Morgunblaðið - 02.12.1993, Síða 21

Morgunblaðið - 02.12.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 21 Katrín Pálmadóttlr Kennitala 123456-7899 Tékkaábyrgðarnúmer 0101-003274 UNDIRSKRIFT r AUTHORIZED SIGNATURE ? Kortið má sá sinn nota seir. þaö er geffð út á, i sawæmi vfö § gildandi reglur. Fínnandi er beð nn að skila því til nœsta úlibOs- y II Ihe card is found please reUwm ít to the nearest bank Gildir út Expires end of 09/96 KORTIÐ ER EIGN BANKANS/SPARISJÓDSINS - MISNOTKUN VARÐAR VIO LÖG Kortin útbúin DEBETKORTIN eru útbúin í þessari vél í Reiknistofu bankanna. Á innfelldu myndinni er sýnishorn af korti. Neytendasamtökin um GATT-tilboð Hagsmunir neytenda fyrir borð bomir STJÓRN Neytendasamtakanna krefst þess að GATT-tilboð ríkissljórn- arinnar verði túlkað þannig að fullt tillit verði tekið til hagsmuna neytenda en ekki aðeins hagsmuna framleiðenda búvara. Telur stjórn samtakanna að miðað við tilboð ríkisstjórnarinnar sé ljóst að landbúnað- arráðherra ætli að túlka væntanlegt GATT-samkomulag eins þröngt og mögulegt er, og þannig eigi að sniðganga eins og kostur er hags- muni neytenda til að vernda hagsmuni framleiðenda. Neytendasamtökin telja að þau tollaígildi sem tilboð ríkisstjórnarinn- ar gerir ráð fyrir að leggist á innflutt- ar búvörur séu of há og talnaleikur landbúnaðarráðherra í sambandi við stuðning stjórnvalda við landbúnað kalli á að gerð verði opinber rann- sókn til að leiða hið sanna í ljós. Samkvæmt tilboði ríkisstjórnarinnar verður áfram aigjört innflutnings- bann á hráu kjöti, eggjum og mjólk til að vernda íslenskan bústofn, en að mati Neytendasamtakanna er hér um að ræða tæknilegar viðskipta- hindranir, og til að stöðva slíkan inn- flutning þurfí að koma vísindaleg rök sem sýni fram á að hætta sé á ferð- um vegna innflutnings frá ákveðnum svæðum. Þá telja Neytendasamtökin það óviðunandi fyrir neytendur að í tilboðinu skuli ísland áskilja sér rétt til að beita magntakmörkunum á innflutning vara sem eru undir fram- leiðslustýringu hér á landi. ------»■ ♦■■■«-- Hafnarfjörður A slysadeild eftir árekstur KONA var flutt á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla á mótum Flatahrauns og Hafnarfjarðar- vegar í fyrrakvöld. Að sögn lög- reglúnnar voru meiðsli hennar ekki talin alvarleg. Umferðarljós eru á gatnamótun- um þar sem áreksturinn varð, en ekki er ljóst hvorum bílnum var ekið yfir á rauðu ljósi. Leiðrétting Rangar tölur um tap í innanlandsflugi í frétt í blaðinu í gær um umræð- ur á Alþingi um erfiðleika í innan- landsflugi voru missagnir í frásögn af ræðu Halldórs Blöndal samgöngu- ráðherra og ranglega haft eftir hon- um að áætla mætti að tap í innan- landsfluginu á þessu ári yrði nálægt 300-400 millj. kr. Samgönguráð- herra sagði í ræðu sinni að menn væru kannski að tala um 200-300 millj. kr. Orðrétt sagði Halldór í ræðu sinni: „Ég geri mér ekki grein fyrir því hvernig staðan er á þessu ári. Ég hef ekki um það nýjar tölur og hef ekki séð milliuppgjör sem ugglaust hafa verið gerð á innan- landsfluginu. Það liggur á hinn bóg- inn alveg ljóst fyrir að við erum þar að tala um kannski 200-300 milljón- ir króna ef við getum miðað við þær tölur sem hafa verið á liðnum árum. Má þó vera að þar sé um lægri tölur að fræða vegna þess að ýmsum kostnaði hefur verið velt af atvinnu- rekstrinum einmitt á þessu ári, en hitt er auðvitað laukrétt að með því að virðisaukaskattur verður lagður á fólksflutninga á næsta ári, þá hlýt- ur að þyngjast róðurinn. Það hefur verið gerð úttekt á því hvaða áhrif virðisaukaskatturinn muni hafa eða sú úttekt er kannski í burðarliðnum. Ég hef ekki fengið hana í hendur en það er verið að vinna að úttekt á því og geri ég ráð fyrir að hún muni liggja fyrir nú innan skamms," sagði Halldór. Er beðist velvirðingar á mistökunum. