Morgunblaðið - 23.11.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
43
PRINSAR
ÍL.A.
Frábær
grín-
og ævin-
týramynd.
Sýnd kl. 5,7,
9og 11.
HINIR ÓÆSKILEGU
★ ★ ★
GB DV
★ ★★’/i SV
MBL.
★ ★★ ÓHT
Rás2
Morgunblaðið/Helga Halldórsdóttir
Nemendur í eldri hóp á myndlista- og föndurnámskeiði á Þingeyri ásamt leiðbeinanda
sínum, Guðbjörgu Hlíf Pálsdóttur.
Þingeyri
Myndlist, föndur og dans
Þingeyri.
MYNDLISTA- og fönd-
urnámskeið var haldið á
Þingeyri dagana 16.-24.
október sl.
Námskeiðið sem haldið
var í Grunnskólanum á Þing-
eyri var vel sótt og var kennt
í tveimur hópum. Farið var
yfir notkun lita og mynd-
byggingu og einnig var unn-
ið við skartgripagerð úr leðri
og leir.
Myndlista- og föndurná-
mskeiðið sóttu alls um þrjá-
tíu manns en samhliða því
var einnig haldið dansnám-
skeið í félagsheimilinu og
voru nemendur þar tæplega
fjörutíu.
Kennari á báðum þessum
námskeiðum var Guðbjörg
Hlíð Pálsdóttir en hún er
danskennari og tækniteikn-
ari að mennt. Einnig er hún
lærð frá myndhöggvaradeild
Myndlista- og handíðaskóla
Islands.
- Helga.
30. starfsár Tónlistar-
skóla Stykkishólms hafið
Stykkishólmi.
TÓNLISTARSKÓLI
Morgunblaðið/Árni Helgason
Skólasljóri Tónlistarskólans í Stykkishóhni og kennarar.
Stykkishólms hefur nú
hafið sitt þrítugasta starfs-
ár. Nú á haustönn hafa
innritast í hann alls 110
nemendur og margir sem
Iæra á fleira en eitt hljóð-
færi. Nú er kenndir 133
tímar á viku.
Starfandi innan skólans
eru lúðrasveit, tveir bjöllu-
kórar, popphljómsveit og
barnakór. Skólinn hefur til
umráða gamla íþróttahúsið
og gamla barnaskólann.
Nýlega tók skólinn í notk-
un nýtt píanó sem má segja
að sé gjöf ýmissa aðila m.a.
Lionessuklúbbs Stykkis-
hólms Hörpu, Lionsklúbbs
Stykkishólms, Kvenfélaginu
Hörpu í Helgafellssveit o.fl.
sem þar koma að málinu.
Starfandi við skólann eru
fjórir kennarar auk skóla-
stjórans Daða Þórs Einars-
sonar, Hafsteinn Sigurðsson,
Lárus Pétursson, David Enns
og Lana Betts, en þau tvö
síðastnefndu koma frá
Kanada.
- Arni.
SIMI: 19000
Þriðjudagstilboð á allar myndir nema
Svik og Hin helgu vé
PIANO
Sigurvegari Cannes-hátíðarinnar 1993
„Píanó, fimm stjömur af fjórum mögulegum."
★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan
„Píanó er einstaklega vel heppnuð kvikmynd, fal-
leg, heillandi og frumleg."
★ ★ ★ /2 H.K. DV.
„Einn af gimsteinum kvikmyndasögunnar"
★ ★ ★ ★ Ó.T. Rás 2
„Pianó er mögnuð mynd.“
★ ★ ★ ★ B.J. Alþýöublaðið.
Aðalhlutverk: Holly Hunter, Sam Neill
og Harvey Keitel.
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10.
Ripoux Contre
Ripoux
Meiriháttar frönsk sakamáiamynd
með gamansömu ívafi.
Aðalhl. Philippe Noiret (Cinema Pardiso)
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
RED ROCK WEST
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuðinnan16 ára.
Síðustu sýningar
Ung hjón ætla að svíkja fé út úr tryggingafélagi, en þau
gleymdu að gera ráð fyrir tryggingarannsóknamanninum
Roland Copping, Illgjarnasta, útsmognasta og ófyrlrleltnasta
manni á jörðinni.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára.
Einstök mynd sem allir verða að sjá.
„Hrífandi, spennandi, erótísk.“
Alþýðublaðið.
„...hans besta mynd til þessa ef ekki
besta íslenska kvikmynd sem gerð hef-
ur verið seinni árin.“ Morgunblaðið.
„Sagan er einföld, skemmtileg og góð-
ur húmor í henni.“ Timinn.
★ ★★V2 „MÖST“ Pressan.
Sýnd í B-sal kl. 5,7,9 og 11.
Geggjaður gálgahúmor og mikil spenna!
Hann var farmað-
ur, dáðadrengur
Kvikmyndir
Sæbjörn
Valdimarsson
Háskólabíó/Laugarás-
bíó:
Hættulegt skotmark -
Hard Target
Leikstjóri John Woo. Að-
alleikendur Jean-Claude
Van Danime, Yanzy Butl-
er, Lance Henriksen,
Wilford Brimley. Banda-
rísk. Universal 1993.
Kínverski leikstjórinn
John Woo vakti á sér at-
hygli undir lok síðasta ára-
tugar með íburðarmiklu
ofbeldi og framúrskarandi
góðum átakaatriðum í
myndinni The Killer. Holly-
wood lætur ekki slíka hæfi-
leikamenn framhjá sér
fara. Kvikmyndáborgin
hefur einnig á sínum snær-
um Belgíumanninn V an
Damme, vitahæfileika-
lausann leikara en kattlið-
ugan skratta sem er ensk-
unámið ofviða og því afar
fámáll í sínum B-myndum.
Þjóðráð að láta þessar
kempur leiða saman hesta
sína.
Það er heldur ekki mikið
sagt í Hættulegu skot-
marki, afrakstri þeirra fé-
laga, en því meira lamið,
skorið, sprengt og skotið.
Persónusköpunin getur
ekki verið einfaldari, ann-
aðhvort eru menn góðir eða
vondir. Van Damme leikur
óskiljanlega og óútskýrða
blöndu af utangarðsmanni,
farmanni og óvígum slags-
málahundi sem lendir í því
að senda tugi fóla inní eilíð-
ina á meðan hann bíður
eftir skipsplássi. Er það
stúlkan Butler sem ýtir
honum útí drápin er hún
ræður hann til að hafa
uppá föður sínum. Lenda
þau þá á vegi Henriksens
sem hefur í sig og á með
því að selja leyfi á manna-
veiðar.
Ekki verður annað sagt
en að Hættulegt skotmark
sé ósköp þunnt í roðinu og
minnir í álappalegum,
knöppum texta og ofbeld-
issíbylju á þá Hong-Kong-
framleiðslu sem Woo er
alin upp í. Sagan er sára-
einfaldur rammi utanum
öllu tilþrifameiri átakaatr-
iði þar sem ofbeldið er haf-
ið til skýjanna. Woo er
snjall í drápsbrellum og
bardagadansi og spurning
hvort hann eigi ekki gild-
andi heimsmet í tómatsósu-
austri. Hann notar þó útj-
askaða tækni til að undir-
strika hamaganginn; sýnir
hann hægt og skilmerki-
lega. Þau Van Damme og
nýliðinn Yanzy Butler eru
bæði steinrunnin en Belg-
íumaðurinn vaknar þó til
lífsins í grimmustu bardög-
unum. Sem verða leiði-
gjarnir - líkt og hæga-
gangurinn á örvarskotun-
um. Skúrkarnir eru skástir.