Morgunblaðið - 02.12.1993, Page 42

Morgunblaðið - 02.12.1993, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 Halldóra Valgerður Briem Ek — Minning Fædd 23. febrúar 1913 Dáin 21. nóvember 1993 Tilfinning tómleika og saknaðar er ávallt fyrsta viðbragð mitt við andlátsfregn. Söknuður og sorg tengjast minningum. Og með tíman- um gera minningar sorgina léttbær- ari. Þetta hef ég fundið vel síðustu daga. Halldóra Valgerður Briem Ek lést á sjúkrahúsi í Stokkhólmi kl. 11 að morgni sunnudagsins 21. nóv. sl. Og fréttinni fylgdu þau orð, að á andlátsstundu sáu hennar nánustu, sem voru viðstaddir, að ský dró frá sólu og heyrðu hljóm kirkjuklukku. Þar með var staðfest að liðið væri það skeið, sem eiga mátti stundir með henni Dódó, móðursystur minni. Halldóra, næstelst fimm systra, var fædd á Hrafnagili í Eyjafírði 23. febrúar 1913, dóttir séra Þor- steins Briem, sem lengst af var pró- fastur á Akranesi, og Valgerðar Lárusdóttur Briem konu hans. Kirstín Valgerður er elst, síðan Halldóra, Valgerður, móðir mín og Guðrún Lára. Yngsta systirin Ólöf Ingibjörg dó ung. Trúrækni var mikill þáttur í æsku systranna á Akranesi. Og sennilegt þykir mér, að trú á guð almáttugan hafí hjálp- að við þungbært fráfall móður þeirra árið 1924. Síðari kona séra Þor- steins var Emilía Oktavía Guðjohn- sen, ýmist kölluð frænka eða amma Emilía af okkur, sem yngri vorum. Reyndist hún systrunum afskaplega vel og kom í móður stað eftir því sem hægt var. Ugglaust hefur þessi fjölskylda, prestshjónin og systum- ar, sett sinn svip á bæjarlífíð á Akranesi. Og vinir þar sem annars staðar þekkja þær systur best undir nöfnunum Dídi, Dódó, Lalla og Gógó. Strax í æsku laðaði Dódó fram glaðværð með hlýjum persónuleika sínum. Stríðni og ærsl voru áber- andi og eru ofarlega í huga móður minnar þegar hún lýsir og segir frá æskuminningum um veru þeirra systra saman í herbergi á Kirkju- hvoli á Akranesi. Eftir stúdentspróf frá Mennta- skólanum í Reykjavík lærði Dódó húsagerðarlist í Stokkhólmi. Og þar starfaði hún og bjó síðan eða í sam- tals hartnær 60 ár. Dódó giftist manni sínum Jan Ek árið 1941. Hann var lengst af læknir í Stokk- hólmi en dó árið 1963. Eignuðust þau fimm böm. Elstur þeirra er Anders Gunnar, síðan Karin Val- gerður, Kirstín Thomnn, Thorunn Anna Birgitta og yngstur er Jan Thorstein Egil. Þau kveðja móður sína í dag í Stokkhólmi en þar verð- ur hún jarðsett frá Kirkju Maríu Magdalenu. Ymsar minningar koma í huga manns við skrif sem þessi. Kornung dvöldumst við systkinin um tveggja Telepower Rofhlöður í þráðlausa síma - Panasiníc - Doidei - Coöra - Beli Siitl -siir X - IT&T ^ Loftnet Sveigjanleg gúmmíhúöuft loftnet í fíesta sfma. RAFBORG SF. Rauðarárstíg 1, sími 622130. ára skeið með foreldrum okkar í Stokkhólmi. Reyndar man ég ekki eftir Dódó á því tímabili en það var sennilega sumarið 1952, sem syst- umar Dódó og Gógó komu í fyrstu heimsókn sína heim til íslands. En Gógó hafði flust til Noregs til náms í uppeldisfræðum fyrir stríð. Man ég eftir tilhlökkun tengdri heimsókn þessari enda var slíkt ferðalag nokk- urt fyrirtæki á þessum ámm. Báðar komu systumar með böm sín, sem var reglulega gaman en nokkuð skyggði á, að fímm ára gömul sænskukunnátta mín var gleymd. Eftir því sem árin liðu þá stækkaði hópur skyldmenna í Noregi og Sví- þjóð