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Framtíð Smjörlíkis hf. mikilli óvissu háð Fyrirtækið verð- ur að auka hlutafé um 120 milljónir Davíð Scheving Thorsteinsson kveðst eiga fyrir fyrri greiðslu til lánardrottna, samkvæmt nauðasamningi, eða um 25 milljónir í GÆR, þann 1. desember átti að renna út sá frestur sem Davíð Scheving Thorsteinsson, framkvæmdasljóri Smjörlíkis hf. hafði til þess að útvega 120 milljóna króna nýtt hlutafé, vegna samn- inga við lánardrottna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins telja helstu lánardrottnar Smjörlíkis að Davíð hafi tekist að út- vega hlutafjárloforð fyrir um helming þessarar upphæðar, eða nálægt 60 milljónum króna, en þar sem Héraðsdómarinn í Reykja- vík samþykkti með stimpli sínum þann 22. nóvember nauðasamn- inga þá sem fyrirtækið gengur til, við lánardrottna sína, má segja að frestur Davíðs til þess að útvega nýtt hlutafé, framíengist, ef aðilar ná samkomulagi um endurnýjun rekstrarsamnings. Helstu lánardrottnar Smjörlíkis og Smjörlíki hf. gerðu í sumar með sér rekstrarsamning til 1. desem- ber, sem var skilyrtur á þann veg að fjárhagslegri endurskipulagn- ingu og hlutafjársöfnun nýs hluta- fjár upp á 120 milljónir króna yrði lokið fyrir gærdaginn. Takist samningar milli lánar- drottna og Smjörlíkis hf. um fram- lengingu rekstrarsamnings, sem mun skýrast nú næstu daga, fram- lengist fresturinn sem Davíð hef- ur, að hluta til, til 22. desember, þegar greiða ber lánardrottnum fyrri greiðslu að upphæð um 25 milljónir króna og að hluta til í 90 daga eftir það, eða fram til 22. mars á næsta ári, þegar greiða ber síðari greiðslu til lánardrottna, einnig um 25 milljónir króna. Dav- íð Scheving sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann væri ekki í nokkrum vafa um að tilskil- in hlutafjáraukning næðist fyrir 22. mars, svo fremi sem unnið verði að málinu af heilindum af öllum aðilum. „Ég er með tilboð frá Bandaríkj- unum fyrir allri hlutafjáraukning- unni, 120 milljónum króna, en til- boðið er skilyrt á þann veg, að það er ekki víst að það sé aðgengilegt. Auk þess er ég að bytja í viðræðum við breskan hóp, bandarískan og einn islenskan, sem gæti hugsað sér að starfa hvort sem er með Bretunum eða Bandaríkjamönnun- um eða báðum,“ sagði Davíð. Mjög arðbært fyrirtæki „Ef við hjá Smjörlíki hf., lánar- drottnar og aðrir vinnum saman að þessu máli af heilindum, þá verður það ekkert vandamál að ná þeirri hlutafjáraukningu sem að er stefnt, fyrir 22. mars næstkom- andi. Um það er ég sannfærður. Þetta fyrirtæki er mjög arðbært og er vinsælasta fyrirtæki lands- ins. Við höfum náð feikilega góðum árangri með nýja ávaxtasafann okkar, Brassann. Við seljum um 150 þúsund lítra af honum á mán- uði, og ég bendi á, að hann hefur bara tekið markaðshlutdeild frá innflutningi,“ sagði Davíð Schev- ing Thorsteinsson. Helstu iánardrottnar Smjörlíkis hf. eru íslandsbanki, Iðnlánasjóð- ur, Iðnþróunarsjóður og Glitnir hf. