Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 Félagsmálaráðherra segir Sólheima skuldsetta vegna framkvæmda Sljórn Sólheima hefur ekki virt lög og reglur STJÓRN Sólheima hefur ekki virt þau lög og reglur sem sambæri- legar stofnanir hafa gengist undir né sinnt lögbundnu samráði við félagsmálaráðuneytið og aðra tilskylda aðila vegna uppbygg- ingar og skipulagsbreytinga á Sólheimum, segir Jóhanna Sigurð- ardóttir félagsmálaráðherra. „Sambýli hafa verið byggð á Sól- heimum með lánsfé frá Byggingarsjóði verkamanna sem er and- stætt lögum og aldrei hefur verið sótt um starfsleyfi fyrir þessi sambýli sem skýrt er kveðið á um í lögum um málefni fatlaðra," segir Jóhanna. Hún segir sljórn Sólheima með formann hennar í fararbroddi hafa hafið rógsherferð á hendur sér og hún hafi upplýsingar um að sú herferð eigi að halda áfram. Jóhanna seg- ir skuldir Sólheima og Styrktarsjóðs Sólheima í lok árs 1992 nema um 89 milljónum kr. og að hinu aukna framlagi sem kraf- ist hefur verið sé m.a. ætlað að greiða upp í skuldir vegna upp- byggingar þar. Félagsmálaráðherra ■ kveðst telja fulla ástæðu til að Ríkisend- urskoðun leggi mat á skuldasöfn- un Sólheima vegna fjárfestinga heimilisins, sem sé til þess ætluð að rýma fyrir starfsemi óskyldri þjónustu við fatlaða, þ.e. stofnun heilsuhælis. Krafa Sólheima um rekstrar- framlög miðast við útreikninga Hagsýslu ríkisins frá 1993 um meðalkostnað á íbúa í sambýlum fatlaðra, en ráðuneytið miðar við það álit sitt að kostnaður á íbúa á Sólheimum sé mun lægri en meðalkostnaður. Jóhanna segir að framlög til Sólheima sl. tíu ár séu langt umfram það sem aðrar sam- bærilegar stofnanir hafi fengið, og ef gengið væri að kröfum stjórnarinnar nú myndi það leiða til um 120 milljóna kr. hækkunar á fjárveitingum til annarra sam- bærilegra sambýla,- þar sem ráðu- neytinu yrði þá ekki unnt að neita þeim um sambærilegar fjárveit- ingar. Á fundi með fréttamönnum í gær birti félagsmálaráðherra samanburð ráðuneytisins á fj ár- framlögum til Sólheima og Skála- túns í Mosfellsbæ, en báðar eru þær sjálfseignarstofnanir sem fóru á fjárlög 1983. Þar er fullyrt að fjárframlög til Sólheima hafi auk- ist um 99,8% á föstu verðlagi frá upphafi til loka tímabilsins en framlög til Skálatúns hafi aukist um rúm 19%. Jóhanna segir ennfremur að stjórnendur Sólheima hafi ekki skilað fjárlagatillögum sl. þrjú ár til ráðuneytisins og ekki skilað inn greiðslu- og rekstraráætlun fyrir síðasta ár. Hún segir framkomu stjórnarmanna hafa einkennst af hroka í garð ráðuneytisins og þeirra aðila sem heimilið eigi að hafa samskipti og samráð við, og að þessi framkoma hafi spillt svo mjög fyrir viðræðum deiluaðila að ráðuneytið hafi ekki séð annan kost en að leita til biskups til að hafa milligöngu um sættir á grundvelli tillagna sem ráðherra hefur lagt fram. Á blaðamannafundi JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Bragi Guðbrands- son aðstoðarmaður hennar á blaðamannafundinum í gær. Formaður segir Sólheima ekki óeðlilega skuldsetta „FRÁLEITT er að halda því fram að Sólheimar séu óeðlilega skuldsettir og þarf „sérstakt hugmyndaflug til að láta sér detta slíkt í hug,“ segir Pétur Sveinbjarnarson, formaður fulltrúaráðs og framkvæmdastjórnar Sólheima. Hann segir ósatt að