Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 59 HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA Króatía - ísland 26:18 Zagreb, Evrópukeppni landsliða í hand- knattleik, miðvikudaginn 1. desember 1993. Gangur leiksins: 1:0, 1:3, 3:3, 5:5, 6:7, 9:7, 12:10, 14:11, 15:11, 18:14, 19:16, 20:17, 22:18, 26:18. Mörk Krótatíu: Cacar 8/3, Saracevic 6, Pic 5, Gudelj 3, Nacinovic 2, Samajlagio 1, Tomljanovic 1. Varin skot: Peribonio 7. Utan vallan 10 mínútur Mörk fslands: Valdimar Grímsson 7/3, Geir Sveinsson 3, Júlíus Jónasson 3, Einar Gunnar Sigurðsson 2, Dagur Sigurðsson 2, Gunnar Beinteinsson 1. Aðrir sem léku voru: Patrekur Jóhannesson, Gústaf Bjama- son, Guðjón Ámason, Konráð Ólavson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9 (Þaraf fjögur til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Áhorfendur: 4.000. Dómarar: Jiirgen Thomas og Hans Thomas frá Þýskalandi, sem dæmdu vel. ■íslendingar gerðu 11 mörk úr 23 sóknum í fyrri hálfleik og sjö mörk úr 17 sóknum eftir hlé. FINNLAND- KROATIA ...........26:31 KROATIA- BULGARÍA...........28:19 BÖLGARIA- KROATIA...........17:27 FINNLAND- ISLAND............23:23 H-RUSSLAND - KROATIA........23: 23 H-RUSSLAND - BULGARIA ......43:14 BULGARIA- H-RUSSLAND ........22:31 H-RUSSLAND- FINNLAND........37:25 ISLAND- KROATIA.............24:22 ISLAND- BULGARIA............30:15 BULGARIA- ISLAND ...........17:28 FINNLAND- H-RUSSLAND........26:29 KROATIA- ISLAND.............26:18 Fj. leikja U J T Mörk Stig H-RUSSLAND 5 4 1 O 163: 110 9 KROATIA 6 4 1 1 157: 127 9 ISLAND 5 3 1 1 123: 103 7 FINNLAND 4 0 1 3 100: 120 1 BULGARIA 6 0 0 6 104: 187 0 Knattspyrna Milan, Ítalíu: Evrópukeppni meistaraliða, B-riðill: AC Milan - Porto.............. 3:0 (Florin Raducioiu 16., Christian Panucci 39., Daniele Massaro 63.) 35.000 ÞYSKALAND Atta liða úrslit bikarkeppninnar. Freiburg - Tennis Borussia......0:1 ■Tennis Bomssia er frá Beriin og er í neðsta sæti 2. deildar og hafa aðeins unnið einn leik til þessa. Óvæntur en sanngjam sigur á nýliðunum í úrvaisdeildinni. Leverkusen - Dresden............4:5 ■Sigfried Held og félagar í Dresden em komnir áfram í bikamum. Þeir unnu í víta- spymukeppni en staðan var 1:1 eftir fram- fSS Þriðja umferð bikarkeppninnar, fyrri leikur. Ancona - Avellino................1:0 Sampdoria - Roma.................2:1 Parma - Brescia..................1:1 Cesena - Foggia..................1:0 ENGLAND Deildarbikarkeppnin, fjórða umferð: Uverpool - Wimbledon.............1:1 Nott’m Forest - Man. City........0:0 QPR-Sheff..........Wed...........1:2 Tottenham - Blackburn............1:0 Íshokkí NHL-deiidin: Úrlsit í fyrrinótt: New Jersey - N.Y. Rangers.........1:3 N.Y. Islanders - Washington......6:4 Quebec - Boston...................2:5 Calgary - Dallas...............,...2:2 ■Eftir framlengingu. Los Angeles - Winnipeg............6:8 Markvarslan brást Reuter Við ofurefli að etja PATREKUR Jóhannesson reynir að brjótast í gegnum vörn Króata, en homamaðurinn Patrik Cavar nær að stöðva hann og Izlok Puk fylgist með. Þeir voru mjög öflugir í sóknarleik heimamanna í gærkvöldi og illviðráðanlegir. Er í sjöunda himni og vona að þetta dugi - sagði Zdrako Zovko, landsliðsþjálfari Króatíu Petta var eins og í ævintýri — ég er í sjöunda himni með þennan átta marka sigur, en