Morgunblaðið - 16.12.1993, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
Kalkúnakjöt er
ljúffengt og
bragðmikið.
Heitt eða kalt
- sannkallaður
hátíðarmatur.
Á djasshátíð í Montreal
Litríkir götusirkusleikarar settu sinn
svip á hátíðarhöldin.
eftir Sigrúnu
Harðardóttur
Allir þekktustu djassleikarar
samtímans hafa komið við í Mon-
treal á þessum fjórtán árum. Árið
1980 opnaði Ray Charles fyrstu
djasshátíð Montrealborgar, ári síð-
ar voru áhorfendur 22.000 á 20
tónleikum. Herbie Hancock tríó
opnaði hátíðina í ár þar sem tvö
þúsund tónlistamenn léku fyrir 1,4
milljónir djassunnenda á 400 tón-
leikum. Þeim sem áhuga höfðu á
sögu djassins stóðu til boða 18
kvikmyndasýnigar auk þess sem
ein útvarpsstöð borgarinnar lék
djass allan sólarhringinn þessa 11
daga.
Djasshátíðin dregur ekki ein-
ungis að sér athygli vegna áhuga-
verðrar tónleikadagskrár. Hátíðar-
stemmningin, sem er einstaklega
ánægjuleg og friðsamleg, höfðar
einnig til hátíðargesta.
Götuleikhús og sirkusskemmti-
kraftar voru með ýmis atriði til
þess að lífga upp á hátíðarhöldin
auk förðunarlistamanna sem komu
yngstu hátíðargestunum í hátíðar-
skap með litríkum andlitsskreyt-
ingum. Leyndardómar djassins á
gamansaman hátt héldu athygli
bama á öllum aldri í litla djassskó-
lanum tvisvar á dag.
Dagskrá hátíðarinnar hófst dag-
lega á hádegi með þrennum opnum
tónleikum, einir til þrennir tónleik-
ar voru síðan á klukku-
stundar fresti fram til
klukkan átján, þá er innan-
hússtónleikahald hófst og
þéttist síðan tónleikahaldið
í fjóra til fimm tónleika á
klukkustundar fresti fram
að miðnætti. Frá þeirri
stundu færðust opnir tón-
leikar inn á skemmtistað-
ina Le Grand Café, Club
Soda og Spectrum. Fjöldi
djassklúbba borgarinnar
var einnig með sérstaka
tónleika í tengslum við
hátíðarhöldin svo hátíðar-
gestir gátu haldið áfram
djassdjammi sínu fram á
morgun.
Á tónlistarsviðinu er
hönnuðir dagskrár hátíð-
arinnar, André Ménard,
ábyrgur fýrir innanhúss-
tónleikum og David Jobin
fyrir utanhússtónleikum.
Á blaðamannafundi á
lokadegi hátíðarinnar
lögðu þeir áherslu á að góð
aðsókn hefði verið á flokk tónleika
helguðum gospel, Louisiana tónlist
og breskum píanódjassi auk tón-
leika Dee Dee Bridgewater,
Charlie Haden, Petru Guelfucci,
Galliano og Gineet Reno.
Hátíðin í ár var helguð saxó-
fóninum, tákni djassins, sem var
sérstaklega heiðraður af hópi tón-
listarmanna með breiðan tónlistar-
bakgrunn, eitthvað fyrir alla. Má
þar fyrst nefna ósvikna saxófón-
veislu Odean Pope saxófónkórsins,
þá tenórsaxófónleikarann Scott
Hamilton, sem ásamt Johnny
Griffin sannfærði okkur um að
loðnir tónar eigi sér framtíð, Steve
Coleman fulltrúa nýbylgjudjass
New York borgar, Hawkins, Lester
Young, Ben Webster og að lokum
Kenny Garett, síðasta saxófónleik-
ara sem lék við hlið Miles Davis.
Píanódjassleikarar færðu okkur
djassaðan afrískan takt Suður-Afr-
íkubúans Abdullahs Ibrahims. Frá-
bær leikur Rays Bryants, sem áður
hefur leikið með Charlie Parker
og Miles Davis, markaði sérstæða
tónleika. Heldur framsæknari en
Bryant var píanóleikarinn Geri
Allen, sem hélt einstaklega
kraftmikla tónleika. Píanóleikari
klassískrar festu, Randy Weston,
hamraði af mikilli ástúð á hljóð-
færi sitt og seiddi fram tóna sem
bergmáluðu heiminn og menning-
una og dóu síðan út. Túlkun hans
var trúarlegri eðlis en nokkurs
annars hljóðfæráleikara þessarar
hátíðar. George Shearing var í feiki
stuði og lék hrífandi ásamt Joe
Williams og Neil Swainson. Aðrar
stjömur píanósins voru Italinn
Enrico Pieranunzi, keppinautur
Bills Evans, píanistinn Henry Butt-
er frá Louisiana, Ellis Marsalis,
faðir þeirra Marsalis bræðra,
ásamt Mareus Roberts, tveir snill-
ingar frá Kúbu, þeir Chucho Val-
des og Gonzalo Rubakaba, Herbie
Hancock, Keith Jarrett og Lyle
Mays.
