Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 nmmm kom meb ihrtisfoána* HÖGNI HREKKVÍSI BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Fjörmjólk o g fjör- brot í heilsuvernd Frá Ragnari Tómassyni: MANNSKÆÐUSTU sjúkdómar á Islandi eru hjarta- og æðasjúkdóm- ar. Þar veldur mestu of hátt kól- esterólmagn í blóði. Mikilvægasta, einfaldasta og ódýrasta aðgerð í heiisuvemdarmálum á íslandi er að vinna gegn of miklu kóleste- róli. Reykingar, hreyfíngarleysi og ofþyngd era þeir þættir sem mestu valda um of hátt kólesterólmagn og skaðsemi þess. Þriðjungur þjóð- arinnar er of þungur. Helmingur hennar er við efri mörk þess sem talið er viðunandi hvað snertir kól- esterólmagn í blóði eða þar fyrir ofan. Minnkun fituneyslu, ein út Frá Ásmundi U. Guðmundssyni: ÞAÐ VAKTI furðu mína sú óskammfeilni og virðingarleysi við allt og alla viðtalið er átt var við forráðamann þeirrar keppni sem myndir voru sýndar frá í Sjónvarp- inu og kallast skjaldbökukomfú. Flestu er hægt að ljúga að fólki og bjóða því upp á. Það vita allir að hnefaleikar eru bannaðir á landi hér, en á myndunum mátti sjá hefðbundinn hnefaleikapall. Kepp- endur með hnausþykka hanska á höndum í líkingu við alvöru box- hanska. Þar var ótæpilega gefið á kjaftinn, kryddað með sparki í af fyrir sig, er ein mikilvægasta aðgerðin til að forðast ofþyngd og of mikla kóiesterólmyndun. Það eitt að nota fiturýrar mjólkurvörar eins og undanrennu, fjörmjólk og léttmjólk í stað nýmjólkur og ijóma og að minnka notkun á smjöri og ostum er áhrifamesta og fljótvirk- asta aðgerðin til að minnka fitu- magnið í daglegum mat okkar. Mjólkurvörur era mikilvægur þátt- ur í skynsamlegu mataræði en það á aðeins við um fiturýrari hluta þeirra. Góð heilsa er öllum auði betri. Tilkoma hinnar fitulitlu fjörmjólk- ur á íslenskan markað var stór- fætur og búk, svona til að hylja hina raunverulegu hnefaleika sem þarna fóru fram. Enda kom að því að blóð spratt úr grön, þó reynt væri að hylja andlit drengsins fyr- ir auga myndavélarinnar. Leyndi sér ekki hvað skeði í hringnum fyrir alla þá sem hafa óskemmda sjón og athyglisgáfu. Það er mikið meira en nóg af ofbeldi allskonar með limlesting- um og lífstjóni, þó hnefaleikar, sem kallaðir eru „skjaldböku- komfú“, bætist ekki við. ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON, Suðurgötu 124, Akranesi. kostlegt framfaraspor í heilsu- vernd. Sú verðhækkun fiturýrra mjólkurafurða sem nú hefur átt sér stað er á sama hátt mjög alvar- legt áfall fyrir baráttuna gegn hjarta- og æðasjúkdómum. RAGNAR TÓMASSON, áhugamaður um heilsurækt. Athuga- semd Frá Kára Arnórssyni: í Morgunblaðinu sunnudag- inn 28. nóvember birtist viðtal Agnesar Bragadóttur við dr. Gylfa Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra. Meðal annars berst talið að embættis- veitingum dr. Gylfa. í minni hans era aðeins tvær embætti- sveitingar sem ollu einhveijum deilum. Aðrir kunna nú að muna þetta öðravísi. Dr. Gylfi segir að önnur embættisveitingin hafi verið þegar hann setti Odd Sigur- jónsson skólastjóra við Gagn- fræðaskóla Kópavogs gegn meðmælum skólanefndar sem mælt hafi með Kára Arnórs- syni enda hafi Alþýðubanda- lagið ráðið í Kópavogi á þess- um árum. Ég tel mér skylt að hressa svolítið upp á minni dr. Gylfa því ég hef aldrei sótt um stöðu í Kópavogi hvorki á móti Oddi Siguijónssyni né öðrum. Ég var þetta sama ár, 1960, sett- ur skólastjóri við Barnaskóla Húsavíkur af dr. Gylfa Þ. Gíslasyni án þess að það ylli neinum deilum. Með