nú er spumingin hvort hann dugar okk- ur. íslendingar eiga eftir að leika tvo leiki gegn Hvít-Rússum á ís- landi og síðan gegn Finnum. Það er leikur sem við verðum að bíða eftir, til að sjá hvort möguleikar okkar séu fyrir hendi að komast í úrslitakeppnina í Portúgal," sagði Zdrako Zovko, þjálfari Króatíu. „Allir leikmenn mínir léku vel og það var unun að sjá hvað þeir voru sterkir í vöminni á lokakafla leiks- ins. Þeir fóru vel út á móti íslensku leikmönnunum og náðu að klippa á sóknarleik íslenska liðsins, sem hrundi eins og spilaborg. Átta marka sigur á sterku íslensku liði var ekki það sem ég bjóst við. Ég er mjög ánægður með leik okkar, sém var mjög góður. Vörn okkar var sterk og þá varði Peribonio vel undi lokin. Hann á heiður skilið,“ sagði Zovko, sem skildi ekki hvers vegna Guðmundur Hrafnkelsson var tekinn úr marki íslenska liðsins undir lokin. „Hann hafði varið vel.“ ÞAÐ var ekki dagur íslensku markvarðanna, þegar íslend- ingar máttu sætta sig við átta marka ósigur, 18:26, fyrir Kró- ötum í Evrópukeppni landsliða hér í Zagreb í gærkvöldi. Guð- mundur Hrafnkelsson og Berg- sveinn Bergsveinsson vörðu aðeins tfu skot, sem er óviðun- andi. Af þessum tfu skotum vörðu þeir aðeins tvö skot í seinni hálfleik — sitt skotið hvor. íslenska liðið náði sér aldrei virkiiega á strik í leikn- um. Það var aðeins í byrjun, sem íslensku leikmennirnir sýndu hvað í þeim býr og þá sérstaklega Valdimar Gríms- son, sem skoraði fyrstu þrjú mörk íslendinga, 1:3. skrifar frá Króatiu Islensku leikmennimir virtust til alls líklegir í byijun, en síðan náðu Króatar góðum tökum á leikn- ^■■■■■1 um — vel studdir af Sigmundur Ó. 4000 áhorfendum, Steinarsson sem jétu ekki sitt eftir ligga í barátt- unni. Króatar náðu fjögurra marka forskoti fyrir leik- hlé, 14:11. Þessu forskoti héldu þeir út leikinn og bættu heldur bet- ur við það undir lokin, þegar þeir skoruðu fjögur síðustu mörk leiks- ins. Átta marka ósigur var stað- reynd — svo stórum sigri Króata reiknaði enginn með. Eins og oft áður var það sóknar- leikur íslenska liðsins sem brást. Króatar hreinlega lömuðu leik ís- lenska liðsins með því að leika vam- arleikinn framarlega — þeir gengu út á móti íslensku skyttunum, þann- ig að þær fengu ekkert athafnar- svæði. Það er segin saga, að þegar sóknarleikurinn bregst, þá verður vamarleikurinn lélegur — og mark- varslan eftir því. Islensku mark- verðirnir vörðu aðeins tíu skot og þar af sex, sem þeir unnu knöttinn. Þetta sýnir, hvað var að gerast hér. Leikmenn vom andlausir og refsingin eftir því. Það var ekki gaman að sjá íslenska liðið leika. Landsliðsmenn íslands hafa oftast áður sýnt betri leik. Lokakafli leiksins var átakanleg- ur — sá kafli verður að skrifast sem einn sá lélegasti, sem íslenskt lands- lið hefur sýnt. Það var ekki heil brú í því sem Islendingar vom að gera. Hér var leikinn leikur, sem allir vilja gleyma, en það má ekki gleyma honum. Hann er aðvöran. Stór að- vörun, sem segir að handknattleik- ur á Islandi verður að taka sig á í samkeppninni við aðrar þjóðir. Hann er víti til varnaðar og ef við læmm ekki af reynslunni hér, þá er voðinn vís. KNATTSPYRNA Knattspymuferill Van Bastens á enda? Marko van Basten, knatt- spyrnumaður Evrópu í þrí- gang, þarf að fara í þriðja upp- skurðinn vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann í hægri ökkla, að sögn læknis Barcelona sem skoðaði hann á dögunum. Hann verður því frá keppni í allt að sex mánuði til við- bótar og ljóst að hann verður ekki með hollenska landsliðinu í úrslita- keppni HM í Bandaríkjunum á næsta ári. Van Basten, sem er 29 ára, hef- ur ekki leikið með AC Milan vegna meiðsla síðan í desember í fyrra. Forsvarsmenn AC Milan hafa ekki gefíð upp alla von og segja að Van Basten verði að hvíla næstu þijá mánuði áður en ákvörðun verður tekin um uppskurð. Maradona ekki á HM? Armando Diego Maradona segir ólíklegt að hann verði með liði Argentínu í úrslitakeppni heims- meistarakeppninnar í knattspymu í Bandaríkjunum í sumar. „Eg er orðinn 33ja ára og við hveiju búist þið? Að ég haldi áfram þar til ég verð fimmtugur," spurði hann blaðamenn á fundi í Argentínu í gær. Maradona segir að það verði sífellt erfiðara að ná sér eftir smá hnjask og eftir að hafa leikið með Argentínu í þremur heimsmeistara- mótum og leitt lið sitt til sigurs árið 1986 finnst kappanum nóg komið. Vonbrigðin eru mikil - sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari íslands, sem var ekki ánægður með átta marka ósigur gegn Króötum Eg er ekki ánægður með að hafa tapað hér með átta marka mun. Leikur okkar hrundi á loka- kaflanum, eftir að við vorum búnir að halda í við Króata á geysilega sterkum heimavelli þeirra. Ég hefði verið sáttur við tveggja til þrigga marka tap, en ekki átta marka mun. Það var óþarfi, því að við vorum ekki að leika illa framan af. Þegar Króatarnir komu framar út á völlinn í varnaraðgerðum sínum, varð sóknarleikur okkar agalaus,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari. „Króatar eru með geysilega öflugt lið og það var nær hver leik- maður þeirra sem skoraði þegar honum datt í hug. Þeir em með góða homamenn, góðar skyttur og línumenn. Við þannig liðsheild er erfitt að ráða og þá sérstaklega þegar allt gengur upp hjá leikmönn- unum — bæði í vörn og sókn. Það þýðir ekkert að vera að væla, við verðum að taka okkur á,“ sagði Þorbergur. Hvers vegna var Guðmundur Hrafnkelsson tekin úr markinu und- ir lokin? » „Því miður var þetta ekki dagur Guðmundar. Hann var ekki búinn að veija mörg skot. Ég tók áhættu að láta Bergsvein í markið, en hann réð ekki við Króatana frekar en Guðmundur. Þetta var viss áhætta, sem menn verða að taka í hita leiks- ins. Við reyndum að bijóta leikinn upp undir lokin, en Króatamir hörðu svar við því — þeir voru hreint óstöðvandi, enda em Króatar með eitt besta landslið heims. Og þegar þeir hafa áhorfendur með sér, þá eru þeir illviðráðanlegir. Það eru fá lið sem era betri en Króatar í þess- um ham. Það er engin tilviljun að Zagreb hefur tvisvar orðið Evrópu- meistari. Hér er handknattleikurinn leikinn eins og hann gerist bestur,“ sagði Þorbergur. Hveijir eru möguleikamir á að íslenska landsliðið komist til Port- úgal? „Þeir era enn fyrir hendi. Við eram ekki að gefast upp. Við eigum tvo leiki eftir heima gegn Hvít- Rússum og Hvít-Rússar eiga eftii að leika hér í Zagreb.“ Ertu sár yfír átta marka tapinu hér í Zagreb? „Að sjálfsögðu er ég sár, enda þoli ég illa að tapa. Ég er keppnis- maður en veit að það kemur dagur eftir þennan dag. Við söfnum liði í lokabaráttunni," sagði Þorbergur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.