Morgunblaðið - 06.01.1994, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
Forsætisráðherra eftír fundi með aðilum í sjómannadeíluimi í kjölfar viðræðuslita
Lagasetning vegna aðildar
að kvótakaupum möguleg
Magni Hauksson
Lést í um-
ferðarslysi
MAÐURINN sem lést I umferðar-
slysinu á mótum Reykjanesbraut-
ar og Öldugiitu í Hafnarfirði í
fyrrakvöld hét Magni Hauksson,
26 ára gamall.
Hann var nemi í prentiðn, fædd-
ur 2. október 1967, til heimilis að
Huldubraut 27 í Kópavogi. Magni
lætur eftir sig unnustu.
Stúlka sem slasaðist hættulega
í árekstrinum liggur enn meðvit-
undarlaus á Borgarspítalanum en
var í gær talin úr bráðri lífshættu,
samkvæmt uppiýsingum Morgun-
blaðsins.
VIÐRÆÐUM um nýja kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna hjá
ríkissáttasemjara var slitið seinnipartinn i gær eftir að ljóst var að
tilgangslaust væri að halda áfram að óbreyttu. Fulltrúar samtaka sjó-
manna gerðu í kjölfarið forsætisráðherra grein fyrir stöðu deilunnar
og í gærkvöldi funduðu forsvarsmenn útvegsmanna og vinnuveitenda
einnig með forsætisráðherra. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði
eftir fundina seint í gærkvöldi, að ekki kæmi til álita að ríkisvaldið
gripi inn í deiluna með einhverjum þeim hætti sem skekkt gæti þann
grundvöll kjarasamninga sem lagður hefði verið á síðasta ári. Hins
vegar vildi ríkisvaldið gjarnan kanna með hvaða hætti það gæti komið
í veg fyrir þátttöku sjómanna í kvótakaupum með lagasetningu þann-
ig að meira hald yrði í ákvæðum kjarasamninga sem ættu að koma í
veg fyrir þau.
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðsmenn vinna að því að reyklosa Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Þjóðminjasafnið fylltist af reyk þegar eldur kom upp í gær
Eldvarnakerfi brást og ræst-
ingakona hringdi á slökkvilið
ELDUR kom upp Þjóðminjasafninu við Suðurgötu síðdegis í gær eft-
ir að glóð frá logsuðu hafði komist í þakklæðningar hússins, þar sem
verið var að leggja lokahönd á endurbætur. Að sögn Jóns Viðars
Matthíassonar varaslökkviliðsstjóra barst slökkviliðinu tilkynning um
eldsvoðann frá ræstingakonu safnsins en ekki frá Securitas, en húsið
er tengt öryggiskerfi þess. Eldurinn í þakinu var slökktur á skammri
stundu og húsið reyklosað. Engar skemmdir urðu á safnmunum, að
sögn Guðmundar Magnússonar þjóðminjavarðar.
_________________________________ Að sögn Jóns Viðars fór slökkvi-
liðið strax á staðinn með tiltækt iið
og var haft tal af iðnaðarmönnum
sem verið höfðu að logsjóða á þaki
hússins og var strax ljóst að hiti var
undir hluta þaksins þar sem verið
var að koma fyrir þakplötum úr eir.
Plötunum var svipt af á um hálfs
fermetra fleti og kom þá í ljós að
glóð hafði komist í tréklæðningu.
Eldurinn var slökktur á skammri
stundu en að sögn Jóns Viðars mátti
iitlu muna að glóðin bærist í þann
hluta þaksins sem einangraður var
með sagi en þá hefði að sögn hans
orðið mun erfiðara að hemja út-
breiðslu eidsins.
Vegna viðgerða á húsinu höfðu
safngripir verið íjarlægðir og voru
aldrei í hættu. Þjóðminjavörður
sagði á brunastað í gær að það
væri mat forvarða safnsins að ekki
Kosningarnar í vor
Vinstri við-
ræður hafnar
TIL STÓÐ að fyrsti óformlegi
viðræðufundur minnihlutaflokk-
anna í borgarsljóm Reykjavíkur
um sameiginlegt framboð við
borgarstjórnarkosningar í
Reylgavík í vor færi fram í gær-
kvöldi.
{ óformlegum viðræðum hafa
komið fram hugmyndir um, að borg-
arstjóraefni minnihlutaflokkanna
verði annaðhvort Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir alþingismaður eða Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra.
