Morgunblaðið - 02.12.1993, Side 60

Morgunblaðið - 02.12.1993, Side 60
m HEWLETT PACKARD HP Á ÍSLANDI HF Höfdabakka 9, fíeykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK SIMI 691100, SÍMBRÉF 091181, PÓSTIIÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Sjómanns saknað eftir að smábát hvolfdi á Sundunum skammt frá Stykkishólmi Fjölmenni leitarídag SJÓMANNS frá Stykkishólmi er saknað eftir að smábát sem hann var á hvolfdi í gær á Breiðasundi skammt frá Stykkis- hólmi. Báturinn, Anna SH-310, sást á hvolfi um hádegisbilið og var þá þegar hafin leit að sjómanninum og stóð hún fram í myrk- ur en var árangurslaus. Gott veður var á þessum slóðum. Maður- inn, sem var einn á bátnum, var á ígulkeraveiðum og er talið hugsanlegt að báturinn hafi snúist við það að plógurinn hafi lent í festu en rannsókn er ekki lokið. Anna SH var á ígulkeraveiðum í gær í góðu veðri. Um klukkan 13 tilkynnti maður í heimahúsi í Stykkishólmi til lögreglunnar að hann sæi bát á hvolfi úti á Sund- unum, norðaustur frá bænum, og taldi hann sig sjá mann eða menn á kili. Að sögn Eðvarðs Árnasonar yfirlögregluþjóns voru bátar komnir á staðinn skömmu síðar en sjómaðurinn sem var einn á bátnum sást ekki og fannst heldur ekki þegar kafað var niður í bát- inn. Margir bátar úr Stykkishólmi leituðu fram í myrkur, ásamt fé- lögum úr Björgunarsveitinni Ber- serkjum í Stykkishólmi og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Margar eyjar og sker eru á þessu svæði. Veður var gott, logn og sléttur sjór, en mjög straum- þungt. Leitin bar ekki árangur í gær en fyrirhugað er að hefja leit með miklum mannafla í birt- ingu í dag, að sögn Eðvarðs. Kass- ar úr bátnum fundust austan og norðan við bátinn. Dreginn til hafnar Anna SH var dregin til hafnar í Stykkishólmi þar sem báturinn var tekinn á land og settur í hús til rannsóknar. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins, meðal ann- ars voru skýrslur teknar af fólki í gærkvöldi, og að sögn Eðvarðs Árnasonar er ekki vitað um ástæður þess að bátnum hvolfi. Anna er 6 brúttólesta trefjaplast- bátur smíðaður árið 1988. Að svo stöddu er ekki hægt að birta nafn sjómannsins sem sakn- að er. Hann er fimmtíu og eins árs gamall fjölskyldumaður, bú- settur í Stykkishólmi. Morgunblaðið/RAX Skemmdir eftir vírana? UNNIÐ var við að bjarga vél Önnu SH 310 og rannsaka bátinn eftir að hann var komin undir þak í skipasmiðastöðinni Stálvik í gær. Á myndinni bendir Rögnvaldur Lárusson verksljóri á skemmdir á skut bátsins sem talið er hugsanlegt að hafi orðið af völdum víranna þegar báturinn hafi snúið sig niður við það að plógur hans lenti í festu. Bankar og sparisjóðir breyttu ekki nafnvöxtum skuldabréfa um mánaðamótin Raunávöxtun óverð- tryggðra lána 12-16% Erfið afkoma og fákeppni ástæðan, segir Jón Sigurðsson seðlabankastjóri RAUNÁVÖXTUN óverðtryggðra útlána banka og sparisjóða er á bilinu 12,2 til 16,6% en raunávöxtun verðtryggðra útlána er 7,5% að því er fram kemur í nóvemberhefti Hagtalna mánaðarins sem Seðlabanki íslands gefur út. Útreikningarnir eru gerðir 22. nóvem- ber og miðað er við áætlaða sex mánaða hækkun lánskjaravísi- tölunnar frá september til mars. Ef miðað er við þriggja mánaða hækkun frá nóvember til febrúar er raunávöxtunin hærri, eða á bilinu 12,9-17,3%. Engin breyting var á útlánsvöxtum banka og sparisjóða á vaxtabreytingardegi í gær en þá var heimilt að breyta vöxtum. Jón Sigurðsson seðlabankastjóri segir að það sem valdi þessu sé erfið afkoma bankanna og sú fákeppnisaðstaða sem þeir pjóti. Jón Sigurðsson vísaði til þess sem bankarnir hefðu einatt haldið fram sem sinni viðmiðun að þeir vildu sem best tryggja jafnvægi í raunvaxta- kjörum hvort sem um verðtryggðar eða óverðtryggðar skuldbindingar væri að ræða og þeirrar þróunar sem orðið hefði á nafnvöxtum utan bankakerfisins á peninga- og verð- bréfamarkaði. „Þegar á þetta allt er litið er náttúrlega alveg ljóst að það skort- ir verulega á að nafnvextir útlána í bankakerfinu séu í samræmi við markaðskjör. Þarna veldur áreiðan- lega erfið afkoma bankanna að undanförnu og fákeppnisaðstaðan sem þeir njóta hér, en ég hef nú trú á því að þessi munur muni jafn- ast á næstu mánuðum ekki síst af því að nú er framundan tímabil verðstöðugleika að gerðum kjara- samningum," sagði Jón. Háir vextir Hann sagði að þessir vextir bank- anna væru mjög háir og mjög marg- ir hefðu búist við því að þeim yrði breytt um