Morgunblaðið - 05.01.1994, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994
49
Hver er hræsnari?
Frá Önnu Bencovic:
Hinn 14. nóvember síðastliðinn
skrifar Sigurbjörn Einarsson stutta,
en magnaða grein í Morgunblaðið
þar sem hann ver það sjónarmið
kristinnar trúar að veita beri hjálp-
arhönd griðlausum manni.
Pétur
Pétur Pétursson þulur sér síðan
ástæðu til að andmæla biskupi með
einhveijum Gervasónirökum. Ég
verð að viðurkenna að það mál
þekki ég ekki nóg til að tjá mig
um það öðruvísi en svo að það er
ekki sami hlutur að senda mann,
Gervasóni, til sinnar þjóðar í her-
skyldu eða þegnskyldu og að senda
mann, Gordan, í opinn dauðann.
Sigurbjörn svarar Pétri glæsilega
stuttu síðar og eyðir þessum mis-
skilningi og hefði ég haldið það
duga hveijum heilvita manni. Svo
virðist vera.
Magnús
Hinsvegar birtist sú ruglingsleg-
asta grein sem ég hef lesið hinn
22. desember í téðu blaði eftir
Magnús nokkurn Skarphéðinsson.
Hann notar þar Gervasónirökin,
afbökuð og klykkir út með að saka
Sigurbjöm um hræsni. Greinin er
ekki svaraverð sem slík, hinsvegar
vil ég leiðrétta það í máii Magnúsar
að flóttamaðurinn er alls ekki Bosn-
íumaður, heldur af króatískum og
ungverskum ættum frá Vojvodínu,
en það hérað hefur talist til Serbíu
síðan eftir fyrri heimsstyijöld. Að
senda hann til Vojvodínu núna er
að senda hann í dauðann, hvað sem
stjómvöld í Serbíu segja. Þau em
nefniiega mikið fyrir þessa sjálf-
hverfu kynþáttarembu, eins og
Magnús og því miður fleiri. Ég er
sannfærð um að dr. Helgi Pjeturss
ætlaðist manna síst til að kenningar
hans um ágæti norrænnar menn-
ingar væm notaðar á svo lágkúru-
legan hátt og hafí Sigurbjöm bent
á það er ekki um neina hræsni að
ræða.
Gunnlaugur
Hinn 4. desember skrifar Gunn-
iaugur Þórðarson fv. formaður
Rauða krossins stutta grein í Morg-
unblaðið. Mig langar að varpa hér
fram nokkrum spurningum vegna
þeirrar greinar.
Af hveiju er fullyrt að margum-
ræddur flóttamaður sé „undir
fölsku yfirskyni"?
Hvers vegna skyldi okkur síst
bera að skjóta skjólshúsi yfir mann-
eskju sem hefur dvalið í Svíþjóð og
lært sænsku?
Hvað er varhugavert við slíkan
flóttamann umfram aðra?
Gordon
Gordon er að flýja dauðann, ekki
einungis sinn eigin heldur einnig
það að drepa. Síðan stríðið braust
út í fyrrverandi löndum Júgóslavíu
hafa bæði ríkisstjórnir Ungveija-
lands og Króatíu mótmælt því á
alþjóðlegum vettvangi að minni-
hlutahópar í Vojvodínu (Serbar eru
um 54% íbúa þar og því í meiri-
Frá Berglindi Ólafsdóttur:
Ég hef reglulega pantað pizzu
hjá Dominos og hef verið nokkuð
ánægð með bæði pizzurnar og þjón-
ustuna fyrir utan 2-3 skipti þar
sem ég þurfti að endurtaka pöntun-
ina a.m.k. tvisvar. En það er ekki
aðalmálið í þessu bréfi.
Fyrir nokkrum vikum pantaði ég
þar pizzu, sem er ekki í frásögur
færandi, nema að ég fékk á hana
álegg sem ég bað alis ekki um. Ég
var nokkuð svekkt en ákvað að
gera ekkert í málinu í það skiptið.
Eg tíndi bara þetta óumbeðna álegg
af.
Svo var það fyrir nokkrum dög-
um að ég hringdi aftur í Dominos
og pantaði pizzu. Og aftur fékk ég
þetta sama álegg óumbeðið. Ég
varð vægast sagt fyrir vonbrigðum
og hringdi aftur í Dominos og til-
kynnti þetta. Maðurinn sem ég tal-
aði við sagði að ég fengi aðra pizzu
ókeypis en bað mig svo að bíða í
dálitla stund. Þegar hann kom aftur
í símann sagði hann einungis að
ég fengi aðra pizzu en hann vildi
fá hina pizzuna aftur.
hluta) skuli sæta þeim afarkostum
að vera sendir fyrstir og fremstir á
víglínuna. Það hljóta flestir að skilja
að Króati vilji ekki ana fremst með
Serbum í árásar- og landvinninga-
stríði gegn Króötum. Sem betur fer
tókst honum að flýja, fyrst til Sví-
þjóðar þar sem honum var vísað frá
á vafasömum forsendum og þá til
íslands. Ég segi „á vafasömum for-
sendum“ um brottreksturinn frá
Svíþjóð vegna þess að það er sorg-
leg staðreynd um hið alþjóðlega
samfélag að það hefur hvorki sinnt
örvæntingaráköllum Kosovohéraðs
í Serbíu né Vojvodínu svo heitið
geti.
