Morgunblaðið - 02.12.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993
27
Jólaborðí
Kennaraháskólanum
Á AÐVENTU hittast nemendur sem hafa valið hússtjórn innan
Kennaraháskólans og bjóða kennurum og öðrum sem starfa í húsi
hússljórnar í Háuhlíð til jólamáltíðar. Þessi siður hefur haldist frá
því að deildin byijaði 1977 og það er ætíð annar bekkur sem sér
um veisluna. Við fengum að kikja á matseðilinn og birta nokkrar
uppskriftir.
Anna Guðmundsdóttir lektor.
Nemendur hús-
stjórnar bjóða
kennurum og
öðrum til mól-
tíðar ó aðventu
qj „Síldin þarf að vera í
■ saltpækli í 2-4 mánuði áður
en hún er hæf til matar og
hh hún er rétt að verða tilbúin
OC núna,“ segir Anna Guð-
mundsdóttir, lektor við Kenn-
araháskólann. „Okkur fínnst
2" tilvalið að hafa hana á borð-
™ um, síldin er holi, auðug af
A- og D-vítamíni, kalkrík og
fosfórauðug.“
Síldina flaka fisksalar fyrir við-
skiptavini og margir roðdraga
hana líka. Þá á eftir að afvatna
hana í að minnsta kosti sólarhring
í köldu vatni og síðan er hún tilbú-
in í legina. Síld má gjarnan borða
með kartöflum og grófu brauði.
Anna segir að þær beri fram
heita lifrarkæfu með síldinni og
gróft brauð. Fjallagrös eru notuð
í brauðið og pokabaunir með kjöt-
inu. Pokabaunir eru notaðar á
suðausturhorni landsins. Þetta eru
gular baunir eins og við notum í
saltkjöt. Þær eru lagðar í bleyti
yfir nótt, síðan settar í lérefts-
poka, bundið fyrir og þær látnar
soðna þannig með kjötinu. Baun-
irnar eru teknar úr pokanum og
látnar í annan pott og hrært sam-
an við þær hangikjötssoði. Þetta
á að verða mauk. Pokabaunir má
bera fram með heitu hangikjöti
eða heitar baunir með köldu kjöti.
grg .
Grunnuppskrift
Síld í edikslegi
Ur þessari uppskrift má síðan búa
til ýmsa síldarrétti eða borða hana
með kartöflum og grófu brauði.
8 saltsíldarflök
2 laukar í þykkum sneiðum
lögur:
4 dl dilledik
2 dl vatn
2-3 dl sykur
1 -2 lórviðarlauf
Vi tsk. allrahanda
4-5 piparkorn
Afvatnið síldarflök í 1-2 sólar-
hringa.
Blandið löginn, hrærið vel í svo
að sykurinn leysist upp eða sjóðið
hann og kælið.
Leggið flökin heil ásamt lauknum
í krukku.
Hellið leginum yfir.
Geymið síldina í kæliskáp um tvo
sólarhringa áður en hún er borin
fram.
Rifsberjasíld
6 kryddsíldarflök
200 g rifsberjahlaup
2 dl tómatkrafur
1 -2 rauðlaukar (saxaðir)
2 marin hvítlauksrif
salt, pipar, estragon
1 msk. relish
e.t.v. Vi— 1 dl dílledik
fersk rifsber
Afvatnið síldarflök í 1-2 sólar-
hringa.
Roðdragið og beinhreinsið flökin.
Blandið saman rifsbeijahlaupi,
tómatkrafti, söxuðum rauðlauk,
mörðum hvítlauk, salti, pipar,
estragon og relish (dilledik ef það
er notað).
Skerið síldarflökin í 2-3 cm bita,
leggið þá í krukku og hellið blönd-
unni yfir og geymið í kæli í 2-3
sólarhringa.
Hellið síldarblöndunni á fat og lát-
ið væna hrúgu af rifsbeijum ofan
á.
Berið síldina fram með grófu
brauði. ■
Barnast. 120-170 cm
Verð kr. 5.990
Ungbarnasamfestingar
Verð frá kr. 2.990
Fullorðinssamfestingar
Verð frá kr. 7.400
whummel^
SPORTBÚÐIN
Ármúlsi 40 • Símar 813555 09 813655
Gildirtil 5. d<
• Giídir til 20. desember '93
Gildir til 31. desember ‘93.