Morgunblaðið - 11.01.1994, Side 21

Morgunblaðið - 11.01.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994 21 Auglýsing HHI til siðanefndar ÍSLENSKA auglýsiiigastofan hefur kært auglýsingu frá Happdrætti Háskóla íslands, HHI, sem birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn laugar- dag, til siðanefndar um auglýsingar, en IA sér um auglýsingar fyr- ir happdrætti DAS. Olafur Ingi Olafsson hjá Islensku auglýsingastof- unni segir að í kærunni séu gerðar athugasemdir við fullyrðingar um vinningshlutfall hjá DAS og einnig upphæð greiddra vinninga. Hallur Leopoldsson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Argus sem gerði auglýsinguna, segir að markmið auglýsingarinnar hafi verið að sýna fram á stærðarmuninn í þessum happdrættum, en einn- ig var gerður samanburður við SIBS, Lottó og getraunir í auglýsing- unni. í auglýsingunni er því haldið fram að vinningshlutfall bæði DAS og SÍBS sé um 50% og hafi um 100 milljónir verið greiddar út til vinningshafa hvors happdrættis um sig. „Með auglýsingunni er verið að draga DAS inn í auglýsingastríðið milli SÍBS og Happdrættis Háskóla íslánds,“ segir Ólafur. Hann bendir á að happdrættis ár DAS hefjist Sjóðvélar í öll kvik- myndahús SJÓÐVÉLAR verða væntanlega komnar í öll kvikmyndahús innan tíðar, en að sögn Ragnars Gunn- arssonar forstöðumanns eftirlits- skrifstofu ríkisskattstjóra hafa þau kvikmyndahús sem ekki eru þegar komin með sjóðvélar gert viðeigandi ráðstafanir til að koma sér þeim upp. Að sögn Ragnars reyndist af- greiðslufrestur á skráningarkerfum vera lengri hjá nokkrum kvik- myndahúsanna en svo að þau gætu uppfyllt sett skilyrði í tæka tíð, en síðastliðið haust var þeim gert að koma sér upp sjóðvélum fyrir ára- mót. Hann sagði að eftirlitsskrif- stofan fylgdist mjög náið með fram- vindunni hjá þessum aðilum og hann reiknaði með því að þetta yrði komið í lag á næstu vikum. „Þeir hafa látið okkur fylgjast með gangi mála og jafnvel verið að leita eftir ráðleggingum hjá okkur, þannig að við fylgjumst mjög náið með þessu,“ sagði hann. ekki fyrr en í maí og þá fari þeir af stað með auglýsingar. „Við vilj- um ekki byija með þessar yfirlýs- ingar á bakinu," segir hann. „Við teljum að allt sé eins og best verður á kosið í þessari auglýs- ingu,“ segir Hallur. Hann segir að tölurnar í auglýsingunni hafi verið fengnar þannig að fyrst hafi verið reiknuð út heildarvelta happdrætt- isins með því að margfalda fjölda happdrættismiða með verði þeirra. Síðan hafi vinningar eins og þeir birtust í vinningaskrá verið lagðir saman og hlutfall þeirra af heildar- veltunni happdrættisárið 1992- 1993 reiknað. Bestu fáanlegar tölur Ólafur segir að ef vinningshlut- fallið þetta ár sé skoðað komi í ljós að vinningshlutfallið hafi verið nærri 60%, og greiddir vinningar numið 109 milljónum króna. Hallur segir aftur á móti að við útreikninga hafi verið notaðar bestu fáanlegar tölur og meðal annars stuðst við reglugerðir happdrætt- anna. „Ég hef ekki séð neitt rétt- ara,“ segir hann. „Við érum einfald- lega að segja að HHÍ sé langstærst og lítum á þetta sem moldviðri til að villa um fyrir neytendum." SÍBS, DAS og HHÍ eru flokka- happdrætti og segir Ólafur ekki rétt að bera_ þau saman á þennan hátt því HHÍ hafi einkarétt á pen- ingahappdrætti en hin tvö eru vöru- happdrætti. Ólafur Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri happdrættis SÍBS segir að hjá SÍBS hafi um 60% veltu farið í vinninga. „Þetta er æði gróft,“ segir Ólafur. „Við ætl- um ekki að kæra þó svo að auglýs- ing HHÍ sé hæpin.“ Hann segir að velta happdrættisins á síðasta ári hafi verið 208,6 milljónir og þar af hafí 124,7 milljonir króna farið í vinninga, eða um 60%. Arnimörkum háð að gera lög afturvirk ARI Edwald, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir ekki unnið að neinum undirbúningi breytinga á skaðabótalögum í dómsmála- ráðuneytinu í þá veru að bæta eftir ákvæðum laganna tjón þeirra sem slösuðust áður en lögin tóku gildi en áttu óuppgert við trygg- ingafélög við gildistökuna. Hann telur slíka breytingu miklum annmörkum háða. Auður Guðjónsdóttir, hjúkrun- arfræðingur á Landspítalanum, ritaði grein í Morgunbiaðið sem birtist sl. miðvikudag undir yfir- skriftinni „Börnin á gula ljósinu". í greininni kemur fram að hún hafi óskað eftir endurskoðun á skaðabótalögunum við allsheijar- nefnd alþingis sl. haust og að lagt yrði fram frumvarp til, laga þar sem bætt yrði við skaðabótalögin ákvæði um að börn og ungmenni er hlotið hafi meira en 50% örorku og slösuðust fyrir 1. júlí 1993, þegar skaðabótalögin tóku gildi, og áttu þá óuppgerðar skaðabætur fái skaðabætur uppgerðar sam- kvæmt lögunum. Þeir sem slösuð- ust fyrir 1. júlí 1993 fá bætur eftir eldri réttarvenjum. Nýju lögin gilda um atvik sem verða eftir gildistöku þeirra. Ari segir ekki unnið að undir- búningi slíkrar breytingar á lögunum í dómsmálaráðuneytinu. Hann segir ljóst að fyrir mikið slasað fólk verði aliharkaleg skil frá eldra réttarástandi til hins nýja en gamla ástandinu hafi orð- ið að breyta. Hann segir það mjög miklum annmörkum háð að láta einstök atriði laganna gilda aftur fyrir þapn tíma er lögin sjálf tóku gildi. „Ég tel það liggja í hlutar- ins eðli að afturvirkni laga sé jafn- an mjög óheppileg þótt ekki sé um jafn flóknar og róttækar breytingar að ræða og þarna er verið að óska eftir.“ Ari segir að þar sem greiðslur til tjónþola byggi á tryggingum þá sé erfitt að réttlæta að leggja hærri skaða- bótagreiðslur á tryggingar sem voru ekki með iðgjöld vegna þeirra á einhveijum tilteknum tíma. >> > Atakið „Islenskt já takk“ reyndist árangursríkt íslenskt já takk FRÁ blaðamannafundi sem aðstandendur átaksins „Islenskt já takk“ héldu til að kynna niðurstöð- ur viðhorfskönnunar IM Gallup. 7 0% segjast frekar velja íslenskar vörur SAMKVÆMT niðurstöðum viðhorfskönnunar sem ÍM Gallup gerði á vegum aðstandenda átaksins „íslenskt já takk“ í desem- ber s.l. telja 82% aðspurðra að átakið hafi skilað miklum árangri og rúm 70% segjast frekar velja íslenskar vörur nú en áður. Að átakinu standa ASI, BSRB, Islenskur landbúnaður, Samtök iðnaðarins og VSÍ og verður auglýsingaherferð haldið áfram síðar í þessum mánuði, en jafnframt er stefnt að því að hefja átak á fleiri sviðum, til dæmis varðandi ferðaþjónustu. í viðhorfskönnun Gallup var spurt hvort með kaupum á ís- lenskum vörum mætti stuðla að minnkandi atvinnuleysi, hvort viðkomandi hefði tekið eftir aug- lýsingum átaksins í fjölmiðlum, hversu miklum árangri átakið hafi skilað að mati viðkomandi og hvort átakið hefði fengið við- komandi til að velja frekar ís- lenskar vörur en áður. Rúm 88% töldu að með því að velja íslenskt mætti stuðla að minnkandi at- vinnuleysi, og aðeins 12% sögðu nei við þessari spurningu. Þá reyndust tæp 99% aðspurðra hafa tekið eftir auglýsingaátak- inu „íslenskt já takk“, og hvað varðar mat á árangri átaksins þá töldu um 82% að það hafi skilað miklum árangri, en þar af voru um 23% sem töldu átakið hafa skilað mjög miklum árangri. Þegar spurt var hvort átakið hafi haft þau áhrif að viðkom- andi veldi frekar íslenskar vörur nú en áður töldu rúm 70% að svo væri. Á blaðamannafundi þar sem niðurstöður könnunarinnar voru kynntar kom m.a. fram að nú væri verið væri að kanna hjá ís- lenskum fyrirtækjum hvaða áhrif átakið hefði haft á rekstur þeirra, og þegar væri ljóst að hjá sumum fyrirtækjanna hefði framleiðslu- aukning og sala verið 20-30% meiri en áður en átakið hófst. Góður kostur fyrir veturinn Suzuki Vitara er einstaklega lipur og sparneytinn jeppi, byggður á grind og búinn frábærri fjöðrun Suzuki Vitara Vitara er með vandaðri innréttingu, vökvastýri, rafdrifnum rúðuvindum og samlæs- ingum auk fjölda annarra kosta. Hann fæst 5 gíra, beinskiptur eða með $ SUZUKI sjálfskiptingu Verð, 3 dyra, kr. Verð, 5 dyra, kr. 1.785.000. 2.180.000. SUZUKIBÍLAR HF. SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI 685100 Komið og reynsluakið * Bíllinn á myndinni er með aukabúnaði sem ekki er inni- falinn í verði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.