Morgunblaðið - 02.12.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 02.12.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 31 Morgunblaðið/Þorkell lfstæðisbaráttu seti íslands, virðir fyrir sér skjöl i, Fram til fullveldis, ásamt Ólafi Morgunblaðið/RAX seta við leiði hans í gamla kirkju- sem tengjast sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga. Því var opnuð sýningin Fram til fullveldis í nýjum sýningar- sal safnsins á Laugavegi 162 í gær. Skjölin, sem á sýningunni eru, eru að mestu úr Þjóðskjalasafni ís- lands en einnig úr Ríkisskjalasafn- inu danska, skjalasafni Alþingis og handritadeild Landsbókasafns. Myndir af mönnum og skjölum eru að mestu leyti eftirtökur af myndum og handritum í Þjóðminjasafni. Sýn- ingin er opin frá kl. 14 til 18 frá þriðjudegi til laugardags allan des- embermánuð. lahækkun presta íi öðr- kkanir verið ýtt út af borðinu. Þetta hefur verið gert með vísun til sáttar og samstöðu um að veija atvinnuna og kjör þeirra tekjulægstu í samfé- laginu á erfiðum tímum. Nú gerist það hins vegar ítrekað á grund- velli kerfis um kjara'ákvarðanir, sem byggt hefur verið upp utan samninga aðila vinnumarkaðarins, er verið að bæta kjör einstakra hópa embættismanna um tugi pró- senta með þeim rökum að um leið- réttingar sé að ræða og allt bendir til að fleiri hópar muni fylgja í kjöl- Gunnar Svavarsson forstjóri Hampiðjunnar á fundi um sjávarútvegsmál Tekjur af veiðileyfagj aldi lækki virðisaukaskatt TEIKN eru á lofti um að afkoma í sjávarútvegi muni batna á næstu árum. Það mun líklega þýða hækkun raungengis. Iðnrek- endur hafa áhyggjur af langtímaáhrifum þessa á aðrar útflutn- ingsgreinar sem ekki verða eins vel í stakk búnar til að taka slíka gengishækkun á sig. Við þessum fyrirsjánlega vanda má bregðast með því að lækka gengi krónunnar. í staðinn væri hægt að leggja á veiðileyfagjald sem notað yrði til að lækka virðisaukaskatt þannig að almenn kjör rýrnuðu ekki. Þetta kom fram í erindi Gunnars Svavarssonar forsljóra Hampiðjunnar á fundi Félags ftjálslyndra jafnaðarmanna um sjávarútvegsmál á þriðjudagskvöld. Fjöldi á fundi FJÖLMENNI var á fundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna um sjávarútvegsmál. Gunnar Svavarsson fjallaði í er- indi sínu um sambúð sjávarútvegs og annarra atvinnugreina, einkum iðnaðar. Telja mætti að nábýlið við sjávarútveg hefði a.m.k. ekki skað- að iðnaðinn. Öllu heldur ætti slök afkoma beggja rætur að rekja til þess að gengið hefði verið of hátt skráð undanfarna áratugi svo næmi 5-15%. Gunnar sagði að í ljósi þess að raunverð sjávarafurða væri nú hið lægsta í tíu ár og að hagkvæmni færi vaxandi mætti gera ráð fyrir að hagur sjávarút- vegs vænkaðist. Þetta myndi leiða til bættrar afkomu þjóðarinnar, aukinnar neyslu og aukinnar eftir- spumar eftir iðnaðarvöru. En kostnaður í atvinnulífinu myndi einnig hækka vegna hærri launa í sjávarútvegi og síðar í öðr- um greinum. Þar sem sjávarútveg- urinn myndi geta tekið á sig hækk- anirnar yrði ekki sama þörfin fyrir að hreyfa við genginu. Raungengið myndi hækka og afkoma iðnaðar og ferðaþjónustu versna. Það væru þessi langtímaáhrif bættrar af- komu sjávarútvegsins sem iðnrek- endur óttuðust. Menn spyrðu hvort eitthvað væri hægt að gera til að koma í veg fyrir slíkt misvægi. Ein leiðin væri álagning veiðileyfa- gjalds. Þó yrði að gæta að því að víðast annars staðar nyti sjávarút- vegur styrkja og þess vegna væri ekki ráðlegt með samkeppnisstöðu í huga að leggja á hann byrðar nema tekjur kæmu á móti. Það yrði helst gert með því að lækka gengið án þess að innlendur kostnaður fyrirtækjanna ryki upp og án þess að verðbólga ykist og kjör almennings rýrnuðu. Útfærsla veiðileyfagjalds Síðan kynnti Gunnar eftirfarandi líkan að útfærslu veiðileyfagjalds: „Gengi krónunnar er lækkað, lagt er á veiðigjald og tekjur af því notaðar til að lækka