Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 30
-30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. ( lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Clarke kýs leið ráðdeildar að kom töluvert á óvart er Kenneth Clarke, fjármála- ráðherra Bretlands, flutti fjár- lagaræðu sína á þriðjudag, að ráðherrann boðaði ekki frekari útvíkkun virðisaukaskattsstofns- ins né heldur tekjuskattshækk- anir. Var fyrirfram talið nær víst að ákveðið yrði að leggja virðis- aukaskatt á dagblöð, barnaföt og samgöngur til að draga úr hinum gífurlega hallarekstri « breska ríkisins. Á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir að hallinn verði um 50 milljarðar punda. Clarke lýsti því yfir í ræðu sinni að hann hygðist minnka hallann niður í 38 milljarða punda þegar á næsta ári. Jafn- gildir þetta að lánsfjárþörf ríkis- ins lækki úr rúmum 8% af vergri þjóðarframleiðslu á yfirstand- andi fjárlagaári í 6,25% fjárlaga- árið 1994-1995. Er stefna Clarkes að árið 2000 verði fjár- mál ríkisins komin í jafnvægi. Til að ná þessu markmiði boð- aði hann róttækan niðurskurð á ýmsum sviðum auk skattahækk- ana. Vissulega eru hendur fjár- málaráðherrans töluvert bundn- ar af fyrri ákvörðunum en í því fjárlagafrumvarpi, sem nú liggur fyrir breska þinginu, er þó gert ráð fyrir nokkrum stefnubreyt- ingum. Clarke ætlar þannig að í lækka hlutfall ríkisútgjalda af þjóðarframleiðslu um 2,25% fram til ársins 1998 á meðan forveri hans, Norman Lamont, j stefndi að 3,25% lækkun. Alls verða ríkisútgjöld skorin niður um 3,5 milljarða punda á næsta ári. Stærsti spamaðarlið- urinn í fjárlagafmmvarpi Clarkes er útgjöld til vamarmála en þau verða dregin saman um 780 milljónir punda á næstu tveimur ámm. Þá boðaði ráðherrann rót- tækar breytingar á útgjöldum til velferðarmála en þau nema nú um 80 milljörðum punda árlega og eru þriðjungur heildarútgjalda breska ríkisins. Kostnaður við velferðarkerfið hefur aukist að meðaltali um 3% á ári að undan- fömu og sagði Clarke að sporna yrði við þeirri þróun, ef þjóðin ætti að hafa efni á þessan þjón- ustu í framtíðinni. Til að ná því markmiði verður atvinnuleysis- bótakerfið stokkað upp og réttur- inn til bóta takmarkaður við sex mánuði í stað tólf mánaða eins og nú er raunin. Þá ætlar breska stjómin að herða reglur um ör- orkubætur, gera strangari kröfur til örorkumats og skattleggja bæturnar. Dregið verður úr stuðningi við námsmenn og skattafrádrætti vegna vaxta- greiðslna á húsnæðislánum. Hið síðarnefnda kemur þó ekki strax til framkvæmda. Loks verður breska ellilífeyriskerfínu breytt á næstu árum og lífeyrisaldur karla og kvenna samræmdur árið 2010. Nú eiga konur rétt á ellilífeyri um sextugt en karlar ekki fyrr en við sextíu og fimm ára aldur. „Markmið okkar er betra velferðarkerfi, vel rekið og skynsamlega úr garði gert, sem kemur til móts við kröfur nútíma samfélags um forgangsröðun,“ sagði Clarke í ræðu sinni. Þessi orð gefa greinilega til kynna að hann ætlar að fylgja stefnu, sem um margt er frábmgðin þeirri, sem íhaldsflokkurinn barðist fyr- ir í stjórnartíð Margaret Thateh- er. Markmiðið er ekki að draga úr