Ég vil taka það fram í lokin að
sé þessi flóttamaður annað en hann
segist vera þá siglir hann undir
fölsku flaggi. Það er ótrúlegt að svo
sé, en sjálfsagt er að athuga þetta
mál til hlítar áður en misvitrum
fullyrðingum er slengt fram.
ANNA BENKOVIC,
Skálholtsstíg 2,
Reykjavík.
Nú, ég beið í annan hálftíma og
gamirnar voru farnar að gaula. Það
fyrsta sem sendillinn sagði var: „Þú
átt örugglega ekkert að borga á
milli er það?“ Ég varð nú svolítið
hissa og sagði að eiginlega ætti það
að vera öfugt. En sendillinn vissi
ekkert um neinn afslátt eða neitt
til að bæta mér þetta upp.
Sem sagt: Það kom nákvæmlega
ekkert út úr því þótt ég hringdi og
kvartaði, ekki einu sinni afsökunar-
beiðni. Ég hefði kannski frekar átt
að tína þetta blessaða álegg af sem
ég bað aldrei um og gefa kettinum
það í stað þess að bíða í klukkutíma
eftir pöntun sem var ósköp einföld
en virtist vera of flókin fyrir starfs-
fólk Dominos.
En eitt er víst: Ég panta ekki
aftur pizzu hjá Dominos.
BERGLIND ÓLAFSDÓTTIR,
Úthlíð 9,
Reykjavík.
Pennavinir
GHANASTÚLKA 25 ára með
áhuga á kvikmyndum, bréfaskrift-
um, rómantískum bókmenntum:
Stephanie Quayson,
P.O. Box 908,
Royal Lane,
Oguaaman,
C.C. Ghana.
ÁTTA ára tékknesk stúlka með
áhuga á bama- og unglingabók-
menntum:
Miroslava Noskova,
DNV 4,
507 81 Lazne Belohrad,
Czech Republic.
NÍTJÁN ára fínnsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Kati Moilanen,
Tammikatu 4,
37120 Nokia,
Finland.
ÞJÓÐVERJI sem var háseti á segl-
skútunni Frithjof Nansen, sem hafði
viðkomu á íslandi sl. sumar, langar
mikið að eignast íslenska penna-
vini. Er 22 ára og hefur áhuga á
dansi, tónlist, handbolta, ferðalög-
um, kvikmyndum og siglingum:
Frank Noack,
Grosse Hirschseiters 1,
66589 Merchweiler,
Germany.
LEIÐRÉTTIN
Undirskrift
fór á flakk
1 minningargrein, sem systkinin
Gyða Þórdís, Sveinn Rúnar og
Kristinn G. Þórarinsbörn skrifuðu
um ömmu sína, Guðrúnu Pálínu
Jónsdóttur, og birtist á bls. 52 í
Morgunblaðinu í gær, gerðist það,
að nafn Kristins var skilið frá nöfn-
um hinna systkinanna vegna mis-
taka í vinnslu blaðsins og hann
gerður að meðhöfundi Jónu Einars-
dóttur, sem einnig ritaði minningar-
grein um Guðrúnu. Hlutaðeigendur
eru innilega beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Veski tapaðist
SVART samanbrotið peninga-
veski með töluverðri peninga-
upphæð tapaðist á gamlársdag.
Eigandinn notaði veskið síðast
í sölutuminum í Ofanleiti 14,
en þar kannast enginn við það.
Þeir, sem kynnu að hafa fundið
veskið, eru vinsamlega beðnir
að láta vita í síma 688133.
Perlufesti tapaðist
PERLUFESTI, jólagjöf frá ást-
vini, tapaðist að öllum líkindum
á gangstéttinni við Skólavörðu-
stíg 3 á jóladag. Perlufestarinn-
ar er sárt saknað og er skilvís
fínnandi vinsamlega beðinn að
hringja í síma 673767. Fundar-
laun.
Skór töpuðust
SVARTIR kvenskór í brúnum
poka töpuðust á annan í jólum
á Ránargötunni, vestan
Bræðraborgarstígs. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
34613. Fundarlaun.
Barrokk
SÁ SEM tók dökkbrúnan gervi-
pels (Donny Brook-merki í
hálsmáli) í misgripum á Bar-
rokk á gamlárskvöld, er vin-
samlega beðinn að skila honum
því hans er sárt saknað. Upp-
lýsingar í síma 72948.
