Morgunblaðið - 02.12.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993
41
SJONARHORN
Rifrildi í hjónabandi getur
veikt ónæmiskerfið
ÞVÍ hefur stundum verið hald-
ið fram að smárifrildi í hjóna-
bandi eða sambúð hreinsi and-
rúmsloftið, eyði misskilningi,
jafni misklíð og bæti sambúð.
Þeim sem hafa tileinkað sér
þennan lífsstíl skal bent á að
hann er sagður geta haft aðr-
ar verkanir - talsvert nei-
kvæðar.
Hjón og sambýlisfólk getur
vissulega farið í fínu taugarnar
hvort á öðru. Nú hafa nýlegar
rannsóknir leitt í ljós að rifrildi
veikir tímabundið ónæmiskerfi
beggja aðila í hjónabandinu, en
það getur leitt til meiri næmni
fyrir líkamlegum sjúkdómum.
En það er talið að fólk verði við-
kvæmara fyrir mörgum sjúk-
dómum eins og t.d. krabbameini
þegar veila verður í ónæmiskerfi
líkamans.
Þessi mál hafa verið rannsök-
uð af vísindamönnum við lækna-
skóla Ohio State University í
Columbus, Ohio. Rannsóknirnar
leiddu í ljós, að hjá nýgiftum
hjónum sem höfðu tileinkað sér
hörð viðbrögð þegar þau ræddu
vandamál í sambúðinni, reyndist
vera mun meiri lækkun á svörun
ónæmiskerfisins næstu 24
klukkustundimar en fram kom
hjá öðrum nýgiftum sem nálguð-
ust málin með sáttfúsara hugar-
fari.
Vísindamennirnir veittu því
athygli að mun meiri lækkun var
í mælingum á svörun ónæmis-
kerfisins hjá eiginkonum en hjá
eiginmönnum eftir óvinsamleg
orðaskipti. Þeir geta sér þess til
að e.t.v. séu konur mun næmari
á að greina fjandsamlegt huga-
rástand hjá makanum en karlar.
Nú er fyrirhugað að fylgja mál-
um eftir til að sjá hvort lækkun
ónæmisviðbragða hjá körlum
verður meiri en hjá eiginkonum
þeirra síðar í hjónabandinu.
í rannsókninni tóku þátt 90
hjón, þau höfðu verið gift í 10
mánuði að meðaltali og voru á
aldrinum 27-37 ára. Þessi hjón
skilgreindu hjónaband sitt sem
hamingjusamt. Enginn þeirra
reykti eða drakk alkóhól í óhófi
né var haldinn alvarlegum sjúk-
dómi eða sýndi merki andlegs
ójafnvægis. Hver hjón dvöldu 24
stundir, eða sólarhring, á rann-
sóknastofnuninni og eftir að hafa
skilgreint tvö eða þijú mál sem
ollu ágreiningi, eins og hvernig
eigi að meðhöndla peninga eða
umgangast tengdafólkið, eyddu
hjónin 30 mínútum í að ræða
lausnir á málunum. Vísinda-
mennirnir tóku síðan samræð-
urnar upp á myndband og
greindu hvern maka eftir já-
kvæðum eða neikvæðum við-
brögðum.
Þátttakendur gáfu ónæmis-
fræðingum blóðsýni til greining-
ar fyrir hinar ýmsu ónæmismæl-
ingar áður en samtölin fóru fram
og við lok dvalarinnar á stofnun-
inni. Niðurstöður blóðrannsókn-
anna leiddu í ljós að hjá þeim
hjónum sem áttu neikvæðustu
samræðumar, þar sem fram kom
meinhæðni og gagnrýni eða grip-
ið var fram í, var hröðust fækk-
un í tveim gerðum af hvítu blóð-
kornunum.
Talsmaður vísindahópsins tel-
ur að þessar breytingar geti ver-
ið jafnvel meiri utan rannsóknar-
stofunnar þar sem misklíð er tjáð
á fijálsari hátt.
M. Þorv.
Lvkill að Hótel Örk
í boði eru 0 mismunandi lyklar
SÆLU
1 nótt (2 ílagar)
alla daga vikunnar
kr. 11.000,-fyrirtvo.
SPARI %
2 nætur (3 dagar)
í miðri viku
kr. 17.800,- fyrir tvo.
2 nætiir (3 dagar)
fóstud. til sunnud.
kr. 21.800,- fyrir tvo.
4 nætur (5 dagar)
ÍMliðrivlku
kr. 29.800,- fyrir tvo.
lnnifalið í lyklum: Gisting, morgunverður af
hlaðborði og þríréttaður veislukvöldverður auk
aðgangs að ölium þægindum hótelsins svo sem
jarðgufiibaði, útisundlaug, heitum pottum,
þrekæfingasal, tennisvelli, mu holu golívelli o.fl.
Einnig stendur til boða ýmis sérþjónusta svo
sem snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa,
hcstalciga, bílaleiga, stangveiði og margt fleira.
Gjafalyklamir eru til sölu í Jólagjafahúsi okkar í
Borgarkringlunni eða í síma 98-34700
og þú færð iykilinn scndan heim.
Sendum í póstkröfú. Visa - Euro raðgreiðslur
Gjafalyklartiir gilda allt árið 1994
>? HÓTEL ÖDK
HVERAGERÐI - SÍMI 98-34700 AX 198-347*7-5
Út er komin skáldsagan Draumar
Einsteins eftir Alan Lightman í
þýðingu Sverris Hólmarssonar.
Sagan segir frá Albert Einstein
og draumum hans þegar hann vann
á einkaleyfaskrifstofu í Sviss í upp-
hafi aldarinnar og lét sig dreyma
um tímann og tilveruna.
í kynningu útgefanda segir:
„Draumar Einsteins er fyrsta skáld-
saga Alans Lightmans, Bandaríkja-
manns sem fæddur er í Memphis í
Tennessee árið 1948. Lightman
kenndi stjörnufræði og eðlisfræði
við Harvardháskóla frá 1976-1988
en er nú prófessor við MIT-háskól-
ann í Massachusetts þar sem hann
kennir eðlisfræði og ritlist — svo
ólíkar sem þær greinar nú eru!
Með það að markmiði að brúa %
bilið milli vísinda og lista, sem
mörgum þykja algjörar andstæður,
skrifaði Lightman bókina Draumar
Einsteins. Óhætt er að segja að
honum hafi tekist ætlunarverk sitt
því bókin varð metsölubók nánast
um leið og hún kom út í Bandaríkj-
unum fyrr á þessu ári og hefur á
undanförnum vikum lagt Evrópu
að fótum sér. Hvarvetna hefur höf-
undurinn fengið lof fýrir þetta sér-
staka verk.“
Útgefandi' er Vaka-Helgafell.
Bókin er 184 blaðsíður að lengd.
Hún er unnin í Prentsmiðju Arna
Valdemarssonar og kostar 2.480
krónur.
UFE
Mmmi
SÉRBLANDAÐ FYRIR ÍSLENDINGA
5 Continents kaffið er sérblandað og kemur
á borð vandlátra íslendinga í umbúðum sem
tryggja að einstök bragðgæði blöndunnar
haldist óskert alla leið í bollann.
5 Continents
100% ARABICA KAFFI