krafa Sól- heima um aukið rekstrarframlag tengist byggingarframkvæmdum á staðnum, þar sem frá árinu 1986 hafi heimilinu borist um 100 millj- ónir króna í gjafa- og sjálfsaflafé sem notað hafi verið til að fjár- magna uppbyggingu á Sólheimum ásamt hagstæðum húsnæðislánum til fimmtíu ára. Pétur vísar því jafnframt á bug að framlög ríkis- ins vegna þjónustu fyrir fatlaða hafi verið notuð til uppbyggingar heiisuheimilis á Sólheimum. Hann segir að ná þurfi samkomulagi í deilunni án milligöngumanna. Skuldir innan við 4 milljónir að sótt hafi verið um lán til Hús- næðisstofnunar til uppbyggingar sambýla fyrir fatlaða vegna þeirr- ar skoðunar stjórnar að fatlaðir eigi sama rétt og aðrir einstakling- ar til húsnæðislána, og veitingin sýni að stofnunin sé á sama máli. „Sá sem þiggur lán verður ekki sakaður um að brjóta lög, heldur sá sem veitir það, auk þess sem þessi leið minnkaði til muna ásókn í Framkvæmdasjóð fatlaða, sem er hagkvæm lausn fyrir félags- málaráðuneytið,“ segir Pétur. Framlag skert Pétur segir að frá 1. júlí sl. hafi framlag til heimilisins verið skert um 2,7 milljónir kr. á mán- uði eða alls um 16 milljónir á þeim forsendum að rekstraráætlun hafi borist á röngu eyðublaði. Eftir að Sólheimar hafi kært þetta til um- boðsmanns Alþingis hafi ráðherra afgreitt það fé sem Sólheimum bar sem aukafjárveitingu upp á sömu krónutölu og skerðingin nam, sém væri veitt vegna ijárhagsvanda Sólheima. „En fjárhagsvandi vegna reksturs Sólheima stafaði einungis af því að ráðherra hafði ekki greitt út fjárveitingu á fjár- ,„gum til okkar,“ segir Pétur. Hann segir ástæður þess að Sól- Morgunblaðið/RAX Á Sólheimum FULLTRÚANEFND Sólheima ásamt nokkrum heimilismanna eftir blaðamannafund sem nefndin hélt í fyrradag. heimar hafi ekki skilað ijárlagatil- lögum þær að heimilið hafi í fimm ár beðið eftir gerð þjónustusamn- ings við ráðuneytið, en eitt höfuð- atriði hans sé að leggja mat á fjár- þörf. „Við biðum eftir gerð þjón- ustusamnings sem gæti tryggt starfsöryggi heimilisins til að geta sýnt okkar mat á rekstrinum, og það er ekki við okkur að sakast, að sá samningur hefur ekki verið gerður,“ segir Pétur. Hrafn Gunnlaugsson um stöðvun útvarpsráðs á endursýningu í Sjónvarpi Pétur segir Sólheima skulda alls innan við 4 milljónir króna og Styrktarsjóð Sólheima skulda alls um 69 milljónir króna, sem séu lán til 50 ára með afborgunarbyrði upp á 3 milljónir og öryggar tekj- ur á móti. „Það hefur ekki verið sótt um neina fjárveitingu til Al- þingis vegna fjárhagsvanda Sól- heima sl. 3 ár. Og nú eru engir erfiðleikar í fjármálum Sólheima eða Styrktarsjóðsins vegna fram- kvæmda,“ segir Pétur. Fullyrðingar félagsmálaráð- herra, að Sólheimar hafi virt lög að vettugi og ekki haft lögboðið samráð við tilskylda aðila, segir Pétur vera rangar. „Sólheimar hafa starfsleyfi sem útgefið var af Alexander Stefánssyni, þáver- andi félagsmálaráðherra, og þær breytingar sem gerðar hafa verið á rekstri heimilisins síðan grund- vallast á skipulagsskrá þess sem var útgefin af dómsmálaráðuneyt- inu í janúarmánuði sl. og var til meðferðar í félagsmálaráðuneyt- inu þar sem engar athugasemdir voru gerðar við hana. Fram- kvæmdir sjálfseignarstofnunar- innar Sólheima sem eru til end- urnýjunar því húsnæði