Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
17
Eigendum er til einföldunar skipt í
fjóra flokka: „dvergar" eru þeir sem
eiga minna en 0,1% af botnfisk-
kvóta viðkomandi árs, „litlir" eiga
0,1% til 0,3%, „stórir“ eiga 0,3% til
1% og „risar“ eiga meira en 1%.
Eins og fram kemur á myndinni
er fækkun mest í hópi „dverga",
þeim fækkar um 254 á fjórum
árum, eða um rúmlega fjórðung
(26,7%), en hlutfallslega er mest
fækkun meðal „lítilla" kvótaeig-
enda, um 31% (þar fækkar um 38
eigendur). Athyglisvert er að fjölg-
un á sér aðeins stað í hópi „risa“
(162,5%); þeir voru 16 árið 1991
en eru nú 26.
Önnur leið til að kanna þróun
eignarhalds í kvótakerfinu er að
bera saman hlutfallslega eign hóp-
anna fjögurra, þ.e.a.s. hlutdeild
þeirra í þeim heildarbotnfiskkvóta
sem úthlutað er hveiju sinni. Mynd
2 sýnir skiptingu botnfiskkvótans
1991 til 1994. Þar kemur fram að
hlutdeild „risanna" hefur aukist úr
25,5% í 47,2% (185% aukning), en
þessi aukning skýrist bæði af fjölg-
un í hópi þeirra og stækkun ein-
stakra útgerðarfyrirtækja. Til að
gefa nokkra hugmynd um þær
stærðir sem um er að ræða má
geta þess að hlutdeild „risanna"
árið 1991 nam u.þ.b. 84 þúsund
þorskígildistonnum, en aflaverð-
mæti þess kvóta jafngildir rúmlega
7,8 milljörðum króna á verðlagi
þess árs samkvæmt upplýsingum
fiskmarkaða. Hlutdeild „risanna“
árið 1994 nemur, þrátt fyrir um
20% kvótaskerðingu frá 1991, um
124 þúsund þorskígildistonnum,
sem gera má ráð fyrir að jafngildi
u.þ.b. 11,8 milljörðum króna, ef
miðað er við verðlag á þorski áður
en sjómannaverkfall hófst. A því
tímabili sem um er að ræða minnk-
ar hlutdeild „dverga“ úr 16,8% í
13,3% (20,8% minnkun), en vegna
stórfelldrar fækkunar í hópi þeirra
hafa þeir sem eftir eru úr meiru
að moða en áður.
Sams konar þróun kemur í ljós
þegar hugað er að skiptingu allra
þeirra fisktegunda sem bundnar eru
kvóta íþ.e. botnfisks, síldar, loðnu,
rækju, humars og hörpudisks).
Mynd 3 sýnir skiptingu heildarkvót-
ans á milli útgerða á sama hátt og
mynd 2. Hér auka „risarnir" hlut-
deild sína um rúmlega 200% á fjór-
um árum, en hlutdeild „dverga"
minnkar um 30,4%. Ef myndirnar
tvær eru bornar saman sést að jöfn-
uður er meiri þegar könnuð er skipt-
ing allra kvótategunda, en það skýr-
ist af sérhæfingu útgerða í tegund-
um öðrum en botnfiski.
Hvert stefnir kvótakerfið?
Niðurstöður okkar leiða í ljós að
botnfiskkvótinn hefur safnast á
færri hendur frá því að aflaheimild-
ir urðu framseljanlegar. í dag eiga
26 útgerðarfyrirtæki (,,risar“) tæp-
lega helming alls botnfiskkvótans
og 10% stærstu fyrirtækjanna eiga
yfir 80%. Á því fjögurra ára tíma-
bili sem hér var miðað við duttu
rúmlega 100 kvótaeigendur út úr
kvótakerfinu á ári hverju og voru
þeir nánast allir úr röðum minni
kvótaeigenda. Nokkuð ljóst er að
með sama áframhaldi verður allur
kvótinn í eigu fárra stórfyrirtækja
áður en langt um líður. Framan-
greind þróun endurspeglar e.t.v. þá
hagræðingu sem að var stefnt með
fijálsu framsali aflakvóta; sumir
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
hafa jafnvel talið æskilegast að eitt
fyrirtæki sæi um alla útgerð á ís-
landsmiðum. Það hlýtur hins vegar
að vera umhugsunarefni fyrir þjóð
sem byggir afkomu sína svo til ein-
göngu á fiskveiðum, og þar sem
aðgangur að fiskimiðum hefur löng-
um verið frjáls, að tiltölulega fá-
mennur hópur hluthafa nokkurra
fyrirtækja eignist réttinn til að
veiða um ókomna tíð allan fisk við
íslandsstrendur. Ef kvótinn er í
raun að verða varanleg einkaeign
handhafa aflakvóta, er rík ástæða
til að ætla að það „lénskerfi" sem
margir sjómenn telja að verið sé
að leggja drög að um þessar mund-
ir verði að veruleika í nánustu fram-
tíð.
Gísli Pálsson er prófessor í
mnnnfræði við Háskóla íslands.
Agnar Helgason stundar nám og
rannsóknir við sama skóia.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Námskeið í íslensku fyrir útlendinga
Á vormisseri verða haldin námskeið í ís-
lensku fyrir útlendinga á vegum Endur-
menntunarstofnunar og skorar í íslensku
fyrir erlenda stúdenta í Háskóla íslands.
Kennt verður frá 7. febrúar til 10. maí og
mun kennsla fara fram tvisvar sinnum í
viku, síðdegis, úbilinu kl. 17.15-20.45.
Leiðbeinendur verða Auður Einarsdóttir,
BA, María Anna Garðarsdóttir, BA, og
Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir, BA.
Byrjendanámskeið: 8 stundir á viku, sam-
tals 100 stundir. Verð: 35.000 kr.
Framhaldsnámskeið I: 8 stundir á viku,
samtals lOOstundir. Verð: 35.000 kr.
Framhaldsnámskeið II: 4 stundir á viku,
samtals 50 stundir. Verð 23.000 kr.
Skráningu lýkur 20. janúar.
Upplýsingar hjá Endurmenntunarstofnun
HI í símum 694923, 694924 og 694925.
„..Greitt
oðmm
gæiðsluseðlum
Margrét Hólm, Bergþórugötu 51.
Það er mikill munur að
þurfa ekki að ganga fyrir
hvers manns dyr og rukka
eins og áður.
Nú eru greiðsluseðlarnir
sendir beint heim til fólks
og þeir greiddir með öðrum
greiðsluseðlum.
Innheimtir húsgjald
Greiðir reikninga á eindaga
Dráttarvextir reiknaðir
sé þess óskað
Yfirlit yfir rekstur félagsins
Bókhaldsmappa í kaupbæti
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna