Morgunblaðið - 05.01.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994
21
Ráðgjöf VIB byggðist
á að samningsaðili full-
nægði skilyrðum seljauda
MORGUNBLAÐINU barst I gær greinargerð Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka vegna sölu á hlutabréfum í SR-mjöli.
„I byijun nóvembermánaðar sl.
tók VIB, Verðbréfamarkaður ís-
landsbanka hf., að sér umsjón með
sölu á öllum hlutabréfum í SR-mjöli
hf. að undangengnu útboði þess
verkefnis á meðal löggiltra verð-
bréfafyrirtækja í október sl. Sjávar-
útvegsráðuneytið skipaði söluhóp til
að annast málið fyrir sitt leyti en
verkefnið var jafnframt unnið í sam-
ráði við framkvæmdanefnd um
einkavæðingu.
Dagana 17. til 19. nóvember 1993
var auglýst opinberlega að ákveðið
hefði verið að selja öll hlutabréf í
félaginu og var sú auglýsing svo-
hljóðandi:
„Sala á hlutabréfum ríkisins í
SR-mjöli hf.
Sjávarútvegsráðherra, fyrir hönd
ríkissjóðs, hefur ákveðið að öll hluta-
bréf ríkisins í SR-mjöli hf. verði
boðin til sölu.
Umsjón með söiu hlutabréfanna
hefur: Verðbréfamarkaður íslands-
banka hf.“
Auglýsingin var undirrituð af VÍB
og birtist hún þrisvar sinnum í Morg-
unblaðinu, einu sinni í DV og einu
sinni í Fiskifréttum.
Viðbrögð við þessari auglýsingu
voru að í síðari hluta nóvembermán-
aðar og fyrstu dagana í desember
sl. sneru alls 14 lysthafendur sér
annaðhvort til VIB eða til fulltrúa
seljanda. í ljósi þess hve hópur vænt-
anlegra þátttakenda var talinn vera
stór var í samráði við fulltrúa selj-
anda mótuð eftirfarandi aðferð við
sölu hlutabréfa þessara.
1. Þann 7. desember 1993 var
þeim 14 aðilum sem sýnt höfðu
málinu áhuga sent eftirfarandi bréf.
Reykjavík 7. desember 1993. •
Til: væntanlegra þátttakenda við
útboð hlutabréfa í SR-mjöli hf. Frá:
VÍB, Verðbréfamarkaði íslands-
banka hf.
Efni: Þátttaka í útboði blutabréfa
í SR-mjöli hf.
Föstudaginn 17. desember 1993
verða afhent tilboðsgögn vegna sölu
hlutabréfa í SR-mjöli hf. Eins og
fram hefur komið í opinberum aug-
lýsingum dagana 17.-19. nóvember
sl. eru til sölu öll hlutabréf í fyrirtæk-
inu en ekki hluti þeirra.
Þeir sem áhuga hafa á því að
leggja fram tilboð í hlutabréf í SR-
mjöli hf. eru beðnir að gera skriflega
grein fyrir eftirfarandi upplýsingum
í bréfi til VÍB hf. fyrir kl. 16.00
mánudaginn 13. desember nk. Farið
verður með allar upplýsingar sem
trúnaðarmál.
1. Nafn og kennitala tilboðsgjafa
(nöfn og kennitölur ef um fleiri en
einn er að ræða).
2. Helsta starfsemi tiiboðsgjafa ef
um félag er að ræða og aðstandend-
ur þess. Greina þarf frá helstu starf-
semi félags á síðustu árum og helstu
aðstandendum eða eigendum félags-
ins.
3. Fjárhagur tilboðsgjafa. Gerð sé
grein fyrir hvernig kaup á hlutabréf-
um í SR-mjöli hf. verði ijármögnuð,
þ.e. hvort ætlunin er að fjármagna
þau af eigin fé tilboðsgjafa eða með
lánsfé. Fram þarf að koma að til-
boðsgjafi hafi íjárhagslegan styrk
til að kaupa fyrirtækið allt og
tryggja rekstur þess áfram.
4. Eignaraðiid. Gerð sé grein fyrir
því að fyrirhuguð kaup á hlutabréf-
um í SR-mjöli hf. sé í fullu samræmi
við ákvæði laga nr. 34/1991 um fjár-
festingu erlendra aðila í atvinnu-
rekstri.
5. Ef kaupin verða ijármögnuð með
lántöku að einhveiju leyti þarf að
gera grein fyrir lánveitanda og þeim
tryggingum sem tilboðsgjafi hyggst
setja fyrir lántöku sinni.
Haft verður samband við þá þátt-
takendur sem teljast fullnægja skil-
yrðum seljanda fyrir kl. 12.00 föstu-
daginn 17. desember nk. í framhaldi
af því verður óskað eftir tilboðum í
hlutabréf í SR-mjöli hf. og verður
tilboðsfrestur til kl. 16.00 þriðjudag-
inn 28. desember 1993. Seljandi
áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum tilboð-
um.
Virðingarfyllst, f.h. VÍB, Verð-
bréfamarkaðs íslandsbanka hf. Sig-
urður B. Stefánsson framkvæmda-
stjóri.
II. Þann 13. desember sl. kl.
Gluggaútstilling
kærð til lögreglu
„GRÉTAR Norðfjörð aðalvarð-
stjóri lögreglunnar hringdi í okk-
ur að kvöldi 30. desember og
sagði að við hefðum verið kærðir
af einum nefndarmanni í áfengis-
varnaráði og bað hann okkur að
fjarlægja tómar léttvínsflöskur
sem voru hafðar til útstillingar
með bókinni Vínin í ríkinu,“ segir
Árni Einarsson, framkvæmda-
stjóri Máls og menningar, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Mál og menning hefur kynnt bók-
ina undanfarnar þtjár vikur með
gluggaútstillingu þar sem raðað er
upp tómum léttvínsflöskum ásamt
nokkrum eintökum bókarinnar í
verslun sinni á Laugavegi. Var sú
útstilling kærð til lögreglu fyrir
helgina en Árni sagðist vita um
samskonar útstillingu í tveimur öðr-
um bókaverslunum.
Sagði hann að eftir að málið hefði
verið rætt innanhúss hefði verið
ákveðið að fjarlægja ekki útstilling-
una og yrði lögreglan að gera það
sjálf efjiún teldi hana vera lögbrot.
Sagði Árni að þegar hann hefði til-
kynnt lögreglu þá ákvörðun hefði
annar varðstjóri verið kominn á
vakt og sá ekki talið ástæðu til að
gera mikið úr málinu. Lögreglan
Morgunblaðið/Kristinn
Útstillingin
MÁL og menning var kærð til
lögreglu um áramótin fyrir að
setja tómar léttvínsflöskur með
bókaútstillingu í glugga bóka-
verslunarinnar á Laugaveginum.
hafí því aldrei verið send á staðinn
og flöskurnar væru því enn í glugga
verslunarinnar.
16.00 höfðu þijú svör borist við bréfi
þessu. Þau voru frá Halldóri Jóns-
syni bæjarstóra f.h. Akureyrarbæj-
ar, frá Haraldi Haraidssyni, Eykta-
rási 26, Reykjavík, f.h. fleiri ijár-
festa og frá Jónasi A. Aðalsteinssyni
hrl. f.h. tuttugu og eins útgerðarfé-
lags, Qögurra fjármálafyrirt'ækja,
þ.e. Eignarhaldsfélagsins Alþýðu-
bankans hf., Draupnissjóðsins hf.,
Sjóvá-Almennra trygginga hf. og
Þróunarfélagsins hf. Gagnvart þess-
um hópi höfðu jafnframt olíufélögin
þijú lýst yfir stuðningsvilja sínum,
svo og starfsmannafélög verðsmiðja
SR-mjöls hf. og sveitarfélögin fimm
þar sem verksmiðjur félagsins eru
staðsettar.
III. Eftir að fulltrúar seijanda
höfðu lagt mat á þær upplýsingar
sem borist höfðu frá tilbjóðendunum
þremur mánudaginn 13. desember
sl. var VÍB falið að leita eftir frek-
ari skýringum og nánari upplýsing-
um þar sem þess gerðist þörf. Föstu-
daginn 17. desember 1993 var
ákveðið af hálfu seljanda að allir
þessir þrír væntanlegu tilbjóðendur
fengju afhent útboðsgögn eins og
fram kemur í meðfylgjandi bréfi.
