Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
TÓNLIST
Billy Joel í
heimsreisu
Sagt er að stemmningin á tónleikum Billys
Joel sé eins og á yfirstærð af píanóbörum,
þar sem áheyrendur syngi með í hveiju lag-
inu á fætur öðru. Billy segist vera óskaplega
ánægður með þetta, en telur sig hins vegar
ekki lengur þurfa á skjalli áhorfenda að halda.
Það sé liðin tíð. „Christie Brinkley elskar mig
núna. Hvers annars ætti ég að óska?“ spurði
kappinn.
Meðal vinsælustu laga hjá áheyrendum er
„Just the Way You Are“. Billy er þó ekki
áfjáður í að spila það, því hann segir að þrátt
fyrir að áheyrendur verði fyrir miklum áhrif-
um virki lagið á hljómsveitina eins og þeir
séu að spila í brúðkaupi.
Billy er nú á eins og hálfs árs tónleikaferða-
lagi um allan heim. Hann hefur nýverið gefið
út nýjan geisladisk, „River of Dreams".
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Nemendur 5L í Vesturbæjarskóla fylgjast með Baldri Brjánssyni
sýna töfrabrögð áður en fræðsluferðinni var haldið áfram.
FYRIRTÆKI
Nemendur heimsækja
Mjólkursamsöluna
Hátt í tvö þúsund grunnskóla-
nemendur á höfuðborgar-
svæðinu heimsóttu Mjólkursam-
söluna í síðustu viku til að kynn-
ast framleiðsluferlinu, en einnig
var umbúðaþróunin kynnt svo og
eldri vinnsluaðferðir.
Að sögn Einars Matthíassonar
hjá Mjólkursamsölunni hefur fyrir-
tækið haft samstarf við grunnskól-
ana á Stór-Reykjavíkursvæðinu
undanfarin 13 ár og ráða skólarn-
ir hvaða aldurshópa þeir senda.
Nemendur fá síðan með sér upp-
lýsingabækling og verkefni sem
unnin eru í skólanum undir leið-
sögn kennara.
Bókin fyrir vini okkar
VÁKORTALISTI
Dags. 23.11.1993. NR. 144
5414 8300 0310 5102
5414 8300 0957 6157
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3122 1111
5414 8300 3163 0113
5414 8301 0494 0100
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21**
Afgreiðsluíólk vinsamlegast takió ofangreind
kort úr umferö og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrír að klólesta kort og visa á vágest.
Höföabakka 9 • 112 Reykjavlk
Slmi 91-671700
MANNFAGNAÐUR
Þeir voru að skoða myndir frá fyrri tíð. F.v.
Sigurbjörn Svavarsson fyrrv. stýrimaður gæsl-
unnar en nú útgerðarsfjóri hjá Granda, Sæmund-
ur Ingólfsson vélstjóri sem starfar nú hjá Kaup-
félagi Arnesinga, Valdimar Jónsson loftskeyta-
maður sem vinnur nú hjá Sjónvarpinu og Hálf-
dán Henrýsson stýrimaður sem starfar nú hjá
Slysavarnarfélaginu. Eiginkonur tveggja starfs-
manna sjást í bakgrunni.
Morgunblaðið/RAX
Hafsteinn Hafsteinsson núverandi forstjóri
Landhelgisgæslunnar ræðir hér við þá (frá
vinstri) Pálma Hlöðversson fyrrverandi stýri-
mann, sem nú kennir við Stýrimannaskólann,
Benedikt Guðmundsson fyrrverandi stýrimann
sem nú er starfsmannasfjóri gæslunnar, Sigurjón
Viðar fyrrverandi matsvein og Þröst Sigtryggs-
son fyrrverandi skipherra.
Sögur úr þorska-
stríði rifjaðar upp
að urðu miklir fagnaðarfundir og glatt var á
hjalla á Kringlukránni sl. föstudag. Þar voru
mættir fyrrverandi og núverandi starfsmenn Land-
helgisgæslunnar ásamt mökum til að rifja upp minn-
ingar frá þorskastríðum fyrri ára auk annarra at-
vika. Sigurbjöm Svavarsson fyrrverandi stýrimaður
gæslunnar sem var einn af forkólfum fagnaðarins
sagði í samtali við Morgunblaðið að tilefnið hefði
verið m.a. vegna þess að frá því 200 mflna útfærsl-
an átti sér stað hefðu svo margir hætt. „Við vorum
nokkrir stýrimenn sem langaði til að hóa mannskapn-
um saman og fundum fyrir áhuga hjá bæði eldri
og yngri mönnum. Þetta heppnaðist svo vel að við
ákváðum að hittast árlega,“ sagði hann.
Skemmtilegar sögur voru rifjaðar upp. Hér
ræða þeir saman Þórður Þórðarson fyrrv. loft-
skeytamaður gæslunnar en nú fulltrúi hjá Sigl-
ingamálastofnun ríksisins, Guðni Skúlason sem
var loftskeytamaður en er nú varðstjóri í stjórn-
stöð og Sigurður Árnason fyrrverandi skipherra.
Það urðu fagnaðarfundir þegar þeir Baldur
Halldórsson (t.v.), Guðmundur Kærnested og
Ólafur Valur Sigurðsson hittust.