Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
35
Andreotti
Andreotti
staðinn
að lygnm
Róm. Reuter.
GIULIO Andreotti, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíu
varð fyrir miklu áfalli í gær
er hann var staðinn að ósann-
indum við tólf stunda langa
yfirheyrslu saksóknara en
hann er sakaður um tengsl við
mafíuna. Er fullyrt að lögregl-
an hafi sýnt Andreotti ljós-
mynd þar sem hann tekur í
hendur Nino Salvo, sem sagð-
ur er tengdur mafíunni nán-
um böndum. Hafði Andreotti
áður neitað því- að hafa
nokkru sinni hitt Salvo.
Ljósmyndarinn sem tók mynd-
ina segist hafa gert það árið
1979 í Palermo á Sikiley en
gleymt henni. Ljósmyndin kom
í leitirnar er lögreglan bað ljós-
myndarann um allar þær myndir
sem hann ætti af Andreotti.
Salva, sem lést á síðasta ári,
var talinn tengiliður mafíunnar
og stjórnmálamanna. Hann var
skattheimtumaður á Sikiley og
var sakaður um að hafa ásamt
frændum sínum byggt upp ólög-
legt veldi og hafi stýrt stjórn-
kerfi Sikileyjar á bak við tjöldin.
Andreotti er einnig sakaður
um að hafa hitt Salvatore „Toto“
Riina, mafíuforingjann sem nú
er fyrir rétti á Sikiley, sakaður
um fjöldamörg morð og glæpa-
starfsemi. Fullyrðir einn af upp-
ljóstrurum lögreglunnar að
Andreotti hafi árið 1987 komið
til fundar við Riina og kysst
hann á báðar kinnar í kveðju-
skyni. Bæði Andreotti og Riina
neita því að hafa hist.
Signr Zhírínovskíjs í rússnesku kosningunum ekki eins stór og talið var
Umbótasinnar með mikla
forystu í eiimienningskj öri
IV^oskvu. Reuter.
HATTSETTUR aðstoðarmaður Borísar Jeltsíns Rússlands-
forseta sagði í gær að Valkostur Rússlands, sem styður
umbótastefnu forsetans, væri með mikla forystu í einmenn-
ingskjördæmunum í kosningunum til dúmunnar, neðri
deildar þingsins, á sunnudag. Þegar talið hefði verið í 209
kjördæmum af 225 hefðu 24% þeirra sem náðu kjöri í ein-
menningskjördæmunum verið annaðhvort frambjóðendur
Valkosts Rússlands eða stuðningsmenn flokksins. Fijáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn, flokkur þjóðernisöfgamannsins
Vladímírs Zhírínovskíjs, hefði aðeins fengið um 4% þingsæt-
anna í einmenningskjördæmunum.
Kosningarnar til dúmunnar alþjóðlegum samningum sem hún
skiptast í tvennt; annars vegar fá fær til staðfestingar."
225 þingmenn sæti á þinginu í
hlutfallskosningum landslista
flokkanna en jafn margir ná kjöri
í einmenningskjördæmum. Að-
stoðarmaður Jeltsíns greindi ekki
frá því hvernig skipting þingmanna
væri eftir talningu atkvæða í 209
kjördæmum. Þegar talið hafði ver-
ið í 187 af 225 kjördæmum í gær
var staðan hins vegar þannig (fyrst
fylgi landslista í hlutfallskosning-
unum og síðan þingmannatala í
einmenningskjördæmunum):
Flokkur Zhírínovskíjs 23,93% 5
Valkostur Rússlands 14,48% 23
Kommúnistar 13,59% 7
Bændaflokkurinn 8,96% 16
Konur Rússlands 8,48% 2
Yabloko (Javlínskíj) 7,35% 6
PRES (Shakhraj) 6,66% 3
Lýðræðisflokkurinn 5,51% 1
Aðrir flokkar 12
Óháðir 107
Af þessum 187 þingmönnum eru
107 óháðir, eins og sjá má á töfl-
unni, og þeir verða líklega í oddaað-
stöðu. Olíklegt er að styrkur fylking-
anna verði ljós fyrr en dúman kem-
ur saman í janúar.
Sergej Shakhraj, leiðtogi Flokks
rússneskrar einingar og sáttar
(PRES), spáði því í gær að engin
helstu fylkinganna gæti myndað
starfhæfan meirihluta á þinginu.
„Næstu tvö árin munu lýðræðisöflin
yfírleitt geta komið í veg fyrir ólýð-
ræðislegustu ákvarðanimar, en það
verður ómögulegt eða illmögulegt
að koma á lýðræðisumbótum,“ sagði
hann. „Dúman mun hafíia öllum
Shakhraj kvaðst hyggja á nána
samvinnu við leiðtoga umbótaflokk-
anna, Jegor Gajdar og Grígoríj Javl-
ínskíj, og vera reiðubúinn til sam-
starfs við kommúnista og Bænda-
flokkinn í einstaka málum. Hann
útilokaði hins vegar algjörlega sam-
vinnu við Zhírínovskíj.
Ljóst varð í gær að tveir atkvæða-
miklir ráðherrar í ríkisstjóminni,
Andrej Kozyrev utanríkisráðherra
og Borís Fjodorov fjármálaráðherra,
náðu kjöri í einmenningskosningun-
um.
Reuter
Zhírínovskíj færður til
STARFSMAÐUR í vaxmyndasafninu í Moskvu setur
ernisöfgamanninn Vladímír Zhírínovskíj, sem kóm á
ingunum í Rússlandi á sunnudag. Vaxmyndin af
færð á meira áberandi stað eftir kosningasigurinn
hálsbindi á þjóð-
óvart í þingkosn-
Zhírínovskíj var
Milli húsa
um helgar
10 mínútna símtal innanbæjar um
helgar kostar aðeins
& * fcl r ;
PÓSTUR OG SÍMI
Sjá nánar í símaskránni bls. 9.
Það er fráLært aá vera unglingur ef maður }mrf
ekki aá kuráast meá
vandama
1 fullorána fólksins
Hvolpaivit
EFTIR ÞORSTEIN MARELSSON
Hér fá unglingarnir loks í hendur framhald af hugsanaflœöi mínu um
unglingavandann. Niöurstaöan er raunar sú aö hann sé ekki til, en ef
þig langar í framhald af bókinni Miili vita þá er bara aö suöa smá í
ömmu og þú fœrö bókina í jólagjöf.
Kœr kveöja, Þrándur Hreinn.
Mál IMl og menning
LAUGAZEGI 18, SÍMI (91) 24240 & SÍPUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688S77