Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993
57
Leiklist-
arrýni
Frá Ásgeirí R. Helgasyni:
Oft hafa menn farið hamförum
vegna leikgagnrýni Súsönnu Svav-
arsdóttur en sjaldan eins og vegna
„13. krossferðarinnar". Ég er sjálf-
ur leikmaður í listum og geri þá
kröfu til listrýnenda að þeir tali
mál sem ég skil og þar bregst Sús-
anna mér sjaldan og hafi hún þökk
fyrir það. Á hinn bóginn skil ég
sárindi leikhúsproffsanna. Það er
nefnilega óheyrilega erfitt að þjóna
tveim herrum samtímis. Annað-
hvort skrifar maður leikhúsrýni á
máli sem leikmenn skilja, þar sem
markmiðið er að forða skoðana-
systkinum frá því að eyða tíma og
peningum í fúlar upplifanir, eða
maður skrifar faglega rýni. Fagleg
rýni er í sjálfu sér listgrein sem,
'ef vel er á haldið, auðgar þá list
sem um er ijallað. Slík rýni á að
vera jákvæð og uppbyggjandi en
ekki niðurrífandi og móraliserandi.
Þarna finnst proffsunum Súsanna
hafa brugðist. Sú leikhúsrýni sem
nýtist mér hins vegar best sem leik-
manni, þ.e. einfaldar leiðbeiningar
um hversu skemmtilegt og áhuga-
vekjandi eða langdregið verkið er,
er ekki síður vand með farin. Ég
tel afar vafasamt að ein manneslq’a
geti staðið undir henni svo vel sé,
aðallega vegna þess að ein mann-
eskja hefur einhliða upplifun. Ég
geri það því að tillögu minni að
leiklistargagnrýnendur Morgun-
blaðsins taki upp samvinnu við leik-
húsin um einfaldar skoðanakannan-
ir á fyrstu tveim til þrem sýningun-
um. Ef vilji er fyrir hendi er slík
könnun mjög einföld í framkvæmd
og hefur mun meira gildi sem veg-
vísir fyrir almenning en skoðanir
einstakra gagnrýnenda sem komnir
eru með sigg á sinnið vegna of tíðra
leikhúsferða. Þá getur listrýnirinn
snúið sér óskiptur að faglegri leik-
rýni og látið áhorfendum sjálfum
eftir að gefa verkinu tilfinningalega
einkunn. Mikilvægt er að hún sé
einföld og auðveld í úrvinnslu. Þetta
eru að sjálfsögðu aðeins drög sem
ber að prófa og þróa áfram. Með
von um að mönnum gangi vel að
beija úr sér hrollinn heima á Fróni
í vetur.
ÁSGEIR R. HELGASON,
Professorsslingan 43,
Stokkhólmi.
Pennavinir
Nítján ára finnsk stúlka vill skrif-
ast á við 19-22 ára pilta og stúlkur:
Katja Makeláinen,
Rastaande 60 F 32,
20610 Turku,
Finland.
Finnsk stúlka sem getur ekki um
aldur vill eignast 18-20 ára penna-
vini, drengi eða stúlkur:
Miia Heikkilá,
Perhontie 7,
69510 Halsua,
Finland.
Sautján ára Tanzaníupiltur með
áhuga á kvikmyndum, tónlist, sundi
o.fl.:
Fortunatus Paschal,
Mawenzi Sec. School,
P.O. Box 478,
Moshi,
Kilimanjaro,
Tanzania.
Litla stúlkan eftir Jó-
hann Magnús Bjarnason
Frá Jóni Hjartarsyni:
„Litla stúlkan" birtist í bókinni
Ljóðmæli eftir Jóhann Magnús
Bjamason, sem var gefin út á
ísafirði árið 1898. Bókin var prent-
uð í prentsmiðju „Þjóðviljans unga“.
Kostnaðarmaður var Skúli Thor-
oddsen.
Kvæðin í bókinni tileinkar Jó-
hann fósturdóttur sinni Alice Juliet
Cooper (Bjarnason).
Hér að neðan er ljóðið nákvæm-
lega eins og það birtist í bók Jó-
hanns hvað varðar stafsetningu,
greinarmerki og uppsetningu.
HJA
ANDRESI
Skólavörðustíg 22A - sími 18250 - póstkröfuþjónusta.
Stakir jakkar nýkomnir á kr. 11.700.
Jakkaföt frá kr. 5.500 til 14.900.
Vandaður fatnaður á hóflegu verði
Tvítugur þýskur piltur
margvísleg áhugamál:
Holger Kirschen,
Mennhauser Weg 5A,
26388 Wilhelmshaven,
Gerrnany.
með
Litia stúlkan.
Segðu mér söguna aptur - söguna þá í gær -
um litlu stúlkuna, með ljúfu augun og ljósu fléttumar tvær.
Var hún ekki fædd úti’ á íslandi, og alin þar upp á sveit,
og send hingað vestur á sveitarinnar fé — með saknaðartánn heit?
Hún var þrettán ára, ’eða þar um bil. — Jú, það vora þín orð.