Jakki tapaðist
LJÓSBRÚNN rúskinnsjakki
var tekinn í misgripum á Hótel
íslandi á gamlárskvöld. í jakk-
anum vom húslyklar og blóm-
óttur klútur. Sá sem var í jakk-
anum hafði fengið hann að láni,
og er honum því mjög í mun
að fá hann aftur. Viti einhver
hvað af jakkanum hefur orðið
er hann vinsamlega beðinn að
láta vita í síma 625500.
Hattur tapaðist
SVARTUR hattur frá Vera
Moda tapaðist í Heiðarási á
gamlárskvöld. Einhver hafði
fundið hann og sett hann á
girðingarstaur og eiganda hans
gert viðvart um það, en hattur-
inn hafði þá fokið eitthvað út
í buskann. Kannist einhver við
hattinn er hann vinsamlega
beðihn að hringja í síma 10213.
Húfa tapaðist
SVÖRT loðhúfa tapaðist fyrir
utan Iðnaðarmannahúsið á
Hallveigarstíg 27. desember sl.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 10716.
GÆLUDÝR
Hvolpar í heimilisleit
TVEIR gullfallegir 8 vikna
hvolpar óska eftir góðu heimili.
Upplýsingar í síma 92-37940.
Til Dominos Pizza
MÁTTUR
FYRIR ALLA!
Valda rangir lífshættir þér umhugsun?
Streita, reykingar, hreyfingarleysi eöa
rangt mataræöi.
Þaö er hœgt oð gera eitthvaö í málinu
MÁTTUR er forvarna- og endurhæfingarstöö, þar sem
fólk á öllum aldri á þess kost að rækta líkama og sál.
Kynntu þér alla kostina sem þér bjó&ast í MÆTTI
á svi&i líkamsræktar og uppbyggilegra námskei&a.
KJÖRÞYNGDARNÁMSKEIÐ
Þetta námskeið er ætlað þeim sem þurfa að grennast
gg er haldið fyrir 10-12 manna hópa.
Áhersla er lögð á að veita þátttakendum stuðning,
bæði með einstaklingsráðgjöf og samskiptum innan
hópsins. Fjallað verður um ýmsa þætti varðandi.
mataræði og atferli sem hefur áhrif á neysluvenjur.
Fylgst verður nákvæmlega með árangri og þátt-
takendur vigtaðir einu sinni í viku,- í upphafi og við
lok námskeiðsins veröa gerðar mælingar á húðfitu,
blóðþrýstingi og þoli.
Ásamt næringarfræðingi munu sál- og íþróttafræð-
ingur halda fyrirlestra.
KjÖRÞYNGDARNÁMSKEtÐ UNGLINGA
Markmið námskeiðsins er að aðstoða unglinga (of
feita sem of granna) að læra um mataræði og temja :
sér þjálfunarprógram sem hjálpar þeim að ná
kjörþyngd og háída henni. ;
Námskeiðið er í 12 vikur, undir stjórn næringar- og
íþróttafræðings.
LÍKAMSÞJÁLFUN
Dæmi um þennan þátt er; skokk, sund, göngur,
styrktar- og þolþjálfun í tækjum, liðleikaþjálfun, leik-
og þolfimi. Líkamsþjálfun fyrir konur með börn á
brjósti eða barnshafandi. Fólk í megrun, eldra fólk og
ýmsa sérhópa. Einkaþjálfun.
HEILSULYKILL
Fyrir þá sem vilja breyta lífsvenjum sínum.
Mat á þjálfunarástandi, mælingar, ráðgjöf og þjálfun.
STUÐNINGSTÍMAR
Stuðningstímamir eru fyrst og fremst ætlaðir þeim
sem þurfa á sérstakri þjálfun að halda, t.d. fólk sem
er að ná sér eftir siys, sjúkdóma eða hefur nýlokið
endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara og treystir sér ekki í
þjálfun án sérstakrar aðstoðar.
BÆTT HEILSA - BETRA LÍF! ;jí l|
Tveggja mánaða þjálfun með umsjónarkennara, fyrir
þá sem eru að byrja eftir langa hvíld. Mælt er þol og
blóðþrýstingur og haldinn er fyrirlestur um næringu.
Nemendur fá kennslubók um áhrif mataræðis og
líkamsþjálfunar á þyngdar og fitutap. Líkamsþjálfun f
tækjum og leikfimi eftir getu hvers og eins.
Allar nánarí upplýsingar ísíma 689915
FAXAFENI 14, REYKJAVÍK, SÍMI 689915