þyrfti að ráðast í viðgerðir eða end-
urbætur á safngripum vegna reyk-
skemmda.
Jón Viðar Matthíasson sagði á
brunastað í gær að sér virtist sem
brunavarnir safnsins væru í full-
nægjandi horfi þótt svo virtist sem
eitthvað hefði brugðist í þeim efnum
í gær. Að sögn Guðmundar Magn-
ússonar varð ekki annað séð af
skynjurum eldvamakerfis safnhúss-
ins, sem er beintengt Securitas, en
að kerfið hefði numið boð um eldinn.
í gærkvöldi fékk Morgunblaðið
staðfest hjá siökkviliðinu að því hefði
aðeins borist boð um eldinn klukkan
17.17 frá starfsfólki safnsins en ör-
yggisgæslufyrirtækið hefði ekki gert
viðvart.
Hannes Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Securitas sagði í gær-
kvöldi aðspurður um málið, að verið
væri að kanna það, en sýnt væri að
þegar fyrirtækið fékk boð um eldinn
var orðið ljóst að búið væri að kalla
út slökkvilið. Hannes sagði að ljóst
væri að sama öryggi væri fólgið í
því að beintengja kerfi við örygg-
ismiðstöð slökkviliðsins og örygg-
ismiðstöð Securitas.
í dag
Á úthafsveiðar
Togarirm Snorri Sturiuson sendur
á úthafsveiðar 4
Sólheimadeilun
Félagsmálaráðherra segir stjórn
Sólheima ekki virða lög 18
l dogskrá
Dr*urrur Kurouwa _J»|
: II ■Ui
u m
r
Þrettándagleði
Blysfarir og þrettándabrennur víða
um land í kvöld 19
Leiðari
Verkfall sjómanna 28
Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá
► Clint Eastwood á toppnum -
Frakkur útvarpsmaður í Minne-
sota - Fréttaritari CNN í hringiðu
heimsviðburða - Sean Connery -
CBS reynir að bæta sig
► Ágæti og Grænmeti sameinast
- Sementsverksmiðjan stokkar
spilin - Fjármál á fimmtudegi -
Spánskur banki í úlfakreppu -
Torgið
„Ég hef miklar áhyggjur af þessu
verkfalli vegna þess að mér sýnist
eftir þessar viðræður, að það sé mjög
langt í land. Menn sjá ekki út úr
þessu eins og staðan er í dag, nema
finnist einhver flötur sem ríkisvaldið
vildi eiga þátt í, ella gætu menn
verið að horfa fram á margra vikna
verkfall án nokkurs árangurs í raun-
inni,“ sagði Davíð.
Samband í dag
Hann sagðist myndu hafa sam-
band við aðila í dag og ræða við ríkis-
sáttasemjara og sjá, eftir að menn
hefðu hugsað málið, hvort þetta
gæti orðið leið til lausnar í þessu
mikla ágreiningsmáli. „Ég tel að
menn eigi að geta fundið leið sem
ætti að geta dregið mjög úr mögu-
leikurn til þess að stunda svona starf-
semi í óþökk sjómanna og jafnvel
útilokað það með öllu, en menn þurfa
að hugsa það sameiginlega.“
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, sagði að viðræðumar hafi
verið komnar inn á algera blindgötu
og ekkert augljóst framhald sé sjáan-
legt á þeim. Krafa sjómanna um
markaðstengingu fiskverðs sé í raun
ekkert annað en krafa um hærri laun
sem stefni í hættu þeirri kjarasátt
sem tekist hafi í landinu. Óskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasam-
bands íslands, vísar því algerlega á
bug og segir að barátta sjómanna
snúist um það að veija þau kjör sem
þeir eigi að hafa samkvæmt kjara-
samningum. Hann hljóti að gera þær
kröfur til útvegsmanna að þeir setj-
ist að samningaborði og ræði aðrar
kröfur sjómannasamtakanna en þær
sem snúi að kvótakaupum. Það snúi
sannanlega að útvegsmönnum.
Óskar sagði að sjómannasamtökin
sæju ekki aðra leið í deilunni en
tengja lágmarksverð á fiski verði á
fiskmörkuðum. Þó svo eigi að heita
að hér sé frjálst fiskverð, þá felist
það ekki í öðru en því að fiskkaup-
endur ákveði einhliða það fiskverð
sem þeir séu tilbúnir til þess að
greiða. Útvegsmenn fallist á það sem
sé kannski skiljanlegt þegar litið sé
til þess að 80% af útgerðinni sé í
eigu fiskvinnslunnar.