Djasssöngvarar fengu einnig
gott pláss í dagskrá þessarar hátíð-
ar, áheyrendur áttu þar kost á að
heyra hina feikimiklu rödd söng-
konunnar Ginetto Reno frá Brook-
lyn, sem söng með Oliver Jones,
Grammy-verðlaunahafa þessa árs,
Betty Carter, Dee Dee Bridgewat-
er, sem söng með John Pizarelly
og hljómsveit, kanadísku söngkon-
una Holly Cole, sem er í miklu
uppáhaldi hjá löndum sínum, og
„í fjórtán ár hefur Le
Festival International
de Montréal, sífellt vax-
ið að umfangi og fjðlda
tónleika og sló hátíðin
í ár öll aðsóknarmet
fyrri hátíða. Þessi
djasshátíð er að hluta
til götuhátíð þar sem
um það bil 4/5 hlutar
tónleikanna eru há-
tíðargestum að kostn-
aðarlausu og dregur
hátíðin til sín áhorf-
endafjölda sem á sér
ekki hliðstæðu annars
staðar.“
að lokum hinn einstaka akróbat
raddbandanna Bobby McFerrin og
kór hans.
„Fusion“ og rafmagnsgítar áttu
einnig sína sneið af dagskránni.
Bresku brautryðjendurnir í Soft
Machine léku, New York-búinn
Mike Stern og Alan Caron, sem
samkvæmt franska tímaritinu
Guitarist er besti núlifandi bassa-
leikari fusion-tónlistar. Einnig má
nefna Sony Greenwich, Pierre
Leith, Bela Fleck og Marc Johnson.
Undanfarin ár hefur verið haldin
samkeppni meðal ungra og
óþekktra kanadískra djasshljóð-
færaleikara í tengslum við þessa
hátíð og eru úrslit þeirrar sam-
keppni gerð kunn á sérstökum
lokatónleikum. Stjörnur lokatón-
leikanna að þessu sinni voru Gi-
netto Reno og Oliver Jones, en auk
þess gafst áheryendum kostur á
að heyra leik vinningshafa Maurier
Ltd. verðlaunanna. Þrenn verðlaun
voru til skiptanna; Maurier Ltd.
verðlaunin fyrir hefðbundinn og
klassískan djass féllu í hlut Chelsea
Bridge kvartettsins frá Ottawa.
Söngkona hljómsveitarinnar, Tena
Palmer, vann Socan verðlaunin
(verðlaun samtaka tónlistar-
manna) fyrir frumsamið lag sitt
„The Hills of Loch Katherine“.
Oscar Peterson verðlaunin hlaut
saxófónleikari frá vesturströnd-
inni, Fraser MacPherson, fyrir ein-
stakt framlag hans til kanadísks
djass.
Átta útisvið voru á þessari hátíð
og hafði hvert svið nokkuð ákveðna
tónlistarstefnu. Maurier Ltd. fyrir-
tækið hafði á sinni könnu tvö aðal
svið ALCAN frá fyrri árum. Annað
þeirra var stærsta útisvið hátíðar-
innar, með nokkuð blandaða tón-
leikadagskrá, þar sem flestar fyrir-
ferðameiri hljómsveitirnar tróðu
upp. Má þar fyrst nefna bresku
fimmtán manna hljómsveitina
Galliano, sem hélt sína fyrstu tón-
leika í Norður-Ameríku að við-
stöddum hundrað og eitt þúsund
áhorfendum, The African Jazz Pi-
oners, sem haði á að skipa ellefu
hugareikning og gengur út á klókindi
útsjónarsemi og heppni leikmanns
Hvílum sjonvar
11 I i 'L..U l
íafflsi
il sinnar tegu
HEILDSÖLUDREIFING
ÍSLENSKA VERSLUNARMIÐSTÖÐIN HF.
GRENSÁSVEGI 16 BAKHÚS,
SÍMI 687355. FAX 687185
Ódýrasta sp
Verð aðeins