velferðarkerfinu af hug- myndafræðilegum ástæðum heldur hagrænum. Samflokksmenn Clarkes hafa hrósað honum fyrir að velja leið niðurskurðar í stað skattahækk- ana. Hjá því verður hins vegar ekki litið að skattar í Bretlandi munu aukast töluvert á næstu árum. Norman Lamont hafði fyrr á árinu boðað að skattar yrðu hækkaðir um 6,7 milljarða punda á næsta ári, m.a. með virðisauka- skatti á húshitun, og bætti Clarke 1,7 milljarði við þá upp- hæð. Hyggst hann m.a. hækka skatta á eldsneyti og tóbak og taka upp flugvallaskatt. Viðbrögð í Bretlandi við fjár- lagaræðu Kenneths Clarkes hafa almennt verið mjög jákvæð. íhaldsmenn fagna því að virðis- aukaskattsstofninn hafi ekki ver- ið útvíkkaður og með því að milda áhrif virðisaukaskatts á húshitun, ekki síst fyrir ellilífeyr- isþega, hefur honum tekist að slá á mestalla gagnrýni á þá skattheimtu. Viðbrögð Qármála- markaða sýna líka svo ekki verð- ur um villst að menn hafa trú á að honum muni takast að ná þeim markmiðum sem hann set- ur, jafnvel þó að ávallt ríki óvissa um hvort fyrirheit um niðurskurð muni ná fram að ganga að öllu leyti. Ef sú reynist raunin mun fjár- lagafrumvarp Clarkes m arka ákveðin tímamót. Breski Ihalds- flokkurinn hefur verið í kreppu allt frá síðustu kosningum og flokkurinn m.a. verið sakaður um stefnuleysi og skort á styrkri forystu. Margir telja Clarke vera þann forystumann flokksins, sem líklegastur sé til að taka við for- ystunni er John Major forsætis- ráðherra lætur af embætti í framtíðinni. Tíminn mun leiða í ljós hvað gerist í þeim efnum. Það er hins vegar ljóst að ef Clarke nær markmiðum sínum um ráðdeild í rekstri ríkisins mun hann jafnt styrkja flokk sinn verulega fyrir næstu kosningar sem eigin stöðu innan hans. Hátíðarhöld á fullveldisdaginn „Megum í engii hætta fjör- eggjum okkar“ STÚDENTAR minntust afmælis fullveldis íslendinga í gær, 1. desember. Hátíðarhöldin hófust með messu í kapellu Háskóla Islands, blómsveigar voru lagðir á leiði Jóns Sigurðssonar og síðdegis var hátíðardagskrá í Háskólabíói. Sýningin Fram til fullveldis var opnuð í nýjum sýningarsaf Þjóðskjalasafns íslands á Laugavegi 162 að viðstöddum forseta íslands, frú Vigdísi Finn- bogadóttur, og fleiri gestum. Skjöl tengd sjá VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR, for á sýningu Þjóðskjalasafns íslands Ásgeirssyni þjóðskjalaverði. Sr. Kristján Valur Ingólfsson þjónaði fyrir altari í messu sem hófst kl. 11 í Háskólakapellunni. Bára Friðriksdóttir predikaði og Hörður Áskelsson lék á orgel. Að messu lokinni buðu guðfræðinemar til kaffidrykkju. Blómsveigar voru lagðir á leiði Jóns Sigurðssonar í gamla kirkju- garðinum við Suðurgötu og þar flutti Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi Háskólarektor, minni Jóns. Viðstaddir voru fulltrúar stúdenta og aðrir gestir. Páll Magnússon, formaður Stúd- entaráðs Háskóla íslands, setti hátíðardagskrá sem hófst í Há- skólabíói kl. 15. Þá flutti Svein- björn Björnsson, rektor Háskóla íslands ávarp. Þar ræddi hann um það sem greinir Islendinga frá öðr- um þjóðum á tímum þegar erlend áhrif flæða yfir landið. Virkjum strauma menningar og þekkingar