Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NOVEMBER 1993
39
TÓNLIST
Djassað á Café Torgi
Hljómsveitin Spilaborgin var
stofnuð fyrir stuttu og spilar
hún aðallega gömul og góð djasslög
en einnig blús. Auk þess er frumsam-
ið efni á dagskrá eftir gítarleikara
hljómsveitarinnar, George Gross-
man. Aðrir hljómsveitarmeðlimir eru
Ásdís Guðmundsdóttir söngkona,
Pétur Kolbeinsson á bassa og Guðjón
B. Hilmarsson á trommum. Meðfylgj-
andi myndir voru teknar sl. föstu-
dagskvöld á Café Torgi, en þar spil-
ar hljómsveitin á föstudags- og laug-
ardagskvöldum.
Morgunblaðið/Þorkell
Hljómsveitina Spilaborgina skipa Guðjón B. Hilmarsson, Pétur Kol-
beisson, Ásdís Guðmundsdóttir og George Grossman.
Þau voru mætt þrátt fyrir vonskuveður sl. föstudagskvöld, f.v. Val-
dís I. Jónsdóttir, Dagný Guðmundsdóttir, Guðrún I. Guðmundsdóttir
og Þorgrimur Guðmundsson.
Jass- og blúsunnendurnir f.v. Eydís Ástráðsdóttir, Sigrún Sóley
Karlsdóttir og Brynja Sigurðardóttir.
'eonaœd
Nú fer jólafastan í hönd og þá bjóöum við upþ á fÓLAfrf LAÐBORÐ
með gómsætum jólakrásum, bæði íslenskum og skandinavískum.
Einstaklingar, félög, samstarfsmenn og jyrirtæki geta valið um vistlega
veislusali afýmsum stærðum auk Skrúðs og Súlnasalar.
/ ^/•//z/////j//’r/) // f/ry/s r/'/t-i /•// /6///) ysr/.j/ //>/.
SKRÚÐUR
FRÁ FIMMTUDEGINUM 25. NÓV.
Notaleg hljómlist leikin afjónasi Þóri og Jónasi Dagbjartssyni 26. og
27. nóy. og síðan öll kvöld frá 3. des.
Verð: í hádegi 1.590,- kr. á kvöldin 2.300,- kr.
SÚLNASALUR
LAUGARDAGANA 4.. 11. OG 18. DES.
Glœsilegt jólahlaðborð, góð skemmtiatriði og dansleikur.
Sigríður Beinteinsdóttirflytur lög af nýrri jólaplötu. ÖrnÁrnason og
Egill Ólafsson syngja vinsæl lög oggera að gamni sínu, með undirleik
Jónasar Þóris. o.fl.
11. DES. kemur Samkórinn Björk einnigfram.
Hljómsveitin SAGA KLASS leikur Ijúfa tónlist meðan á borðhaldi
stendur og kemursvo Öllum í stuð á dansleiknum. Verð 2.500,- kr.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR
VEITIR SÖLUDEILDIN
í SÍMA 29900.
-lofar góðu!