Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
BJORGUNARAFREKIÐ I VOÐLAVIK
ím , ’ .
/A, >y
Wssmí § 1 yíM
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Komnir til
Neskaupstaðar
TVÆR björgnnarþyrlur Varnar-
liðsins lentu óvænt á bilastæðinu
við kaupfélagið á Neskaupstað
síðdegis í gær. Enginn bæjarbúa
vissi að þeirra væri von og allra
síst á þessum stað. Þyrlurnar
voru með tvo menn af Goðanum.
Þeir voru þrekaðir og var farið
með þá beint á sjúkrahúsið til
skoðunar og aðhlynningar.
Myndin var tekin þegar heima-
menn sem áttu leið um kaupfé-
lagsplanið hjálpuðu Niels Hansen
skipverja af Goðanum inn í bíl
sinn til að aka honum á sjúkra-
húsið.
„Björgun ómöguleg nema
með stórri og góðri þyrlu“
BJÖRGUNARÞYRLUR Vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli björguðu
um miðjan dag í gær sex skipverjum af björgunarskipinu Goðanum
sem strandaði í Vöðlavík snemma í gærmorgun. „Björgun var ómögu-
leg nema með stórri og góðri þyrlu,“ sagði Jón Trausti Guðjónsson,
björgunarsveitarmaður, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Einn
skipveijinn, 39 ára gamall, fórst. Ekki er hægt að birta nafn hans
að svo stöddu.
„Við komum auga á neyðarblys
þegar við vorum að koma niður í
fjöruna á tíunda tímanum og sáum
þá að Goðinn var strandaður beint
utan við Bergvíkina. Þá voru menn-
imir inni í brúnni og þaðan gáfu
þeir okkur Ijósmerki, en fóru svo
fljótlega upp á brúarþakið. Það var
hörmulegt að standa í fjörunni rétt
hjá mönnunum og geta ekkert gert
til hjálpar, þeirri líðan verður ekki
lýst með orðum,“ sagði Jón Trausti
Guðjónsson, björgunarsveitarmað-
ur úr slysavamarsveitinni Brimrún
á Eskifirði. Hann var ásamt fjórum
öðrum björgunarsveitarmönnum,
þremur úr áhöfn Bergvíkur og ein-
um fulltrúa tryggingafélags Berg-
víkur í Vöðlavíkinni til að freista
þess að losa Bergvíkina af strand-
stað, en þar strandaði skipið í lok
síðasta árs. Búið var að koma vír
úr Goðanum í Bergvíkina og tóg
úr björgunarskipinu beið eftir varð-
skipi sem væntanlegt var til aðstoð-
ar næstu daga.
Brotsjór á Goðann
Jón Trausti hafði eftir skipveijum
að mikið brot hefði komið á Goðann
bakborðsmegin um kl. 6 í gærmorg-
un og skömmu síðar kom önnur
fyila. Tveir menn vom í brúnni,
skipstjórinn og hinn látni, en hann
tók út og rak lík hans upp í fjöruna
skömmu fyrir hádegi. Hinir skip-
verjamir fímm voru niðri í skipi,
flestir í koju. „Strax við fyrra brot-
ið eyðilögðust öll stjómtæki í
brúnni, það drapst á vélinni og raf-
magnið fór af.“
Skipið rak stjórnlaust að landi
undan austanrokinu og tók niðri á
grynningum rúma 150 metra fyrir
utan Bergvíkina sem liggur uppi í
sandfjöru. „Skipverjamir gátu leit-
að sér skjóls í brúnni fyrst í stað,
en þegar við sáum til Goðans á tí-
unda tímanum var farið að fylla
mjög inn í hann og þeir urðu að
forða sér upp á brúarþakið," sagði
Jón Trausti. „Þar gekk brimið yfír
þá og þeir hefðu aldrei getað hald-
ið sér allt þar til hjálp barst. Það
varð þeim til lífs að þeim tókst að
binda sig fasta við þakið með ólum
sem em á flotgöllunum.“
Björgunarbátarnir mannlausir
Jón Trausti og félagar hans köll-
uðu þegar út allt tiltækt björgunar-
lið, en veður var mjög slæmt og
enginn möguleiki á að koma línu út
í Goðann af þeirri ástæðu einni, auk
þess sem skipið var langt úti og
Bergvíkina bar á milli.