eins og hér heima á íslandi. Við systkinin eignuðumst okkar fjöl- skyldur og bömum fjölgaði báðum megin hafs. Og alltaf var jafn auð- sýnd ræktarsemin og kærleikurinn. Á þessu árabili breyttust aðstæð- ur hjá Dódó. Erfiðleikar tengdir bamauppeldi og fráfalli eiginmanns að baki en við tóku erfiðleikar af öðru tagi. Hún dvaldist mikið í Halmstad til að vera nálægt sjúkra- húsi, sem Anders Gunnar sonur hennar dvelst á. Þrátt fyrir þetta mátti alltaf fínna hlýleika persónu hennar í kveðjum og heimsóknum. Alltaf fundu bömin, að eftir þeim var munað þegar Dódó kom. Engar stórgjafír en eitthvað rétt fram, sem ásamt fallegum orðum lýsti vænt- umþykju og ástúð. Og bömin ánægð eftir. Þegar árunum fjölgaði urðum við ættingjar Dódóar hér heima æ meir varir við áhuga hennar á því sem gamalt var eða tengdist æsku henn- ar eða ætt með einhveiju móti. Ættfræði var mikið áhugamál Dódóar og þar var hún mjög vel heima. Já, ekki bara í ættfræði held- ur einnig í ýmsum íslenskum fróð- leik. Og þætti margur áttræður maðurinn, sem búið hefur árin sin á íslandi, fullsæmdur af þeim fróð- leik um ættir íslendinga, sem hún viðaði að sér á langri ævi erlendis. Dódó hélt einnig tengslum við ísland með starfi sínu í íslendingafé- laginu í Svíþjóð en þar var hún heið- ursfélagi. Og munu samtals um það bil eitt hundrað manns, námsmenn sem aðrir, hafa búið á heimili henn- ar, lengi á Bjömgardsgatan 9A í Stokkhólmi. Þó að oft stæði til boða var ritari greinar þessarar því miður ekki aðnjótandi gestrisni hennar. En í mín eyru hefur heimili hennar verið lýst sem sérlega fallegu, fullu af gömlum munum gjaman úr silfri, gleri eða postulíni og með stóran flygil á gólfí. Á hann Iék Dódó meðal annars eigin tónlist auk tón- setningar laga Kirstínar ömmu sinn- ar. Þegar aldurinn færðist yfír reyndi Dódó að heimsækja ísland árlega. Sérstakur ánægjuauki á sumrin var að njóta heimsókna hennar og börn- unum tilhlökkunarefni. Fyrst Berg- ur sonur minn og síðan Þóra.en þær urðu sem samlokur saman. Páll Ragnar fékk einnig sinn skammt og sem betur fer er til mynd af Dódó með Bjama Þór í fanginu. Mér er síðasta heimsókn Dódóar sérstaklega minnisstæð. Þá var hún með myndir af bömum sínum og bamabömum, sem hún vildi svo gjaman að við þekktum betur. Og hún fékk myndir og skildi eftir mjmdir og ljúfar minningar. í fyrra kom Dódó ekki. En í sumar komu Dódó og Gógó og vom mikið sam- an. Dódó reyndar rúmliggjandi að nokkm en heimsótti samt bemsku- slóðir á Akranesi. Sjálfsagt hefur marga grunað að hvetju dró og að þetta yrði hennar síðasta heimsókn. En ekki bar á neinu þegar hún „Töfra“límband kvaddi með símtali og bað sérstak- Iega fyrir kveðjur tii barnanna. Og þegar við kveðjum Dódó í Áskirkju í dag verða mér ofarlega í huga orð móður minnar mælt á dánardegi Dódóar: „Já, hún Dódó átti gott líf, hún gerði svo marga glaða.