Sveinbjörn sagði m.a.: „Það sem greinir okkur frá öðrum þjóðum er íslensk tunga, íslensk saga og náttúra landsins. Af þeim spretta bókmenntir okkar og listir, þjóð- menning og verkmenning. Án ís- lenskrar sögu hefðum við aldrei fengið fullveldi." [. . . ] „Þótt við kunnum af fórna nokkru af efna- hagslegu fullveldi okkar fyrir sam- vinnu við aðrar þjóðir, megum við í engu hætta fjöreggjum okkar, tungunni, sögunni' og náttúru landsins. Þar með er ekki sagt að við eigum að- forðast erlend áhrif á þjóðlíf okkar og menningu. Þvert á móti eru þau okkur lífsnauðsyn til endurnýjunar. Rétt eins og stærstur hluti daglegrar neyslu okkar kemur að utan, berast okkur ný þekking og menningarstraumar frá stærri menningarheildum. Við verðum að læra að virkja þessa strauma okkur til hagsbóta og menningarauka. Þar setur þjóðin Mælt fyrir minni Jóns SIGMUNDUR GUÐBJARNASON flutti minni Jóns Sigurðssonar fors garðinum við Suðurgötu og stúdentar lögðu blómsveiga á leiðið. traust sitt á Háskólann og ykkur stúdenta. Fyrir Jóni Sigurðssyni forseta var stofnun þjóðskóla hluti baráttunnar fyrir fullveldi. Hann átti að veita svo mikla menntun sérhverri stétt, sem nægði þörfum þjóðarinnar. Þessu til áréttingar var Háskóli íslands stofnaður á aldarafmæli Jóns forseta 17. júní 1911. Hann var tákn um sjálfs- traust og styrk þeirrar þjóðar, sem nú vill standa á eigin fótum. Stúd- entar hafa ætíð skilið samhengið milli Háskólans og fullveldisbarátt- unnar og haldið fullveldisdaginn í hæstum heiðri. Hafi þeir fyllstu þökk fyrir.“ Að ávarpi Sveinbjörns loknu flutti Flosi Olafsson leikari hátíðar- ræðu og að jokum var fluttur leik- þátturinn Út úr myrkrinu eftir Valgeir Skagfjörð. Fram til fullveldis Þjóðskjalasafn íslands vildi minn- ast þess að 1. desember 1993 voru liðin 75 ár frá því ísland varð full- valda ríki í konungssambandi við Danmörku. Þótti við hæfí að gefa almenningi kost á að sjá ýmis skjöl Formaður BSRB um ákvörðun kjaranefndar um laui Eðlilegt að ríkið bjóc um samsvarandi hæl * Miðstjórn ASI segir þjóðarsáttarleiðina í hættu ÖGMUNDUR Jónasson, formaður BSRB, segir að það sé ekki nema eðlilegt í framhaldi ákvörðunar kjaranefndar um launa- hækkun til handa prestum að ríkið sé sjálfu sér samkvæmt og bjóði öðrum samsvarandi hækkanir, en flest félög BSRB eru með lausa samninga og þau sem hafa gengið frá samningum eiga eftir að greiða um þá atkvæði. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, segir þessa ákvörðun mjög ósvífna með tilliti til aðstæðna og í ályktun miðstjómar ASÍ frá í gær segir, að það verði ekki þolað að launafólk sem taki kjör samkvæmt kjarasamningum færi eitt fórnir meðan aðrir hópar samfélagsins haldi öllu sínu og meira til. í ályktun miðstjórnar ASÍ segir að ástæða sé til að vekja sérstaka athygli á úrskurðum kjaranefndar að undanförnu og hvaða afleiðingar þær hljóti að hafa fyrir launa- ákvarðanir í landinu. „Allt frá árinu 1989 hefur launafólk á almennum vinnumarkaði búið við það að fá litlar sem engar launahækkanir og öllum kröfum vegna einstakra hópa og breyttra aðstæðna hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.