virðisauka- skatt. Lækkun gengis bætir af- komu útflutnings- og samkeppnis- iðnaðar og ferðaþjónustu. Sjávar- útvegur og launþegar halda sínu. 10% gengislækkun gæti bætt af- komu sjávarútvegs um 5% eða 3,5 milljarða. Þá upphæð ætti því að vera óhætt að innheimta með veiði- leyfagjaldi og ráðstafa til lækkunar á virðisaukaskatti. Með henni mætti lækka skattinn um tvö pró- sentustig. Að auki fær ríkissjóður auknar tekjur vegna aukins verð- mætis innflutnings sem e.t.v. gæti numið öðrum tveimur prósentum. Til að bæta launþegum hækkun framfærslukostnaðar vegna gengisfellingar þyrfti virðisauka- skattur að lækka um 6%. Eftir eru því tvö óbætt prósentustig í kaup- mætti sem segja má að sé ábati samkeppnis- og útflutningsgreina annarra en sjávarútvegs. Atburðarás verður annars ekki lýst með kyrrstöðulíkani einu sam- an. Hugmyndin að baki þeim að- gerðum sem líkanið greinir frá var sú að bæta starfsskilyrði annarra atvinnugreina og að sá afkomubati myndi leiða til aukins kaupmáttar þeirra sem þar starfa og þannig yndu tekjumar auðvitað upp á sig. Eftir standa þó áleitnar spumingar um útfærslu hugmyndar um álagn- ingu veiðileyfagjalds. Væri til að mynda ekki nauðsynlegt að haga innheimtunni eftir árferði í sjávarút- vegi hvað varðar aflamagn og verð- lag? Er óhætt að treysta ríkisstjórn- um hvers tíma til að nota þá fjár- muni til lækkunar skatta? Er ekki freistandi fyrir stjómvöld að nýta sér svigrúmið til hækkunar skatta og þar með hlutdeildar hins opin- bera í þjóðarbúskapnum? Er ekki hætta á að í tímans rás reynist erfið- ara að halda uppi sama afkomustigi fynrtækja í sjávarútvegi ef innheimt yrði hátt gjald fyrir veiðileyfi? Er sjávarútvegur undir það búinn eftir mörg mögur ár og eigið fé eina krónu á móti hveijum fjóram sem hann skuldar að taka viðbótará- hættu?“ sagði Gunnar. í lok fundar nefndi Gunnar að ef gjaldtaka væri einvörðungu skoðuð út frá réttlætissjónarmiði en horft fram hjá öðram hugsan- legum markmiðum þá væru menn líklega að hugsa um tiltölulega lágt afgjald sem væri svipað og eignar- skattsprósentan. Þess má geta að eignarskattur fyrirtækja er 1,2%. Þátttaka sjómanna í kvótakaupum Sú háttsemi sumra útgerðar- fyrirtækja að láta sjómenn taka þátt í kvótakaupum var rædd á fundinum. Kom fram að svo virtist sem sum útgerðarfyrirtæki færðu aflaheimildir fram og aftur milli eigin skipa m.a. í þeim tilgangi að skerða hlut skipveija. Þröstur Olafsson, aðstoðarmaður utanríkis- ráðherra, velti fyrir sér leiðum til að stemma stigu við þessu. Taldi hann að það væri ekki svo flókið að hamla gegn tilfærslu kvóta milli skipa sömu útgerðar til dæmis með því að kveða svo á um í lögum að flutningur kvóta milli skipa væri óafturkræfur að veralegu leyti. Það þýddi að ekki yrði hægt að færa kvótann fram og til baka. Erfiðara væri að taka á kvótaframsali milli óskyldra aðila enda væri þar um óijúfanlegan hluta núverandi kerfis að ræða. Lausnin kynni þó að vera í sama dúr og varðandi tilfærslur innan eins og sama fyrirtækis. Brynjólfur Bjarnason forstjóri Granda kvaðst ekki vilja mæla þeim útgerðum bót sem stunduðu kvótatilfærslur í því skyni að rýra hlut sjómanna en mjög líklega væri um undantekningar að ræða. Kotbændur og trillukarlar Hagfræðingarnir Snjólfur Ólafs- son og Markús Möller gerðu harða hríð að Össuri Skarphéðinssyni umhverfisráðherra sökum and- stöðu hans við niðurskurð afla krókaleyfisbáta. Össur hélt því til dæmis fram að það væri skynsam- legt í atvinnuleysi að hlúa að smá- bátaútgerð því miklu fleiri verk væru á bak við hvern þorsk dreginn úr sjó af trillu heldur en frystitog- ara. Snjólfur spurði ráðherrann þá hvort nokkuð væri óeðlilegt við það að kotbændum og trillukörlum myndi fækka um helming á næstu fimm árum. Svaraði Össur því ját- andi — það væri óeðlilegt. Nokkur gagnrýni kom fram frá hagfræðingum á starf tvíhöfða- nefndar