“ Páll Bergsson. Ég sá Halldóm Briem í fyrsta sinn í íslendingahúsinu í Stokkhólmi 23. febrúar 1988. Það var á afmæl- isdaginn hennar þegar hún varð 75 ára. Hún sat við veisluháborðið klædd svörtum kjól með íslenskt pijónasjal á herðum, silfurhvítt hár- ið var sett upp í hnút í hnakkanum. Hún var afskaplega falleg fullorðin kona, með stór blá augu, blómlegar sléttar kinnar og bros eins og ung stúlka. Gestir Halldóm vom auk fiöl- skyldu hennar fjölmargir úr íslend- inganýlendunni í Stokkhólmi en hún var heiðursfélagi íslendingafélags- ins. Það brá líka fyrir nokkmm þekktum andlitum úr sænsku þjóð- lífí en flestir samkomugesta vom mér jafn ókunnugir á þessari stundu og afmælisbamið sjálft. Það átti þó eftir að breytast. Þessi fyrsti fundur okkar reyndist verða upphafíð að nánari kynnum en ég hef haft af nokkurri annarri óvandabundinni manneskju og þeg- ar hún hefur nú kvatt þessa veröld rúmum fímm ámm síðar fínnst mér eins og ég hafi misst náinn ætt- ingja. Halldóra Briem varð eins og fósturmóðir margra íslendinga sem gistu Stokkhólm um lengri eða skemmri tíma. Ég er ein í þeirra hópi. Og ég er sú sem hún að lokum sagði ævisögu sína. Það gleður mig því mitt í sorginni að geta innan tíðar miðlað löndum mínum sögu þessarar stórbrotnu konu sem nú er gengin á vit feðra sinna og mæðra. Hún neytti seinustu krafta sinna til þess að Ijúka því samstarfi sem við höfum átt með hléum um nokkurra ára bil. Halldóra Valgerður var fædd á Hrafnagili í Eyjafírði 23. febrúar 1913. Hún var næstelsta dóttir hjón- anna séra Þorsteins Briem og konu hans Valgerðar Lárusdóttur. Val- gerður móðir hennar var mikið söngvaraefni og hreppti ung að árum danskan styrk til söngnáms á Konunglega Konservatoríinu í Kaupmannahöfn. Valgerður átti ekki langt að sækja tónlistargáfuna. Hún hafði lært söng og hljóðfæra- leik hjá móður sinni sem var Kirstín Katrín Guðjohnsen dóttir Péturs Guðjohnsens fyrsta dómorganista Islendinga. Eftir rúma ársdvöl við söngnámið veiktist Valgerður af berklum sem bundu að verulegu leyti enda á söngferil hennar og leiddu hana að lokum til dauða vor- ið 1924. Þá var Halldóra 11 ára að aldri og systur hennar Kirstín Val- gerður á 13. ári, Valgerður á 10. ári og sú yngsta Guðrún Lára nýorð- in 6 ára. En eina dóttur höfðu Þor- steinn og Valgerður misst í frum- bemsku tæpu ári fyrir dauða móðuc- innar. Litla systirin hét Ólöf Ingi- björg. Það er ljóst að æskuár systranna fjögurra mótuðust mjög af veikind- um móður þeirra og löngum fjarvist- um hennar þegar hún dvaldist á berklahælum bæði á Vífílsstöðum og á Sölleröd í Danmörku. Amma þeirra Kirstín Guðjohnsen gekk þeim að nokkru leyti í móðurstað fram yfír dauða Valgerðar, en þá tók við uppeldi þeirra önnur merkis- kona, Emilía Octavía Guðjohnsen. Hún var náfrænka Valgerðar Lárus- dóttur og jafnaldra, velmenntuð á tónlistarsviðinu líkt og hún, dugleg, trúfost og lífsglöð kona sem reynd- ist þeim systrum hin besta móðir og vinkona. Séra Þorsteinn Briem og Emilía gengu í hjónaband vorið 1926 í Akraneskirkju en séra Þor- steinn þjónaði Akumesingum lengstan tíma prestskapar síns. Séra Þorsteinn og Valgerður teiknuðu og létu reisa prestsetrið á Kirkjuhvoli á Akranesi sem varð fljótt eitt mesta menningarheimili í bænum. Valgerðar naut að vísu aðeins við um skamma hríð en Frænka, eins og þær systur kölluðu Emilíu fóstru sína, veitti heimilinu forstöðu frá fyrsta degi af listfengi, hjartahlýju og skömngsskap. Þar var löngum þétt setinn bekkurinn, bæði af vinnufólki prestsins sem stundaði búskap til hliðar við prests- störfin og af óteljandi gestum sem bám sumir með sér andblæ fram- andi staða. Ein gestaheimsóknin kann að hafa skipt sköpum fyrir unglingsstúlkuna Halldóru. Þá heyrði hún í fyrsta sinn rætt