Reykjavík 17. desember 1993.
Efni: Afhending útboðsgagna
vegna sölu á SR-mjöli hf.
I ljósi þess að aðeins þrír aðilar
skiluðu inn upplýsingum og stað-
festu þar með áhuga sinn á að gera
tilboð í félagið hefur sjávarútvegs-
ráðuneytið ákveðið að þeim verði
öllum afhent útboðsgögn. Ákvörðun
þessi er tekin án þess að sérstakt
mat hafi á þessu stigi verið lagt á
þau atriði sem óskað var upplýsinga
um í bréfi VÍB frá 7. desember sl.
Útboðsgögn eru:
1. Stofnefnahagsreikningur SR-
mjöls hf.
2. Árshlutauppgjör félagsins 1. ág-
úst til 31. október 1993.
3. SR-mjöl hf. - samantekt á for-
sendum verðmats.
Útboðsgögn afhendast eftirfar-
andi: Akureyrarbæ, hr. Halldóri
Jónssyni bæjarstjóra. Hr. Haraldi
Haraldssyni, Eyktarási 26, 110
Reykjavík. Hr. Jónasi A. Aðalsteins-
syni hrl., f.h. hóps fjárfesta.
F.h. Verðbréfamarkaðs íslands-
banka hf. Sigurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjóri.
IV. Þriðjudaginn 28. desember
1993 kl. 16.00 höfðu tvö tilboð bor-
ist sem opnuð voru af hálfu fulltrúa
seljanda en jafnframt bréf frá Akur-
eyrarbæ þar sem óskað var eftir
lengri tilboðsfresti. Fulltrúar selj-
anda ásamt starfsmanni verðbréfa-
fyrirtækisins áttu viðræður þá um
eftirmiðdaginn til að óska nánari
útskýringa á því sem í tilboðum fólst,
við Sigurð G. Guðjónsson hrl. og
Harald Haraldsson f.h. annars til-
boðsgjafans, en Benedikt Sveinsson
hrl. og Jónas A. Aðalsteinsson hrl.
f.h. hins tilboðsgjafans.
V. Fulltrúar seljanda tóku sér lið-
lega sólarhring til að taka afstöðu
til fenginna tilboða og nánari útskýr-
inga á þeim. Að þeim tíma liðnum
var gengið til samninga við annan
tilboðsgjafann á grundvelli ráðgjafar
VÍB. Var þá þegar að kvöldi mið-
vikudagsins 29. desember sl. hinum
tilboðsgjafanum greint frá niður-
stöðunni símleiðis og bréflega og
fréttatilkynning send til fjölmiðla af
hálfu sjávarútvegsráðuneytisins.
Ráðgjöf VIB byggðist á að samn-
ingsaðili fullnægði skilyrðum selj-
anda sem sett voru fram í ofan-
greindu bréfi frá 7. desember sl.
m.a. um fjárhagslegan styrk til að
h'yggja kaupin og áframhaldandi
rekstur fyrirtækisins. Þá var jafn-
framt litið til dreifingar eignaraðild-
ar og þátttöku heimamanna og
starfsmanna sem út frá var gengið
þegar Alþingi samþykkti ákvæði
varðandi sölu hlutabréfanna á síð-
asta vori.“
TÖLVUNÁM FYRIR
UNGLINGA11-16 ÁRA
Tölvuskóli Reykjavíkur heldur 24 klst. námskeið þar
sem megin áhersla er lögð á að nýta tölvuna sér til
gagns. Kennt er á PC tölvur. Farið er í fingrasetningu,
vélritunaræfingar, Windows, stýrikerfi, ritvinnslu,
teikningu, almenna tölvufræði, töflureikni og ieiki.
Kennsla fer fram á laugardögum kl. 12-16.
Innritun er hafin í síma 616699.
Tolvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 91 -616699
Metsölublad cí hwrjum degi!
EGLA bréfabindi
SKIPULAGI
Við sendum þér bækling óskir þú þess
með myndum af fjölbreyttu úrvali okkar af
þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan
getur þú pantað það sem hentar fyrirtæki þínu
og færð sendinguna.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
KJOLFESTA
ÍGÓÐU