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins komu þessir fjórir aðilar ávallt fram sem ein heild, í undir- búningi að nauðasamningum við Smjörlíki hf. Ekki munu allir lánardrottnar hafa búist við því, að stimpill Hér- aðsdómarans fengist á nauða- samningana, án þess að skilyrðið um nýtt hlutafé hefði verið upp- fyllt, en það mun viðtekin venja, að ef engir hagsmunaaðilar mót- mæla, að veita slíkan stimpil. Því eru málefni Smjörlíkis hf. nú formlega komin inn í farveg nauðasamninga, og verður fyrir- tækið að greiða fyrri greiðslu til lánardrottna, um 25 milljónir króna, innan 30 daga frá því stimp- ill Héraðsdómara var settur á nauðasamningana, eða 22. desem- ber næstkomandi. Samkvæmt því að innan 90 daga eftir fyrri greiðslu, eða eigi síðar en þann 22. mars 1994 á að inna síðari greiðsluna af höndum, aðrar 25 milljónir króna, þá hefur Smjörlíki hf. enn tæplega fjóra mánuði til þess að útvega þær 60 milljónir sem á vantar, til þess að fullnægja kvöðinni um aukningu hlutafjár. Hlutafjáraukningin skilyrði nauðasamningsins Fari leikar á þann veg að ekki takist að uppfylla skiiyrðið um hlutafjáraukningu innan þess tíma sem Davíð hefur nú til stefnu, þá er nauðasamningurinn þar með fallinn og ekkert annað en gjald- þrot sem við blasir. Hlutafélaga- lögin kveða einfaldlega á um að hlutafjáraukning verður ekki gild, nema sú fjárhæð náist sem á að nást, samkvæmt samkomulagi við lánardrottna eða ákvörðun hlut- hafafundar. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins munu stærstu lánar- drottnar Smjörlíkis líta þannig á, að hlutafjáraukningin sé skilyrði fyrir því að felldur verði niður sá hluti skulda fyrirtækisins við lánar- drottna, sem samkomulag tókst um í nauðasamningunum, eða um 160 milljónir króna, sem losa það að vera um 20% af heildarskuldum Smjörlíkis við fjóra stærstu lánar- drottnana. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins féllust aðrir lánardrottnar Smjörlíkis hf. á að fella niður um 70% af skuldum fyrirtækisins. Á það ber að líta að fjórir stærstu lánardrottnar Smjörlíkis hf., þ.e. íslandsbanki hf., Iðnlána- sjóður, Iðnþróunarsjóður og Glitnir hf. eru allir lánardrottnar sem eiga veð í eigum fyrirtækisins, en aðrir lánardrottnar, sem féllust á 70% niðurfellingu skulda, eiga ekki veð í eignum Sjörlíkis hf. Stærstu lánardrottnamir líta þannig á, að eftir að hafa fallið frá 162ja millj- óna króna kröfu, hafi skuldir Smjörlíkis við þá lækkað úr 782 milljónum króna í 620 milljónir króna. Síðan verði nýtt hlutafé, að upphæð 120 milljónir króna, notað til þess að greiða enn frekar niður skuldir Smjörlíkis hf. við þá, þann- ig að eftir standi 500 milljóna króna skuld Smjörlíkis við þá, sem eigi þá, að þeirra mati, að vera nokkurn veginn raunvirði fyrirtæk- isins. Bæjarstjórnarkosningarnar á Eskifirði á vori komanda Sjálfstæðismenn með prófkjör SJÁLFSTÆÐISMENN á Eskifirði halda prófkjör vegna uppstill- ingar á framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Prófkjörið fer fram næstkomandi laugardag, 4. desember. Þrettán gefa kost á sér í prófkjörinu. Eftirtaldir bjóða sig fram í próf- kjörinu: Andrés Elísson rafiðn- fræðingur, Árni Helgason fram- kvæmdastjóri, Benedikt Jóhanns- son verkstjóri, Elínborg Kristín Þorvaldsdóttir tryggingarfulltrúi, Erna Nielsen kaupkona, Friðrik Árnason Þorvaldsson kennari, Guðrún E. Karlsdóttir húsmóðir,' Haukur L. Jónsson verkstjóri, Hrafnkell A. Jónsson formaður Verkamannafélagsins Árvakurs, Jónína Kristín Ingvarsdóttir skrif- stofumaður, Katrín Gísladóttir húsmóðir, Pétur Halldór Georgs- son verslunarmaður og Skúli Sig- urðsson verkstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo fulltrúa af sjö í bæjarstjórn, Skúla Sigurðsson og Hrafnkel A. Jónsson. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir þeir sem náð hafa 18 ára aldri á prófkjörsdag og eru með lögheimili á Eskifirði og und- irrita stuðningsyfirlýsingu við flokkinn í komandi bæjarstjórnar- kosningum. Kosið verður á fyrrum skrifstofu RARIK frá klukkan 10 til 19 á laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.