sem er á staðnum, og ekki eru íjármagnað- ar af opinberu framkvæmdafé, þurfa að sjálfsögðu ekki önnur leyfi en einstaklingar og félög þurfa,“ segir Pétur. Hann segir „Ber vott um rítskoðun og ný vinnubrögð ráðsins“ Ástæðulaust að sýna þættina í 3. sinn, segir formaður útvarpsráðs ÁKVÖRÐUN útvarpsráðs um að stöðva endursýningu á þáttum Baldurs Hermannssonar, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins, ber vott um ný vinnubrögð ráðsins og ritskoðun þess, segir Hrafn Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri Sjó „Sumir vilja endilega setja upp ritskoðunargleraugu og aðrir horfa af meiri víðsýni yfir sviðið, en þetta kemur manni gjörsamlega í opna skjöldu," segir Hrafn og kveðst halda að geðshræring ráði þessari ákvörðun þar sem hún vitni ekki um skynsemi. Útvarpsráð kom saman til aukafundar í fyrradag vegna áætlaðrar endursýningar nk. sunnudag, og segir Halldóra J. Rafnar, formaður útvarpsráðs, að í samningi við Baldur Her- mannsson sé kveðið á um rétt til einnar endursýningar innan þriggja ára. „Aðeins eru nokkrir mánuðir síðan þættirnir voru sýndir og þrír af fjórum endursýndir. Þessir þættir voru mjög umdeildir á sínum tíma og sú söguskoðun sem þar birtist, og okkur fannst ástæðu- laust að fara að sýna þessa þætti í þriðja sinn sem íslenskt úrvals- efni,“ segir Halldóra. Hrafn segir að fundur ráðsins hafi verið haldinn án þess að for- maður útvarpsráðs eða aðrir sem þar eiga sæti hafi rætt við hann um hvernig endursýningin væri tilkomin. Hrafn segir það sam- kvæmt venju innan Sjónvarpsins að um áramót sé það efni endur- sýnt sem helst var fréttnæmt og fjallað um á liðnu ári, og enga skoðanakönnun þurfi að gera til að staðfesta að þættir Baldurs hafi verið umtalaðasta sjónvarps- efni liðins árs. „Við urðum varir við hér að menn höfðu misst mikið af fyrsta þættinum og umræðan. fór ekki í gang fyrr en með tilkomu annars og þriðja þáttar. Þá áttuðu menn sig á hvers konar efni var þarna á ferðinni. Við höfum fengið miklar og margar óskir um að efn- ið væru endursýnt vegna þess að menn hafa viljað mynda sér heil- stæða skoðun um það. Á sínum tíma hraðendursýndum við annan, þriðja og fjórða þátt, m.a. vegna truflana, en þær endursýningar hafa engin áhrif á rétt okkar til að sýna efnið endurgjaldslaust, svo að þetta hefði ekki kostað sjón- varpið neitt,“ segir Hrafn. Hann segir ákvörðun um að endursýna þáttaröðina hafa verið tekna sam- eiginlega af deildarstjórum og dag- skrástjórum Sjónvarpsins, því „þó að menn hafi mismunandi skoðan- ir á þessu efni voru þeir sammála um að þetta væri efni sem full ástæða væri til að endursýna,“ segir Hrafn. Vilja hjálpa Aðspurð um þá gagnrýni fram- kvæmdastjóra sjónvarpsins að um ný vinnubrögð og ritskoðun sé að ræða af hálfu ráðsins, segir Hall- dóra það ekki standast. „Fram- kvæmdastjórinn ætti að lesa út- varpslögin, í 20. grein þeirra stend- ur að ákvarðanir útvarpsráðs um útvarpsefni eru endanlegar. Það er einnig útúrsnúningur að tala um ritskoðun. Hlutverk hans hlýt- ur að vera að sjá til þess að íslensk- ir áhorfendur fái fjölbreytt og gott íslenskt efni til að horfa á, og við viljum einungis hjálpa honum til þess að gera það kleift," segir Halldóra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.