þökk fyrir birtinguna, KÁRI ARNÓRSSON, fyrrv. skólastjóri Fossvogs- skóla. Skjaldbökukomfú eða hnefaleikar Víkveiji skrifar Víkveiji hefur oft furðað sig á þeirri grósku sem er í því menningarstarfi, sem áhugafólk leysir af hendi á höfuðborgarsvæð- inu. Þar er mest um atvinnu- mennskuna, en engu að síður er framtak áhugamanna með ólikind- um. Tónleikar, myndlistarsýning- ar, leiksýningar og alls kyns uppá- komur eru út um allan bæ, fjöl- breytnin er hreint ótrúleg. Og stundum er það svo, að starf áhugafólksins verður svo reglulegt og umfangsmikið, að listrænn þróttur þess gefur á engan hátt eftir þeim viðburðum, sem atvinnu- mennskan hefur fram að færa. Þetta á líka við um margt fólk, sem vegna fötlunar verður að sníða starfi sínu stakk eftir vexti. Víkveiji hefur þessar vangavelt- ur uppi vegna sýninga Halaleik- hópsins, sem nú sýnir leikrit Þor- steins Guðmundssonar, Rómeó og Ingibjörg, í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12 í Reykjavík. xxx Ileikskrá segir svo um þetta leik- félag: „Hala-leikhópurinn var stofnaður sl. haust sem sjálfstætt leikfélag með það markmið fyrst og síðast að iðka leiklist með að- gengi fyrir alla. Félagár eru nú rúmlega 50. Félagið hyggst ein- beita sér að leiklist með þátttöku fatlaðra og ófatlaðra sem áhuga hafa á slíku leikhúsi. Höfundur (Þorsteinn Guðmundsson/ innsk. Víkveija) hefur eftirfarandi að segja um leikendur: „Hala-leikhópurinn er merkilegt fyrirbæri. Nokkrir óvenjulega tak- markaðir einstaklingar tóku sig saman og stofnuðu áhugaleikfélag. Fólk með óvenjulegar takmarkanir er einföldun á eiginleikum þessa fólks sem áhugaleikara. Óvenju- legar eru þær á þann hátt að við eigum þess sjaldan kost að sjá hreyfihamlaða einstaklinga spreyta sig á leiksviðinu, eða hvað? Hvað er svo sem óvenjulegt við að sjá fatlaða á leiksviði að öðra leyti en því að þau leika fötlun sína ákaflega sannfærandi. En takmarkanirnar? Hvað varð af þeim? Þann tíma sem ég hef unnið með Hala-leikhópnum hef ég misst sjónar á þessum svoköll- uðu takmörkunum. Leikararnir í Hala-leikhópnum geta leikið hvað sem er. Þeim er ekkert ómögulegt og þau eiga eftir að verða ómiss- andi þjónar leiklistargyðjunnar. Ef þau læra textann sinn.“ xxx Og Guðbrandur Gíslason segir m.a. í leiklistargagnrýni í Morg^unblaðinu 25. nóvember sl., þar sem hann fjallar um sýningu Halaleikhópsins á Rómeó og Ingi- björgu: „Það er óvanalegt að sjá Rómeó sem haltrar og er stirt um tungutak, hvað þá Júlíu sem fálm- ar í blindni eftir vanga ástvinar síns. Slík er einhæfni (bíó)reynsl- unnar að manni verður tamt að tengja ástina við Iíkamshreysti og ofurfagurt skinn. Inntak hennar útvatnast, hverfist í roðið. En Hala-leikhópurinn þekkir fram- andleikann sem felst í slíkri reynslu og nauðsyn þess að upphefja hann og í upphafi leikritsins utan um leikritið gantast leikendur hveijir við aðra yfir því sem þeim var ekki gefið, eða því sem var svo grimmdarlega frá þeim tekið.“ Og einnig: „Svo leið leikritið og frásögn þess og túlkun leikaranna náði þeim tökum á athygli minni og tilfinningum að mér fannst ég léttast í sætinu. Það heitir að vera upp numinn. Þegar lófatakið hafði hljóðnað stóð ég upp, strekkti á stirðum lim- um, gekk fijáls undir flúorljósun- um þröngan ganginn út í víðáttu næturinnar norður af Sjálfsbjörgu og skildi að þau þarna inni í rauð- um sal höfðu fært mig á vit listar- innar með leik sínum og þannig leyst úr fjötrum holdsins um stund.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.