Kristján sagði að krafa um mark-
aðstengingu fiskverðs hafi sett málið
í hnút. í fyrsta lagi sé það alls ekki
á verksviði útvegsmanna og sjó-
manna að semja um fiskverð sín á
milli, heldur verði að semja um það
við fískkaupendur. í öðru lagi sé
markaðstenging ágæt þar sem hún
eigi við, en mikil og augljós vand-
kvæði fylgi því að gera hana að ein-
hverri allsheijar viðmiðun, auk þess
sem hún væri mikil ógnun við þau
tengsl veiða og vinnslu sem hefðu
verið byggð upp. Þá væri það furðu-
legt, að sjómenn, sem hefðu boðað
til þessara aðgerða vegna misnotk-
unar varðandi framsal veiðiheimilda,
væi-u allt í einu farnir að gera kjar-
akröfur í gegnum fiskverðshækkun.
♦ ♦ ♦--------------
Amalí
prófkjör
AMAL Qase, íslenskur ríkisborg-
ari af sómölskum ættum, hefur
ákveðið að gefa kost á sér í próf-
kjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
fyrir komandi borgarstjórn-
arkosningar.
Hún hefur ekki tilkynnt þátttöku
í prófkjörinu til Sjálfstæðisflokksins,
en býst við að gera það í dag.
„Ég held ég eigi erindi í borgar-
stjórn," segir Amal, „annars væri ég
ekki að þessu.“ Hún segist engu
geta spáð um gengi sitt í prófkjör-
inu. „Éf ég sigra er það gott mál,
ef ég tapa tek ég því eins og kona.“
Islenskur vísindamaður á ráðstefnu
Gos á Islandi
gæti stöðvað
ferðir flugvéla
ÞORVALDUR Þorðarson eldfjallafræðingur, sem starfar við
Háskólann á Hawaii, sagði á ráðstefnu í Bandaríkjunum í síð-
asta mánuði að öruggt væri að annað gos af stærðargráðu
Skaftárelda muni verða á Islandi. Hann segir að miklar Iíkur
séu á að það verði innan næstu 300 ára og í raun séu allt eins
miklar líkur á að það verði á lífsskeiði núlifandi íslendinga.
Segir hann að slíkt gos muni hafa mikil áhrif á daglegt líf Is-
lendinga og Evrópubúa, valda stórfelldum skemmdum á gróðri
og uppskeru á Islandi og í Evrópu og bendir á að áhrif þess
yrðu þau að það myndi stöðva ferðir flugvéla, drifnum þotu-
hreyflum, yfir Evrópu og Norður-Atlantshafi í mánuði eða jafn-
vel ár, en það réðist af krafti og lengd gossins.
Þorvaldur kynnti niðurstöður
rannsókna sinna á Skaftáreldum,
sem hann hefur unnið að frá ár-
inu 1983 í samvinnu við íslenska
og erlenda vísindamenn, á fundi
Sambands amerískra jarðeðlis-
fræðinga í San Francisco 6. des-
ember sl., en þar var fjallaö um
samspil eldgosa og veðurfars.
L.A. Times vitnar í erindi
Þorvaldar
Dagblaðið Los Angeles Times
birti grein um ráðstefnuna og
vitnaði meðal annars í fyrirlestur
Þorvaldar um Skaftárelda og þau
áhrif sem slíkt gos myndi hafa á
flugumferð á Norður-Atlantshafi
og þá miklu eyðingu gróðurs og
skóga sem gosmökkur úr sam-
svarandi gosi myndi hafa. Að
sögn blaðsins héldu vísindamenn
á ráðstefnunni því fram að eldgos
yrðu að jafnaði á um 100 ára
fresti, þar sem gasský og ösku-
mökkur næðu upp í mikla hæð
og hefðu alvarleg áhrif á and-
rúmsloft og náttúru á stóru
svæði.
Vöruðu vísindamennimir við
áhrifum slíkra náttúruhamfara
°g ' samtali við Morgunblaðið
sagði Þorvaldur, að þótt enginn
gæti sagt fyrir með vissu um
hvenær slíkt eldgos yrði, væri
full ástæða fyrir íslendinga að
gera sér grein fyrir hugsanlegum
afleiðingum þess.