Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞKIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
41
*
ÁVALLT I FARARBRODDI IVIEÐ AÐAL MYNDIRNAR
EIN VINSÆLASTA GRÍNMYND ÁRSINS
Leikstjórinn Ivan Reitman („Twins“ og „Ghostbusters") kemur hér
með stórkostlega grínmynd sem sló í gegn vestan hafs í sumar.
Aðalhlutverk: Kevin Kline, Sigourney Weaver, Frank Langella
og Ben Kingsley. Leikstjóri: ivan Reitman.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
SPENNUMYNDIN
„THE G00D S0N“ - SPENNUMYND í SÉRFLOKKI!
FRUMSÝNIR GRÍNMYNDINA
„THE SANDL0T“ STÓRSKEMMTHEG GRÍNMYND FYRIR UNGA SEM ALDNA!
FYRIRTÆKIÐ
FLÓTTAMAÐURINN
T O M C R U 1 S E1 I
WMmmÉí jok
HKM m mi
***ÓT. Rás 2.
Sýnd kl. 6.30 og 9. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5,6.50,9 og 11.
HÓKUS PÓKUS
UNGIANNAÐ SINN
GLÆFRAFÖRIN
Sýnd kl. 5 og
7.15.
Sýndkl. 11.157]
EINU SINNIVAR SKÓGUR
...frábær teiknimynd. Sýnd kl. 5. Kr. 400.
..............
Frá dekkjaverkstæði Stimpils, Auðbrekku 28-30.
■ STIMPILL hefur hafið
starfsemi á dekkjaverkstæði en
það er viðbót við bílaverkstæði
sem þar hefur verið rekið síðan
1985 og er til húsa að Auð-
brekku 28-30. Eigandi er Atli
Ólafsson. Opnunartími fyrir-
tækisins er mán.-fim. kl. 8-18,
föstud. kl. 8-17 og á laugar-
dögum er opið frá kl. 10-14.
Aðalhlutverk: Macaulay Culkin, Elijah Wood, Wendy Crewson og
David Morse. Framleiðendur: Mary Ann Page og Jospeh Ruben.
Leikstjóri: Joseph Ruben.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára.
Aöalhlutverk: Tom Guiry, Mike Vitar, Karen Allen og James Earl
Jones. Leikstjóri: David Mickey Evans.
Sýnd kl. 5,7,9og 11 ÍTHX.
RÍSANDI SÓL
FLÓTTAMADURINN
Sýnd kl. 5,9 og
11.15. B.i. 16ára.
Sýnd kl. 4.45, 9
og 11.15.
[UliaiMmpfiiil Ioiíii uilliii
! ★ + ★ Aí. MBL.
| ★ Ai. MBL.
Sýnd kl. 7.
Bönnuð i. 12 ára.
Siðustu sýningar.
RISANDISOL
Sýnd kl. 4.45,7 og 9.15.
Bönnuð innan 16 ára.
■ ÆSKUL ÝSSAMBAND
Islands gegnst miðvikudag-
inn 24. nóvember fyrir ráð-
stefnu um húsnæðismál
ungs fólks á íslandi í dag,
undir yfirskriftinni „Hótel
mamma“. Ráðstefnan fer
fram í Risinu, Hverfisgötu
105, og hefst kl. 17. Meðal
frummælenda verða: Jó-
hanna Sigurðardóttir, full-
trúar námsmannahreyfing-
anna, fulltrúi Félags fast-
eignasala, fulltrúi félags-
málaráðuneytis, fulltrúi Hús-
næðisstofnunar ríkisins auk
„ófleygra unglinga í hreiðri
mömmu“ og síðan en ekki
síst fulltrúi þeirra sem mest
mæðir á, mæðra landsins,
eins og segir í tiikynningu
ÆSÍ.
■ BÓKASAFN Selljarn-
arness flutti I nýtt húsnæði
fyrir tíu árum. í tilefni af-
mælisins hefur verið ákveðið
að hafa sektarlausa viku
22.-27. nóvember nk. í
fréttatilkynningu segir að
fólk sé hvatt til að mæta með
vanskilabækur og skila þeim
endurgjaldslaust þessa viku.
UR DAGBOK
LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK:
19. - 22. nóvember 1993
Um kl. 20 á föstudags-
kvöld þurfti að manna svo-
nefnda aðgerðarstjórnstöð
í aðallögreglustöðinni. Frá
þeirri stjórnstöð eru sam-
hæfðar aðgerðir ef og þeg-
ar aðstæður gefa tilefni til.