mánaðamótin. Seðla- bankinn hefði með ýmsum aðgerð- um beitt sér fyrir bættum starfsskil- yrðum bankanna. Þannig hefði lausafjárkvöð og bindiskylda verið lækkuð og vaxtaskiptasamningar verið gerðir við bankana sem gerði það að verkum að verðtryggingar- áhættan væri tekin frá þeim meðan sá samningur gilti, en Seðlabankinn væri tilbúin til að framlengja hann og viðræður myndu brátt hefjast um það. Vegna þessa sérstaklega væri ástæða til að lækka vextina en eins og hann hefði nefnt væri vandinn ekki síst fólginn í erfiðleik- um í afkomu og útlánatöpum að undanfömu, sem vonandi rættist úr á næstunni. Samkvæmt Hagtölum mánaðar- ins er sex mánaða verðbólgustigið talið vera 1,1% og þriggja mánaða 0,5%. Raunávöxtun á einstökum formum útlána miðað við þróun lánskjaravísitölu í sex mánuði, þijá mánuði aftur í tímann og spár þrjá mánuði fram í tímann er 12,6% á tveggja mánaða víxli, 15,4% á tveggja mánaða viðskiptavíxli, 16,6% á yfirdráttarláni, 12,4% á almennu skuldabréfaláni og 12,2% á afurðalánum. Utlánavextir banka og sparisjóða 21. nóv. 1993 Raunákvöxtun m.v. verðlagsspá Nafn- 22- nóv. 1993 vextir Víxillán, 2 mán. Viðskipta- v'xlar, 2 mán. Yfirdráttarián, 90% nýting Alm. skulda- bréfalán Verðtryggð lán Afurðalán % 12,9 1,1% D 12,6 0,5% 2) 13,4 15.3 15,4 16,2 15.4 16,6 17,3 13,2 7,5 12,7 12,4 7,5 12,2 13,1 7,5 12,9 1) 6 mán. hækkun 1/9 ’93 -1/3 ’94 2) 3 mán. hækkun 1/11 ’93 -1/2 ’94 Kynferðisafbrot Ríkið tryggi bætur DOMSMALARAÐHERRA hefur skipað nefnd til að athuga hvort taka eigi upp ríkisábyrgð vegna miskabóta til þolenda kynferð- isafbrota og annarra grófra of- beldisbrota. Onnur verkefni nefndarinnar er að kanna grund- völl fyrir lögum eða reglum um nálgunarbann og hvort hægt sé að greiða aðgang fórnarlamba kynferðisofbeldis að rannsókn eigin mála. Þessar upplýsingar komu fram í máli Ara Edwalds, aðstoðarmanns dómsmálaráð- herra, á fundi Sambands ungra sjálfstæðismanna um meðferð kynferðisafbrota og réttarstöðu þolenda kynferðislegs ofbeldis í gærkvöldi. Ari sagði að af fjögurra liða tillögu nefndar um nauðgunarmál frá árinu 1989 hefði aðeins átt eftir að kanna hvort taka ætti upp ríkisábyrgð vegna miskabóta þolenda kynferðis- afbrota. Nú hefði dómsmálaráðherra hins vegar skipað fimm manna nefnd um málið og sæti í henni fulltrúar ráðuneytis, lögreglu, rannsóknarlög- reglu, héraðsdómari og fulltrúi Stígamóta. „Nefndinni er falið að athuga hvort taka eigi upp það fýrirkomulag að ríkissjóður ábyrgist greiðslur dæmdra bóta vegna kynferðisafbrota og annarra grófra ofbeldisbrota. Jafnframt eru henni falin tvö önnur brýn verkefni. Annars vegar hvort setja eigi lög eða reglur um nálgunar- bann. Og, hins vegar, að kanna hvort fórnarlömb geti haft greiðari aðgang að rannsóknarferlinum. Slíkt hefur verið talið vandamál hingað til,“ sagði Ari. Kostar 30 milljónir Hann sagði að enn ætti eftir að fara fram ítarleg athugun á kostnaði ríkisins vegna ábyrgðarinnar. Árið 1989 hefði verið gert ráð fyrir 2 til 3 milljónum á ári en vegna fjölgunar brota og hærri bót væri 30 milljónir trúlegri tala nú. Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta, tók fram að í aðeins örfáum tilvikum fengjust slíkar bætur greiddar. Hún fagnaði nefndarskipuninni. Unnið að stefnu í hugbúnaðariðnaði ÞORF er á að stjórnvöld skilgreini hugbúnaðariðnað sem iðngrein og lækki þannig tryggingagjald fyrirtækjanna ásamt því að bæta aðgang þeirra að áhættufjármagni. Þá þarf að breyta skattalegri meðferð hugbúnaðar í þá átt að hún taki mið af eignarmyndun. Á móti þessum aðgerðum stjórnvalda þurfa hugbúnaðarfyrirtæki að efla samstarf sín á milli, bæta stjómun og efla markaðs- og viðskiptavitund. Þetta eru helstu niðurstöður í greinargerð starfshóps um útflutning hugbúnaðar- verka sem kynnt verður síðar í þessum mánuði. Næstkomandi mánudag mun jap- anska stórfyrirtækið TEC hefja markaðssetningu í Bretlandi á af- greiðslukössum með hugbúnaðar- kerfí frá Hugbúnaði hf. Að sögn Páls Hjaltasonar, framkvæmdastjóra Hugbúnaðar, var kerfið valið úr um 130 kerfum sem til greina komu. „Við erum mjög stoltir af þessu verk- efni og ef vel gengur eigum við möguleika víðar í Evrópu.“ Fyrr í þessari viku var samskipta- forritið Louis kynnt á tölvusýningu IBM og Apple í Ósló og að sögn Jóhanns P. Malmquist, stjómarform- anns Softis, sem hefur unnið að þró- un á Louis, voru viðtökur mjög góðar. Sjá B4-B5.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.