kl. 9.00-12.00 Skráning er hafin! Nánari upplýsingar í síma 621066. Sigurður Ág. Jensson t il i Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 Sími: 621066 ■MnawnHHBnWWBHWBMIHHWHH - ;• tlflSKOLflblOI fiAmuDfloinn 25. nóvmbtp, rl 20.00 Hljómsveitarstjóri: Enrique Garcia Asensio Einsöngvari: Teresa Berqanza Teresa Berganza Sími 622255 SINFONIUHLJOMSVE T SLANDS Sérstakttilb<*á«»°h*StePPU * Veri ábur 2*00 - kr. m 950 kr, 1 Verb nu ynslu re 10 ara með teppi frabser k ‘ iti 12 ullarteppi. tigum ; frábæru tiibobu nduö Vö iager a kr, a m &900 abur Verö 925 kr m 2 Verb nu Mzr? þérpmm>17 ■ •V' ' - «. , ’-ifef' ''' i d i o i ir; iLi r-ÁKAFENl 9 - SÍMI 6862B6 hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar IÐNÞROUNARSJOÐUR Kalkofnsveai 1 150Revkiavik sími: 191169 99 90 fax:629992 ► ► ►

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.