Tilefnið að þessu sinni var
hvassviðrið sem þá gekk
yfir. Mjög hvasst var fram
undir morgun, en þá fór
heldur að lægja. Ýmislegt
lauslegt fauk, klæðningar
losnuðu af húsum og vinnu-
pallar fuku um koll. Útköll
vegna óveðursins voru tæp-
lega 70 á tímabilinu. Auk
hjálparsveitarmanna í að-
gerðarstöðinni voru á ann-
að hundrað hjálparsveitar-
menn út um allan bæ og
veittu geysimikla og góða
aðstoð. Þeir eiga þakkir
skildar fyrir ágæta frammi-
stöðu. Ekki urðu meiri hátt-
ar uppákomur þetta kvöld
eða um nóttina, hvorki
vegna ölvunar eða annarra
hluta. Lítið var um að vera
í miðborginni, enda veðrið
þannig að fáir héldust þar
við.
Þrátt fyrir afleitt veður
framan af helginni þurfti
lögreglan 57 sinnum að
hafa afskipti af ölvuðu
fólki. Tilkynnt var um sex
líkamsmeiðingar. Þá eru sjö
grunaðir um að hafa verið
undir áhrifum við akstur,
en ekki er vitað til þess að
ölvaður ökumaður hafi ver-
ið aðili að þeim 38 umferð-
aróhöppum sem urðu um
helgina. Af þeim urðu
meiðsli á fólki í tveimur til-
vikum. Alls eru 547 bókan-
ir færðar í dagbókina og
ber þar mest á ölvunartil-
vikunum, auk fokstilkynn-
inganna og aftöku skrán-
ingarnúmera, en tæplega
60 slík voru fjarlægð af
bifreiðum um helgina. Lög-
reglan mun á næstunni
halda áfram að leita uppi
ökutæki sem ekki hafa ver-
ið færð til skoðunar sem
og þau sem ekki hafa verið
greiddar af lögboðnar
tr.Vggingar eða önnur opin-
ber gjöld.
Alls þurfti að vista 26
einstaklinga í fanga-
geymslunum um helgina.
Fjölmennast var aðfaranótt
sunnudags. Þá voru 15 ein-
staklingar „gestkomandi“ í
fangageymslunum.
Aðfaranótt laugardags
hafði lögreglan afskipti af
ökumanni sendibifreiðar
sem var að flytja farðþega
gegn gjaldi, en slíkt er hon-
um óheimilt, auk þess sem
ökumaðurinn hafði ekki
ökuréttindi til aksturs far-
þega gegn gjaldi. Talsvert
virðist vera um það, sér-
staklega aðfaranætur helg-
ardaga, að sendibílstjórar
noti ökutæki sín til þess að
flytja farþega gegn gjaldi.
Það er með öllu óheimilt
og er það von lögreglunnar
að þeir sendibílstjórar, sem
það hafa gert, láti þegar
af slíku. Annars verður
ekki hjá því komist að taka
mjög markvisst á því máli
og beita kærum í öllum til-
vikurn. Þegar hafa nokkrir
þeirra verið kærðir, enda
brjóta sendibílstjórarnir lög
um leigubifreiðar með
gerðum sínum.
Mjög fáir unglingar voru
á ferli að kvöld- og nætur-
lagi um helgina. Án efa
hefur illviðrið átt þar ein-
hvern hlut að máli, en það
eru enn sem fyrr eindregin
tilmæli lögreglu til foreldra
að þeir sjái til þess að regl-
ur um útivistartíma séu
virtar. Þannig mega börn
12 ára og yngri ekki vera
úti eftir kl. 20 án fylgdar
foreldra sinna og unglingar
yngri en 16 ára mega ekki
vera úti eftir kl. 22, nema
um sé að ræða beina heim-
ferð frá viðurkenndri æsku-
lýðs- og skólaskemmtun.
Lögreglan hefur að und-
anförnu haft áhyggjur af
ástandi og hegðan nem-
enda á framhaldsskóla-
skemmtunum. Ef skóla-
stjórnendur og nemendur
sjálfir sjá ekki leið til úr-
bóta er ekki ólíklegt að yfir-
völd þurfi að grípa þar inn
í áður en langt um líður.