ríkisstjórnarflokkanna en þar á Þröstur Ólafsson sæti. Hún hefði ekki klárlega lagt þjóðarhag til grandvallar sinni vinnu. Markús Möller gagnrýndi nefndina einnig fyrir að bera ekki saman núverandi eignarkvótakerfi og það fyrirkomu- lag sem hann nefndi þjóðnýttan leigukvóta. farið. Verði ekki snúið af þessari braut er ljóst að þeirri þjóðarsátt sem ríkt hefur um atvinnu- og kjaramál hefur verið fórnað. Al- mennt launafólk hlýtur þá að gera kröfu til þéss að kjarasamningar þess verði teknir upp og þeir færð- ir til samræmis við það sem nú virðist eiga að gera gagnvart emb- ættismönnum. Það verður ekki þolað að launafólk sem tekur kjör samkvæmt kjarasamningum færi eitt fórnir meðan aðrir hópar samfélagsins haldi öllu sínu og meira til.“ Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sagði að ef fram fari sem horfi í þessum efnum þá jafngildi það því að horfið sé frá þeirri þjóðarsátt sem ríkt hafí í kjaramálum. „Það gengur auðvitað ekki að einstökum hópum, svona sjálftöku launahóp- um sé látið líðast það að hafa allt aðrar breytingar á sínum launum en annað fólk og við hljótum þá auðvitað að krefjast þess að kom- ast aftur að samningaborði til sam- ræmingaraðgerða,“ sagði Bene- dikt. Hann sagði að þessar ákvarðan- ir væru mjög ósvífnar meðal ann- ars með tilliti til þeirra forsendna sem þessi kjaranefnd ætti að ganga út frá, þ.e.a.s. almennrar þróunar á vinnumarkaði. Þessi ákvörðun væri auðvitað ekki í neinu samræmi við það. Þetta væri gjörsamlega úr takti við annað sem væri að gerast, til dæmis þá samninga sem hefðu verið gerðar við aðra opin- bera starfsmenn um helgina. Ríkið eykur þrýsting á sjálft sig Ögmundur Jónasson sagði að ríkið sem atvinnurekandi væri að auka þrýsting á sig sjálft um að gerðar verði samskonar lagfæring- ar annars staðar í launakerfinu. Þarna væri um að ræða verulegar kjarabætur til þeirra sem stæðu ofarlega í launakerfinu á sama tíma og aðrir sem byggju við hróp- legt óréttlæti í launamálum fengju ekki áheyrn. Hann telji að for- gangsröðunin ætti að vera önnur og það væri mál til komið að taka öll þessi kjaramál til gagngerrar endurskoðunar. Aðspurður hvemig þetta horfði við aðildarfélögum BSRB sem væru nýbúin að undirrita samninga og þeim sem ættu í viðræðum núna, sagði hann að kröfur um meirihátt- ar lagfæringar á launakerfinu hefðu verið inn í kröfugerðum fé- laganna. „Það sem skortir á hins vegar er viljinn handan borðsins til þess að verða við þessum kröfum og þá er það okkar að vega það og meta hvað við erum tilbúin til þess að gera til að fylgja kröfunum eftir,“ sagði Ögmundur. Hann rifjaði upp að forysta BSRB hefði lagt til í vor að kröfu- gerðinni þá yrði fylgt eftir með verkfallsátökum og það kynni að vera að ákvarðanir af þessu tagi kæmi fleira fólki í skilning um að það sé nauðsynlegt að fylgja kröf- unum eftir að meiri staðfestu en gert hefði verið. „Ég er sannfærður um að þessi ákvörðun verður til þess að auka þrýstinginn á ríkis- valdið sem atvinnurekanda að taka á launamálum þeirra sem standa neðarlega í kerfinu, því fólk mun aldrei sætta sig við til frambúðar aukinn launamun sem þessu nem- ur,“ sagði hann. Aðspurður hvort hann teldi að breytingar yrðu á þeim farvegi sem kjaraviðræður BSRB hafa verið í sagði hann: „Mér finnst eðlilegt að ríkið sé sjálfu sér samkvæmt og bjóði öðrum þessar kjarabætur. I rauninni ætti að minnka kjaramun en ekki auka hann og það er verið að gera' það með þessu. Með því að segjast ekki deila við dómarann en hnakkrífast við lágtekjufólkið og standa á bremsunni gagnvart því. Slíkur málatilbúnaður er náttú- urlega algjört og fullkomið sið- leysi; að búa til kerfi, nefndir og kjaradóma fyrir hátekjuhópana og láta þá fá tugprósentahækkun en halda hinum niðumjörvuðum. Þetta er gjörsamlega óþolandi,“ sagði Ögmundur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.