„Björgun var ekki möguleg nema
með stórri og góðri þyrlu, svo við
urðum að standa þama í fjöranni
og bíða eftir hjálpinni. Við komum
fljótt auga á tvo uppblásna gúm-
björgunarbáta frá Goðanum, sem
rak upp í ósinn. Við vissum þá ekki
hvað það vom margir um borð í
Goðanum og ætluðum að kanna
hvort einhverjir væm í bátunum.
Til þess notuðum við jarðýtu og
ókum út í, til að freista þess að ná
til bátanna. Við vomm ekki komnir
langt þegar það kom fylla á ýtuna
og drapst á henni. Það var þó aldr-
ei nein hætta á ferðum þar oggúm-
bátamir reyndust mannlausir."
Ekkert neyðarkall
Þór Magnússon í björgunarstöð
Slysavarnafélags íslands í Reykja-
vík sagði að um klukkan 10.15
hefði borist tilkynning frá formanni
björgunarsveitarinnar Brimrúnar á
Eskifírði um strand Goðans. Þar
hefði verið bylur og hvasst, aðeins
400-500 metra skyggni og 8 vind-
stiga rok. Neyðarkall hefði ekki
heyrst frá skipinu og upplýsingar
um strandið borist frá mönnunum
sem fóm niður á sandinn um morg-
uninn til að undirbúa björgun Berg-
víkur úr fjöranni.
Þór sagði að björgunarsveitimar
í nálægum bæjum hefðu verið kall-
aðar út og Landhelgisgæslan beðin
um aðstoð. Þór sagði að um klukk-
an 10.30 hefðu þau boð borist að
björgunarsveitarmenn sæu menn
uppi á brúarþakinu. Mennimir hefðu
hins vegar lítið getað gert í fjör-
unni. Goðinn hefði verið svo langt
úti og ekki borist að landi undan
briminu eins og búist hefði verið
við. Talið er að skipið hafi stoppað
á grófum botni með stefnið í áttina
að landi. Fyrir hádegi var tilkynnt
um að einn skipverjann hefði rekið
{land og væri hann látinn.
Björgunarsveitarmennimir höfðu
línubyssu og um hádegi reyndu
þeir að skjóta línu í áttina að Goðan-
um en það tókst ekki vegna þess
hvað færið var langt og hvasst á
móti.
Menn úr björgunarsveitunum á
Eskifirði, Reyðarfirði, Neskaup-
stað, Egilsstöðum og Fáskrúðsfírði
héldu áleiðis út með Reyðarfírði og
upp á Víkurheiði milli fjarðarins og
Vöðlavíkur. Vom þeir með snjó-
ruðningstæki og snjóbíla. Að sögn
Hjalta Sigurðssonar, leitarstjóra,
sóttist ferðin seint vegna veðurs.
Illa horfði með björgun
Helgi Hallvarðsson, skipherra í
stjómstöð Landhelgisgæslunnar,
sagði að útgerðarmaður Bergvíkur
hefði óskað eftir aðstoð þyrlu vegna
strands Goðans klukkan 10.15.
Þyrluáhöfnin hafí verið kölluð út
og óskað aðstoðar björgunarsveitar
Vamarliðsins. Veðurútlit hefði verið
dökkt. Á leiðinni hefði verið hvasst,
snjókoma og ísing í lofti og auk
þess hvassviðri á strandstað. Tvær
vamarliðsþyrlur hefðu lagt af stað
klukkan 11.30 ásamt Herkúles elds-
neytisvél og þyrla Landhelgisgæsl-
unnar farið tíu mínútum seinna.
Gæsluþyrlan hefði síðan orðið að
snúa við yfir Þjórsá vegna veðurs
og ísingar og Herkúles-flugvél
Varnarliðsins um svipað leiti vegna
bilunar. Varnarliðsþyrlurnar hefðu
hins vegar haldið áfram austur en
vegna þess hvað leiðin hefði verið
löng og seinfarin vegna mótvinds
hefðu þær orðið að taka eldsneyti
á Höfn.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
hefði verið í sambandi við stjórnstöð
Slysavarnafélagsins og auk þess við
þijá togara sem voru fyrir austan
land pg sigldu inn að Vöðlavík.