um byggingarlist og skipulagsmál af lærdómi og ástríðu þegar þáverandi húsameistari ríkisins, Guðjón Samú- elsson arkitekt, kom ásamt Guð- mundi Hannessyni lækni til þess að skoða húsaskipan á Kirkjuhvoli. Seinna þegar hún las viðtal í dönsku blaði við þarlenda kvenarkitekta vegna dagheimilis sem þær höfðu teiknað, rann upp fyrir henni sú staðreynd að konur gætu lagt stund á byggingarlist. Þar með var stefna hennar í lífínu tekin og hún hóf undirbúning að því að komast til náms í arkitektúr. Út á þá braut hafði engin íslensk kona lagt á und- an henni. Halldóra hafði mjög snemma sýnt góða námshæfíleika og hlaut eins og þær systur allar mikla hvatningu til náms í foreldrahúsum. Hún fór í Flensborgarskólann í Hafnarfírði til þess að undirbúa sig fyrir inn- tökupróf upp í Menntaskólann í Reykjavík. Þaðan lauk hún stúd- entsprófi vorið 1935. Halldóra Bri- em og bekkjarsystir hennar, Ingi- björg Böðvarsdóttir lyfsali, voru meðal fyrstu kvenna sem útskrifuð- ust úr stærðfræðideild. Aðeins ein kona hafði brautskráðst þaðan á undan þeim, ellefu árum áður. Að loknu stúdentsprófí hélt Halldóra til Svíþjóðar til náms í arkitektúr við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi. Þar nam hún undir leið- sögn merkra kennara, m.a. prófess- ors Gunnars Asplund,_ eins þekkt- asta arkitekts Svía. Áður en hún lyki námi var skollin á heimsstyijöld og í stríðinu miðju stóð hjarta henn- ar sjálfrar í báli. Hún kynntist ung- um og fjölgáfuðum læknastúdent, Jan Ek, og vorið 1942 gengu þau í hjónaband. Skömmu síðar fæddist þeim sonurinn, Gunnar, en alls urðu bömin fímm. Karin fædd 1944, þá Kerstin 1946, svo Þórunn 1948 og að lokum Þorsteinn 1956. í hjónabandi Halldóru og Jans mættust tveir glæsilegir og stór- brotnir einstaklingar af ólíku þjóð- emi. Með þeim var mikið jafnræði og sumt líkt um uppvöxt þeirra. M.a. höfðu mæður beggja verið efni- legar listakonur sem dóu langt um aldur fram frá fjórum bömum. Móðir Jans var ljóðskáldið Karin Ek en faðir hans Sverker Ek, pró- fessor í bókmenntum við háskólann í Gautaborg. En jarðvegurinn sem Halldóra og Jan voru sprottin úr bar einnig séreinkenni af þjóðlegum og menningarlegum toga og samlíf þeirra var ekki átakalaust. Auk þess urðu það örlög hins unga læknis að veikjast af berklum um sama leyti og hann var að ljúka námi sínu. Hann gekk því aldrei heill til skógar eftir það. Hann tók snemma að sér erfítt læknishérað norðan við heim- skautsbaug í námubænum Kiruna og þau bjuggu á norðlægum slóðum um tveggja ára skeið. Vanheilsa Jans kom í veg fyrir að dvöl þeirra þar gæti orðið lengri og þau héldu aftur til Stokkhólms þar sem bæði fengu störf við hæfi. Þá voru bömin orðin fjögur. Halldóra hafði unnið á teiknistofu samvinnufyrirtækisins HSB (Hyresgástemas Sparkasse och Byggnadsförening) að loknu námi og hóf þar störf að nýju, en flutti sig síðan til Svenska Riks- byggen þar sem hún starfaði í rúm- an áratug. Innan vébanda þess fyrir- tækis náði hún hvað mestum frama á starfsferli sínum og vann m.a. samkeppni um fjölbýlishúsahverfi sem reis í bænum Vesterás í kring- um 1950. Það hverfí var síðan verð- launað að nýju árið 1985 þegar það var friðlýst sem frábært dæmi um húsagerðarlist síns tíma. Síðar sér- hæfði Halldóra sig í litavali og varð sérfræðingur fyrirtækisins á því