W sagðir, að sárt hefði’ ’ún grátið, er settu þeir hana um borð;
Og þá gusurnar gengu’ yfir skipið, sem gnötraði og veltist á hlið,
þá bað hún svo vel, og þá bað hún svo heitt: „æ blessaðir snúið þið við!“
Aumingja bara! Það var ósköp sárt! En átakanlegra var hity
þegar vestur hún kom til Vinnipeg, og vildi sjá skyldfólkið sitt,
að fólkið hennar var farið - hún fann það ekki þar.
Þú sagðir, að þér hefði runnið til rifla, hve raunaleg hún var
í innflyténda-salnum, er sat hún svo sakleysisleg og hljóð,
og reyndi að hylja með hymunni sinni’ ’ið heita táraflóð.
Var kyn þó væri’ hún döpur? Og víst var það nokkuð hart,
að segja við ’ana: „Hættu að hrína! - Hestamir koma nú snart. -
Með karlinum keyrirðu út á land, og kemst þar í góða vist.
Skældu’ ekki meira! - Skárr’ er það! - Jeg skal nú verða bistf
— Svo fór hún einhveija langa leið út á land. — Eða var ekki svo?
Og fremur gott var fólkið við hana fyrstu dagana tvo.
En svo þrutu gæðin meir og meir; og margsinnis var það hún grét,
þá kerlingin kreppti hnefann, og karlhrófið fólslega lét.
Þau börðu’ hana, trúi jeg, svo bólgin hún var, og blæddi’ undan svipunni þrátt;
þau létu’ hana vinna, þó væri hún sjúk — já, vinna allt stórt og smátt.
Henni leiddist svo mjög; hana langaði heim. Já, láttu mig heyra um það,
þegar hún tók til þess bamslega bragðs, að búast um nótt af stað.
Hún komst út um gluggann með kistilinn sinn; - en koldimm var nóttin og löng -
svo hljóp 'hún til skógar, eins hart og ’hún gat. - Hún hræddist ei myrkviðar-göng.
Hún þekkti’ enga leið, eins og vonlegt var. Hún viltist. Hún missti þrótt.
Og hver getur sagt, hvert hún lenti, eða hvað hún leið þá nótt?
En líklegast hefur hún lagt sig tii svefns, þá lúin hún orðin var,
og ef til vill aldrei vaknað - já andast í skóginum þar.
Já hver getur sagt, hvaða þrautir hún leið, eða hvemig hún lífinu sleit?
Opt hefur verið að þvi spurt, en enginn maður það veit
Æ segðu mér söguna aptur - söguna þá í gær -
um litlu stúlkuna, með ljúfu augun og ljósu fléttumar tvær.
JÓN HJARTARSON,
Álfheimum 70,
Reykjavík.
Okeypis loyfræðiaðstoð
ó hverju fimmtudugskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í simu 11012.
ORATOR, félag lagunema.
Hið róntaðu
3 5 réttajólahloðborð
Skúla Hansen
Verð: í hádeginu kr. 1.695,-
Á kvöldin kr. 2.395,-
Verið
veUeomin á
Matreiðslumeistarar.
Skúli Hansen og
Jóhann Sveinsson.
SkolÆbnl
Veitingahús viðAusturvöU
Pantanir í síma 62 44 55
VELVAKANDI
JÓLAFÖNDRIÐ
BYRJAROF
SNEMMA
MÓÐIR vildi vekja athygli á því
hvað grunnskólamir byrja
snemma ájólaföndri fýrir bömin.
Henni finnst að nóvember mætti
alveg líða áður en byijað væri á
þessu í skólanum. Það er erfitt
fyrir foreldra að stemma stigu
við þessu þegar skólarnir ríða á
vaðið.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gleraugu töpuðust
BLÁTT hulstur með gleraugum
í tapaðist í óveðrinu sl. föstudag.
Hafi einhver orðið var við þau
er hann vinsamlega beðinn að
hafa samband í síma 71368 á
kvöldin.
ÓVIÐFELLDIN
FRAMKOMA
BJÖRG hringdi og sagðist hafa
orðið vitni að leiðinlegu atviki í
strætisvagni, leið 9, fyrir nokkru.
í vagninum hafi verið geðveikur
maður sem hafði gleymt að fá
skiptimiða hjá vagnstjóranum og
henni fannst viðbrögð vagnstjór-
ans við þessu mjög harkaleg og
leiðinleg. Hún sagði að vagnstjór-
inn hefði ráðist þama á lítilmagn-
ann með fúkyrðum og dónaskap,
og henni þótti sennilegt að hann
hefði aldrei látið sér annað eins
um munn fara við heilbrigða
manneskju.
SPARAÐU
kr. 35.000 á ári!
í D A G
10-18 3-°
KRINGMN
Ef þú bakar eitt brauð á dag f sjálfvirku
EL-GENNEL brauðvélinni, sparar þú allt að
35.000 krónum á ári og átt að auki alltaf
nýbakað, ilmandi og hollt brauð!
íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir fytgja.
Jólatilboðsverð:
Kr. 23.655 stgr.
V
Þetta er jólagjöf sem skilar aröli
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartuni 28 ‘H’ 622901 og 622900
M 1293