Morgunblaðið - 02.12.1993, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993
fclk f
fréttum
FELAGSLIF
KR-konur 20 ára
Hinn 28. nóvember 1973 komu
18 konur saman til fundar í
KR-heimilinu. Tilgangurinn var að
stofiia félagsskap kvenna, sem
hefði það að markmiði að efla og
styrkja Knattspymufélag Reykja-
víkur. Félagið hlaut nafnið KR-
konur. Fyrsti formaður var Aldís
Schram, sem er látin.
Að sögn Elísabetar Guðmunds-
dóttur, formanns KR-kvenna, voru
fyrstu verk hins nýstofnaða félags
að fegra og prýða félagsheimili
KR. Af nógu hefði verið að taka
og augljóst að afla þurfti fjár til
margvíslegra verka. Fjáröflunar-
leiðir hafa síðan verið fjölmargar,
t.d. kökubasar, kaffisölur, bingó,
flóamarkaðir, garðplöntusala, KR-
húfur, treflar, könnur, svuntur,
spil, jólaföndur, jólakort og ýmis-
legt fleira.
Nú, 20 árum síðar, starfa KR-
konur enn af miklum áhuga og
dugnaði. Fundir eru haldnir reglu-
lega einu sinni í mánuði og rúm-
lega 100 konur starfa hjá KR-kon-
um, en ávallt er pláss fyrir fleiri,
því verkefnin eru mörg.
Næst komandi fostudagskvöld,
3. desember, verður hinn árlegi
jólafundur KR-kvenna og hefst
hann kl. 20.30 í KR-heimilinu, en
allir KR-ingar eru velkomnir.
Stjórn KR-kvenna. Efri röð frá vinstri: María H. Guðmundsdóttir, Ásta Jónsdóttir, Kolbrún Skaftadótt-
ir, Guðfinna Agnarsdóttir og Kolbrún Einarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Björk Aðalsteinsson, Geirlaug
Karlsdóttir fyrrv. formaður, Elísabet Guðmundsdóttir formaður, Elín Helgadóttir og Erla Karlsdóttir.
Edda Scheving var fjarverandi.
Michelle Pfeiffer kom gestum skírnarveislunnar þægilega á óvart
með því að gifta sig í leiðinni.
GIFTINGAR
Skímargestirnir
enduðu í brúðkaupi
Aðdáendur leikkonunnar
Michelle Pfeiffer hafa beðið
milli vonar og ótta eftir þvíhvort
hún gengi í það heilaga með
framleiðandanum David Kelley
en þau hafa verið kærustupar
um nokkurt skeið. Vinum og
vandamönnum var svo boðið til
skírnarveislu kjördóttur Pfeiffer
hinn 13. nóvember síðastliðinn.
Gestirnir sjötíu voru ekki fyrr
komnir á hótel í Santa Barbara
er dreift var korti er sýndi leið-
ina að glæsihýsi nokkru þar í
nágrenninu. Er þangað var kom-
ið tók við skírn og síðan hið
dýrðlegasta brullaup. Brúðinni,
sem er 35 ára, var lýst þannig
að hún hefði verið eins og lítil
stúlka, saklaus og taugaóstyrk.
Athöfnin var umfram allt per-
sónuleg og lítið af fræga fólkinu
svokallaða viðstatt. Brúðguminn
er 37 ára og hefur m.a. fram-
leitt vinsælan sjónvarpsmynda-
flokk sem heitir á frummálinu
Picket Fences..
Pfeiffer var áður gift Peter Hor-
ton sem leikur í þáttunum Á
fertugsaldri.
COSPER
Kökukeflið er næst á dagskrá.
Skartgripir
20% afsldttur
Afsláttarvika hefst 3. desember
og lýkur 11. desember.
20% afsláttur af öllum vörum.
Nýtið tækifærið!
Guðmundur Andrésson,
gullsmíðaverslun,
Laugavegi 50, sími 13769.
Nicole Kidman gengur ekki síður vel á framabrautinni en eiginmann
inum Tom Cruise.
HJONABAND
Nicole
Kidman
er ham-
ingjusöm
*
Astralska leikkonan Nicóle Kid-
man geislar af hamingju í
desemberhefti US Entertainment
Magazine. Hún og eiginmaðurinn
Tom Cruise eru óaðskiljanleg og
kjördóttir þeirra, Isabella, dafnar
vel. Kidman hefur auk þess fengið
aðalhlutverk í myndinni Portrait
of a Lady sem Jane Campion leik-
stýrir en síðasta mynd hennar,
Piano, er einmitt sýnd hér á landi
um þessar mundir. Kidman segist
þó enn eiga erfitt með að semja
sig að háttum Bandaríkjamanna
sem séu svo afskaplega opnir. Til
dæmis hafi það kostað mikið átak
að hringja í ókunnuga manneskju
eins og Campion og bjóðast til að
leika í næstu mynd hennar.
Ánægjan varð því ekki lítil er
"ðampion sagðist alltaf hafa óskað
sér að fá Kidman í aðalhlutverkið.
Kidman segist óska sér þriggja,
fjögurra barna. Sum ætli hún að
eiga' sjálf en önnur muni hún ætt-
leiða.