sviði. Árið 1958 fluttist fjölskyldan til Halmstad, sem er lítill bær á vesturströnd Svíþjóðar, þar sem Jan hafði boðist yfírlæknisstaða. Hann var þá orðinn doktor í sérgrein sinni. Þegar Jan lést skömmu fyrir jól 1963 aðeins 46 ára að aldri var fjöl- skyldan aftur flutt til Stokkhólms. Þar átti Halldóra heimili sitt síðan til dauðadags, lengst af í borgar- hlutanum Söder. Eftir að Halldóra var orðin ekkja skipti hún enn um vinnuveitanda og fékk stöðu sem deildarstjóri hjá Centrala Sjukvardsberedningen (CSB), þar sem hún hafði umsjón með ákveðnum hönnunarþáttum húsbygginga á þeirra vegum. Þá tók hún einnig að leigja íslenskum námsmönnum og öðrum íslending- um sem komu til dvalar í Stokk- hólmi herbergi og aðgang að heim- ili sínu. Þar hófst merkur kapítuli í lífí hennar sem geymast mun í minn- ingu þeirra fjölmörgu sem nutu gis- tivináttu hennar og greiðvikni um lengri eða skemmri tíma. Tala þeirra mun vera í kringum hundrað. Halldóra Briem Ek var óvenju- lega falleg og heillandi manneskja, víðlesin, stórfróð og minnisgóð með afbrigðum og sagði skemmtilega frá. Auk þess var hún gædd miklum tónlistarhæfíleikum og kannski voru stundimar við flygilinn, þar sem hún lék lög ömmu sinnar og mömmu í eigin útsetningu, hennar sælustu stundir á seinni ámm. Við emm mörg sem höfum notið einstæðra tónleika hennar og nokkur þeirra laga sem hún hefur samið við ljóð íslenskra og annarra norrænna skálda hafa verið flutt í íslenska Ríkisútvarpinu. Ég hef átt margar ógleymanlegar stundir með Halldóm Briem á liðn- um áram í Stokkhólmi, Haimstad, Reylq'avík og á Akranesi í heimsókn hennar á æskustöðvamar. En stundin okkar við gröf Jans í Skóg- arkirkjugarðinum í Stokkhólmi er sú sem sækir fastast á hugann þeg- ar þessi minningarorð eru rituð. Þráðbeinir furustofnar teygðu sig hátt til himins og dimmgrænar krónurnar hleyptu aðeins stökum sólargeislum í gegnum barrið. Gröf Jans skar sig úr öðmm gröfum að því leyti að á henni uxu ekki venju- leg skrautblóm heldur kryddjurtin oregano. Fölbleik blómin virtust öll á iði því ilmur þeirra dró að sér sæg flögrandi fiðrilda í sama lit. Juitin var komin úr garði dóttur þeirra sem hafði sagt að óbeisluð lífsorka hefði einkennt föður hennar framar öðm. Og hann var enn iðandi af lífi í huga konunnar sem stóð við gröf hans og sagði: „Hér vil ég að líkami minn verði grafínn en hjartað vildi ég helst senda heim til Islands." Nú er stundin mnnin upp þegar hún verður lögð til hinstu hvflu við hlið manns síns í þeim kirkjugarði sem hannaður var af læriföður hennar Gunnari Asplund og borið hefur hróður meistarans víða um heim fyrir fegurðar sakir. Líf þessarar merkilegu konu var klofíð líf og tilheyrði tveim löndum, íslandi og Svíþjóð. Hún var bundin báðum órofaböndum ástar og tryggðar. Sænska varð hennar dag- lega tungutak en hún varðveitti móðurmál sitt óbrenglað til hinstu stundar. Hún var glæsilegur fulltrúi íslensku þjóðarinnar í Svíþjóð í rúm- lega hálfa öld. Æviferill hennar var ríkuiega kryddaður miklum gáfum og fjölþættum hæfíleikum, sælustu gleði og þyngstu sorgum. ísland missti vissulega mikið þeg- ar það missti Halldóru Briem úr landi. En það er líka auður einnar þjóðar að geta gefíð öðmm góðar gjafír. Yngsta systir Halldóm, Guð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.