Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
SPÆNSKUR fiðluleikari, Joa-
quin Palomares, heldur nám-
skeið fyrir fiðlunemendur á
vegum Nýja Tónlistarskólans,
Tónskóla Sigursveins Kristins-
sonar og Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar laugardaginn 18.
desember og sunnudaginn 19.
desember.
Joaquin Palomares nam fiðlu-
leik hjá León-Ara í Brussel og síð-
ar hjá Aaron Rosand við Mozarte-
um í Salzburg. Joaquin Palomares
hefur verið prófessor í fiðluleik við
National Conservatory of Murcia.
Hann er talinn meðal fremstu
fiðluleikara sinnar kynslóðar á
Spáni og hefur unnið til fjölda
verðlauna bæði í heimalandi sínu
og á alþjóðlegum vettvangi.
Áheyrendur eru velkomnir að
hlusta á kennsluna, sem hefst
laugardaginn 18. desember kl. 10
f.h. í sal Nýja Tónlistarskólans á
Grensásvegi 3.
(Fréttatilkynning)
ora
Edda Erlendsdótt-
ir spilar Grieg*
... að sjálfsögðu!
Námskeið í fiðluleik
Spænskur fiðluleikari heldur námskeið
Joaquin Palomares
EDDA Erlendsdóttir spilar
Grieg heitir geisladiskur sem
Skífan hefur nú gefið út á Is-
landi. Hann kom út í Frakklandi
í síðasta mánuði og hefur hlotið
lof í þarlendum blöðum.
Edda leikur á diskinum 17 ljóð-
ræn smálög og Holberg svítuna
eftir Edvard Grieg. Hún lauk prófi
frá Tónlistarháskólanum í Pans
1978 og hefur haldið ijölmarga
tónleika og tekið þátt í tónlistarhá-
tíðum á íslandi, Frakklandi og
Edda Erlendsdóttir
flestum öðrum Evrópulöndum.
Hún fór tónleikaferðir' til fyrrum
Sovétríkjanna, Bandaríkjanna og
hefur^ leikið með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, m.a. undir stjórn J.P.
Jacquillat, Leif Segerstam og Cari-
dis.
Edda hefur leikið inn á plötur
verk eftir Schubert, Schönberg,
Alban Berg, C.P.E. Bach og nú
síðast Edvard Grieg. Skífan gaf
út árið 1991 geislaplötuna „Edda
Erlendsdóttir spilar C.P.E. Bach“.
Nýjar bækur
Ljóðabók eft-
ir Birgi Svan
Símonarson
Út er komin ljóðabókin Vatnið
gengur í svefni eftir Birgi Svan
Símonarson. Þetta er ellefta
ljóðabók Birgis á átján árum.
í kynningu segir: „I þessari nýju
bók er höfundur samur við sig, en
bætir þó við, fundvís á ferskar ljóð-
myndir, margræður og dulur en
kaldhæðin fyndni skammt undan.
Höfundur velur sér gjarna hvers-
dagsmyndir að yrkisefni, heldur á
loft hinum mýkri gildum mannlífs-
ins en er jafnframt gagnrýninn í
glímunni við vanda þjóðar og ein-
staklings í firrtu samfélagi."
Útgefandi er Fótmál. Bókin
fæst í helstu bókabúðum á höfuð-
borgarsvæðinu og kostar kr.
1.790.
Birgir Svan Símonarson
Þú færð mikið fyrir lítið hjá okkur
Úrval af búsáhöldum og gfafavörum á ótrúlegu verði.
Verðdæmi: 18 glös í pk. kr. 910,- Eldföst form kr. 650,-
Ávaxtasett kr. 690,- 1 2 manna matar- og kaffistell kr. 7.320,-
Opið mánudaga til föstudaga frá ki. 12-19. Laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl. 13-17.
BÚSÁHALDAMARKAÐURINN, SMIÐJUVEGI30, RAUÐ GATA, KÓPAVOGI.