Einn þeirra sigldi inn á víkina og
var dælt úr honum olíu rétt áður
en þyrlurnar komu á vettvang, til
að freista þess að lægja öldurnar,
en það hafði lítið að segja. Helgi
sagði að mikill sjór hefði verið í
Vöðlavík og slæmt veður og því
hefði ekki verið hægt að reyna
björgun af sjó. Þar sem ekki hefði
heldur verið búnaður til björgunar
í land hefði illa horft um björgun
mannanna af brúarþakinu.
Varnarliðsþyrlunar komust til
Hafnar klukkan 13.52 og strax og
búið var að setja á þær eldsneyti
héldu þær til Vöðlavíkur. Þær vom
yfir strandstað um klukkan 15.
Ónnur þyrlan lét tvo menn síga
niður í skipið og hífði fjóra skip-
brotsmenn upp í staðinn og fór með
upp í fjöru. Síðan tóku þær menn-
ina tvo sem eftir voru og var búið
að ná öllum mönnunum úr skipinu
um kl. 15.40. „Þetta er mikið afrek
og vel að verki staði hjá Varnarliðs-
mönnunum," sagði Helgi Hallvarðs-
son, „og sýnir að þetta em vel þjál-
faðir menn með góð og öruggtæki."
Lent á Neskaupstað
Þyrlan fór síðan með þá tvo skip-
brotsmenn sem mest voru þrekaðir,
Níels Hansen og Ómar Sigtryggs-
son, til Neskaupstaðar og lenti með
þá á bílaplaninu fyrir utan kaupfé-
lagið. Farið var með þá á sjúkrahús-
ið til skoðunar og aðhlynningar og
var líðan þeirra góð í gærkvöldi,
samkvæmt upplýsingum læknis á
sjúkrahúsinu.
Þyrlurnar voru á Neskaupstað í
nótt.
Skipbrotsmennirnir fjórir sem
urðu eftir í Vöðlavík, Kristján
Sveinsson skipstjóri, Sigmar Björg-
vinsson, Kristbjörn Guðlaugsson og
Marijan Marino Krajacic,_ voru í
sumarbústað á eyðibýlinu ímastöð-
um í gær. Þegar björgunarsveitar-
mennirnir fréttu af björgun skip-
verjanna á Goðanum voru þeir enn
að bijótast yfír Víkurheiðina. Þeir
snem þá hluta mannanna við, en
nokkrir menn héldu áfram á þremur
snjóbílum og jarðýtu, en hana á að
nota á morgun til að freista þess
að losa ýtuna sem drapst á í fjör-
unni. Um klukkan 20 fóru nokkrir
björgunarsveitarmenn og skipveij-
arnir fjórir til baka upp á Víkur-
heiði og vom þeir væntanlegir til
Eskifjarðar um miðnættið. Átta
menn urðu eftir, meðal annars í
þeim tilgangi að reyna að bjarga
jarðýtunni, en hún hefur verið notuð
við undirbúning björgunar Bergvík-
ur.
Björgun tókst framar öllum
vonum
Sigmar Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
tryggingafélaga og Björgunarfé-
lagsins hf. sem gerir út Goðann,
sagði að það væri sorglegt að einn
maður úr áhöfn Goðans hefði farist
en það væri samdóma álit trygg-
ingafélaganna sem ættu Björgunar-
félagið að björgunin hefði tekist vel
og framar öllum vonum. „Ber að
þakka það öllum sem þar komu að,
Slysavarnafélaginu og björgunar-
sveitum þess og Landhelgisgæsl-
unni og ekki síst frábærum árangri
Varnarliðsmannanna," sagði Sig-
mar.
Varðskipið Týr er á leiðinni aust-
ur en ekki er vitað með framhald
björgunaraðgerða. Flakið af Goðan-
um er fyrir utan Bergvíkina og
gæti það gert björgunina enn erfíð-
ari. Jón Trausti Guðjónsson sagði
í gærkvöldi að Goðinn væri nánast
á kafí og sæist lítið af honum, hann
væri að brotna eða grafast í sandinn
og ætti hann ekki von á að hann
færðist nær Bergvíkinni.